Morgunblaðið - 31.07.1980, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ1980
35
Alfred Schubrig aðal-
rœðismaður Islands í
Austurríki - Minning
Alfred Schubrig arkitekt, aðal-
ræðismaður íslands í Austurríki
lést 20. júlí sl.
Schubrig tók við ræðismanns-
starfinu 18. apríl 1972. Á þessum
átta árum vann hann að málefn-
um Islands og íslendinga af svo
mikilli atorku og áhuga að minn-
ingin um. þennan góða dreng og
Islandsvin mun lifa meðal þeirra
fjölmörgu íslendinga sem kynnt-
ust honum, konu hans, Corneliu og
börnum þeirra tveim, Elizabetu og
Afred.
Island á marga dugmikla ræð-
ismenn víða um heim en það er
álit þeirra sem best þekkja til
þessara mála, starfsmanna ís-
lenska utanríkisráðuneytisins, að
Schubrig hafi borið af þeim flest-
um.
Ég býst við, að íslenskir náms-
menn og aðrir Islendingar sem
dvalist hafa í Vín og nágrenni á
þessum tíma séu sammála um að
nú sé skarð fyrir skildi, svo vel
sem Schubrig reyndist þeim öll-
um. Það nægði honum ekki að
leiðbeina þeim sem til hans leit-
uðu heldur stofnaði hann sérstak-
an lánasjóð til hjálpar náms-
mönnum í Austurríki.
Schubrig var alltaf vakandi
fyrir öllu því sem snerti ísland. 17.
júní var alltaf mikill hátíðisdagur
í boði Schubrighjónanna og fjöldi
annarra tækifæra notuðu þau
hjónin til að hlúa að íslendingum í
Austurríki.
Sömu sögu hafa þeir fjölmörgu
að segja sem erindi áttu til
Austurríkis fyrir hönd íslendinga.
Kom sér þá vel hversu vel kynnt
þau Schubrig hjónin voru í sínu
heimalandi, því að allar dyr virt-
ust opnast fyrir tilstilli þeirra.
Sérstök áhugmál aðalræð-
ismannsins voru afurðasala og
markaðsmál fyrir íslenskar afurð-
ir til lands og sjávar og á því að
efla verslunar og fjármálasam-
skipti íslands og Austurríkis. Þau
mál hefðu án efa borið ríkulegan
árangur ef hans hefði notið við
lengur.
Af hinum fjölmörgu málum sem
Schubrig vann að, má nefna
stuðning við Vestmanneyinga eft-
ir gosið. Gekkst hann fyrir söfnun
í Austurríki og var hluta af því fé
varið til að koma upp garði við
spítalann í Eyjum. Lét hann senda
þangað mikið magn af plöntum,
runnum og laukum ásamt garð-
bekkjum frá Vín. Er garður þessi í
Ásta Sigfúsdóttir, Heiðargerði
24, Akranesi, var lögð til hinstu
hvílu laugardaginn 19. júlí sl. á
hvíldardegi. Hún varð 69 ára
gömul.
Ásta lést að heimili sínu. Hjá
henni var dóttir hennar þar til
yfir lauk. Ásta átti góðar dætur og
góða tengdasyni og myndarleg
barnaböm, tvo eftirlifandi bræður
og eina systur, allt framúrskar-
andi vel gert fólk, sem ísland
þarfnast svo mjög.
Samgangur og vinátta var á
daglegu tali nefndur Vínargarður
enn ég býst við að mörgum
Vestmanneyingum sé ókunnugt
um þann hlut sem ræðismaður
Islands í Austurríki átti þar að
máli.
Persónuleg kynni fjölskyldu
minnar af Schubrig fjölskyldunni
verða ógleymanleg fyrir þann hlý-
hug og vináttu sem þau sýndu
okkur.
Alfred Schubrig fæddist í
Krems við Donau 13. apríl 1908 og
átti þar heima alla tíð. Hann rak
stórt byggingafyrirtæki bæði í
Krems og í Vín. Kona hans
Cornelía, hagfræðingur að mennt
og vann í fyrirtækinu með manni
sínum og studdi hann með sinni
óvenjulegu atorku og áhuga í
ræðismannsstarfinu.
