Morgunblaðið - 13.08.1980, Page 23

Morgunblaðið - 13.08.1980, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1980 23 Minning: Steinunn Þórar- insdóttir frá Jórvík Fædd 14. mars 1905. Dáin 2. ágúst 1980. Hver fögur dyggð í fari manns er fyrat af rótum kærleikans, af katrlelka sprottin auðmýkt er, við aðra vægð og góðvild hver og friðaemd hrein og hógvœrt geð og hjartaprýði stilling með. (Helgi HAlfdánarson.) Þegar ég frétti lát vinkonu minnar, Steinunnar, laugardaginn 2. ágúst, setti mig hljóða og minningarnar tóku að streyma fram í huga minn. Þá tók ég mér sálmabók í hönd og fletti henni af handahófi og kom niður á þetta sálmavers. Fannst það segja svo vel þá kosti sem ég hafði kynnst ríkustum í dagfari Steinunnar, því mörgum góðum manneskjum hef ég kynnst um æfi mína, en engri betri en henni. Ég varð oft vitni að því þegar rætt var um menn og málefni og á einhvern var hallað, þá átti hún ævinlega eitthvað gott og bætandi til málanna að leggja. Það eru tæp 30 ár síðan ég kynntist Steinunni og hennar góða manni, Aðalsteini Halldórssyni. Hef oft verið gestur á heimili þeirra. Þar ríkti innan dyra sönn íslensk gestrisni. Þessi kyrrláta rausn og hugulsemi, svo gestir fundu sig velkomna. Heimilið bar allt svip hinnar fíngerðu húsmóð- ur, bæði húsmunir og ekki síst hennar frábæra handavinna, sem allsstaðar prýddi. Ég kom til hennar fyrir stuttu síðan, þar sem hún lá á sjúkrahúsi, helsjúk. Innti hana eftir líðan hennar, hún hafði fá orð um heilsufar sitt, sagðist bara vera svo þreytt, en allir væru svo góðir við sig, bæði hjúkrun- arkonur, læknar og svo allir sem væru að heimsækja sig þangað á sjúkrahúsiðl Svo var hún með allan hugann við að ég fengi gott sæti við rúm hennar, því hún vissi að ég hafði ekki gengið heil til skógar tvö síðustu ár. Þá várð mér hugsað, alltaf er Steinunn mín sjálfri sér lík, ekkert nema þakk- látsemin og umhyggjan fyrir öðr- um. Steinunn var austfirsk að ætt, fædd 14. mars 1905 í Jórvík í Hjaltastaðaþinghá. Kom ung til suðurlands, fór á Hvítárbakka- skóla. Giftist 11. maí 1929 eftirlif- andi manni sínum, Aðalsteini Halldórssyni frá Litlu Skógum. Þau hjón eignuðust þrjár dætur, Erlu, sem gift er Snorra Bjarna- syni, Áslaugu, gift Steinari Frið- jónssyni, Brynhildi, gift Ólafi Sig- urjónssyni. Þá ólu þau upp sem sitt barn dótturson sinn, Aðal- stein Rúnar Emilsson, hann er kvæntur Edith Vivian Hansen. Ég óska að allir góðir kostir og eiginleikar Steinunnar vinkonu minnar, megi koma fram hjá niðjum hennar, þá mun þeim vel vegna. Við sem erum komin langleiðina og megum sjá á eftir æ fleiri vinum og vandamönnum hverfa frá þessu lífi, spyrjum okkur oft, hvar eru hinir horfnu vinir, er öllu lokið þegar þeir hverfa sjónum okkar? Ég vil vona að sama lögmál gildi um þá og blómin mín úti í garðinum, sem virðast fölna og deyja á haustin, en eiga þann frumkraft í rótum sínum að koma aftur upp, græn og fögur, með næsta vori þegar sól vermir aftur gróðurmoldina. Við hjónin vottum öllum vanda- mönnum Steinunnar okkar dýpstu samúð, og óskum þeim allrar blessunar. Guðrún Emilsdóttir. Mig langar til að skrifa fáein kveðjuorð til ástkærrar ömmu minnar Steinunnar Þórarinsdótt- ur. Það að hafa átt slíka ömmu er dýrmætara öllu öðru og þann fjársjóð minninga sem ég á um hana, mun ég geyma um alla ævi. Samband okkar var náið. Hún var meira en amma, hún var vinur okkar. Ávallt reiðubúin