Morgunblaðið - 14.09.1980, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1980
Bæjarstjórn Garðabæjar:
Mótmælir vinnubrögð-
um Ingvars Gíslasonar
BÆJARSTJÓRN Garðabæjar
hefur sent frá sér ályktun, þar
sem mótmaJt er mjotc harðlega
þeirri ákvörðun Insvars Gísla-
sonar að hafa að cnsu meðmæli
meirihluta skólanefndar bæjar-
ins ojí fræðslustjóra Reykjanes-
umda’mis við veitingu skóla-
stjórastöðu við Hofsstaðaskóla í
Garðabæ. Mótmæli þessi voru
samþykkt á fundi bæjarstjórnar-
innar 11. september siðastliðinn
af fulltrúum mcirihluta sjálf-
stæðismanna í hajarstjórninni.
Alyktunin er svohljóðandi:
„Bæjarstjórn Garðabæjar mót-
mælir harðlega þeirri ákvörðun
menntamálaráðherra að hafa að
engu meðmæli meirihluta skóla-
nefndar bæjarins og fræðslustjóra
Reykjanesumdæmis við veitingu
skólastjórastöðu við Hofsstaða-
skóla í Garðabæ. Þykir bæjar-
stjórninni það furðulegt, að ráð-
herrann skuli telja sig hæfari til
þess að velja skólastjóra fyrir
börn í Garðabæ en Garðbæinga
sjálfa.
Lítur bæjarstjórnin svo á, að
með þessari afgreiðslu hafi ráð-
herrann fallið í gryfju ósmekk-
legra embættisveitinga, sem lengi
hafa loðað við embættið og Garð-
bæingar hafa áður kynnzt."
Undir ályktunina rita bæjar-
fulltrúarnir Garðar Sigurgeirsson,
Sigurður Sigurjónsson, Markús
Sveinsson og Jón Sveinsson.
Skólastjóramálið í Garðabæ:
Mótmæla ummælum
menntamáiaráðherra
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér til
Benedikts Sveinssonar og Erlu
Jónsdóttur, sem eru tveir af þrem
fulltrúum sjálfstæðismanna í
skólanefnd Hofsstaðaskóla í
Garðabæ vegna þeirra ummæla
Ingvars Gíslasonar menntamála-
ráðherra í Dagblaðinu á fimmtu-
dag, að afgreiðsla skóla-
nefndarinnar á ráðningu nýs
skólastjóra hafi verið pólitísk, en
meirihluti skólanefndarinnar
mælti með Eyjólfi Þór Jónssyni,
kennara úr Keflavík, í starfið, en
minnihlutinn mælti með Ililmari
B. Ingólfssyni. Ekki náðist í
þriðja fulltrúa sjálfstæðismanna
i skólastjórninni. Hjalta Einars-
son.
Þau Benedikt og Erla höfðu
þetta um málið að segja: „Þegar
skólanefnd afgreiddi umsóknir um
skólastjórastöðu við Hofsstaða-
skóla lágu fyrir tvær umsóknir um
stöðuna.
í fyrsta lagi frá Eyjólfi Þ.
Jónssyni kennara í Keflavík. Um-
sókn hans fylgdu gögn er sýndu að
hann hefur verið afburða náms-
maður í Kennaraskóla Islands og
©
INNLENT
síðan aflað sér framhaldsmennt-
unar við Háskóla íslands í dönsku
og við danska kennaraháskólann.
Hann hefur starfað sem kennari
í fjórum skólum á 27 ára starfs-
ferli sínum og þar af 7 ár við
barnafræðslustigið. Þá fylgdu um-
sókninni umsagnir þriggja skóla-
stjóra.
Umsókn Hilmars B. Ingólfsson-
ar kennara í Garðabæ, sem var
hinn umsækjandinn um stöðuna,
fylgdu engin gögn. Hann hefur
starfað við Gagnfræðaskóla
Garðahrepps, síðar Garðaskóla,
sem stærðfræðikennari í 14 ár.
Allir skólanefndarmenn þekkja
Hilmar B. Ingólfsson persónulega,
bæði sem skólamann og pólitíkus,
en hann er bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins í Garðabæ.
Fræðslustjóri Reykjanesum-
dæmis sat fundinn og skýrði frá
því að hann teldi báða umsækj-
endur hæfa til starfsins.
