Morgunblaðið - 31.07.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ1980
15
Amnesty International:
Fangar júlímánaðar
Alþjóðasamtökin Amnesty In-
ternational hafa valið eftirtalda
fanga júlímánaðar 1980:
Dominique Diata og August-
in Irigo eru gabonskir herfor-
ingjar á þrítugsaldri. Þeir voru
handteknir í marz 1978, sakaðir
um undirróðursstarfsemi og um
að hafa stefnt öryggi lands síns,
Gabon, í hættu. Þeir hafa ekki
enn verið leiddir fyrir rétt.
Dominique Diata hlaut her-
mennskuþjálfun sina í Saint Cyr
herskólanum i Frakklandi. Strax
eftir heimkomuna þaðan til
Gabon hafði hann uppi skoðanir
sem stjórnvöldum þar voru lítt
að skapi og hlaut hann áminn-
ingu fyrir. Ástæðan fyrir hand-
tökunni var gagnrýni hans í garð
stjórnvalda Gabons, sett fram í
einkabréfi til vinar hans. Enn-
fremur var hann sakaður um að
hafa kommúnískar bókmenntir í
fórum sínum. Augustin Irigo var
handtekinn ásamt fleiri herfor-
ingjum stuttu síðar, en öllum
nema honum og Diata hefur
síðan verið sleppt. Irigo var
foringi í flotanum, einnig þjálf-
aður í Frakklandi. Samkvæmt
upplýsingum Amnesty Interna-
tional fer heilsu beggja mjög
hnignandi, Diata er haldinn
nýrnasjúkdómi og Irigo hrjáir
þunglyndi.
Vinsamlegast skrifið og biðjið
um að þeir verði þegar látnir
lausir úr fangelsi. Þeir, sem geta
skrifað frönsku, eru beðnir að
gera svo.
Skrifa ber til: Son Excellence
Monsieur Bongo, President de
la Republique, La Presidence,
Libreville, Gabon.
Baliene Khamdaranikorn er
fyrrverandi yfirmaður flugmála
i Laos, kvæntur og þriggja barna
faðir. Hann var handtekinn í
nóvember 1975, og hefur siðan
verið í haldi, án þess að koma
fyrir rétt, í afskekktum endur-
hæfingarbúðum í norðaustur-
hluta Laos, einn af mörgum
opinberum embættismönnum,
sem þangað voru sendir eftir að
Pathet Lao-fylkingin tók sæti í
samsteypustjórn landsins. Sam-
kvæmt upplýsingum Amnesty
International er aðbúnaður í
búðum þessum ekki upp á marga
fiska. Er mönnum haldið þar
stíft að erfiðisvinnu við rýran
kost og er skortur bæði á
matvælum og lyfjum. Yfirvöld í
Laos hafa engar ástæður gefið
fyrir því að halda Khamdaranik-
orn eða öðrum, sem líkt er ástatt
um, í fangelsi, en samkvæmt
upplýsingum Amnesty Interna-
tional mun fangelsun þeirra
eingöngu byggjast á störfum að
stjórnmálum fyrr á árum og því
hvaða stöðum þeir gegndu í tíð
fyrri stjórnvalda. Baliene
Khamdaranikorn var virkur fé-
lagi i 300 manna stjórnmála-
samtökum, Neo Thang Noum,
sem stofnuð voru 1971 af mið-
línumönnum í stjórnmálum, að-
allega ungum menntamönnum
og opinberum starfsmönnum.
Vinsamlega farið fram á að
honum verði þegar í stað sleppt
úr fangelsi.
Skrifa ber til: Excellency Kay-
sone PHomvihane, Prime Min-
ister, Vlentiane, People's Demo-
cratic Republic of Laos.
Dr. Nikola Novakovic er 67 ára
lyfjafræðingur í Júgóslavíu,
fyrrum félagi í króatíska bænda-
flokknum. Hann var dæmdur 1
ágúst 1977 fyrir „fjandsamlegan
áróður" og „samskipti við
fjandsamleg samtök erlendis“ —
í 12 ára fangelsi. Hann situr nú i
Foca-fangelsinu, illa haldinn af
hjartasjúkdómi og gigt. Áður en
Novakovic kom fyrir rétt á
sínum tíma hafði hann verið í
einangrun í fjóra mánuði. Hann
var sakaður um að hafa átt þátt
í mótun stefnuskrár flokks sins
allt frá 1962, þegar hann ferðað-
ist um ýmis lönd Vestur-Evrópu.