að hlusta og leiðbeina, eða gefa góð ráð. Umhyggjan fyrir öðrum var henni efst í huga. Hún sýndi öllu því sem aðrir tóku sér fyrir hendur mikinn áhuga. Amma var miðpunktur stórrar fjölskyldu, laðaði að sér með glaðværð og gestrisni. Börn voru hennar yndi og margar voru þær ferðir hennar í bæinn í leit að gjöf, til að gleðja eitthvert lítið barnið. Elsku afi, missir þinn er mikill og sorgin stór. Megi minningin um einstaka konu styrkja okkur og verða okkur að leiðarljósi um ókomna tíð. Hrafnhildur. „Aldrei deyr. þótt allt um þrotni. endurminning þeos er var“ Er, ég, sem þessar fáu línur rita, fann hvöt hjá mér til að minnast mágkonu minnar, Steinunnar frá Jórvík andaðrar, var sem ósjálf- rátt kæmi mér í huga kvæði eftir Grím Thomsen hvar framan ritað stendur. Vil ég í eftirfarandi, færa rök að því, að hér er ekki um tilefnislausa tilvitnun að ræða, slík voru meir en fimm áratuga kynni mín af henni og eftirlifandi manni hennar, svo og dætrum þeirra og vandafólki yfirleitt. Steinunn var fædd að Jórvík í Hjaltastaðarhreppi í N-Múla- sýslu. Foreldrar hennar búendur þar, Þórarinn Jónsson sýslunefnd- armaður, þingeyskrar ættar og kona hans Guðrún Magnúsdóttir ættuð af Fljótsdalshéraði. Eignuð- ust þau Jórvíkurhjón sex börn. Misstu þau tvær dætur, aðra fjögurra ára, en hina kornabarn. Hin fjögur eru eftir aldursröð: Magnús, kennari og skólastjóri, síðast búsettur í R.vík. Dáinn fyrir allmörgum árum. Giftur Önnu kennara Sigurpálsdóttur, sem er látin fyrir nokkrum árum. Syni áttu þau tvo, annar búsettur í Ólafsfjarðarkaupstað, hinn í R.vík. Guðný Ragnhildur, húsfreyja að Efrimýrum í A-Hún. í fimmtíu og eitt ár. Dáin fyrir fjórum árum, þá búsett í Keflavík. Gift Bjarna Ó. Frímannssyni frá Hvammi í Langadal. Áttu þau eina dóttur barna búsetta í Keflavík. Auk þess ólu þau hjón upp fjögur börn frá ungbarns aldri. Jón, búfræðingur frá Hvann- eyri. Fyrst bóndi og aðstoðarmað- ur foreldra sinna aldraðra að Jórvík. Síðar mörg ár bóndi að Smáragrund á Jökuldal. Nú bú- settur í þorpinu Hlaðir gengt Egilsstöðum við Lagarfljót. Giftur Sigríði Björnsdóttur frá Hnefils- dal. Eiga þau sex börn, fjóra syni og tvær dætur. Nær öll farin að heiman, til náms og starfa. Guðrún Steinunn, sem hér um ræðir aðallega. Sjá síðar. Eitt stúlkubarn tveggja ára tóku þau Jórvíkurhjón til fósturs og ólu upp til fullorðins ára, Ester að nafni. Var hún dóttir vinar og nágranna þeirra hjóna, Sveins bónda að Kóreksstöðum, bróður Halls hreppsstjóra samastaðar. Var Ester sextán ára er fóstra hennar Guðrún lést og mun því um árabil hafa stutt fósturbróður sinn, Jón, við að aðstoða og annast Þórarin fóstra hennar þau ár, sem hann lifði konu sína. Heyrt hefi ég, að er Sveinn faðir Esterar lá banaleguna, hafi vinur hans Þór- arinn í Jórvík vakað yfir honum m.a. nóttina, sem hann andaðist og þá verið gerður án orða, né umræðu milli hlutaðeigenda, en staðið var við hann með sóma. Fósturdóttirin virðist vera sem ein af fjölskyldunni. Ester er einhleyp, búsett í Reykjavík. Steinunn Þórarinsdóttir giftist 11. maí 1929 Aðalsteini Halldórs- syni frá Litlu-Skógum í Borgar- firði, vestra. Höfðu þau dvalið við nám í Hvítárbakkaskóla veturna 1925—27, í heima héraði Aðal- steins. Má gjöra ráð fyrir að þar hafi fyrstu þræðir verið spunnir að þeim sterka þætti, sem dugði þeim með giftu og prýði um fimmtíu og eins árs hjúskapar- tíma. Næsta vetur