Morgunblaðið - 13.08.1980, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.08.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1980 19 Greinargerð Oryggismálanefndar birt: Aðeins ein heimild fyrir skrifum út- lendinga um kjamorkuvopn á Islandi UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ sendi í gær frá sér greinargerð öryggismálanefndar vegna um- ræðu og skrifa um kjarnorku- vopn á íslandi. í greinargerðinni. sem dagsett er 16. júli eru raktar þær athuganir og gögn er komið hafa fram í sambandi við könnun og umfjöllun öryggismálanefnd- ar vegna umræðu og skrifa um staðsteningu kjarnorkuvopna á íslandi. Kemur fram. að nefndin telur umfjöllun sinni um málið ekki iokið, þar sem hún hafi ekki fengið öll umbeðin gögn i hend- ur. Birt er yfirlit yfir þau gögn og tilvísanir, sem nefndin hefur safn- að og hafa að geyma staðhæfingar um að kjarnorkuvopn séu á ís- landi. Slíkar staðhæfingar hafa aðeins komið fram hjá tveimur stofnunum og/eða einstaklingum, sem þar hafa starfað: Center for Defense Information í Washing- ton og Stockholm International Peace Research Institute (SIPRI). Hefur forstöðumaður SIPRI, Frank Barnaby, staðfest, að upp- lýsingar stofnunar sinnar komi frá Center for Defense Inform- ation og er frumheimildin grein eftir Barry Schneider í ritinu The Defense Monitor febrúar 1975. Þegar Gene La Rocque forstöðu- maður Center for Defense Inform- ation (CDI) var spurður um það í júní sl. af starfsmanni Öryggis- málanefndar, hvar heimildirnar fyrir greininni frá 1975 væri að finna, sagði hann, að stofnunin „hefði með 156 ríki í heiminum að gera og hefði ekki tíma til að fara ofan í mál, sem væri orðið fimm ára gamalt." í greinargerðinni kemur fram, að Barry Schneider hafi sagt við William Arkin starfsmann CDI, „að hann væri tiltölulega viss um (reasonably confident), að um réttar upplýs- ingar væri að ræða“ í grein sinni, en hins vegar hafi David Johnson, rannsóknastjóri CDI, talið, að heimildir Barry Schneiders væru ekki nægilega áreiðanlegar og hefði hann viljað kanna málið nánar, en forstöðumaður stofnun- arinnar hins vegar tekið ákvörðun um útgáfu greinarinnar. Gene La Rocque, fyrrverandi flotaforingi, forstöðumaður CDI og aðstoðar- forstöðumaður stofnunarinnar, Bertram K. Gorwitz fyrrum hers- höfðingi sátu fyrir svörum hjá starfsmanni nefndarinnar. I frá- sögn af því viðtali kemur fram, að forstöðumaðurinn hafi tekið „mun ákveðnari afstöðu í viðtalinu held- ur en gert er í yfirlýsingu stofnun- arinnar (þ.e. yfirlýsing um Island frá 30. maí 1980, sem birtist hér í blaðinu daginn eftir, þar er sagt að líkur geti bent til kjarnorku- vopna hér á landi innsk. Mbl.) og hélt því raunar beinlínis fram, að á íslandi væru staðsett kjarnorku- vopn. Var meginröksemdin sú, að það væri föst regla hjá bandaríska flotanum að staðsetja vopnin þar sem áætlað væri að nota þau.“ Hafi aðstoðarforstjóri stofnunar- innar samsinnt þessu. Og síðan segir í greinargerðinni: „Að vísu sagðist La Rocque ekki vera alveg 100% öruggur vegna þess að flotinn gæti auðveldlega flutt vopnin burtu á mjög skömmum Gjaldskrárnefnd: Mælir með 25% hækkun afnota- gjalda útvarps — og 30 og 40% hækkun auglýsingaverðs RÍKISSTJÓRNIN fjallaði á fundi í gærmorgun um hækkanir til handa Hitaveitu Reykjavikur og Ríkisútvarpsins, en hvorugt mál- ið var afgreitt endanlega og verða bæði á dagskrá næsta fundar rfkisstjórnarinnar á fimmtudaginn. Hörður Vilhjálmsson fjármála- stjóri útvarpsins sagði að beiðni ríkisútvarpsins um hækkun af- notagjalda síðari hluta ársins væri upp á 37,9% og 30% hækkun á auglýsingum í útvarpi og 40% hækkun á auglýsingum í sjón- varpi. Birgir Thorlacius ráðu- neytisstjóri í menntamálaráðu- neytinu sagði, að gjaldskrárnefnd hefði lagt tií um 25% hækkun Tveir togarar seldu erlendis HEGRANESIÐ landaði 156 tonn- um af ísfiski í Huil í gær og í fyrradag og fengust 72,3 milljónir króna fyrir aflann, meðalverð 463 krónur. Þá seldi Snorri Sturluson 150 lestir í Cuxhaven í gær fyrir 77,9 milljónir króna, meðalverð 518 krónur. í dag landar Hólma- tindur SU í Fleetwood og heldur síðan til Frakklands, en þangað fer skipið í skiptum fyrir nýrri togara, sem kemur til Eskifjarðar í næsta mánuði. afnotagjalda, en hins vegar mun nefndin hafa látið beiðnina