Morgunblaðið - 31.07.1980, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1980 2 5
Hættir Observer
útgáfu í haust?
London. 30. júli. AP.
MEIRA en 1000 starfsmönnum
The Observer, elsta sunnudags-
blaðs á Bretlandseyjum, var í
dag sent uppsagnarbréf og þeim
tilkynnt, að siðasta eintakið
yrði gefið út 19. október n.k.
Washington 30. júlí. AP.
BANDARÍSKIR leyniþjónustu
menn hafa sagt þinginu. að
Kúbumenn hafi vopnað og haft
hönd i bagga með byltingu Sand-
inistahreyfingarinnar í Nicara-
gua. Þeir telja líklegt að El
Salvador verði næst fyrir valinu
auk þess sem Kúbumenn styðji
uppreisnarmenn i Guatemala og
Honduras.
16. apríl sl. sagði Randolph
Ástæðan er deila um launamál
milli blaðsins og 26 prentara,
sem vinna hluta af fullu
starfi.
Eigendur Observers eru banda-
rískir en þeir björguðu blaðinu frá
gjaldþroti fyrir fjórum árum. í
Pherson, sem er sérfræðingur á
vegum CIA, að Kúbumenn litu á
sjálfa sig sem „vopnabúr, þjálfun-
arbúðir og ráðgjafa fyrir bylt-
ingarmenn í þessum heimshluta."
Hann taldi að E1 Salvador væri nú
efst á blaði hjá Kúbumönnum. I
Guatemala væri herinn mjög öfl-
ugur og í Honduras væru aðstæð-
urnar ekki heppilegar enn sem
komið væri.
tilkynningu útgáfustjórnarinnar
sagði, að hún væri staðráðin í því
að hætta rekstri blaðsins.
Mönnunum 26, sem eiga í deil-
unni við blaðið, hafa verið boðin
101.13 pund fyrir að prenta blaðið
á 15 tíma vakt á laugardögum í
stað þess að prenta það í hlutum
alla vikuna. Þeir krefjast hins
vegar 108.03 punda fyrir vaktina.
Meðallaun þessara manna eru
talin vera um 350 pund á viku sem
er margfalt meira en gerist og
gengur í Bretlandi.
Erfiðieikar Observer eru síð-
ustu ótíðindin sem berast úr Fleet
Street þar sem flest hefur gengið
á afturfótunum. Dagblöðin koma
ekki frá sér milljónum eintaka í
hverjum mánuði vegna skæru-
verkfalla og tækjabilana og prent-
arar hafa komið í veg fyrir
endurskipulagningu og endurnýj-
un vélakosts af ótta við að störf-
unum fækkaði.
1971 — Geimfararnir í Apollo 15
aka í sex og hálfan tíma í
rafmagnsbíl á tunglinu.
1964 — Ranger 7 sendir fyrstu
nærmyndir af tunglinu.
1958 — Nikita Krúsjeff heimsæk-
ir Peking.
1954 — Jtalir klífa fjallið K-2
(Godwin-Austen).
1938 — Búlgarar gera griðar-
samning við Balkanbandalagið.
1934 — Morðingjar Dolfuss teknir
af lífi í Austurríki.
1926 — Afghanistan gerir griðar-
samning við Rússa.
1919 — Weimar-stjórnarskráin
gengur í gildi í Þýzkalandi.
1917 — Þriðja orrustan um Ypres
hefst.
1914 — Almennt herútboð fyrir-
skipað í Austurríki.
1913 — Búkare8t-friður Balkan-
ríkjanna undirritaður.
18Í2 — Spánverjar ná undir sig
Venezúela-lýðveldinu og Francisco
de Miranda handtekinn.
1789 — Franz hertogi af Coburg
og Alexander Suvorov greifi sigra
Tyrki við Foschani (Rúmeníu).
1658 — Aurangzeb verður Móg-
úlkeisari Indlands.
1602 — Biron marskálkur tekinn
af lífi fyrir landráð í Frakklandi.
1498 — Kristofer Kolumbus finn-
ur eyna Trinidad.
Afmæli. Agúst I, kjörfursti af
Saxlandi (1526 - 1586) - Maxim-
ilian II keisari (1527 — 1576) —
John Ericsson, sænskættaður upp-
finningamaður (1803 — 1889).
Andlát. 1556 Ignatius Loyola,
stofnandi Jesúítarcglunnar —
1849 Alexander Petöfi, skáld —
1886 Franz Liszt, tónskáld.
Innlent. 1246 d. Kolbeinn kalda-
ljós Arnórsson — 1851 Konungs-
fulltrúi neitar að svara fyrirspurn
um danska hermenn á þjóðfundi
— 1876 Vesturfarar af Austur-
landi koma til Quebec — 1927
Erlingur Pálsson syndir úr Drang-
ey til lands — 1935 d. Tryggvi
Þórhallsson — 1889 f. Júlíana
Sveinsdóttir — 1898 f. ísak Jóns-
son — 1960 d. Júlíus Havsteen —
1978 Geir Hallgrímssyni falin
stjórnarmyndun.
Orð dagsins. Bak við sérhverja
röksemd er fáfræði einhvers —
Louis Brandeis, bandarískur
hæstaréttardómari (1856 — 1941).
Verður E1 Salvador
næst fyrir valinu?
*
I stuttu máli...
HAGNAÐUR BA
MINNKAR
Breska flugfélagið British
Airways tilkynnti í dag, að
| hagnaður félagsins á síðasta
s fjárhagsári, sem lauk 31. mars, I
| hefði minnkað mjög mikið.
I 1978—79 var hagnaðurinn 90
; milljónir punda, en hefur nú -
hrapað niður í 20 millj. Félagið
hyggst þó halda áfram far-
gjaldastríðinu sem nú geisar á
N-Atlantshafsflugleiðinni og
bjóða ennfremur lægri far-
gjöld til annarra Evrópulanda.
SKRÚFUÞOTUR
HAGKVÆMARI
Stokkhólmi 30. júll. AP.
SAS-flugfélagið tilkynnti í
dag, að vegna aukins eldsneyt-
iskostnaðar væri áætlað að
taka í notkun skrúfuþotur á I
ýmsum stuttum flugleiðum ;
í innan Norðurlanda.
Tvær flugvélategundir koma §
I helst til greina, Fokker F-27 og
BAE 748, sem báðar taka 50 j
farþega. Þær eiga að koma í
stað DC-9 flugvéla á þessum
flugleiðum.
SJÖTTU SKÁKINNI
FRESTAÐ
BuenoN Alres, 30. júli. AP.
Sjöttu skákinni í einvígi |
þeirra Viktors Korchnois og I
| Lev Polugayevski var frestað í '
j dag að ósk þess síðarnefnda. ;
Korchnoi hefur nú 3 vinninga ’
I en Polugayevsky 2. Sá þeirra l,
| sigrar sem fær 6,5 v. í 12
I skákum eða færri.
FRÁ GRÆNLANDI
TIL PARÍSAR
Montreal, 30. júll. AP.
Eagle Sarmont, bandaríski j
I svifdrekaflugmaðurinn, sem '
!var kyrrsettur í Kanada áður I
en hann lagði upp í ferð yfir |
IAtlantshafið, sagði í dag, að j
hann væri enn bjartsýnn á að )
• komast til Parísar.
Sarmont ætlar að reyna að I
leggja upp frá Grænlandi í |
svifdrekanum, sem er vélknú- 1
inn, en kanadísk yfirvöld hafa |
ekki viljað gefa þessu farar- |
tæki loftferðaleyfi.
Jakkar
bolir