Morgunblaðið - 29.08.1980, Síða 1
194. tbl. 68. árg. FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Arangur í
baráttu við
hvítblæði
Boston. 28. ájcúst. AP.
MEÐ nýjum aðferðum er
læknum nú kleift að senja
íyrir um það með vissu hvort
sjúkiinKÍ. sem verið hefur til
lækninga vejfna hvítblæði.
muni elna sóttin að nýju. Með
þeim er unnt að finna krabba-
meinsfrumur í beinmerg áður
en þeim hefur fjölgað og
borist með blóðinu um allan
likama.
Dr. Potu Rao, líffræðingur
við M.D.Anderson-sjúkrahúsið
og æxlastofnunina í Houston í
Texas, er höfundur þessarar
aðferðar, sem hann nefnir
PCC-aðferðina. „Hún gefur
lækninum til kynna hvort
sjúklingnum muni hraka innan
þriggja eða fjögurra mánaða og
þannig fæst ráðrúm til að grípa
til viðeigandi lækninga,“ sagði
Dr. Rao.
Það tekur tvo daga að beita
þessari aðferð við hvern sjúkl-
ing og þykir hún of flókin til að
almennir læknar geti notað
hana en nú er verið að auðvelda
hana þannig að finna megi
krabbameinsfrumurnar með
litarefnum.
Hvítblæði er krabbamein í
vefjum sem framleiða blóð-
korn. Aðeins um fimmtungur
þeirra, sem taka veikina, lifir
lengur en í fimm ár frá þeim
tíma.
Tillögur Carters:
Einstakl-
ingsskatt-
ar lækki
WashinKton. 28. áKÚst. Irá Önnu Bjarna-
dóttur. blaóamanni Mbl.
CARTER Randarikjaforseti greindi
frá efnahagsaðgerðum. sem hann
mun leggja fyrir þingið í hyrjun
næsta árs. Aðgerðirnar eiga að
auðvelda endurnýjun efnahagslífs-
ins — minnka atvinnuleysi, auka
fjárfestingu. flýta fyrir efnahags-
legum bata og auka hagvöxt — án
þess að verðbólga vaxi í landinu.
Carter mun strax fara fram á við
þingið. að það samþvkki greiðslur
atvinnuleysisstyrkja 13 vikum leng-
ur en nú tiðkast i rikjum. þar sem
atvinnulcysi er mikið.
Carter vill hvetja til aukinnar
fjárfestingar einkaaðila, svo að
framleiðsla aukist og atvinnuleysi
minnki. Hann leggur til breytingar á
skattalögum, sem myndu auðvelda
nýjum fyrirtækjum að fóta sig og
gömlum að endurnýja framleiðslu-
tæki. Hann vill auka fjárfestingu
ríkisins á sviði samgöngu- og orku-
mála og í vísindarannsóknum og
útflutningi.
Carter vill stuðla að samvinnu
milli einkageirans og stjórnvalda við
lausn vandræða, sem hljótast af
flutningi framleiðslufyrirtækja og
við menntun og þjálfun starfsmanna.
Hann leggur til, að ríkið styrki
fyrirtæki, þar sem atvinnuleysi er
mikið, og skattar verði notaðir sem
hvati fyrir önnur fyrirtæki að setjast
þar að. í fjórða lagi vill Carter, að
skattar einstaklinga lækki hægt og
bítandi, svo þeir geti með aukinni
eftirspurn flýtt fyrir bata efnahags-
lífsins.
Aðalfulltrúi stjórnarinnar í við-
ræðunum, Jagielski, sagði í út-
varpsávarpi í dag að gengið hefði
verið að flestum kröfunum og þær
sem óleystar væru nú myndu verða
leystar.
Talsmaður stjórnarinnar sagði í
kvöld að ástandið í landinu væri
óþolandi og ásakaði hann „and-
sósíalisk öfl“ um að gera öfgafullar
kröfur. Þetta gæti verkamönnum
ekki haldist uppi öllu lengur. Hann
taldi að 300 þús. verkamenn væru
nú í verkfalli á Gdansksvæðinu
einu saman og þúsundir í öðrum
bæjum landsins.
í Varsjá harðneitaði PAP-frétta-
stofan hvað eftir annað þeirri frétt
að Edvard Gierek, flokksleiðtogi,
hefði fallizt á að víkja og við ætti að
taka Stefan Olszowki, sendiherra í
AÞýzkalandi. Hann hefur marg-
sinnis gagnrýnt efnahagsstefnu
stjórnarinnar, og var látinn fara úr
stjórnmálaráðinu í febrúar sl. en
kallaður heim nú um helgina og
hefur fengið sæti sitt þar á ný. Það
var ABC-fréttastofan sem fyrst
birti þessa fregn.
