Morgunblaðið - 29.08.1980, Qupperneq 32
C.^-'^SÍminn á afgreióslunni er
83033
JKtreunblflbib
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
JM*r0unbbibib
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1980
Verðið á
olíunni
frá BNOC
leyndarmál
_VER1)ID á olíunni frá BNOC
hefur ekki verirt Kofið upp ok það
stendur ekki til að jjera það.“ satfði
þórhailur Astfeirsson ráðuneytis-
stjóri viðskiptaráðuneytisins við
Mhl. í gær.
„Það er ekki venjan að skýra frá
innihaldi slíkra samninga og við
höfum síður en svo grætt á opinberri
umfjöllun um olíuverð að undan-
förnu," bætti Þórhallur við.
Eins og áður hefur komið fram í
blaðinu hefur verið samið um fast
verð á gasolíunni frá BNOC á þessu
ári. Alls hefur verið gengið frá
kaupum á 80 þúsund lestum af
gasolíu á þessu ári. Fyrsti farmurinn
er væntanlegur í septemberlok en að
jafnaði munu koma 20 þúsund lestir
í hverjum mánuði fram til áramóta.
Samið er um fast verð, svokallað
mainstreamverð, sem um þessar
mundir er talsvert hærra en mark-
aðsverðið í Rotterdam en var mun
lægra þegar verðha’kkanirnar voru
sem mestar í Rotterdam. Olíukaupin
frá Sovétríkjunum eru sem kunnugt
er nuðuð við markaðsverð Rotter-
dam á hverjum tíma. Bensín og
svarto ia verður áfram keypt frá
Sovétrikjunum.
Skýrast mál
af hálfu
VSÍ í dag?
EFTIR mikil fundahold undan-
farna tvo daga hefur lítið birt
yfir samningaviðra-ðum ASÍ og
VSÍ. Lítið gerðist á fundi þess-
ara aðila í gar. en að honum
loknum hittist framkvæmda-
stjórn VSÍ á fundi og er al-
mennt búist við að niðurstöður
þess fundar skýri málin á
sáttafundi deiluaðila. sem hald-
inn verður kl. 13.30 í dag.
Ekki er talið líklegt að ríkis-
sáttasemjari komi fram með
sáttatillögu, en eftir langt samn-
ingaþóf er talið allt eins trúlegt
að sérsamböndin reyni að semja
hvert fyrir sig.
AÐSÓKN er mikil og stöðug á Heimilissýninguna í Laugardalnum og margir hafa brugðið sér í leiktækin í
Tívolíinu á staðnum, en þarna sjást nokkrir sýningargestir í loftfimleikum. Ljfcm.Mbi.RAx.
15 flugliðar fá
ársstarf í Senegal
Reynt að fá fleiri íslenska flugmenn til Air Bahama
FLUGLEiIÐIR undirrituðu i gær samning um leigu á einni DC-8 þotu
sinni. TF-FLB. til nýs flugfélags í Senegal í eitt ár. Verður þotan leigð
þangað þegar pílagrímaflugi i Nigeríu lýkur í nóvemher. Aður hafði
verið samið um pilagrímaflugið sem standa á yfir frá 23. septemher til
20. nóvember með tiu daga hléi um miðjan október og starfa að þvi um
150 manns.
JttorjjunliTafcifc
Askriftar-, lausasölu- og
auglýsingaverð Morgunblaðs-
ins hækkar frá og með 1.
september n.k.
Mánaðaráskrift verður þá
kr. 5.500.-. Lausasóluverð kr.
280.- eintakið. Grunnverð
auglýsinga kr. 3.300.- pr. ein-
dálksentimetra.
Að sögn Sveins Sæmundssonar
blaðafulltrúa munu 3—4 áhafnir
verða með vélina, sem leigð verður
til Senegal, þ.e. flugmenn og
flugvélstjórar, en ekki flugfreyjur.
Er þotunni aðallega ætlað að
fljúga á leiðum milli Senegal og
Evrópu, svo og til Brazilíu. Magn-
ús Gunnarsson framkvæmdastjóri
Arnarflugs annaðist samninga-
gerðina og Björn Theódórsson
framkvæmdastjóri hjá Flugleið-
um undirritaði fyrir hönd félags-
ins.