eftir Hvítárbakka- dvölina stundaði Aðalsteinn nám við Samvinnuskólann og lauk burtfararprófi vorið 1928. Réðist tollvörður þá um vorið. Vann svo sitt aðal lífsstarf hjá þeirri stofn- un meðan aldur leyfði, hært nær fimmtíu ár, síðari hlutann sem yfirtollvörður. Fylgdi þeim störf- um, einkum framan af árum, æði mikil ferðalög vítt um landið. Húsbóndinn því all oft að heiman og það fjarri heimilinu. Líka bundinn aðalstarfinu hvern vinnudag, bæði á skrifstofu og eftirlit við skipakomur, í frítímum var svo unnið að margvíslegum félagsmálastörfum auk sérstakra hugðarefna s.s. ættfræði og mikl- um ritstörfum sögu- og ættfræði- legs efnis. En þau mun hann hafa stundað mest heima þegar tóm gafst til. En húsmóðirin, Stein- unn, helgaði heimilinu krafta sína og það án þvingunar, henni var það eiginlegt. Vann ekki úti sem svo er kallað og mikið eftirsótt nú til dags, sem flestra meinabót í samfélaginu. Rækti hún húsmóður hlutverkið með hinni mestu prýði með náinni samvinnu og samráði við húsbóndann. Bjuggu þau sér glæsileg húsakynni með húsgögn- um er hæfðu, er bera smekkvísi hennar og hæfni og eiginmannsins órækt vitni. Hlýlegt og vinsamlegt viðmót réði þar ríkjum. Til viðbót- ar húsmóðurstörfunum bættist, að fádæma gestagangur laðaðist að heimilinu. Um það getur undirrit- aður borið vitni, sem einskonar heimagangur þar. Dvaldi nær undantekningarlaust þar, búskap- artíð þeirra, er ég átti erindi, að norðan, til höfuðborgarinnar, sem alloft var og stundum svo vikum skifti, þegar erindi mín voru það tímafrek. Þrátt fyrir að húsmóðirin skil- aði sínu hlutverki svo sem áður getur, með myndarskap, smekk- vísi, hógværð og hlýleika, virtist henni skapast tækifæri til að stunda fatasaum og aðra handiðn, fyrst og fremst fyrir fjölskylduna og húshaldið og líka nokkuð fyrir vandalausa sem einskonar við- skiptaaðila. Mun Steinunn hafa dvalið á Seyðisfirði er hún stund- aði nám í þessum greinum og þá verið til heimilis að Firði við Seyðisfjörð hvar Jón Jónsson frá Gagnstöð bjó, enda þótt hans aðal lífsstarf væri í bænum. Jón var stjúpbróðir Guðrúnar í Jórvík og ólust þau að miklu leiti upp saman. Var mikil vinátta milli Jórvíkurfólks og Fjarðar, líkt því sem Fjörður væri annað heimili þeirra í Jórvík, þegar erindi þurfti að reka á Seyðisfirði, sem oft var á þeim árum, meðan verslun Hér- aðsbúa var sótt þangað. Jón í Firði hafði fjölmögrum trúnaðarstörf- um að gegna í bænum, bæði vegna bæjarstjórnar o.fl., svo og einka- aðila s.s. verslun Stefáns Th. Jónssonar og annarra umsvifa hans. Heitin var Steinunn eftir móður Jóns, Steinunni Stefáns- dóttur í Gagnstöð, stjúpu Guðrún- ar í Jórvík. Þeim hjónum Steinunni og Að- alsteini fæddust þrjár dætur: Gunnþóra Erla, gift húsasmiða- meistara Snorra Bjarnasyni. Reistu nýbýlið Stutluhól úr Efri- mýralandi fyrir tuttugu árum og hafa verið búsett þar síðan. Eiga þau fimm börn, þrjá syni og tvær dætur. Áslaug, gift Steinari Friðjóns- syni (iðnrekanda) bifreiðasm. Bú- sett í Reykjavík. Eiga þau þrjú börn, tvo syni og eina dóttur. Áslaug eignaðist son áður en hún giftist. Heitir Aðalsteinn Emils- son, giftur og býr í R.vík. Ólst hann alveg upp hjá foreldrum Áslaugar. Brynhildur, gift Ólafi Sigur- jónssyni tollverði. Búsett í R.vík. Eiga þau þrjú börn, tvo syni og eina dóttur. Jafnframt og ég votta Aðal- steini, dætrum hans, uppeldissyni, tengdasonum, börnum og öðrum vandamönnum