Ég veit að við öll, núverandi og
fyrrverandi íslendingar í Austur-
ríki, sem kynntumst Alfred Schu-
brig minnumst hins látna heiðurs-
manns með djúpu þakklæti fyrir
vináttuna, hjálpsemina og áhug-
ann á okkur, þjóð okkar og landi.
Ekkju Schubrig og börnum
þeirra sendum við hjónin innileg-
ar samúðarkveðjur.
Björn Sigurbjörnsson.
Sunnudaginn 19. júlí barst
okkur sú frétt að Alfred Schubrig
aðalræðismaður íslands í Austur-
ríki væri látinn. Dauðann bar að,
er hann var heima með fjölskyldu
sinni. Var þar með bundinn endi á
samskipti okkar félaganna hér í
Austurríki við Alfred Schubrig, en
milli prestsheimilisins á Akranesi
og heimilis Ástu. Hún var beðin
fyrir mig þegar fósturforeldrar
mínir þurftu að vera fjarverandi
og naut ég umhyggju hennar og
móðurhlýju til jafns við dætur
hennar. Þegar ég kom frá Noregi
1947, gaf Ásta mér Nýja testa-
mentið á norsku og ensku. Á
fremstu síðu stendur: „Jesús sagði:
Ég er vegurinn, sannleikurinn og
lífið.“ Jóh. 14.6. Undirskriftin er
Ásta Sigfúsdóttir.
Ásta vildi mér og öllum það
þau höfðu einkennst af gagn-
kvæmri vináttu.
Alfred Schubrig var vinsæll,
skilningsríkur og traustur maður.
Hann hafði stórt hjarta og var
hjálpsamur þeim, sem í vandræð-
um voru. Hann elskaði ísland og
hafði sérstakt yndi af að heyra
Islendinga syngja og leika.
Schubrig var fæddur í Krems og
lagði stund á byggingafræði. 23
ára gamall hóf hann sjálfstæðan
rekstur sem byggingameistari og
hóf að byggja upp fyrirtæki sitt,
sem nú er orðið eitt af stærstu
byggingafyrirtækjum landsins í
einkaeign. Margar byggingar í
Krems og Vínarborg vitna um
verk hans.
Árið 1975 stofnaði Schubrig
Hjálparsjóð fyrir Islendinga í
Austurríki. Lét hann oft af hendi
rakna stórar upphæðir til styrktar
þeim sjóði, og hafa margir Islend-
ingar hér og heima á Islandi notið
hans. Þá bjó hann, ásamt dr.
Erwin Gasser, íslensku ræð-
ismannsskrifstofuna í Vínarborg
mjög smekklega.
Á hverjum jólum, hvernig sem
veður var, kom hann með pakka til
íslensku stúdentanna í Vínarborg.
Ef íslendingar héldu tónleika eða
samkomur var Schubrig ávallt
reiðubúinn til aðstoðar. Veitti
hann t.d. ómetanlega aðstoð við
Islandssýninguna í Klosternau-
burg 1978. Hann var heiðursfélagi
Félags íslendinga í Austurríki og
Austurrísk-Íslenska félagsins í
Vínarborg. Missa bæði félögin
mikið við fráfall hans. Við, sem
þekktum hann, vitum að skarðið
er stórt.
Schubrig var jarðsettur 25. júlí í
Krems og að ósk hans var íslenski
þjóðsöngurinn sunginn við athöfn-
ina og Fálkaorðan, sem hann hafði
verið sæmdur, borin á púða á eftir
kistunni.
Við Islendingar og Islandsvinir
hér í Austurríki þökkum honum
alla hjálp og vinsemd. Okkur er
ógleymanleg síðasta samveran
með Schubrig og konu hans í
Loiben í tilefni af 17. júní. Hann
lét í ljósi sérstaka ánægju með
söng íslendinganna þar, og eftir
að þjóðsöngurinn hafði verið
sunginn, hvíslaði hann að einum
okkar, að þegar hann yrði jarðað-
ur vildi hann hafa svona söng við
þá athöfn. Ekki datt okkur í hug
þá, hve dauðinn var nálægur.
Við vottum konu hans, frú dr.
Cornelia og börnunum, Alfred og
Elisabeth, okkar innilegustu sam-
úð.
Skrifað í Vínarborg,
Marín Gísladóttir Neu-
mann
formaður F.I.A.
