Morgunblaðið - 29.08.1980, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1980
19
Pjétur Sigurður
Ágústsson: Minning
Kveðja frá starfsfólki
Útvegsbanka íslands
í dag fer fram í Fossvogskirkju
útför Péturs Sigurðar Ágústsson-
ar fyrrverandi húsvarðar Útvegs-
banka íslands.
Hann andaðist í Borgarspítal-
anum í Reykjavík aðfaranótt
föstudagsins 22. ágúst síðastlið-
inn. Pétur Sigurður átti síðustu
tvo mánuði ævi sinnar við þung-
bæran og ólæknandi sjúkdóm að
stríða, unz yfir lauk.
Pétur Sigurður var Húnvetning-
ur í báðar ættir fram. Hann
fæddist að Sellandi í Bólstaða-
hreppi i Austur-Húnavatnssýslu,
sonur hjónanna Sigurlaugar
Bjarnadóttur og Ágústs Sigfús-
sonar, er voru búendur þar. Hann
var einn sjö systkina og átti fjóra
bræður og tvær systur. Á lífi eru
þrír bræður Péturs og tvær systur.
Hann ólst upp að mestu hjá
fósturforeldrum sinum, Guð-
mundi Þorsteinssyni og konu hans
Björgu Magnúsdóttur í Holti í
Svínadal í Austur-Húnavatns-
sýslu.
Ungur að árum vandist Pétur
Sigurður allri algengri sveita-
vinnu og full þörf var á þeirri iðju
á fjölmennum sveitaheimilum við
aðstæður í upphafi þessarar aldar.
Skólagöngu var ekki að finna á
æskuárum Péturs Sigurðar. Hann
átti þó kost á takmarkaðri og
tímabundinni farkennslu hjá
frábærum farkennara og var fög-
ur og skýr rithönd hans órækur
vitnisburður þess ásamt með-
fæddri eðlisgreind.
Úr sveitinni, að norðan, lá leið
Péturs Sigurðar til Suðurlands.
Þangað leitaði hann útsýnis og
frekara náms en fáanlegt var í
heimabyggð. Hann var í hópi
fyrstu nemenda í Garðyrkjuskóla
ríkisins að Reykjum í Mosfells-
veit, er þaðan luku fullnaðarprófi
1941.
Sama ár réðist hann tii af-
greiðslustarfa hjá Grænmetis-
verzlun ríkisins og starfaði þar til
haustmánaðar 1953.
Á þeim árum og löngum síðar
starfaði hann einnig að garðyrkju
og blómarækt í hjáverkum og ætíð
þegar leyfi gafst til. Iðjuleysi var
Pétri Sigurði andstætt.
Enda þótt ekki ætti fyrir Pétri
Sigurði að liggja að verða bóndi í
heimasveit sinni, sem hugur hans
beindist oft að, var hann ávallt
bundinn traustum átthagabönd-
um sveitinni góðu, sem ól hann í
æsku og uppvexti.
Pétur Sigurður unni og vildi
græða sár fósturmoldarinnar og
fegra hana blómaskrúði.
Hann var í hópi hinna fyrstu
frumherja og hvatamanna að
ræktun og fegrun Þórdísarlundar
í Austur-Húnavatnssýslu, er ber
nafn landnámskonu þar í sveit.
Þórdísarlundur er einn fegursti og
sérkennilegasti gróðrarlundur
norðanlands.
Árum saman, á hverju vori, fór
Pétur Sigurður ásamt fjölda sveit-
unga sinna og sýslunga úr Húna-
vatnssýslu, sem búsettir voru á
höfuðborgarsvæðinu, norður í
Þórdísarlund til gróðursetningar,
eftirlits, umhirðu og snyrtingar á
staðnum. Allt starfið var lagt
fram í sjálfboðavinnu.