Skólanefnd afgreiddi umsókn-
ina með leynilegri atkvæða-
greiðslu og hlaut Eyjólfur 3 at-
kvæði en Hilmar 2.
Fullyrðingum ráðherra í blöð-
um um pólitíska afgreiðslu
skólanefndar á máli þessu mót-
mælum við sem algjörlega
órökstuddum og skorum á hann að
finna þeim orðum sínum stað.
Þá er rétt að vekja athygli á því
að ráðherra hefur í engu gert
grein fyrir því hverja kosti hann
telur Hilmar B. Ingólfsson hafa
umfram Eyjólf Þ. Jónsson til
skólastjórastarfsins."
ARNARFLUG hí. hóf áætlunar-
ílug hér innanlands fyrir réttu
ári, eða 14. september 1979. í
upphafi var flogið með leiguvél-
um, þar sem þessi þáttur i starf-
semi félagsins hófst án mikils
fyrirvara og ekki gafst timi til að
kaupa vélar i byrjun.
Smám saman eignaðist Arnar-
flug sínar eigin flugvélar til að
sinna áætlunarfluginu. Nú á félag-
ið fjórar vélar, sem notaðar eru á
leiðum félagsins innanlands, tvær
Twin Otter-vélar, sem hvor um sig
tekur 19 farþega, eina Piper Chief-
tain, 9 sæta, og svo skrúfuþotu af
gerðinni Piper Cheyenne, 7 sæta,
sem einnig er notuð til leiguferða
til nágrannalandanna.
Samkvæmt upplýsingum Arnar-
flugsmanna hafa frá því innan-
landsflugið hófst verið farnar 1300
Innanlandsflug Arnarflugs ársgamalt:
Flugu með tæplega
20 þúsund farþega
ferðir til 9 staða vestan og norðan-
lands, Stykkishólms, Rifs, Bíldu-
dals, Flateyrar, Suðureyrar,
Hólmavíkur, Gjögurs, Blönduóss og
Siglufjarðar. I þessum ferðum hafa
verið fluttir tæplega 20 þúsund
farþegar og um 170 tonn af vörum.
Samhliða áætlunarfluginu hafa
vélar félagsins verið notaðar til
leiguflugs með farþega og vörur
innanlands og milli landa. Hefur
þessi þjónusta m.a. verið mikið
notuð af íþróttamönnum. Mikið
hefur verið um útsýnisflug með
erlenda ferðamenn á vegum félags-
ins og þá voru farnar 35 „gosferðir"
með farþega yfir eldstöðvarnar við
Kröflu og í Heklu.
Þann 6. september sl. hóf félagið
áætlunarflug til Grundarfjarðar og
er það tíundi staðurinn í áætlun
félagsins. Vetraráætlun tekur gildi
20. september nk. og er hún að
miklu leyti byggð á svörum úr
þjónustukönnun, sem framkvæmd
var í sumar og verður kynnt síðar,
að sögn Magnúsar Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra félagsins.
Arnarflug hefur reynt að beita
áhrifum sínum til að bæta flug-
vallarskilyrði úti á landi og eitt af
aðalmálunum í því sambandi er að
fá lýsingu á flugvellina, svo að
hægt sé að fljúga, hvenær sólar-
hringsins sem er.
Danska jazzhljóm-
sveitin Mirror
hingað til lands
DANSKA jazz/rock-sveitin Mirror,
sem valin var til tónleikaferðar um
Norðurlönd á vegum Nord-jazz og
Norræna menningarmálasjóðsins,
kemur til íslands á morgun.
Stjórnandi og hljómborðsleikari
Mirror er Tomas Clausen, sem áður
hefur leikið með Jazzhljómsveit
danska útvarpsins, Waves, Creme
Fraiche og V8. Einnig hefur hann
leikið með erlendum tónlistar-
mönnum. sem hafa heimsótt Dan-
mörk.
Jan Zum Vohrde leikur á alto-
saxofón, tenór-saxofón og flautu,
Aage Tangaard leikur á trommur,
Bo Stief leikur á bassa, hvort sém er
kontrabassa eða rafmagnsbassa, og
loks leikur Allan Botschinsky á
trompet og er hann ef til vill
þekktastur þeirra félaga.
