Morgunblaðið - 29.08.1980, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1980
31
Ráðast
úrslit
í kvöld?
VALUR og ÍA eigast við á
Akranesi i kvöld klukkan 18.00
eins og kemur fram á öðrum stað
hér á siðunni. Með sigri myndu
Valsmenn gripa um íslandsmeist-
arabikarinn með annarri hend-
inni. En si>{ri í A, á liðið enn góða
möguleika á að hreppa titilinn.
Staðan er nú þannig, að Vals-
menn eru efstir með 22 stig, Fram
hefur 21 stig og ÍA 18 stig. ÍA og
Valur hafa leikið 15 leiki en Fram
16 leiki. Sigri Valur í kvöld, munar
3 stigum á Val og Fram og aðeins
tvær umferðir eftir. Skagamenn
væru þar með úr leik í baráttunni
um efsta sætið. Annað sætið væri
þó möguleiki. Einnig væri annað
sætið möguleiki ef ÍA og Valur
skilja jöfn. Jafntefli myndi einnig
veita Fram svigrúm til að sækja
að Val lokakaflann. En sigri
Skagamenn, verður allt í graut,
Valur með 22 stig, Fram með 21
stig og ÍA með 20 stig. Það besta,
sem gæti gerst fyrir mótið sjálft,
væri því að ÍÁ myndi sigra.
Valsmenn verða þó ekki samm"
því...
Keppa í golfi
í Belgíu
FJÖGUR íslensk ungmenni
keppa þessa dagana í golfmóti á
vegum golfsambands Belgiu. Það
eru Steinunn Sæmundsdóttir, Ás-
gerður Sverrisdóttir. Gylfi Krist-
insson og Stefán Unnarsson.
í undankeppni lék Steinunn á
89 og 86 höggum. Ásgerður á 96
og 99 höggum. Gylfi á 86 og 81
höggum og Stefán á 87 og 88
höggum. Steinunn varð i 23. sæti
og komst í holukeppni. þar sem
hún tapaði. 1—2. fyrir ítalskri
stúlku. Þær Steinunn og Ásgerð-
ur kepptu síðan í upphafshögga-
keppni og varð Steinunn í
fimmta sæti. sló 195 metra.
í svokölluðum B-riðli kepptu
íslendingarnir í gær. Steinunn
lék þá á 87 höggum. Ásgerður á
88 höggum. Gylfi á 78 höggum og
Stefán á 100 höggum. Fararstjóri
er Gísli Árnason.
óli Þór Magnússon (nr. 6) fagnar marki sínu í gærkvöldi. Ljósm. Kristján.
IBK enn í logandi fallhættu
ÍBK er enn i iðandi fallhættu
eftir jafntefli gegn botnliði Þrótt-
á Laugardalsvellinum i gær-
ar
Blikastúlkur standa
sig vel í Danmörku
ÍSLANDSMEISTARAR kvenna í
knattspyrnu. Breiðablik, héldu
fyrir skömmu til Danmerkur i
keppnisferð og heimsókn til Fem-
inu. sem er eitthvert sterkasta lið
Dana í kvennaknattspyrnu. Sem
kunnugt er. urðu Danir heims-
meistarar í kvennaknattspyrnu
fyrir nokkrum árum og því
greinielga engir aukvisar á ferð-
inni þar.
Fyrsti leikur Breiðabliks var
gegn unglingaliði Feminu og
lauk honum með sigri Breiða-
bliks sem skoraði tvö mörk gegn
engu.
Næst lék Breiðablik gegn liði
sem nefnist Viren og er nokkuð
sterkt. Þann leik vann Breiða-
blik.5-1.
Þessi árangur var betri en
búist hafði verið við fyrirfram og
var því ákveðið að Breiðablik
mætti aðalliði Feminu, sem eins
og áður sagði er eitt sterkasta lið
Danmerkur. Leikurinn, sem var
mjög jafn og spennandi, endaði
með jafntefli. hvort liðið skoraði
eitt mark.
Síðasti leikur stúlknanna í
förinni verður í Sviþjóð. en þær
koma síðan heim 1. september.
kvöldi. Baöi liðin skoruðu eitt
mark og eiga Þróttarar enn
vonartýru um að bjarga sér frá
falli. Sú von er ekki mikil. en
gegn ÍBK í gærkvöldi sýndi liðið
baráttu sem skort hefur tilfinn-
anlega í leikjum liðsins lengst af
í sumar.Ef Þrótti tekst að vinna
síðustu tvo leiki sína, er aldrei að
vita hvað gerist.