Helmut Neumann
formaður Austurrisk-
Islenska
félagsins i Vinarborg
besta sem hún þekkti og hún
þekkti það sem hún tilbað. Kristur
sagði við lærisveina sina: „Þér
eruð í heiminum, þér eruð ekki af
heiminum." Ásta eins og María
valdi góða hlutann, hann skal ekki
verða frá henni tekinn, sagði Jesú.
Það eru orðin fjögur ár síðan
Ásta tók á móti mér og syni
mínum á heimili sínu og næst var
að fylgja henni síðasta spölinn.
Kristur sagði: Minn frið læt ég
eftir hjá yður. Ásta átti þennan
frið, hann bar lífi hennar vitni.
Þakka samfylgdina.
Halldór Þorsteinn Briem.
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningar-
greinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara.
Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði,
að berast i siðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og
hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki
vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig getið, að
marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru
ekki birt á minningarorðasiðum Morgunblaðsins. hand-
rit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.
Ásta Sigfúsdótt-
ir - Minningarorð
+
NANNA HALLGRÍMSDÓTTIR
frá Akureyri
andaöist aö heimili sínu Hverfisgötu 16, þann 16. júlí.
Jaröarförin hefur fariö fram á Akureyri í kyrrþey.
Aöatandendur.
+
Elskulegi drengurinn minn
STURLA BRIEM
Hverfisgötu 91
lézt aö kvöldi þess 27. júlí sl. í Borgarspítalanum.
Halldór Þorsteinn Briem.
HARALDUR ALFRED HÓLM EYÞÓRSSON
húsvöröur Langholtsskóla
lést í Landakotsspítala aö morgni 29. júlí.
Fyrlr hönd aöstandenda.
Kristin Guðnadóttir.
+
Maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi
ANDRÉS GUÐNASON
frá Vöölum
Bergstaöastrasti 57,
Reykjavfk
veröur jarösettur frá Fossvogskirkju föstudaginn 1. ágúst kl.
10.30. Guörún J. Bergsdóttir,
Anna J. Andrésdóttir Fish, James C. Fish,
Bergljót Andrésdóttir,
Mekkin J. Fish,
Lfsa C. Fish,
Andrea M. Fish,
Guörún Anna Friöbertsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrlr auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför eiglnmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
JÓNSJÓNSSONAR
frá Skaganesi, Mýrdal,
Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki Landspítalans.
Guörún Markúsdóttir,
Sigurborg Jónsdóttir,
Magnús Jónsson,
Málfrföur Danfelsdóttir.
og barnabörn.
+
Utför móöur okkar. tengdamóöur og ömmu
GUONÝJARÓLAFSDÓTTUR
hefur fariö fram í kyrrþey.
Okkar innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug.
sérstakar þakkir færum viö læknum og starfsfólki Sólvangs fyrir
góöa umönnun.
Mfnerva Jónsdóttir,
Bergþór Jónsson, Jóhanna Sigurjónsdóttir,
Ragnar Jónsson, Guörún Bruun Madsen.
og barnabörn.
+
Okkar innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö
andlát og útför elginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa
BENEDIKTS GRÍMSSONAR
Kirkjubóli,
Strandasýslu.
Ragnheiöur Lýösdóttir,
Grfmur Benediktsson, Kristjana Ingólfsdóttir,
Siguröur Benediktsson, sigrún Valdimarsdóttir,
Lýöur Benediktsson, Helga Valdimarsdóttir.
Rósa Benediktadóttir,
og barnabörn.
+
Þökkum innllega auösýnda samúö viö fráfall fööur okkar,
tengdafööur og afa.
GUNNARS STEFANSSONAR
Eyrarvegi 3,
Grundarfiröi
Elfs Gunnarsson,
Hjálmar Gunnarsson,
Garðar Gunnarsson,
Sigrún Gunnarsdóttir,
Sigurlfn Gunnarsdóttir,
Helga Gunnarsdóttir,
Jóhann Gunnarsson,
Snorri Gunnarsson,
Þórarinn Gunnarsson,
Ragna Gunnarsdóttir,
Helga Árnadóttir,
Ólöf Pétursdóttir,
Hallvaröur Kristjánsson,
Njáll Gunnarsson,
Svala Guömundsdóttir,
Ingibjörg Kristinsdóttir,
Finnbjörg Jenssen.
og barnabörn.