Tónleikar hljómsveitarinnar verða
á morgun, 15. september, að Hótel
Sögu, þriðjudaginn 16. september í
Menntaskólanum við Hamrahlíð,
miðvikudaginn 17. september að
Hótel Sögu og fimmtudaginn 18.
september verða tónleikarnir í Sjálf-
stæðishúsinu á Akureyri og hefjast
allir tónleikarnir klukkan 21.00.
Fimm mættu
á fundinn
SAMTÖK herstöðvaandstæðinga
boðuðu til fundar á Höfn í Horna-
firði í vikunni og var mættur fulltrúi
þeirra frá Reykjavík. Ekki virðist
áhugi heimamanna vera mikill, því
fimm manns mættu á fundinn, auk
framsögumanns frá Reykjavík.
Tillaga um landgræðsluáætlun upp á 6 milljarða króna tilbúin:
Vona að sem allra mest
samstaða náist um málið
- segir Sigurður Blöndal, skógræktarstjóri ríkisins, og
í sama streng tekur Pálmi Jónsson, landbúnaðarráðherra
PÁLMI Jónsson landbúnaðar-
ráðherra sagði í samtali við Mbi.
i gærdag, að nefnd, sem skipuð
hefði verið af landbúnaðarráðu-
neytinu, hefði nú skilað tillögum
um nýja landgræðsluáætlun, en
þeirri eldri er nú lokið.
„Þessar tillögur verða lagðar
fyrir þingflokkana nú í haust og
ég tel mikils virði, að það náist
sem víðtækust samstaða um þær i
öllum flokkum.
í tillögunum er gert ráð fyrir
Stef nir í lokun dagvistarstof n-
ana vegna skorts á fóstrum
VEGNA erfiðleika á að fá fóstrur
til starfa á hinum ýmsu dagvist-
arstofnunum Reykjavíkur stefnir
nú allt i það að loka verði
deildum einstakra heimila. For-
stöðumaður Vesturborgar hefur
t.d. ritað Dagvistarnefnd bréf
þar sem farið er fram á að loka
annarri deild heimilisins frá 1.
desember nk. vegna skorts á
fóstrum.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
i félagsmálaráði lögðu fram
vegna málsins tillögu í ráðinu .
þar sem segir m.a.:
„Félagsmálaráð vekur athygli á
þeim alvarlegu tíðindum, sem
fram komu á fundi í stjórn
dagvistunar þann 8. þ.m. er for-
stöðumaður einnar dagvistar-
stofnunar borgarinnar lét bréf-
lega í ljós ótta um að þurfa að loka
heilli dagvistardeild þann 1. des.
nk. vegna skorts á fóstrum. Þetta
vandamál er ekki bundið við eina
stofnun, heldur kemur fram í
fundargerð stjórnar dagvistunar
að Dagvistarnefnd sé Ijóst „hvílík-
ur vandi er hér á ferð og eigi það
við um fjölmargar stofnanir,
dagvistarheimili og leikskóla".
Hér er stóralvarlegt mál til
meðferðar, sem knýr á um að
námsskilyrði, starfsaðstaða og
launakjör starfsfólks á þessum
stofnunum verði tekin upp til
endurmats.
Félagsmálaráð beinir því sér-
staklea til launamálanefndar
borgarinnar að við gerð sérkjara-
samnings verði launakjör fóstra
og annars starfsliðs dagvistunar-
stofnana bætt þannig að þessar
stofnanir geti á hverjum tíma
treyst á að fá til starfa hæfa
starfsmenn, er geti rækt til fulln-
ustu hið uppeldislega hlutverk
sem verður æ veigameiri þáttur í
starfi þessara stofnana borgarinn-
ar.“
Markús Örn Antonsson, annar
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í fé-
lagsmálaráði, sagðí í samtali við
Mbl., að greinilegt væri, að málið
væri komið á mjög alvarlegt stig,
og því þætti þeim sjálfstæðis-
mönnunum í félagsmálaráði það
skylda ráðsins að taka málið til
umfjöllunar. Félagsmálaráð hefur
yfirumsjón með rekstri tæplega 40
dagvistarstofnana í Reykjavík. —
„Það hlýtur að hvíla á okkar
herðum að finna lausn á þessu
mikla vandamáli og því lögðum
við fram áðurnefnda tillögu, sér-
staklega þegar það er nú haft í
huga, að stöðugt er verið að fjölga
heimilunum. Við leggjum sérstaka
áherzlu á menntunarskilyrðin og
starfsaðstöðuna, með það í huga
að sérkjarasamningar borgar-
starfsmanna fara nú í hönd. Því
leggjum við til að félagsmálaráð
beiti sér fyrir því, að vægi starfa á
dagvistarstofnunum, þ.e. störf
forstöðumanna, fóstra og aðstoð-
arstúlkna í Sókn, vegi þyngra við
röðun í launaflokka þegar til
endurmats kemur, með það í huga,
að sífellt eru gerðar meiri kröfur
til þessa fólks.
