Morgunblaðið - 29.08.1980, Síða 11

Morgunblaðið - 29.08.1980, Síða 11
AlGIASIMi.V SÍMLNN ER: 22480 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1980 Anna Bohlin farið í gegnum meir af nútíma- tónlist en nokkurntíma fyrr. Sex tímar á dag í nútímatónlist er álíka mikið og fer í hana á heilu misseri við skólann sem ég stunda nám við í New York. Þetta fyllir að miklu leyti upp í skörð sem annars væru ófyllt. Á námskeið sem þetta færi ég hiklaust aftur ef ég ætti þess kost. Zukofsky kröfu- harður kennari Anna Bohlin er 21 árs fagott- leikari frá Gautaborg, sagðist hafa heyrt um þessi Zukofsky- námskeið hjá vinkonu sinni sl. vor en ekki komið til hugar að hún ætti eftir að fara á slikt námskeið. „Ég hafði heyrt Zukofsky getið lítilsháttar og að hann væri mjög kröfuharður kennari og mig hefur alltaf langað að gera mitt besta og einbeita mér reglulega að tónlist- arnáminu. Ég hef verið í tvö ár og á eftir önnur tvö við nám í Tónlistarháskólanum í Gauta- borg, sem greiddi kostnað við ferð mína hingað. Um framtíðarstarf get ég lítið sagt, en ég býst við að það verði mest kennsla, en mig dreymir um að komast í sinfóníuhljómsveit, en það er mjög erfitt því margir eru um hituna." Lít tónlistina öðrum augum „Ég held að ég líti tónlist svolítið öðrum augum eftir að hafa þvælst í nútímatónlist nær allan sólarhringinn í nokkra daga sagði Svanhildur Óskarsdóttir, en hún stundar nám við Tónlist- arskólann í Reykjavík og mennta- skóla í Reykjavík. „Ég ætla að ljúka námi við menntaskólann áður en ég geri upp hug minn og sé til hversu tónlistin hefur þá sterk ítök í mér, áður en ég fer að velja mér framtíðarstarf." „Við erum sjö frá Akureyri á þessu námskeiði nú,“ sagði Magn- ús Kristinsson fiðluleikari og menntaskólakennari frá Akureyri. „Ég hef haft mjög mikið gagn af þessu námskeiði og þetta er tæki- færi til að glíma við erfiðari verkefni en kostur er á fyrir norðan. Zukofsky fer mjög vel í æfingarnar og skipuleggur þær mjög vel og veit sýnilega hvað hann er að gera. Það er gaman fyrir okkur að fá að takast á við erfiðari verkefni, kynnast öðru fólki og blanda geði við aðra tónlistarmenn og finna að maður er ekki aleinn að vasast í þessu. Við Akureyringarnir, sem vorum hér á síðastliðnu ári komum hér öll aftur og ég efast ekki um að áhugi er hjá Akureyringunum, sem nú eru hér að koma hingað aftur." Námskeiðinu lýkur með tvenn- um tónleikum, öðrum sem haldnir voru í gærkvöldi í sal Menntaskól- ans við Hamrahlíð og á morgun, laugardag, þar sem flutt verða þrjú stór hljómsveitarverk. Meðal verka verður Petruska eftir Stra- vinski og stjórnar Zukofsky um hundrað manna hljómsveit nem- enda af námskeiðinu. Aðalfundur Náttúruvernd- arsamtaka Austurlands Náttúruverndarsamtök Austur- lands — NAUST — héldu aðalfund sinn að Hofi í öræfum dagana 16. og 17. ágúst og sóttu hann 40 manns viða úr kjördæminu. t tengslum við fundinn var farið á Ingólfshöfða og gengið um þjóð- garðinn 1 Skaftafeili. Þeir Sigurður og Hálfdán Björnssynir. Kviskerj- um; Ragnar