samúð mína, dótt- ur minnar og tengdasonar míns, þakka ég og við öll, þeim prýðileg kynni og vináttu um liðin ár og óskum honum og þeim öllum heilla í framtíðinni. í guðs friði, Bjarni ó. Frimannsson, frá Efrimýrum. Landsþing demókrata Kennedy dregur framboð sitt til baka Frá fréttaritara Morgunblaósins. önnu Bjarnadóttur, i New York i gær. JOHN C. White, formaður Demókrataflokksins, setti landsþing flokksins i New York á mánudag, nokkrum timum seinna en ætlað var i upphafi vegna ósamkomulags i flokknum um reglur lands- þingsins. Stuðningsmenn Edwards Kennedy fengu setningu þingsins frestað svo að þeim ynnist frekari tími til að reyna að vinna fulltrúa á þinginu á sitt band á móti tillogu reglunefndar sem skyldaði fulltrúana til að styðja þann frambjóðanda, sem þeir voru kjörnir á þing- ið fyrir, við fyrstu atkvæða- greiðslu um forsetaefni flokksins. Barátta Kennedys og stuðn- ingsmanna hans gegn reglunni var síðasta von þeirra um að koma í veg fyrir forsetaútn- efningu Jimmy Carters á mið- vikudagskvöld. Carter vann 1985 fulltrúa af 3331 á landsþingið í forkosn- ingum og á flokksþingum í vetur og vor en Kennedy 1243, hann þurfti 1666 atkvæði á mánudagskvöld til að tryggja stuðning allra fulltrúa sinna við forsetaútnefninguna. • Kennedy tapar baráttu um reglubreytingu Atkvæðagreiðslan um reglur þingsins fór á þá leið, að 1936 greiddu atkvæði á móti reglu- breytingunni en 1930 með henni. Þar með urðu vonir Kenne- dys um útnefningu þingsins að Edward Kennedy engu og rúmum klukkutíma eftir að úrslit voru kunn dró hann framboð sitt til baka. í stuttri yfirlýsingu bað hann demókrata að styðja stefnu sína í efnahagsmálum sem hann mun tala um á landsþinginu á þriðjudags- kvöld. Hann sagðist hafa hringt í Carter og óskað honum til hamingju með sigurinn, en gaf ekki til kynna hvort hann muni styðja forsetann í kosn- ingabaráttunni. Stuðningsmenn Kennedys tóku fréttunum illa, en stuðn- ingsmenn Carters hrópuðu upp yfir sig af gleði. Walter Mondale varaforseti sagði að ákvörðun Kennedys kæmi sér ekki á óvart. Kenne- dy væri nógu skynsamur til að sjá að úti væri um vonir hans. Hann sagði að flokkurinn þyrfti nú að sameinast og skoðanamunur fylgismanna Carters og Kennedys væri ekki svo mikill að hann væri ekki yfirstíganlegur. Morris Udall, fulltrúadeild- arþingmaður frá Arkansas, tók í sama streng í setningar- ræðu þingsins, sem hann flutti á mánudagskvöld. Hann flutti þinginu fréttir af ákvörðun Kennedys. Udall var meðal þeirra sem lögðu hart að Kennedy síðastliðið haust að bjóða sig fram til forseta. Hann sagði í ræðu sinni að það þyrfti verulega mannkosti til að ganga í gegnum kosninga- baráttu eins og Kennedy gerði án þess að gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Margir hafa velt fyrir sér undanfarna daga hvers vegna Kennedy þráaðist við og hélt vonlausri baráttu svo lengi áfram. Sumir segja að hann hafi verið að sanna þraut- seigju sína fyrir sjálfum sér og öðrum, jafnvel verið að ganga í gegnum hreinsunareld eftir slysið við Chappaquiddic fyrir 10 árum . Aðrir segja að hann hafi verið farinn *að hafa gaman af baráttunni og einnig trúað að hann einn flytti boðskap demókrata sem hann sagði Carter hafa svikið. Og til eru þeir sem segja að hann hafi verið að undirbúa veginn fyrir baráttu sína í forseta- kosningunum 1984.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.