Morgunblaðið - 31.07.1980, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ1980
43
í Ka'rdají hóíst einstaklings-
keppni i Mfl. karla og kvenna á
íslandsmótinu í golfi. Geir
Svansson hefur forystuna í Mfl.
karla eftir fyrsta dag lék 18
holur á 74 höggum. Fyrri hring-
inn lék Geir á 34 höggum sem var
besti árangur sem náðist í gær-
dag. Siðari hringinn lék hann á
40 höggum.
í öðru og þriðja sæti eru þeir
jafnir Björgvin Þorsteinsson og
Sigurður Pétursson á 75 höggum.
Björgvin lék á 36 og 39 og
Sigurður á 37 og 38 höggum.
Næstu menn eru Islandsmeistar-
inn Hannes Eyvindsson sem lék á
76 höggum og gamla kempan
Þorbjörn Kjærbo sem lék á 77
höggum. Þorbjörn lék fyrri hring
á 41 höggi en náði glæsilegri
spilamennsku á síðari hring, lék
þá á 36 höggum. Vel gert.
í Mfl. kvenna hefur Jakobína
Guðlaugsdóttir GV forystu, lék 18
holur á 85 höggum. Fyrri hring lék
hún á 38 höggum. Ásgerður Sverr-
is dóttir er í öðru sæti með 88 högg
og Steinunn Sæmundsdóttir í
þriðja sæti með 89 högg.
í 1. flokki hefur Guðrún Eiríks-
dóttir forystu með 297 högg.
Mótinu verður fram haldið í dag á
Grafarholtsvellinum.
- ÞR.
Stórleikur á
Skaganum í kvöld
FYRSTI leikurinn í tólftu um
ferð íslandsmótsins i knatt-
spyrnu fer fram i kvöld og er það
mikill stórleikur. Akranes mætir
þá ÍBV á Akranesvelli og hefst
leikurinn klukkan 20.00. Leikur
þessi hefur mikla þýðingu eins og
allir leikir i íslandsmótinu úr þvi
sem komið er, bæði eiga liðin
möguleika á meistaratign, vinni
þau leikinn. Það verður því hart
barist.
Laugavegi 20. Simi frá akipliborði I50SS.
„Sagði mig vera
orðinn áhugalausan"
• Sveit Golfklúbbs Reykjavikur sem sigraði á íslandsmótinu sem nú stendur yfir á Grafarholtsvelli. Sveit
GR hafði nokkra yfirburði í sveitakeppninni og lék á 306 höggum. Sveitina skipa frá vinstri: Sigurður
Ágúst Jensson fyrirliði, Hannes Eyvindsson, Jóhann Guðmundsson, Geir Svansson, óskar Sæmundsson og
Sigurður Hafsteinsson.
Meistaramót Islands í golfi:
Yfirburðasigur GR
í sveitakeppninni
Ljósm. Mbl. ÓS.
GV 359
Marteinn Guðjónsson 84 högg
Elvar Skarphéðinsson 86 högg
Leifur Ársælsson 93 högg
Guðmundur Þórarinsson 96 högg
„Mér var tilkynnt rétt fyrir
leik KR og Vals, að Skotinn Alec
Stuart ætti héreftir að vera aðal-
þjálfari KR og ég aðstoðarþjálf-
ari. Á fundi tilkynnti Kristinn
formaður knattspyrnudeildar-
innar að nú ætti að framkvæma
ákveðnar skipulagsbreytingar.
Þórður Jónsson sagði mig vera
orðinn áhugalausan og æfingar
illa skipulagðar. Þá sagðist hann
hafa heyrt á leikmönnum að ég
mætti seint á æfingar, auk þess
sem ég væri að byggja og mætti
því ekki vera að þvi að sinna
KR,“ sagði Magnús Jónatansson,
brottrækur þjálfari KR á
blaðamannafundi i gærkvöldi.
Og Magnús hélt áfram.
„Þetta eru fáránlegar ásakanir
og get talið á fingrum annarar
handar þau skipti sem ég hef
mætt seint á æfingar og get sýnt
hverjum sem er uppbyggingu æf-
inga hjá mér án þess að skammast
mín. Það er rétt, ég er að byggja,
en það fara ekki meira en 3
klukkutímar á sólarhring að með-
altali í það. Þessar skýringar eru
því út í hött og það er illa gert
gagnvart fleirum en mér, sérstak-
lega þá leikmönnum liðsins, að
vera að hringla með þetta rétt
fyrir jafn mikilvægan leik og
leikurinn gegn Val var. Tölurnar
tala þar sínu máli. Samkvæmt
samningi mínum við KR, var ég
ráðinn sem aðalþjálfari og því get
ég ekki annað séð en þarna hafi
mér verið bolað burt á klaufalegan
hátt.“
Enn hélt Magnús áfram: „Ég
hef þjálfað hjá KR og kom liðinu á
sínum tíma upp úr 2. deild. Þá
vorum við ekki fjarri titlinum á
síðasta keppnistímabili. En ég hef
ekki haft þann vinnufrið sem
æskilegt mætti telja. Það hefur
spunnist ýmislegt í kring um val
liðsins og þar hef ég í gegn um
árin hleypt stjórnarmönnum KR
of oft inn á gafl. Annars er
aðalástæðan fyrir gremju minni
sú, að mér finnst hér ekki aðeins
höggvið óvægilega að sjálfum mér,
heldur íslenskri þjálfarastétt í
heild. Hún á ekki að vera gersam-
lega réttindalaus gagnvart ein-
hverjum útlendingum sem koma
og fara. Þetta er „prinsip" mál.“
Þetta er sannarlega athyglis-
vert mál og vert til umhugsunar.
Fróðlegt væri að heyra álit stjórn-
armanna KR á þessu máli. gg.
SVEIT GR sigraði með nokkrum
yfirburðum i sveitakeppninni á
meistaramóti Islands i golfi. Lék
sveitin á 306 höggum, eða 10
höggum minna heldur en næsta
sveit, sem var sveit GA. Enginn í
sveit GR lék á minna en 78
höggum, en i öðrum sveitum fóru
menn allt upp í 96 högg. Skor
einstakra manna varð sem hér
segir:
GR 306
Hannes Eyvindsson 74 högg
Óskar Sæmundsson 76 högg
BlovjumMnbib
nmrniira
Ragnar Ólafsson 78 högg
Sigurður Hafsteinsson 78 högg
GA 316
Björgvin Þorsteinsson 74 högg
Gunnar Þórðarson 80 högg
Magnús Birgisson 81 högg
Jóhann Þór Gunnarsson 81 högg
GK 321
Sveinn Sigurbergsson 76 högg
Júlíus R. Júlíusson 80 högg
Sigurður Thorarensen 82 högg
Sigurjón Gíslason 83 högg
NK 328
Magnús I. Stefánsson 81 högg
Jón H. Guðlaugsson 82 högg
Gunnlaugur Jóhannsson 82 högg
Ásgeir Þórðarson 83 högg
GS 329
Jóhann Benediktsson 79 högg
Gylfi Kristinsson 80 högg
Páll Ketilsson 85 högg
Þorbjörn Kjærbo 85 högg
Geir Svansson með
forystu eftir
18 holu höggleik
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK
I>1 AIGLVSÍR l M AI.LT
LAND ÞRG.AR Þl' AIG-*
I.ÝSIR 1 MORGINBLADIM
atvTvaV^0
Vöruúrval
Sértilboð í
öllum búðum
á samfestingum,
Bullitt khaki-buxum,
dömu- og herraskyrtum
og dún vattjökkum.