Morgunblaðið - 29.08.1980, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1980
7
Spádómar á
uppleið
Lárus Jónsson, alþing-
ismaður, segir í leióara
íslands i dögunum:
„Hinn 29. apríl sl. sagói
forsætisráóherra í sjón-
varpi að ríkisstjórnin
hyggöist beita enn haró-
ari aögeróum gegn veró-
bólgu og „standist áform
okkar, gæti verðbólgan
orðió um 40% frá ársbyrj-
un til ársloka" svo orórétt
séu eftir honum höfó um-
mæli við þaó tækifæri.
Fjárlög voru þá nýaf-
greidd og forsendur
þeirra voru aö „niðurtaln-
ingin“ myndi hafa í för
meó sér aó veröbólgan
yrói einungis 31% frá
ársbyrjun til ársloka. Nú á
sex mánaða afmæli ríkis-
stjórnar sinnar vióur-
kennir forsætisráðherra
aó verðbólgan geti orðiö
nálægt 50% enda hefur
Þjóóhagsstofnun áætlað
aó hún verði milli 50 til
55% á árinu að óbreyttu
kerfi um veröbætur og
verðhækkanir en án
grunnkaupshækkana.
Forsætisráðherra hefur
því hækkað sig í spá-
dómum um verðbólguna
fyrst úr rúmlega 30%,
síóan í 40% og nú í 50% á
árinu og þetta hefur ein-
ungis tekió hann 4 mán-
uði. j leióinni hefur hann
étið ofan í sig ummæli
um aó upplýsingar sem
fram komu í umræðum á
Alþingi strax í apríl í
vetur um að verðbólgan
yrði yfir 50% á árinu
væru rangar, en þau orð
lét hann falla bæði á
Alþingi og í sjónvarpi.
Hvers vegna? Hver er
ástæðan fyrir því að for-
sætisráðherra hrekst frá
einum spádómi til annars
um verðbólguna og
hækkar sig í sífellu?
Ástæðan er einfaldlega
sú aö barátta ríkisstjórn-
arinnar viö veröbólgu
með „niðurtalningu" í
fyrirrúmi er dæmd til að
mistakast. „Niöurtalning"
eins og hún er sett fram í
stjórnarsáttmálanum, þar
sem ekki á að leyfa hærri
verðhækkanir en ákveön-
ar lækkandi prósentur á
þriggja mánaða fresti eru
hörðustu og vitlausustu
verðlagshöft sem reynd
hafa verið hér á landi og
er þá langt til jafnaö. Ef
kostnaöur hefur sannan-
lega hækkað við fram-
leiðslu á vöru eða þjón-
ustu um 15% á þremur
mánuðum hljóta venju-
legir menn að skilja að
söluverð þeirrar vöru eöa
þjónustu verður ekki
hækkuð minna með ein-
faldri stjórnvaldsákvörð-
un nema taprekstur verði
á framleiðslunni. Hér er
byrjaö á öfugum enda.
Rjúfa þarf vixlgengi
kaupgjalds og verðlags
og draga úr kostnaöar-
hækkunum. Jafnvel ráð-
herrar í núverandi ríkis-
stjórn hljóta að skilja að
ekki er til lengdar hægt
aö selja vöru eða þjón-
ustu sem kostar t.d. 300
kr. á 250 kr., en þetta
bjargráð virðist vera nán-
ast trúaratriði hjá þeim í
viðureigninni við verö-
bólguna. Meöan svo er þá
er ekki við öðru að búast
en að forsætisráöherra
verði að hækka spádóma
sína um verðbólguna á
hverju mánaðarafmæli
ríkisstjórnarinnar.“
Hvar er
vísitölukjötiö?
Þar næst víkur alþing-
ismaðurinn að þeirri
„stjórnarkúnst" aö láta
launafólk greiða sunnu-
dagssteikina að hálfu í
kjötbúðinni og að hálfu
hjá Gjaldheimtunni, en
skattheimta hefur verið
stóraukin m.a. til þess að
greiða niður vísitöluvör-
ur, þ.e. til þess að halda
niöri verðbótum á laun.
