Morgunblaðið - 29.08.1980, Page 15

Morgunblaðið - 29.08.1980, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1980 15 Pólland í skugga sovéska bjarnarins Moskvu. 28. ágúst. AP. SPURNINGIN sem menn velta fyrir sér þessa dagana er: Munu Sovétmenn skerast í leikinn í Pólíandi? Það er ljóst að enginn vill að slíkt gerist. En möKuleikinn á hernaðarleKri íhlutun Sovétmanna í Póllandi er fyrir hendi á meðan verkföllin þar halda áfram. Pólsk stjórnvöld hafa óbeint varað verkfallsmenn við því að það sem gerðist í Unjíverjalandi árið 1956 or í Tékkóslóvakíu 1968 kynni að endurtaka sij?. Síðastliðinn sunnudag sagði Edward Gierek, leiðtogi komm- únistaflokksins, að Pólland gæti aðeins orðið frjálst land gegnum sósíalismann. „Við getum ekki farið út fyrir viss takmörk." Málgagn pólska kommúnista- flokksins, Trybuna Ludu, minnti lesendur sína á það sl. miðviku- dag að „Pólland liggur í beinni línu frá þeim sem gæta öryggis sósialismans, Sovétmönnum". Stefan Wyszynski kardináli sagði löndum sínum sl. þriðju- dag að þeir hefðu of miklu að tapa. „Leið okkar til frelsis var í gegnum rústir," sagði hann. Áíramhaldandi verk- föll eða innrás? Sovéskir fjölmiðlar hafa tak- markað frásagnir sínar af verk- föllum í Póllandi við yfirlýs- ingar pólskra stjórnvalda. Þeir hafa einkum undirstrikað það að „friðhelgi" Póllands byggist á því að það verði áfram sósíalískt ríki. Eftir innrásina í Tékkósló- vakíu árið 1968 sögðu Sovét- Frá innrásinni í Tékkóslóvakíu árið 1968. Sovéskur skriðdreki á götu i Prag. menn að sósíalísku stjórnkerfi hefði verið ógnað. Ekki er hægt að segja að það hafi enn gerst í Póllandi. Þó má segja að krafa þeirra um frjáls verkalýðsfélög grafi undan meginreglu þess sósíalisma sem framfylgt er í Sovétríkjunum. Þrátt fyrir ógnandi yfirlýs- ingu frá Kreml eru fréttaskýr- endur ekki í vafa um að Sovét- menn eru mjög tregir til að fara með her inn í Pólland. Sú hætta er fyrir hendi að verkamennirn- ir berjist á móti þeim og úr yrði blóðbað. Fyrir utan það myndi hernaðarleg íhlutun í Póllandi setja ljótan blett á Sovétmenn sem segjast vera boðberar friðar og framfara. Þeir biðu mikinn álitshnekki við innrásina í Af- ganistan og það yrði þeim dýr- keypt, bæði á sviði stjórnmála og efnahagsmála, færu þeir út í ný ævintýri nú. Spurningin er nú hvort Sovét- menn álíta að áframhaldandi verkföll í Póllandi verði þeim þyngri í skauti en innrás i landið. Ef verkföllin breiðast meira út, t.d. til fleiri landa í Austur- Evrópu, að ekki sé talað um Sovétríkin, má búast við því að valdamenn í Kreml sendi her sinn af stað. Yakunin í 5 ára fangelsi Mo.skva. 28. ágúst. AP. RÚSSNESKI andófsmað- urinn og presturinn Gleb Yakunin var í dag fundinn Isknattleik- ararnir flúðu Prag. 28. ág. AP. TÉKKNESKIR embættismenn viðurkenndu i dag opinberlega að þær fréttir væru sannar. að tveir af snjöllustu ísknatt- leiksmönnum Tékkóslóvakíu hefðu strokið yfir til Vestur- landa. Fyrri frásögnum um að bræð- urnir Peter og Anton Stastny hefðu beðið um pólitískt hæli í Kanada er þeir voru staddir á alþjóðlegri ísknattleikskeppni í Austurríki hafði verið neitað. sekur