Það þekki ég vel að á herðar
Péturs Sigurðar kom að axla
mestan þunga fjárhagsútgjalda,
sem ávallt fylgja ferðalögum slík-
um milli landshluta og í þeim
efnum var örlæti og fórn Péturs
engin takmörk sett.
Hinn fagri og sögufrægi trjá-
gróður í Þórdísarlundi mun um
áraraðir og alla framtíð bera vitni
um framlag, fórnfýsi, sterk átt-
hagabönd og ást Péturs Sigurðar
til fæðingarsveitarinnar.
Pétur Sigurður hefir starfað
áratugum saman að fegrun og
skipulagi fjölda heimilisskrúð-
garða á höfuðborgarsvæðinu í
Reykjavík. Hann var ávallt eftir-
sóttur til slíkra starfa og var
vinna hans og frágangur sannur
vitnisburður um snyrtimennsku
og fegurðarkennd.
Margrét Agústs-
dóttir - Minning
Fædd 5. nóvember 1922
Dáin 20. ágúst 1980
I dag fer fram frá Fossvogskap-
ellu útför Margrétar Ágústsdótt-
ur, en hún andaðist í Landspítal-
anum 20. ágúst síðastliðinn.
Margrét Ágústsdóttir var fædd
og uppalin í Rafstöðinni við Ell-
iðaár. Foreldrar hennar voru Ág-
úst Guðmundsson, yfirvélstjóri,
dáinn 27. desember 1953, og Sig-
ríður-Pálsdóttir, sem lifir dóttur
sína.
Þetta var óvenju samheldin
fjölskylda, þar sem allir voru
tilbúnir til þess að aðstoða hver
annan, það sýndu systkini hennar
og börn oftar en einu sinni.
Fljótlega lá leið Margrétar, eða
Möggu eins og flestir kölluðu
hana, í Húsmæðraskólann að
Staðarfelli í Dölum. Hún minntist
skólaveru sinnar þar ætíð með
gleði og hafði mikla ánægju af
endurfundum gamalla skólasystk-
ina sinna.
Er hún var að Staðarfelli kynnt-
ist hún manni sínum, Guðjóni
Kristni Ólafssyni. Þau giftust
1941 og eignuðust alls níu börn
en hann lézt 19. september 1961.
Sem elzti tengdasonur Margrét-
ar á ég margs að minnast, en
lengst ætla ég, að minningin um
hinn létta hlátur hennar og rólega
yfirbragð, sem einkenndi hana svo
mjög, muni lifa.
Söknuður eftirlifenda er ætíð
mikill, einkum móður, barna og
barnabarns, sem öll nutu góðs á/
gæzku hennar, virtu hana og aaou.
En við, sem eftir lifum, getum
huggað okkur við það, að henni
líður örugglega ekki síður vel nú
undir nánari handleiðslu Himna-
föðurins, en henni leið er hún var
meðal okkar. Við vitum að vegir
Guðs eru órannsakanlegir og við
eigum oft erfitt með að sætta
okkur við það, sem gerist í kring-
um okkur, en við megum aldrei
gleyma því, að undir handleiðslu
hans líður okkur vel og að hann
veldur því, sem öllum er fyrir
beztu.
Viðar Ottesen.
Þann 15. september 1953 réðist
Pétur Sigurður í þjónustu Útvegs-
banka Islands og starfaði þar til 1.
janúar 1975, að hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir.
í Útvegsbanka íslands fóru leið-
ir okkar um sama farveg í nærri
22 ár sem starfsfélagar. Eftir að
hann hætti störfum í bankanum
bar áfram fundum okkar næstum
daglega, þar til hann var sjúkur
fluttur í Borgarspítalann. Pétur
Sigurður kom daglega til þess
tíma, til hádegisverðar í mötu-
neyti Útvegsbankans og eignaðist
í röðum yngra starfsfólks bankans
góða vini og öllum í bankanum
þótti vænt um Pétur Sigurð.