Sá hluti kjötverðsins,
sem launamaðurinn
greiöir hjá Gjaldheimt-
unni, kemur sem sé ekki
inn í vísitöludæmið.
Sumum þykir hinsvegar
verra aö vísitölukjötið
verður ógjarnan á vegi
launamannsins, slík er
„stjórnarkúnstin" nú til
dags. Um þetta segir Lár-
us:
„Ríkisstjórnin ákvað á
dögunum aö fikta einu
sinni enn við vísitöluna
með því að greiða niöur
verð á landbúnaðarvör-
um svo næmi 2 vísitölu-
stigum. Þetta er gamal-
kunnugt ráð en þjóöin
hefur orðið vitni að grát-
broslegum skrípaleik að
þessu sinni vegna þess-
arar ákvörðunar. Þrátt
fyrir þá staöreynd að
miklar kjötbirgðir eru í
landinu er vísitölukjötið
svonefnda nú vart fáan-
legt í neinni verzlunl Svo
langt hefur þessi skripa-
leikur nú gengið að eig-
endafélag verkalýös-
hreyfingarinnar í Alþýðu-
bandalaginu hefur
ókyrrst og vill fá vitn-
eskju um hvar þetta vísi-
tölukjöt er niður komið
áður en kaupgjaldsvísi-
tala fyrir næstu 3 mánuði
veröur ákveðin. Sann-
leikurinn er einfaldlega
sá að búist er við hækkun
búvara um næstu mán-
aöamót og þá er fullvíst
aö nóg verður um kjöt í
verzlunum! Hér er gott
dæmi um það hvernig
fitlað hefur verið við vísi-
töluna, einkum þegar Al-
þýðubandalagsmenn og
framsókn eru í stjórn án
þess að nokkuð hafi verið
talið við það að athuga.
Gott er til þess að vita að
þessi hráskinnaleikur er
nú farinn að keyra svo
um þverbak aö jafnvel
allaballarnir í verkalýös-
hreyfingunni eru farnir aö
ókyrrast. Bezt væri þó að
þessi sviösetning öll yrði
til þess aö augu almenn-
ings opnuðust fyrir því að
allt þetta vísitölu- og
verðlagskerfí sem við
búum við þarfnast gagn-
gerrar endurskoöunar.“
UTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
Flótti
Tapast hafa 4 hestar úr Þingvallasveit.
1 rauðblesóttur
1 brúnn
2 leirljósir
Vinsamlegast, þeir sem hafa orðið varir við feröir
þeirra hafi samband viö Hótel Valhöll, Þingvöllum.
Hjartans þakkir færi ég ykkur öllum sem
glödduö mig á margan hátt á sjötiu ára
afmœlisdegi mínum, þann 21*. ágúst og geröu
mér daginn ógleymanlegan.
GuÖ blessi ykkur öll.
Jónína Ásbjörnsdóttir,
HoltagerÖi 6, K&pavogi.
Allt til skólans
Skólavörur og ritföng í miklu úrvali.
Opiö til kl. 10 í kvöld.
OPIÐTIL KL.10 í KVÖLD
HACKAUP
SKEIFUNN115
Tónskóli Sigursveins D.
Kristinssonar,
Hellusundi 7
Innritun og greiðsla námsgjalda fyrir haustönn verður
í dag föstudaginn 29. ágúst kl. 16—19 í Hellusundi 7,
einnig mánudaginn 1. og þriðjudaginn 2. septemþer
á sama tíma.
Nemendur sem sóttu um framhaldsskólavist á
síðastliðnu vori eru sérstaklega áminntir um að
staöfesta umsóknir sínar með greiðslu námsgjalda
þar sem skólinn er fullsetinn nú þegar.
Upplýsingar um stundarskrárgerð og fl. verða veittar
við innritunina.
Skólastjóri
Ódýru og fallegu
Hafa baöskáparnir úr furu eru komnir aftur, fást í 3
litum.
\!P
VALD. POULSENf
Suðurlandsbraut 10,
sími86499.