um and-sovézka iðju og dæmdur í fimm ára þrælkunarbúðavist og fimm ára útlegð að afplán- un lokinni, að því er eig- inkona hans greindi frá. TASS fréttastofan var óvenju- lega snör í snúningum að segja frá réttarhöldunum og sagði, að þar hefði fengist ótvíræð staðfesting á undirróðursiðju Yakunins. í lokaræðu sinni hafði Yakunin lýst því yfir, að hann hefði ekki annað gert en það sem starf hans sem prestur fól í sér. Kona hans sagði, að Yakunin hefði verið rólegur og þegar dómsorð var lesið hefðu ekki sézt á honum svip- brigði. Þegar Yakunin var fluttur á brottu, eltu nokkrir stuðnings- manna hans lögreglubílinn, hentu yfir hann hvítum blómum og hrópuðu hvatningarorð. Þetta gerðist 28. ágúst 1974 — Bandaríkin og Austur- Þýzkaland ákveða að taka upp stjórnmálasamband. 1973 — Egyptaland og Líbýa til- kynna stofnun sambandsríkis. 1%5 — Gordon Cooper og Charles Conrad lenda á Atlantshafi eftir átta daga geimferð. 1960 — Forsætisráðherra Jórdaníu, Hazza El-Majali, ráðinn af dögum. 1943 — Dönskum herskipum sökkt í Kaupmannahöfn í uppreisn gegn Þjóðverjum — Þjóðverjar taka öll völd í Danmörku. 1935 — Astrid Belgíudrottning ferst í bílslysi í Sviss. 1929 — Loftskipið „Graf Zeppelin" kemur úr hnattferð. 1842 — Ópíumstríði Breta og Kín- verja lýkur með Nanking-sáttmála. 1835 — Borgin Melbourne í Ástralíu stofnsett. 1833 — Vinnutími brezkra barna styttur í 48—69 stundir. 1782 — Um 1.100 farast þegar enska herskipið „Royal George" sekkur út af Spithead. 1756 — Sjö ára stríðið hefst með innrás Friðriks mikla í Saxland. 1533 — Síðasti konungur Inka í Perú, Atahualpa, kyrktur að skipun Pizarro. 1499 — Tyrkir taka Lepanto í Grikklandi. Ca. 28 e. Kr. — Höggvinn Jóhannes skírari. Afmæli. John Locke, enskur heim- spekingur (1632—1704) — Jean Baptiste Colbert, franskur stjórn- málaleiðtogi (1619—1683) — Jean A.D. Ingres, franskur listmálari (1780-1867) - Oliver Wendell Holmes, bandarískur rithöfundur (1809—1894) — Maurice Maeter- linck, belgískur rithöfundur (1862— 1949). Andíát. 1645 d. Hugo Grotius, stjórnmálaleiðtogi — 1877 d. Brig- ham Young, mormónaleiðtogi — 1895 d. Thomas Huxley, vísindamað- ur — 1975 d. Eamon de Valera, stjórnmálaleiðtogi. Innlent. 1220 Bardaginn á Helga- stöðum (ósigur bpsmanna) — 1649 Hollustueiðar unnir Friðrik III á Alþingi — 1688 d. Stefán Ólafsson í Vallanesi — 1862 Akureyri fær kaupstaðarréttindi — 1862 Konung- ur fellst á tillögu Alþingis um læknaskóla — 1905 Þjóðræðisflokk- ur stofnaður — 1934 „Rauðka" stofnuð (skipulagsnefnd atvinnu- vega) — 1946 Öryggisráðið mælir með upptöku íslands í SÞ — 1973 Fyrsta banaslysið í þorskastríðinu. Orð dagsins. Þegar hluturinn er á sínum stað er bezt að hafa hann þar — Winston Churchill (1874—1965). Sófasett „Colorado“ áklæði: Antik unnið leður. Verð kr. 1.980.000.- Eigum nú úrval af glæsilegum ítölskum sófasettum í háum gæðaflokki. Áklæöi: Leöur og mohair — pluss. Verö frá kr. 1.250.000.- Höfum opið laugardag og sunnudag frá kl. 2—6. SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU m tm ARMULI 4 SIMI82275

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.