um hækkun auglýsinga óbreytta. Hörður sagði, að ríkisútvarpið hefði sótt um hækkun afnota- gjalds útvarps og litasjónvarps í einu lagi, í 45.500 krónur og að afsláttur af því, ef um svart/hvítt sjónvarpstæki væri að ræða, yrði 10.000 krónur. Gjaldskrárnefnd lagði hins vegar til að afnotagjald fyrir útvarp, sem nú er 8.600 krónur, yrði hækkað í 10.700 krónur, eða um 23,26%, afnota- gjald af svart/hvítu sjónvarpi yrði hækkað úr 17.700 krónum í 22.100 krónur, sem er 24,86% hækkun, og að afnotagjald af litasjónvarpi yrði hækkað úr 24.400 krónum í 30.500 krónur, sem er 25% hækk- un. Ef tillögur gjaldskrárnefndar eru teknar saman eins og í hækk- unarbeiðni útvarpsins, er saman- lögð hækkun afnotagjalda útvarps og litasjónvarps úr 33.000 í 41.200 krónur, sem er 24,85% hækkun, en samanlögð afnotagjöld af útvarpi og svart/hvítu sjónvarpi 32.800 krónur, sem er 24,71% hækkun. í beiðni ríkisútvarpsins er mið- að við að 30% hækkun útvarps- auglýsinga komi til framkvæmda um miðjan ágúst og hækkar orðið þá úr 400—1420 krónum í 520— 1840 krónur, en gjaldflokkarnir eru fjórir. Hækkun sjónvarpsaug- lýsinga er miðuð við 1. október og hækkaði þá mínútan úr 250.000 krónum í 350.000 krónur. tíma og kynni hann að hafa gert það þegar. Aðspurður hvernig þekkja mætti kjarnorkuvopn, sagði La Rocque að í útliti væru þau ekki frábrugðin öðrum vopn- um. Hinsvegar væru oddar þeirra rauðmálaðir en í sjálfu sér væri allt eins hægt að mála þá í öðrum lit ef ætlunin væri, að þau þekkt- ust ekki.“ I greinargerðinni er vitnað í Milton Leitenberg, núv. starfs- mann SIPRI, en hann hefur fram- kvæmt rannsókn á stefnu Banda- ríkjamanna með tilliti til kjarn- orkuvopna í Evrópu. Sagði hann, að þótt hér væru tæki, sem flutt gætu kjarnorkuvopn, þýddi það ekki að slík vopn væru hér. Fræðimenn á sviði öryggismála hjá Brookings Institute og Con- gressional Research Service (þ.e. rannsóknaskrifstofu Bandaríkja- þings) í Washington voru spurðir álits á því atriði, hvort tilvist handbókar fyrir landgönguliða um öryggisgæslu kjarnorkuvopna á Keflavíkurflugvelli sannaði, að hér væru staðsett kjarnorkuvopn eða að þau verði flutt hingað á hættu- og ófriðartímum. Voru þessir aðilar „á einu máli um, að sennilega væri gert ráð fyrir flutningi kjarnorkuvopna til ís-' lands á hættu- eða ófriðartímum en töldu ólíklegt, að hér væru staðsett slík vopn.“ I greinargerð Öryggismála- nefndar er leitast við að athuga, hvernig kjarnorkuvopn koma inn á herstjórnarsvæði yfirmanns Atlantshafsflota Bandaríkjanna, CINCLANT, sem ísland tilheyrir. Kemur fram, að árangur hafi verið takmarkaður af athugun- inni, enda ekki unnist tími til að afla gagna sem skyldi. Fram kemur, að áætlanagerð bendi til þess, að fremur sé gert ráð fyrir, að kjarnorkuvopn séu flutt á átakasvæði á hættu- eða ófriðar- tímum, en staðsetja þau þar á friðartímum. I lokakafla greinargerðarinnar segir, að Frank Barnaby og Milton Leitenberg hjá SIPRI hafi báðir lagt áherslu á það í samtölum, að auðvelt sé að komast að raun um hvort kjarnorkuvopn séu staðsett á Islandi með því að kanna hvernig öryggisgæslu vopna er háttað hér á landi. Haft er eftir Leitenberg að venjulega séu tvö- faldar girðingar, svæði upplýst allan sólarhringinn og vopnaðir verðir við gæslu. Og eftir Barnaby er haft, að varðturnar væru oftast til staðar og rafeindabúnaður tengdur viðvörunarkerfi væri á milli girðinganna. Þá eru raktar upplýsingar um gerð kjarnorku- vopnageymslna og öryggisgæslu umhverfis þær úr greinargerðum, sem kynntar hafa verið Banda- ríkjaþingi. Kemur þar fram, að á árinu 1980 eigi að ljúka endurbót- um á kjarnorkuvopnageymslum utan Bandaríkjanna, sem miða að því að efla varnir gegn skærulið- um við þær. Sagt er, að öryggis- verðir séu við hliðin inn á svæði, þar sem kjarnorkuvopn séu geymd. Gert sé ráð fyrir að um 15 vopnaðir hermenn geti komið á staðinn innan fimm mínútna ef þess er talin þörf. Þá er auk þess gert ráð fyrir minnst 30 manna varaliði. Greinargerð Öryggismálanefnd- ar er rúmar 6 blaðsíður og henni fylgja mörg fylgiskjöl. í Örygg- ismálanefnd sitja átta menn, tveir frá hverjum þingflokki. Björgvin Vilmundarson, bankastjóri, er formaður nefndarinnar og Gunn- ar Gunnarsson starfsmaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.