að verja 1200 milljónum króna
árlega til landgræðslu í fimm ár,
eða gerð er tillaga um land-
græðsluáætlun upp á 6 milljarða
króna. Ég hef alla fyrirvara á því
sem kann að standa í fjárlaga-
frumvarpi um þessi mál. Eg vona
aðeins, að samstaðan verði sem
viðtækust, þannig að ekki þurfi
að koma til árekstra vegna máls-
ins,“ sagði Pálmi Jónsson land-
búnaðarráðherra.
Aðeins upphafið
að miklu starfi
„Ég vona bara að sem allra
víðtækust samstaða náist á Al-
þingi um málið, þannig að það
þurfi ekki að stranda þar, en hér
er um mikið alvörumál að ræða,
og eldri landgræðsluáætlun, sem
er lokið, bjargaði miklu, en þetta
er aðeins upphafið að miklu
starfi," sagði Sigurður Blöndal,
Skógræktarstjóri ríkisins, í sam-
tali við Mbl., er hann var inntur
álits á drögum að nýju land-
græðsluáætluninni.
„Það var einhugur í nefndinni,
sem vann drögin, um að mæla með
1200 milljóna króna fjárframlagi
ár hvert til landgræðslu í fimm ár
og af því er gert ráð fyrir að
skógræktin fái 200 milljónir á ári
til umráða.
Höfuðáherzlan
á nýskógrækt
í áætluninni fyrir skógrækt er
lögð höfuðáherzla á að friða land
til nýskógræktar, sérstaklega á
þeim stöðum þar sem skilyrði til
skógræktar eru góð. Þá er gert ráð
fyrir ákveðnu fjármagni til gerðar
útivistarsvæða við þéttbýli, en þar
kreppir skórinn verulega. Við
gerðum tiliögur um fjárveitingu
til ýmissa rannsóknaverkefna og
þá er gerð tillaga um fjárveitingu
til að koma á fót færanlegum
vinnuflokki í skógrækt, sem er að
mínu mati mjög brýnt verkefni.
Sérstaklega er það mikilvægt fyrir
smærri skógræktarsvæðin úti um
landið sem hafa átt í mestu
erfiðleikum með að fá mannskap
til að vinna ýmisleg nauðsynleg
verk.
Helztu nýræktarsvæði Skóg-
ræktar ríkisins eru á Hallorms-
stað, þar sem um 1200 hektara
svæði er til reiðu eftir friðun. Þá
má nefna ýmis önnur svæði á
Héraði, í Borgarfirði, í Eyjafirði
og á Suðurlandi.
Sameiginleg verkefni
Af nýmælum má nefna tillögur
um nokkur sameiginleg verkefni
stofnananna þriggja, Skógræktar
ríkisins, Landgræðslunnar og
Rannsóknarstofu landbúnaðarins.
Stærsta verkefnið þar er að
byggja upp svokölluð skjólbelti,
sem myndu nýtast landbúnaðin-
um mjög vel,“ sagði Sigurður
Blöndal ennfremur.
Sigurður vildi að síðustu leggja
þunga áherzlu á, að fyrri áætlun
var aðeins upphafið að mjög stóru
verkefni, reyndar væri land-
græðsla hér á landi eilífðarverk-
efni.
Kirkja Óháða
safnaðarins
MESSA verður í dag, sunnudag,
kl. 11 árd. í kirkju Óháða safnað-
arins. Safnaðarpresturinn sr. Em-
il Björnsson messar.