Fyrri hálfleikur var með ólík-
indum tíðindalítill og fólki var
bara kalt að standa og glápa á
leikmenn kýla knöttinn fram og til
baka. Undirritaður tók þrjá
punkta í fyrri hálfleik og var mark
IBK þar innifalið. Það var hrein
gjöf frá Jóni markverði Þor-
björnssyni á 17. mínútu leiksins.
Oskar Færseth sendi háa fyrirgjöf
inn að markteig Þróttar. Jón
stökk upp og hafði hendur á
knettinum, en missti hann klaufa-
lega frá sér og fyrir tærnar á
Steinari Jóhannssyni. Steinar
renndi knettinum leiftursnöggt til
Óla Þórs Magnússonar, sem skor-
aði örugglega í tómt markið. Liðin
Þróttur:
ÍBK
áttu sitt hvort skotið fyrir leikhlé,
Ragnar fyrir ÍBK með skalla á 32.
minútu og Páll Ólafsson fyrir
Þrótt á 43. mínútu.
IBK var heldur sterkari aðilinn
framan af síðari hálfleik og skall
hurð tvívegis nærri hælum við
mark Þróttar. Steinar átti skot úr
þröngu færi sem Jón sló í stöng, og
Óli Þór lék hálfa vörn Þróttar
sundur og saman, en renndi út í
teig í stað þess að skjóta sjálfur.
Fyrir vikið varð ekkert úr. Þróttur
jafnaði svo á 71. mínútu. Halldór
Arason sendi fyrir markið frá
hægri, Þorsteinn Bjarnason mark-
vörður fór í skógarferð og Páll
spyrnti viðstöðulaust í tómt mark-
ið. Eftir markið var Þróttur betra
liðið, en tókst ekki að knýja fram
sigur.
Kári Gunnlaugsson.Ómar Ing\-
arsson og Óli Þór komu best frá
leiknum hjá ÍBK, Óli Þór er
bráðefnilegur. Þorsteinn var
traustur í markinu ef frá er talið
er Þróttur skoraði. Hjá Þrótti
báru Páll og Sverrir af, Jóhann
var einnig traustur, svo og Ágúst.
LIÐ ÞRÓTTAR: Jón Þorbjörnsson 5. Rúnar Sverrisson 5, Daði
Ilarðarson 5, Ottó Hreinsson 5, Sverrir Einarsson 6. Jóhann
Georgsson 6. Nikulás Jónsson 4. Páll ólafsson 7. Halldór Arason 5.
Ágúst Hauksson 6. Baldur Ilannesson 4.
LIÐ ÍBK: Þorsteinn Bjarnason 6, óskar Færseth 5. Guðjón
Guðjónsson 5. Kári Gunnlaugsson 7. Gísli Eyjólfsson 5. óli Þór
Magnússon 7, ómar Ingvarsson 6, Steinar Jóhannsson 5, Ragnar
Margeirsson 6. ólafur Júliusson 5, Björn Ingólfsson 5.
DÓMARI: Guðmundur Sigurbjörnsson 6.
Krakkar-þegar þið sjáið þessa kumpána þá skulið
þið passa ykkur. Þetta er nefnilega Högni hrekkvísi
og kattabandið hans og svo aumingja fisksalinn.
Hann Högni heldur sig nefnilega alltaf í námunda
við hann og notar hvert tækifæri til að gera
honum einhverja skráveifu, sjálfum sér til
framdráttar auðvitað.
En Högni og félagar eru ekki bara hrekkjusvín,
því jafnvel verstu hrekkjusvín fá stundum leið á að
hrekkja. Það sem þeim finnst næst skemmtilegast er
að spila á hljóðfæri og það kunna þeir svo sannarlega.
Þessvegna höfum við fengið vesalings fisksalann til
að vera með þeim á Heimilissýningunni í Höllinni.
Þá geta þeir bæði gert at í honum og spilað og sungið
fyrir ykkur.
KRAKKAR. í ALVÖRUTALAÐ. ÞEIRERUÆÐI.
Stundvísir, lagvísir, hrekkvísir og síðast en ekki
síst, fundvísir á veikustu hliðar vesalings fisksalans og
hinna sem hætta sér of nálægt þeim.
PASSIÐ YKKUR.
HÖGNI og kattabandið á hverjum degi í
HÖLLINNI. Alla virka daga kl. 3 og 6. Laugard. og
sunnud. kl. 3, 6 og 9.
- á hverjum föstudegi.