Stefánsson. Skaftafelli: og Eyþór Einarsson og Árni Reyn- isson frá Náttúruverndarráði fræddu þátttakendur um sögu og náttúrufar staðanna. Á kvöldvöku flutti Sveinn Jakobsson. jarðfræð- ingur. erindi um rannsóknir sinar á islenzkum eldstöðvaþyrpingum og Ragnar Stefánsson. bóndi i Skaftafelli. flutti frásöguþátt um svaðilför á hestum yfir Skeiðará. Loks var sýnd kvikmynd ósvalds Knudsens „Sveitin milli sanda“. Á aðalfundinum flutti Eyþór Ein- arsson formaður Náttúruverndar- ráðs ávarp og heillaóskir til samtak- anna sem eru 10 ára á þessu ári. í skýrslu stjórnar kom m.á. fram að aðalverkefni stjórnarinnar á starfs- árinu var athugun á steinatöku á Austurlandi í samvinnu við Náttúru- gripasafnið á Neskaupstað. Allmikl- ar umræður urðu um náttúruvernd- armál og nokkrar ályktanir voru samþykktar. Á fundinum fór fram stjórnarkjör og var Einar Þórarinsson, Neskaup- stað, endurkosinn formaður. I stjórn voru kjörnir: Magnús Hjálmarsson, Egilsstöðum,; Anna Kjartansdóttir, Höfn; Óli Björgvinsson, Djúpavogi; Jón Einarsson, Neskaupstað. Vara- menn: Guðrún Jónsdóttir, Hlöðum; Hermann Guðmundsson, Vopnafirði; Friðjón Guðröðarson, Höfn. Endur- skoðendur: Edda Björnsdóttir, Mið- húsum; Völundur Jóhannesson, Eg- ilsstöðum. Tii vara: Björn Björnsson, Neskaupstað og Hálfdán Haralds- son, Norðfirði. Ályktanir aðalfundar NAUST 1980. 1. Aðalfundur NAUST 1980 beinir þeim tilmælum til sveitarstjórna á Austurlandi að þær láti fara fram athugun á efnistökustöðum, hver á sínu svæði. Allvíða setja smekkleys- islega valdar og illa frá gengnar efnisnámur Ijótan svip á umhverfið og í sumum tilvikum spilla þær útliti heilla sveita. Skipuleggja þarf val á efnistökustöðum með tilliti til um- hverfis og ganga þannig um að sem minnst röskun hljótist af. 2. Fundurinn ítrekar fyrri sam- þykktir um að sorpeyðingu hjá sveitarfélögum verði komið í það horf að viðunandi sé. Einnig ítrekar fundurinn að sláturhús og fisk- vinnslustöðvar gangi betur frá úr- gangi sem frá þeim fellur. Minnir fundurinn á að víðast hvar eru þessi mál enn í megnasta ólestri svo af hlýst veruleg mengun storra svæða á landi og sjó. 3. Fundurinn beinir þeim tilmæl- um til stjórnvalda og yfirstjórnar vegamála að skipulagningu og upp- byggingu á fjallvegum verði hraðað eins og kostur er. Benda má á að aukin umferð um hálendi landsins síðustu ár hefur leitt til óþarfa og gáleysilegs aksturs um viðkvæm svæði, sumpart vegna slæmra merkinga og ófullnægjandi leiðbein- inga, en einnig og ekki síður, vegna lélegs ástands fjallveganna. 4. Fundurinn beinir þeim tilmæl- um til Náttúruverndarráðs að það hlutist til um að gistiskálum og hliðstæðum byggingum, sem reistar eru í óbyggðum, verði þannig valinn staður að þær spilli ekki gróðurvinj- um eða fögru umhverfi. (Fréttatilkynning). 20 50°/( Sláiö til og geriö kjara- kaup á glæsilegum afsláttur r\aup a yiocoucyui i n teppum, bútum og mottum lÉPPfíLfíND Grensásvegi 13, símar 83577 og 83430.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.