Lech Walesa hélt í dag ræðu þar
sem hann hvatti til að ekki yrði efnt
til frekari verkfalla að sinni meðan
reynt yrði til þrautar að ná sam-
komulagi. Óstaðfestar heimildir
herma að verkföllin hafi enn
breiðzt út, og með öllu sé óvíst að
verkfallsmenn láti sig orð Walesa
nokkru skipta, enda virðist ljóst að
ágreiningur innan raða verkfalls-
manna sjálfra hefur magnazt: þeir
skiptast í fylkingar þeirra sem vilja
hvergi hvika og annarra sem telja
eðlilegt að verkamenn sýni sveigj-
anleika. Walesa sagði í ávarpi sínu,
að tækist ekki að finna lausn á
málunum á næstu þremur til fjór-
um dögum, væri ráð að verkamenn
gripu til sinna ráða.
TASS-fréttastofan sagði í kvöld
að með því einu að sýna „ábyrgðar-
tilfinningu, skynsemd og ró myndi
takast að leysa deilurnar". Vakin er
athygli á að frétt TASS var nánast
orðrétt eftir pólsku fréttastofunni,
og ekki gerðar við hana neinar
athugasemdir í viðlíka tón og
kvöldið áður þegar talað var um
„andsósíalísk öfl sem væru að
streða við að breyta pólitísku skipu-
lagi“.
Aftur á móti var flokksmálgagnið
í Póllandi Trybuna Ludu hvassyrt í
morgun og sagði fráleitt að leyft
yrði að stofna frjáls verkalýðsfélög,
þar sem þær kröfur stefndu aðeins
að því að rjúfa einingu verka-
manna.
Sjá ennfremur „Pólland í
skugga sovézka bjarnarins"
og „Frjáls verkalýðsfélög —
það getum við ekki leyft" og
„Pólland — sósíalismann
þarf að vernda" bls. 14—15.
Dr. Amerashinghe um undirritun hafréttarsáttmála:
Góðar horfur á und-
irritun í Caracas
„ÉG ER ákaflega ánægður með
þróun mála á Hafréttarráð-
stefnunni hér í Genf. — árang-
ur ráðstefnunnar hefur verið
verulegur. Góðar horfur eru á
því, að hafréttarsáttmáli verði
undirritaður á 10. fundi ráð-
stefnunnar í Caracas í Venezu-
ela i marz eða april á næsta ári.
Raunar fer það eftir ákvorðun
Allsherjarþings Sameinuðu
þj<)ðanna. hvort norður-suður
viðræðurnar svokolluðu fara
fram næsta vor. I»á yrði ekki
aðstaða fyrir Hafréttarráð-
stefnuna. þannig að 10. fundur
Hafréttarráðstefnunnar fer. ef
að líkum lætur. fram i Cara-
cas," sagði dr. Shirley Amera-
shinghe. forseti Hafréttarráð-
stefnunnar, í samtali við blaða-
mann Mbl. í gærkvoldi.
„Enn á að vísu eftir að semja
endanlega um ýmis mál. Þar má
nefna aðild Efnahagsbandalags
Evrópu og PLO að sáttmálanum.
Þá á eftir að ganga frá skipan
ráðs Alþjóðahafsbotnsstofnun-
arinnar, sem sett yrði á laggirn-
ar þegar sáttmálinn hefur öðlast
gildi.
Þá er enn ákaflega viðkvæmt
og erfitt mál óútkljáð, en það er
hvernig skipta skuli landgrunn-
Dr. Shirley Amerashinghe
inu milli ríkja. Hvort skipta beri
eftir staðháttum hverju sinni
eða hvort nota skuli miðlínuregl-
una.“
Hver eru stærstu málin, sem
samstaða hefur náðst um?
„Öll helztu deilumál í fyrstu
nefnd hafa verið til lykta leidd.
Þá á ég við hvernig standa skuli
að rannsóknum og nýtingu á
alþjóðlegum hafsbotnssvæðum,
fjármögnun, hvernig standa beri
straum af kostnaði víð eftirlit,
miðlun tækniþekkingar og síðast
en ekki sízt, hvernig standa beri
að atkvæðagreiðslu í ráðinu,"
sagði dr. Amerashinghe.
Myndin var tekin í fyrradag þegar Lech Walesa forvígismaður verkamanna (fremst á
myndinni) og aðstoðarforsætisráðherrann Jagielelski ganga til samningafundar.
Kaþólskur prestur til vinstri á myndinni
hlýðir á skriftamál pólsks verkamanns Lcnín-
skipasmiðastöðvarinnar. Þar fara fram reglu-
legar guðsþjónustur og verkamenn ganga til
skrifta.
Lítið miðaði um kröfuna
um frjáls verkalýðsfélög
Walesa letur til frekari verkfalla að sinni
Gdansk. Varsjá. 28. ág. — AP.
LEIÐTOGAR verkfallsmanna og fulltrúar
ríkisstjórnarinnar lógðu öll mál önnur en
kröfuna um frjáls verkalýðsfélög til hliðar á
fundi sínum. sem stóð fram á kvöld. Að
honum loknum sagði Lech Walesa. forvígis-
maður verkamanna við 700 fulltrúa verk--
fallsnefndarinnar: „Við hefjum vinnu á
laugardaginn ef ríkisstjórnin fellst á mál
máianna — frjáls verkalýðsfélög." BBC
sagði í kvöld að sýnilegt væri að lítið sem
ekkert heíði miðað í samkomulagsátt.