Morgunblaðið - 14.09.1980, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1980
Móöir okkar
LAUFEY GUÐMUNDSDÓTTIR
Álfaakeiöi 56, Hafnarfiröi,
andaöist á Landskotsspítala föstudaginn 12. september.
Guörún Bjarnadóttir
Sjöfn Magnúsdóttir
Kristófer Magnússon
Guörún Magnúsdóttir
Faöir okkar og bróöir,
ÞORVALDUR STEFÁNSSON,
stýrimaöur,
frá Grindavík,
til heimilis aö Gnoöarvogi 14, Reykjavík, verður jarösunginn frá
Fossvogskirkju, miövikudaginn 17. september kl. 15.
Þeim, er vildu minnast hins látna, er bent á Hjartavernd.
Kristján Þorvaldsson,
Stefán Þorvaldsson,
Sveínn Þorvaldsson,
Halldór Þorvaldsson,
Þorvaldur Þorvaldsson,
systkini og aörir vandamenn.
Eiginkona mín,
RAGNHILDUR OLAFSDÓTTIR,
andaöist á Landakotsspítala föstudaginn 12. september sl.
Jaröarförin auglýst síöar.
Guðmundur Jónsson
frá Hvanneyri.
Eiginkona mín,
REGÍNA HALLSDÓTTIR,
andaöist fimmtudaginn 11. sept.
Georg Georgsson
og synir.
Útför konu minnar,
GUÐRUNAR ÁSMUNDSDÓTTUR,
Grœnuhlíö 11,
sem lést 2. september sl., veröur gerö frá Fossvogskirkju
miövikudaginn 17. september kl. 10.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuö.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna,
Haukur Guðjónsson.
+
Ástkær eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma,
ÓLÖF RAGNHEIÐUR SÖLVADÓTTIR,
Njörvasundi 29,
veröur jarösett frá Fossvogskirkju, þriöjudaginn 16. september kl.
3.00.
Þeir sem vilja minnast hennar, vinsamlega láti Krabbameinsfélag
íslands njóta þess.
Andrés Pátursson,
Margrét Björk Andrésdóttir, Sveinn Sigurösson,
Pétur Önundur Andrésson, Kristfn Stefánsdóttir
og barnabörn.
+
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi,
JÓN BJÓRNSSON,
Brunnstíg 7, Hafnarfirði,
veröur jarösunginn frá Hafnarfjaröarkirkju þriöjudaginn 16.
september kl. 2 e.h.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuö.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Styrktarfélag vangefinna.
Gíslína Sveinbjörg Gísladóttir,
Stefán Jónsson, Edda Magnúsdóttir
og börn.
+
Útför mannsins míns, fööur, tengdafööur og afa,
SIGURSTEINS GUÐJÓNSSONAR,
Laugarnesvegi 108, R.
fer fram frá Fossvogskirkju, þriöjudaginn 16. september kl. 13.30
e.h.
Sigurbjörg Marteinsdóttir,
Rósa Sigursteinsdóttir, Jón H. Friösteinsson,
Marteinn S. Sigursteinsson, Kristfn Kristinsdóttir,
Geröa A. Sigursteinsdóttir, Guðmundur Bachman,
Jóna L. Sigursteinsdóttir, Reynir Hauksson.
Guörún Sigursteinsdóttír,
Elísa J. Sigursteinsdóttir, Stefán Kjartansson,
Sigursteinn Tómasson og barnabörn.
Sigmundur Guðmundsson
Hveragerði - Minning
Þrátt fyrir langa, raunsanna
heimildarsögu tilverunnar stönd-
um við jafnan óviðbúin frammi
fyrir staðreynd augnabliksins,
þegar samferðamenn hverfa
skyndilega af sviðinu. Þannig fór
mér er ég frétti að Sigmundur
Guðmundsson garðyrkjumaður í
Hveragerði væri látinn.
Eg kom úr ferðalagi um átthaga
okkar beggja við vestanverðan
Húnaflóa og hafði átt þar nokkra
ógleymanlega og bjarta sólardaga.
Síst kom mér í hug, þegar ég á
heiðu kvöldi í Munaðarnesi sá
Drangaskörðin í fjarsýn norðan
Ófeigsfjarðarflóans og skugga
draga niður yfir víkina þar sem
áður var æskuheimili Sigmundar
og hann ólst upp til manndóms-
ára, að þessi góði gæfulegi maður
hefði spunnið til enda sinn ævi-
þráð.
Mér finnst ætíð, þegar ég heyri
að horfinn er maður, sem fékk
æskusvip og uppeldi á ströndum
eins og brotnað hafi stuðull úr
berghömrum byggðarinnar og
jafnframt til moldar fallið kjarna-
kvistur af lífsmeiði landsins.
Foreldrar Sigmundar voru Ingi-
björg S.V. Guðmundsdóttir frá
Byrgisvík og Guðmundur Guð-
brandsson frá Veiðileysu. Þau
hjón áttu fyrst heimili í Byrgisvík
og svo að Kúvíkum við Reykja-
fjörð en að Drangavík fluttust þau
árið 1925 og bjuggu þar í 22 ár eða
til 1947 að þau fóru að Svarthamri
í Álftafirði vestra.
Börnin urðu tíu og var Sig-
mundur elstur þeirra. Það var oft
hörð lífsraun fjölskyldunnar
sunnan undir Drangafjallaskag-
anum og engum aukvisum hent að
sjá þar borgið stóru heimili. En
þau Drangahjón voru ekki vön
neinum silkisessum í uppvextinum
og brá því ekki svo mikið, þótt
fjúk væri á fjöllum og brimaði við
ströndina, en út til hafs var
bjargræði heimilisins sótt að stór-
um hlut, því landjörðin bauð ekki
marga góða kosti.
