Morgunblaðið - 22.07.1980, Síða 47

Morgunblaðið - 22.07.1980, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ 1980 47 Richard Qucen, — með foreldrum sínum. Hann sýndi í engu biturð né fjandskap gegn írönsku námsmönnunum. Queen ekki bitur i garð námsmanna Waahington, 21. júlí AP. JIMMY Carter, forseti Banda- ríkjanna átti á laugardag klukkustundar langan fund með Richard Queen, sem látinn var laus frá íran fyrir skömmu vegna vanheilsu. Carter sagði að lengstum hefði Queen verið haldið i Ijóslausum kjaliara og hafi loftleysi þjáð Queen. Queen hélt í dag blaðamanna- fund. Hann sagði, að varðmenn hans hefðu í engu reynt að snúa honum gegn Bandaríkjunum. „Engin tilraun var gerð til heila- þvotts," sagði Queen. Hann sagði, að meðferð hefði verið góð og sýndi í engu biturð né fjandskap gegn írönsku náms- mönnunum, sem héldu honum föngnum. Hann hafnaði því al- farið, að námsmennirnir væru kommúnistar. Hann sagði, að hann hefði ekki verið í sambandi við aðra gísla og verið einangr- aður frá umheiminum. Þannig hafði hann enga hugmynd um hina misheppnuðu björgunar- tilraun fyrr en eftir að hann var látinn laus. Hann sagðist vonast til, að aðrir gíslar verði látnir lausir innan skamms og sagði að hann blygðaðist sín svolítið fyrir að vera látinn laus úr haldi á meðan aðrir Bandaríkjamenn væru í haldi í Iran. Queen gekk óstöðugum fótum framhjá hundruðum manna, sem óskuðu honum velfarnaðar. Við hlið hans gekk Edmund Muskie, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna. Pólland: V erkf allaaldan er nú í rénun Varsjá, 21. júlí, AP. VERKFALLSALDA sú, sem und- anfarið hefur gengið yfir Pól- land, er nú í rénum. Víðast hvar hafa verkamenn snúið aftur til vinnu. Þó segja andófsheimildir, að enn sé verkfall i stáliðjuveri í borginni Stalowa Wola i Mið- Póllandi og einnig halda verka- menn áfram verkfalli í verk- smiðju í sömu borg. Pólska ríkisútvarpið skýrði frá því í dag, að tekist hefði að koma á sættum og að landbúnaðarverk- smiðjan í Argomet væri aftur tekin til starfa. Þá skýrði útvarpið frá því, að afurðir verksmiðjunnar væru fluttar í járnbrautarlestum á markaði. Þar með var gefið í skyn, að jámbrautarverkamenn hefðu aftur snúið til vinnu sinnar. Mikil mótmælaalda hefur geng- ið yfir landið í kjölfar verðhækk- ana, og versnandi lífskjara fólks. Pólsk yfirvöld hafa í nokkru látið undan síga með því að samþykkja launahækkanir til verkafólks á afmörkuðum svæðum. Þar með þykja yfirvöld hafa viðurkennt vaxandi efnahagsvanda og óttann við upplausnarástand í landinu. Kínver jar ásaka KGB um njósnir i\ir* veíIvöi\/\ uianriKisraouneyi- id ásakaði i day Sovetmenn Þetta geröist 22. júlí njósnir i landinu. um að koma af stað orðrómi um að tveir ís- raelsmenn hefðu fyrir skömmu verið í landinu og að hefja oliulcit i samvinnu við Vietnama á kínversku landi. 1978 — Indira Gandhi fv. forsætis- ráðherra ákærð á Indlandi. 1974 — SÞ kunngera vopnahlé milli Grikkja og innrásarliðs Tyrkja á Kýpur. 1973 — Sex mánaða ferð sovézks geimfars til Mars hefst. 1969 — Franco velur Juan Carlos eftirmann sinn á Spáni. 1968 — Israelskri farþegaflugvél rænt og beint til Alsír. 1967 — Um 100 farast í jarðskjálfta í Litlu-Asíu. 1965 — Sir Alec Douglas-Home, leiðtogi brezkra íhaldsmanna, segir af sér. 1962 — Fyrsta bandaríska tilraunin til að kanna Venus fer út um þúfur. 1950 — Leopold III snýr aftur til Belgíu eftir sex ára útlegð. 1944 — Bretton Woods ráðstefnunni lýkur. 1943 — Bandamenn taka Palermo, Sikiley. 1934 — Starfsmenn FBI í Chicago skjótaglæpamanninn John Dillinger til bana. 1933 — Bandariski flugmaðurinn Wiley Post kemur úr fyrstu flugferð eins manns umhverfis jörðina. 1847 — Mormónarnir koma til Salt Lake City. 1812 — Orrustan um Salamanca Sigur Wellingtons á Frökkum. 1691 — Her Breta og Hollendinga sigrar Frakka við Aghrim á Ind- landi. 1298 — Orrustan um Falkirk; Sigur Englendinga á Skotum. Afmæli. Gregor Mendel austurrísk- ur erfðafræðingur (1822—1884). Andlát. 1922 Michael Collins, þjóð- ernisleiðtogi — 1950 Mackenzie King, stjórnmálaleiðtogi — 1967 Carl Sandburg, skáld. Innlent. 