Morgunblaðið - 13.08.1980, Síða 18

Morgunblaðið - 13.08.1980, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1980 Raufarhöfn: Sex ára drengur saumaður 18 spor eftir hundsbit ÞAÐ SLYS Kerðist á Raufarhöfn sl. föstudagskvöld, aö stór hund- ur beit sex ára Kamlan dreng. Hundurinn giefsaði í drenginn þannÍK að af hlutust svöðusár á hálsi ok eyra. Kallað var i lækni frá Þórshöfn ok tók hann á fimmta klukkutíma að Kera að sárunum. en alls þurfti að sauma 18 spor til að ná sárunum saman. Hundurinn var bundinn í bandi í ógirtum húsgarði og voru eigend- ur hans ekki heima. Drengurinn, sem sjálfur á hund og átti leið fram hjá, gekk til hundsins til að klappa honum. Skipti engum tog- um, að hundurinn rauk á hann og glefsaði með áðurgreindum afleið- ingum. Er þetta í þriðja skipti sem hundur þessi er staðinn að því að glefsa til fólks. Á sunnudaginn var hundurinn fluttur til Húsavíkur og aflífaður þar að kröfu lögregl- unnar, og án þess að eigendur hans mæltu því í mót. Drengurinn var á batavegi í gærkvöldi, að sögn fréttaritara Mbl. á Raufarhöfn. Annar hundur á Raufarhöfn vakti mikla athygli sl. mánudag, en sem betur fer af öðrum ástæð- um. Minkahundurinn Stubbur vann á fjórða tímanum um eftir- miðdaginn það afrek að leggja að velli mink einn stóran heima við hús sveitastjórans á staðnum og naut hann við starfann aðstoðar eiganda síns Stefáns Magnússon- ar. Grímur Grímsson segir af sér embætti Ásprestakall því auglýst laust til umsóknar BISKUPSSTOFA tilkynnti í gær, að séra Grímur Grimsson sóknarprestur i Ásprestakalli hafi sagt embætti sinu lausu frá og með 1. nóv. n.k. Presta- kallið er þvi auglýst iaust til umsóknar og er umsóknar- frestur til 11. sept. í stuttu viðtali við Mbl. i tilefni þessa sagði séra Grímur. að hann hefði tekið ákvörðun um að hætta störfum á góðum aldri og einnig vildi hann gefa sér yngri mönnum tækifæri tii að þjóna kirkjunni. Séra Grímur hefur þjónað í Ásprestakalli frá því prestakallið var stofnað, eða frá 1. jan. 1964. Hann er 68 ára að aldri og starfaði í 17 ár hjá Tollstjóraskrifstofunni áður en hann gerðist prestur, þannig að starfsár hans hjá hinu opinbera eru orðin æði mörg. Séra Grímur sagði byggingu kirkju vera efst á baugi í Ásprestakalli, en byggingin er nú fokheld. Ljósm. Mbl. Emilfa. Er Morgunblaðsmenn voru á ferð á Raufarhöfn fyrir skömmu hittu þeir eiganda Stubbs, Stefán Magnússon, að máli, og á myndinni hér að ofan heilsast þeir félagar með virktum. Stubbur er gæfur og mannelskur og þykir áreiðanlega sárt að vita af gjörðum kynbróður sins, enda vann hann það afrek i gær að leggja að velli mink við hús sveitarstjórans. Korchnoi á grænni grein Engin þreytumerki voru sjá- anleg á taflmennsku þeirra Korchnois og Polugajevskys er þeir tefldu elleftu einvígisskák sina i Buenos Aires i fyrra- kvöld. Korrhnoi, sem hafði hvitt, var greinilega i vigahug þar eð sigur