Sigmundur var elstur systkin-
anna og varð því ungur að taka
þátt í daglegum störfum. En þótt
hann væri snemma vel að manni,
þrekinn og kappsfullur, mun hann
þó stundum hafa gengið full nærri
orku sinni — ekki síst á rekafjöru
— enda galt hann þeirra átaka
síðar á ævinni.
Á Dröngum bjuggu þá við mikla
rausn hjónin Eiríkur Guðmunds-
son og Ragnheiður Pétursdóttir.
Sonur þeirra, Guðmundur, var
dugmikill maður á líku reki og
Sigmundur. Þessum ungu ná-
grönnum var vel til vina og sóttu
þeir lengi sjó saman á opnum
vélbát. Ekki munu þeir félagar
Lokað
vegna jaröarfarar
JÓNS BJÖRNSSONAR,
þriöjudaginn 16. september frá kl. 1—4.
Bæjarútgerð Hafnarfjaröar.
+
Þökkun innilega sýndá samúö viö andlát og jaröarför litlu dóttur
okkar og systur,
MATTHILDAR INGU,
Austurvegi 13, Vík.
Símon Gunnarsson, Sigríöur Guömundsdóttir,
Siguröur Þór Símonarson, Sigurbjörg Kr. Óskarsdóttir.
+
Eiginmaður minn og faöir okkar,
ERLENDURJÓNSSON,
fré Jarölangsstööum,
sem andaöist 5. sept., veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni
mánudaginn 15. sept. þ.m., kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á líknarstofnanir.
Helga Jónsdóttir,
Þuríöur Erlendsdótir,
Ragnhildur Erlendsdóttir,
Erna Erlendsdóttír,
Örn Erlendsson.
+
Viö þökkum innilega ötlum þeim, sem sýndu okkur samúö viö
andlát móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
HERDÍSAR MAJU BRYNJÓLFSDÓTTUR,
Stuölaseli 14, Reykjavik.
Þá þökkum viö kærlega öllu starfsfólki á deild 2A á Landakotsspít-
ala fyrir umhugsun þeirra og hlýju í garö móöur okkar síöustu
mánuöina.
Magnús Ó. Valdimarsson, Edda Þórz,
Sveinn H. Valdimarsson, Elín Finnbogadóttir,
Hrafn Valdimarsson,
Kolbrún Valdimarsdótir, Óskar Gunnar Óskarsson,
Grímur Valdimarsson, Arnbjörg Guöbjörnsdóttir,
og barnabörn.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 81960
hafa látið sér bregða þótt bryti úr
báru og verið fremur hiklausir í
samskiptum við Ægi. Þeir víluðu
ekki fyrir sér að skjóta vestur
fyrir Hornið og inn til ísafjarðar,
ef þeim sýndist þess þörf. En það
var einmitt sú úfna öldufallaleið
meðfram bergrisum norðursins,
sem varð gæfuvegur Sigmundar.
Á Isafirði kynntist hann konu
sinni Kristínu Jónsdóttur. klæð-
skera, Jónssonar. Þau fluttu síðar
til Hveragerðis og hafa starfrækt
þar garðyrkjustöð.
Þrátt fyrir það að við Sigmund-
ur áttum heimtaugar í sömu sýslu
kynntumst við ekki að neinu
marki fyrr en hann var sestur að í
Hveragerði og ég farinn að staul-
ast á malbiki höfuðborgarinnar.
Heima á Ströndum lék um hann
hetjuljómi sem harðsækinn sjó-
sóknara með krafta í kögglum.
Þeir menn gengu sjaldan sömu
götu og við landkrabbarnir, enda
um langvegu sótt til slíkra funda.
Hér í Hveragerði var ég oft
gestur á heimili þeirra Kristínar
og Sigmundar — kannske var ég
hættur að líta á mig sem gest —
svo tíðar urðu ferðirnar. Þar var
hlýtt og bjart og eins fannst mér
að mundi umhorfs í hugskoti
þeirra hjóna.
Sigmundur var heilsuveill síð-
ustu árin og þá var honum áreið-
anlega mikils virði að eiga konu
eins og Kristínu.
Við Sigmundur höfðum ólíkar
skoðanir — eða trúðum því að
minnsta kosti, en sá skoðanamun-
ur orsakaði aldrei særandi við-
brögð. Handtak hans var ætíð
jafnhlýtt og bros Kristínar jafn-
glatt. Þau voru mannvinir. — Það
hefur í mínum huga aldrei verið
álitamál.
Þó Sigmundur sé farinn stendur
hún Kristín ekki ein eftir. Hún á
minninguna um drenglyndan og
traustan samferðamann. Dæturn-
ar þrjár og barnabörnin. Þegar
sárasta sviðann dregur úr undinni
birtir á ný — og það er nóg þörf
fyrir brosið hennar í þessum
harða heimi.
Ég sakna Sigmundar, þótt hann
léti ekki stórt en yndi best við sinn
heimilisarin. Hann hlynnti með
sömu alúð að heimili sínu hér
sunnan heiða og að heimili for-
eldra og systkina norður við ysta
haf. Það var gott að eiga stundar
athvarf á heimili Sigmundar á
Drangavík — Hveragerði er svip-
minni staður þegar hann er far-
inn.
Guð blessi minningu góðs
drengs og ástvini hans alla.
Þorsteinn frá Kaldrananesi.
Legsteinn er
varanlegt
minnlsmerki
Framleiðum ótal
tegundir legsteina.
Allskonar stærðir og
gerðir. Veitum fúslega
upplýsingar og ráðgjöf
um gerð og val
legsteina.
S.HELGASON HF
STEINSMIÐJA
SKEMMLWB3I 48 Sfe* 76677