1880 íslenzka fálkamerkið dregið í fyrsta sinn á stöng á kaupskipinu „Karen" (Kapt. Toft) — 1245 d. Kolbeinn ungi Arnórsson — 1636 d. síra Magnús Ólafsson í Laufási — 1684 d. Gísli Þorláksson bp — 1876 Vesturfarar af Norður- landi koma til Quebec — 1912 Hannes Hafstein skipaður ráðherra — 1967 Stærsta stálskipinu, „Eld- borgu“, hleypt af stokkunum — 1972 Tollasamningur við EBE — 1974 Óiafur Jóhannesson hafnar viðræð- um við Geir Hallgrímsson — 1896 f. Tryggvi Ófeigsson — 1901 f. dr. Guðni Jónsson. Orð dagsins. 111 nauðsyn er aldrei nauðsyn, en alltaf ill. — Óþekktur höfundur. Sovétmenn 265 milljónir Moskvu. 21. júlí AP. SOVÉTMENN voru 265,5 milljón- ir þann 1. júlí síðastliðinn. Frá þessu var skýrt í Moskvu í dag. Frá 1. júlí 1979 til jafnlengdar á þessu ári fjölgaði Sovétmönnum um 2,1%. í gær var tilkynnt, að þrír menn hefðu verið dæmdir fyrir njósnir í þágu Sovétríkjanna í Heilongj- ianghéraði í norðurhluta landsins. „Það er engin tilviljun að upp hefur komist um marga njósnara í landinu . ... KGB hefur aldrei látið af iðju sinni í Kína,“ sagði í tilkynningu kínverska utanríkis- ráðuneytisins, Þá hafnaði ráðu- neytið því alfarið, að ísraelskir embættismenn hefðu heimsótt landið fyrir skömmu og áSakaði Sovétmenn um að hafa komið þeim orðrómi af stað. Loks fordæmdi ráðuneytið ný- legan samning Sovétmanna og Víetnama um olíuleit á Xisha og Nanshaeyjum. Bæði Víetnamar og Kínverjar gera tilkall til þessara eyja. Sovéskir embættismenn segja, að þessar árásir Kínverja nú, séu til að beina athyglinni frá Olympíuleikunum í Moskvu. Kín- verjar senda ekki lið til Moskvu í mótmælaskyni við innrás Sovét- manna í Afganistan. Ung hjón myrt Lundúnum. 20. júli AP. UNG hjón. sem fyrir tveimur árum voru gefin saman í hjónaband og vígslu þeirra var sjónvarpað um gervallt Bretland. fundust í dag i íbúð sinni — myrt. Konan var með harni. Baxði voru stungin til bana og var aðkoma í íbúð þeirra ákaflega ljót, — blóð- blettir víða. Lögreglan segist ekki vita ástæðu morðanna. Árið 1978 urðu hjónin fræg um Bret- landseyjar þegar brúðkaup þeirra var sjónvarpað er ITV sjónvarpsstöðin gerði heimild- armynd um brúðkaup á nú- tímavísu. 15 fórust Kairó. 21. júlí. AP. FIMMTÁN manns biðu bana og sautján særðust þegar fimm hæða hús hrundi til grunna í Kairó í gær. Eigandi hússins, Mohammed Taha, skósmiður, missti fjóra syni og aðra konu sína þegar húsið hrundi. Hann var í dag tekinn fastur. Hann hafði byggt fjórar hæðir ofan á hina fyrstu í óleyfi. Tólf ára drengur neitar að fylgja fjölskyldu sinni til Sovétríkjanna Chicago 21. júll AP. SOVÉSK hjón, Michael og Anna Polovchak, sem fluttu ásamt þremur börnum sínum frá Sov- étríkjunum til Banda- ríkjanna fyrir sex mán- uðum vilja nú snúa til heimalands síns en 12 ára gamall sonur þeirra. Walter, hefur beðið um hæli í Bandaríkjunum sem pólitískur flóttamað- ur. Walter bað um hæli sl. laug- ardag og hefur honum verið komið fyrir hjá frændfólki sínu þangað til dæmt verður í máli hans. „Ég vil heldur fara frá for- eldrum mínum en frá Chicago," segir Walter. „Hér á ég vini og geng í góðan skóla. Eg vil ekki fara héðan. Það er betra að vera hér en í heimalandi mínu.“ Talsmaður sovéska sendi- ráðsins í Washington segir mál þetta mjög furðulegt og að yfirvöld hafi engan rétt til að blar.da sér í það. „Okkar skoðun er sú að 12 ára gamall drengur eigi ekki að segja foreldrum sínum hvað hann vilji gera, hann á að gera það sem foreldrnrnir segjn hnn- um að gera,“ sagði talsmaður- inn. Eldri systir Walters hefur sitt eigið vegabréf og hefur ákveðið að setjast að í Chicago. Lögmaður Walters segir að sovésk yfirvöld muni meina Polovchak hjónunum að snúa aftur til Sovétríkjanna nema Walter og yngri bróðir hans komi báðir með þeim. Ák\eðið hefur >ciið „5 þann 30. juu íari i'ram yfirheyrslur þar sem ákveðið verður hvort Walter vcrðar eftir í vistun hjá frændfólki sínu eða hvort hann verður látinn fara með foreldr- um sínum. Við fyrri yfirheyrslur mætti faðir Walters án lögfræðings og hrópaði: „Þeir eru að ræna syni mínum", er hann gekk út úr salnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.