Hann var sannur vinur, stund-
um seintekinn en einlægur, með
hlýtt hjartalag, gleðilund og góð-
an hug til samferðamanna, sem
hann kynntist á langri lífsleið,
þekkti af afspurn og í raun, en sá
hópur var fjölmennur.
Pétur Sigurður hafði mikinn og
óskiptan áhuga á félagsmálum
bankamanna og samtökum þeirra.
Hann aðstoðaði okkur oft og
drengilega við skipulagningu og
störf að ræktunarmálum í Lækar-
botnum.
Honum þótti vænt um Útvegs-
banka íslands og sá ekki feigð í
framtíð hans.
Pétur Sigurður var meðalmaður
vexti, fagurlimaður, fríður sýnum,
dökkur yfirlits, íturvaxinn, glað-
vær, kíminn í frásögn og
skemmtinn á góðra vina fundum.
Kona Péturs Sigurðar var
Steinvör Jóhannesdóttir, einnig
Húnvetningur að ætt. Hún er látin
fyrir allmörgum árum. Hjónaband
þeirra var innilegt og heimilið að
Laugarnesvegi 83, þar sem síðustu
samverustundir þeirra voru, var
aðlaðandi, snyrtilegt og fallegt.
Þar voru síðustu heimkynni Pét-
urs Sigurðar, unz síðasta förin
hófst í Borgarspítalanum fyrir
tæplega þremur mánuðum.
Steinvör og Pétur Sigurður
eignuðust þrjú börn, tvo syni og
eina dóttur, sem öll eru á lífi.
Fyrir hönd starfsfólks Útvegs-
banka Islands færi ég látnum vini
mínum, Pétri Sigurði Ágústssyni,
innilegar þakkir okkar allra fyrir
trausta og órofa vináttu í sam-
starfi og tómstundaiðju.
Börnum hans, systkinum,
tengdadóttur og öðrum ástvinum
votta ég í nafni félaga minna
einlæga samúð.
Adolf Björnsson.
Minning —
Leiðrétting
Vegna þess að niðurlagsorð í
kveðjuorðum um Rannveigu Kjar-
an, hér í blaðinu í gær, eftir R.S.
brengluðust, birtir blaðið þessa
málsgrein aftur til leiðréttingar og
biður alla hlutaðeigandi afsökunar
á mistökunum. Svona hljóðar síð-
asta málsgrein kveðjuorðanna:
„Árið 1955 missti Rannveig eig-
inmann sinn, Ingvar Kjaran, og er
þá aðeins yngsta barnið, Snorri
Páll, eftir heima. 1962 er Kristín
Björnsdóttir, systir hennar, missti
eiginmann sinn, Gunnar Hall-
dórsson, fluttust þær systurnar
saman og reyndist Kristín Rann-
veigu einstaklega vel og vil ég
sérstaklega, fyrir hönd fjölsk.
minnar, þakka Kristínu (töntu)
hjartanlega fyrir allt.“
TÆKIFÆRISKAUP
Blaupunkt — Bonn
• FM, MV, LW
bylgjur
• Bílútvarp m/ stereo segulbandi
• BLAUPUNKT er rómaö ffyrir hljómgæöi
• BLAUPUNKT er þýsk gæöavara.
utinai Sfy^úióóon h.f
Suöurlandsbraut 16, R — S. 35200.
Veröiö ætti aö vera
r: 223.000.-
Okkar tilboö
er kr.
161.000.-
á meðan birgðir endast
Hagnýt kennslubók
fyrlr skóla og einstaklinga
N Y
KENNSLUBÓK
í VÉLRITUN
1. 2. 3. og -4. stig
ÞÓRUNN H. FELIXDÓTTIR
vélritunarkennari við
Verslunarskóla íslands
Otgefandi:
VÍKINGSPRENT - LITRÚN HF.
Veghúsastíg 7 - Sími 12864
101 Reykjavík