hefði gert út um einvigið. Eftir 10. skákina var staðan á þann veg að Korchnoi hafði eins vinnings forskot, hafði hlotið fimm og hálfan vinning, en Polugajevsky fjór- an og hálfan. Alls verða tefldar tólf skákir, nema staðan verði jöfn, en þá verður framlengt. Korchnoi náði aðeins rýmra tafli eftir byrjunina i elleftu skákinni og blés siðan til sókn- ar í miðtafli. Þrátt fyrir að Polugajevsky ætti litinn tima aflögu tók hann hraustlega á móti og staðan varð bæði flókin og tvísýn. Rétt áður en skákin fór i bið skýrðust línurnar nokkuð. Er skákin fór i bið hafði Korchnoi ennþá alla þrjá menn sina, drottningu, hrók og riddara i árásarstöðum, en hafði aftur á móti veikt kóngs- stöðu sina auk þess sem Poluga- jevsky hafði fripeð á miðboró- inu sem gæti orðið ógnandi. Ellefta skákin tefldist þannig: Hvitt: Viktor Korchnoi Svart: Lev Polugajevsky Enski leikurinn 1. c4 - efi, 2. Rc3 - c5, 3. Rf3 - Rf6, 4. g3 - b6, 5. Bg2 - Bb7, 6. 0-0 — Be7, (Nú er komin upp grundvallarstaðan í afbrigði því í enska leiknum, sem engil- saxar nefna Hedgehog afbrigðið, en útleggst á íslensku, „brodd- galtarafbrigðið".) 7. d4 — cxd4, 8. Dxd4 - d6, 9. b3 - 04), 10. Bb2-a6. ll.Hfdl - Rdb7.12. Dd2 (Korchnoi er þekktur fyrir að fara sínar eigin leiðir í byrjunum og í þessari stöðu hikar hann ekki við að breyta út af hinum viðurkenndu leiðum, 12. e4 - Dc7,13. De3 eða 12. De3 — Dc7,13. Rd4) Dc7,13. Rd4 - Bxg2, 14. Kxg2 - Db7+, 15. f3 — Re5 (15 ... d5? jafnaði ekki taflið vegna 16. cxd5 — Rxd5,17. Rf5) 16. e4 - Hfc8, 17. De2 - Bc6, 18. Rxc6 — Hxc6, 19. Hd2 — Hb8, 20. Rdl (Hvítur kærir sig ekki um að véikja sig með 20. a4, en velur aðra leið til þess að gera aðalhugmynd svarts í þessu afbrigði, b6 — b5 skaðlausa) b5, 21. Re3 - Re8. 22. Iladl - Bg5 (Þessi leikur virðist í fljótu bragði vera tímatap, því Korch- noi vinnur leikinn f3 — f4, en á móti kemur að e4 peðið verður að veikleika og það hefur Polugajevsky í hyggju að nýta sér) 23. Í4 - Bd8, 24. Df3 - Ba5, 25. He2 - Bb6, 26. Bd4 - Bxd4, 27. Hxd4 - Hc5, 28. Hed2 - Hbc8, 29. g4!? (Korch- noi blæs til sóknar á kóngsvæng og hyggst sprengja upp svörtu kóngsstöðuna með framrás peða sinna. Undir þessa ákvörðun hefur það einnig vafalaust ýtt að Polugajevsky var orðinn naumur á tíma) De7, 30. g5 — f6! (Svartur gat ekki beðið átekta eftir því að hvítur bætti stöðu sína enn frekar á kóngsvæng) 31. gxf6?! (31. h4 var óneitan- lega mun eðlilegri leikur, því nú losnar um svörtu stöðuna) Dxf6, 32. Dg3 — Df7 (Svartur undir- býr að svara 33. f5 með Rf6) 33. e5 — bxc4 (Eftir 33 ... dxe5, 34. fxe5 liggja bæði 35. Hd7 og 35. Hf2 í loftinu) 34. exd6 (Nú væri Skák eítir MARGEIR PÉTURSSON hægt að svara 34. bxc4 með dxe5, 35. Fxe5 — Dc7, 36. Rg4 — Hxc4, 37. Hxc4 — Db7+ og síðan 38. ... Hxc4 með tvísýnni stöðu) c3, 35. Hc2 - Hd8, 36. Rc4 - Hd5, 37. Hxd5 - exd5, 38. Re5 - Df5, 39. Hxc3 - Rxd6, 40. Hc7 - Re8. í þessari stöðu fór skákin í bið. Þegar kapparnir hófu taflið að nýju í gær var biðleikur Kor- chnois ljós. Hann lék 41. He7 og bauð um leið jafntefli. Poluga- evsky hugsaði sig um í tvær mínútur og þáði síðan jafnteflið. Aðeins ein skák er eftir í einvíginu. Hún verður tefld í dag og nægir Korchnoi jafntefli til sigurs í einvíginu. Akureyri: Falsarinn játar allt sem hann man Akureyri, 12. áxÚRt. Akureyrarlögreglan hefur i dag yfirheyrt ávísanafalsar- ann, sem handtekinn var i gærkvöld, og förunauta hans þrjá, tvo karía og eina konu. Maðurinn hefur játað greið- lega allar sakir, að svo miklu leyti sem hann man hvað gerzt hefur. Hann kveðst hafa stolið ávísanaheftinu úr íbúð í Reykjavík aðfaranótt sunnu- dagsins, en morguninn eftir hitti hann þremenningana og bauð þeim með sér norður í land. Hann keypti flugfarseðla handa þeim öllum og greiddi fyrir þá með falsaðri ávísun að upphæð 120 þúsund krónur, en fékk mismuninn greiddan í peningum. Þegar til Akureyrar kom, tóku ferðalangarnir leigubíl austur í Mývatnssveit og svo annan til Akureyrar aftur á mánudag og var báðum bílstjórunum greitt með ávís- unum. Þessar þrjár ávísanir hljóðuðu á um samtals 300 þúsund krónur. Þar að auki var keypt áfengi í Hótel Reynihlíð og á Akur- eyri, matur og fleira. Alls voru gefnar út tuttugu ávísanir úr heftinu stolna. Maðurinn veit ekki hve heildarandvirði þeirra er mikið, en talið er að það sé ekki undir hálfri milljón. Að- eins fáar þessara tuttugu ávís- ana hafa komið fram, flestar voru gefnar út í Mývatnssveit, en ekki er kunnugt um upphæð nema sumra þeirra. — Sv.P. Framsalsbeiðni til athugunar ÍSLENSK yfirvöld hafa farið fram á það við sænsk lög- regluyfirvöld, að framseldur verði hingað til lands Frank- lin Steiner, sem nú mun vera í haldi hjá lögreglunni í Sví- þjóð vegna fíkniefnabrota. Franklín á óafplánaðan dóm hér á landi að sögn Jóns Thors í dómsmálaráðuneytinu. Kvað hann einnig geta komið til greina að Franklín afplánaði hinn íslenska dóm fyrir brot á fíkniefnalöggjöfinni í Svíþjóð. Hefðu Svíar það mál nú til athugunar, en Franklín er bandarískur ríkisborgari þótt hann hafi alist upp hér á landi. Þýfi fundið RANNSÓKN þjófnaðarmál- anna, sem RLR hefur unnið að upp á síðkastið, miðar vel áfram, samkvæmt upplýsing- um Hailvarðar Einvarðsson- ar. Hallvarður sagði að veru- legur hluti þýfis úr tveimur húsum við Tjarnargötu væri kominn í leitirnar. Unnið er að rannsókn á þjófnuðum úr öðr- um húsum. Þrír menn sitja í gæzluvarðhaldi vegna rann- sóknar þessara mála. Vinnuslys VINNUSLYS varð í Glerborg í Hafnarfirði á sjötta tímanum í fyrradag. Tveir menn voru að færa til stóra glerrúðu þegar hún brotnaði skyndilega. Hrundi glerið á mennina með þeim afleiðingum að þeir skár- ust mikið á höndum. Voru þeir fluttir á slysadeild Borgarspít- alans til aðgerðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.