Hann neitaði sakargiftum með
öllu, viðurkenndi, að hann hefði
rætt við fyrrum samherja sína í
Evrópulöndum um stjórnmála-
leg, félagsleg og menningarleg
mál, en þeir hefðu ekki sett
saman neinar áætlanir fjand-
samlegar þáverandi stjórnvöld-
um. Varðandi sakargiftina um
fjandsamlegan áróður lagði
hann áherzlu á, að stjórnarskrá
Júgóslavíu gerði ráð fyrir tján-
ingarfrelsi, þar á meðal opinber-
um tjáskiptum um sjónarmið er
fælu í sér gagnrýni á stjórn-
mála- og efnahagskerfi landsins.
Vinsamlega skrifið og biðjið
um að Dr. Nikola Novakovic
verði þegar látinn laus úr fang-
elsi.
Skrifa ber til: President of the
Stae Presidency of the SFRJ,
His Excellency Cvijetin Mijato-
vic, Bul. Lenjina 2 Belgrade,
Yugosiavia.
Þess skal að lokum getið, að
einn af föngum janúarmánaðar,
D.A. Santosa frá Indónesiu, var
látinn iaus 12. april sl.
(Frá Amnesty International)
í sól og sumaryt bjóóum vió
SÓISKINSVERÐ
Á NÝJUM BÍIUM
Eigum óráöstafaö fáeinum Chrysler LeBaron 2ja og 4ra dr.
’79, super deluxe, á ótrúlega lágu afsláttarverði. Þetta eru lúxusbílar
í algjörum sérflokki meö öllum hugsanlegum aukabúnaöl, auk þess
V8 vél, sem er með tölvustýringu á blöndungi, sjálfskiptingu,
aflhemlum, veltistýri og sjálfvirkum hraöastilli, svo dæmi séu nefnd.
Nú færö þú þér einn meö öllu á sólskinsveröi, sem er ca. 11,5 millj.,
miðaö viö gengi 28.8.80.
Ný sending af hinum vinsæla franska fjölskyldubíl, Talbot Simca
Horizon 1980, er kominn til landsins á sérstaklega umsömdu
sumarveröi, sem á aö mæta stööugi gengissigi stjórnvalda. Þetta er
fimm manna framhjóladrifinn fjölskyldubíll meö fimmtu hurðina aö
aftan. Verö frá kr. 7.150 þús. miöaö viö gengi 25.8.80.
CHRYSLER
—1 > innnnn
Síil. JdIÍ \\± iULnJLl
Suðurlandsbraut 10. Símar 83330 - 83454
UMBOÐSMENN: Bílasala Hinriks, Akranesi, Sniðill h.f., Óseyri 8,
Akureyri, Óskar Jónsson, Neskaupstað, og Friðrik Óskarsson,
Vestmannaeyjum.
Talbot Simca 1100 ’80 litli þrautgóöi fjölskyldubíllinn, er nú til á
ótrúlega góöu sumarveröi, sem m.a. Japaninn ræöur tæplega viö.
Simca 1100 er 4 dr. framhjóladrifinn fjölskyldubíll, sem eyöir 7,71. pr.
100 km. Öryggispönnur eru undir vél, benzíngeymi og gírkassa, auk
þess er 221 cm. undir lægsta punkt. Aldeilis stórkostlegur bftl,
ætlaöur íslenzkum staöháttum. Verö miðaö viö gengi 15.7.80: 1100
LE kr. 5.535.817 og GLS kr. 6.128.518.
Dodge Omni ’80 er einnig til afgreiöslu nú, bæöi 2ja og 4ra dr. Þetta
er minnsti lúxusbíllinn sem fæst frá Bandaríkjunum. Omni er 5
manna bíll m. 4 cyl. vél, sjálfskiptingu og öörum deluxe búnaöi. Omni
er einhver eftirsóttasti litli lúxusbftlinn sem völ er á, enda er Omni
lúxuslausn í orkukreppu. Verö frá ca. 9,5 millj.