Erling Aspelund framkvæmda-
stjóri sagði að nú væri unnið að
öflun nýrra verkefna fyrir flugliða
félagsins og standa nú yfir samn-
ingar um að fleiri íslenskir flug-
menn komist að hjá Air Bahama
til að annast fragtflug fyrir Air
India, en þar er um langtímaverk-
efni að ræða. Hefur Félag Loft-
leiðaflugmanna lagt áherslu á að
fá verkefni hjá Air Bahama og
kvað Erling nú stefnt að því að
færa þetta leiguflugsverkefni í
hendur íslenskra flugmanna. Um
önnur verkefni sagði Erling óráð-
ið, en reyna ætti að fá verkefni
fyrir sem flesta flugliða félagsins
meðan samdráttur stæði yfir á
flugleiðinni yfir Norður Atlants-
haf. Þá sagði Erling óráðið með
fækkun starfsfólks á skrifstofum
Flugleið.a erlendis. Á næstunni
Flugleiða verði þá notuð á Amer-
íkuleiðinni meðan DC-8 þotur
fljúga í Nígeríu. Boeing þotan
verður að millilenda á leiðinni til
New York þar sem hún er ekki
eins langfleyg og DC-8 þotur og
kvað Erling Aspelund það lengja
flugtímann um 45 mínútur.
21% samdráttur í
gasolíusölu fyrri
helming þessa árs
Nemur 7,5 milljörðum
FYRRI helming þessa árs dróst
gasolíusala í landinu saman um
2o.84%, samkva'int þeim upplýs-
ingum, sem Morgunhlaðið fékk
í gær hjá Ólafi Johnson. við-
skiptafraðingi Skeljungs. Á
sama tíma dróst bensínsala
saman um \,W7r ef miðað er við
sömu mánuði í fyrra.
Fyrstu 6 mánuði ársins var
miðað við útsöluverð
gasolíusalan tæpir 146 milljón
lítrar á móti rúmlega 184 milljón
lítrum sömu mánuði í fyrra.
Bensínsalan var um 56,5 milljón
lítrar á móti um 57,2 milljón
lítrar í fyrra. Samdráttur á
bensínsölu í júnímánuði einum
var 6%.
Helstu ástæður minnkandi
gasolíusölu eru taldar vera hag-
stætt tíðarfar og ýmsar sparnað-
arráðstafanir í olíumálum, svo
sem breyting fiskiskipa yfir í
svartolíubrennslu.
Samdrátturinn nemur eins og
að framan greinir um 38 milljón
lítrum af gasolíu en það sam-
svarar um 7,5 milljörðum króna
miðað við núverandi gasolíuverð
hér innanlands, sem er 196,4o
krónur.
Sölufyrirtæki Sambandsins í Bandaríkjunum:
Agústmánuður
betri en sami
mánuður í f yrra
SALA á frystum sjávarafurðum í
Bandaríkjunum hefur gengið vel
að undanförnu hjá Iceland Sea-
food, sölufyrirtæki Sambandsins.
og er ágústmánuður nokkru
betri en sami mánuður í fyrra.
Fyrstu sjö mánuði ársins seldi
fyrirtækið sama magn og sömu
mánuði 1979. en verðma'taaukn-
ingin nam 5% í dollurum.
Sigurður Markússon, fram-
kvæmdastjóri Sjávarafurðadeild-
ar Sambandsins, sagði í gær, að
hann hefði ekki tölur um sölur í
ágústmánuði. Hins vegar væri
ljóst, að mánuðurinn kæmi vel út.
Hann væri örugglega talsvert
betri en ágúst í fyrra og væri
góður miðað við aðra mánuði
þessa árs. Hann var spurður hvort
þetta þýddi, að bjartara væri
framundan í sölumálum íslenzku
fisksölufyrirtækjanna í Banda-
ríkjunum. Sagði hann að vara-
samt væri að draga slíkar álykt-
anir af aðeins einum mánuði hjá
einu fyrirtæki.
Um birgðastöðu frystihúsa inn-
an Sambandsins sagði Sigurður,
að hún færi batnandi, þó svo að
hún yrði vafalaust erfið eitthvað
áfram. Hann sagði, að síðustu
vikur hefði heldur lifnað yfir
markaðnum í Bretlandi og búið
væri að selja verulegan hluta
þeirrar grálúðu til Vestur-Þýzka-
lands, sem Sambandsfrystihúsin
hafa verkað. Sagði hann, að meiri-
hluta þeirrar grálúðu, sem safnast
hefði saman hjá húsunum, yrði
afskipað þessa mánuði, september
og október. Búið er að afskipa upp
í þá viðbótarsamninga á 5 þúsund
tonnum, sem Sambandið og SH
gerðu við Sovétmenn í sumar.
Frystihús Sambandsins munu nú
öll hafa byrjað vinnslu, en nokkur
þeirra lokuðu um nokkurra vikna
skeið í sumar.