Morgunblaðið - 14.09.1980, Blaðsíða 17
Hilke i húsakynnum nuddstof-
unnar.
Ný nudd-
stof a opnuð
NUDDSTOFA Hilke Hubert,
HverfisKötu 39, var opnuð 1.
september sl. Eigandi og eini
starfsmaður er þýsk nuddkona,
Hilke Hubert. Hún lærði við
nuddskóla i Stuttgart sjúkra-
nudd, lækningaböð og fótaað-
æerðir. Hiike hefur starfað hér á
Islandi i f jögur ár.
Á nuddstofunni er boðið upp á
hitanudd og háfjallasól, auk þess
sem Hilke er með hitalampa til að
hita upp vöðva fyrir nudd.
Nuddstofan verður opin frá kl.
14 til kl. 19 alla daga nema
mánudaga og miðvikudaga kl.
14-21.
Búnaðarfélagið gengst
fyrir sérstöku nám-
skeiði i feldfjárrækt
BÚNAÐARFÉLAG íslands
gengst á næstunni fyrir nám-
skeiðum i feldfjárrækt og verða
þau haldin á fjórum stöðum á
landinu. Að sögn Sveins Ilall-
grímssonar, ráðunauts Búnaðar-
félagsins i sauðfjárrækt hefur
ráðunautum. siáturleyfishöfum
og áhugamönnum um feldfjár-
rækt verið boðin þátttaka í nám-
skeiðunum.
Námskeið þessi eru nú haldin
vegna þeirrar stöðu sem upp er
komin í sauðfjárrækt og er ætlun-
in að reyna að auka fjölbreytni og
finna nýjan grundvöll í sauðfjár-
rækt að sögn Sveins. Kvað hann
menn hingað til hafa sett kjöteig-
inleika sauðfjár í fyrsta sæti, en
nú væri ætlunin að feldeiginleikar
yrðu metnir meira en verið hefur.
Sænskur sérfræðingur kemur til
landsins og leiðbeinir á námskeið-
unum í því að meta gæði ullar á
lömbum til þess að hægt sé að ala
með það í huga.
Fyrsta námskeiðið verður á
Hólum á mánudag og þriðjudag og
tilkynnist þátttaka til Grétars
Geirssonar ráðsmanns, annað
námskeiðið verður á Kirkjubæj-
arklaustri 19. og 20. sept og tekur
Einar Þorsteinsson við þátttöku-
tilkynningum. Þriðja námskeiðið
verður haldið í Borgarhreppi 22.
sept. og annast Bjarni Arason
skráningu þátttakenda og á síð-
asta námskeiðinu, sem haldið
verður á Króksfjarðarnesi 24. og
25. sept., tekur Guðmundur Þor-
steinsson við þátttökutilkynning-
um.
AUCLÝSINCASTOFA
MYNDAMÓTA HF
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1980
Konur skrifa
SÖGUFÉLAGIÐ ásamt nokkr-
um áhugakonum er um þessar
mundir að senda i prentun
bókina „Konur skrifa". Er bók-
in rituð til heiðurs Önnu Sig-
urðardóttur, sem var hvata-
maður að stofnun Kvensögu-
safns íslands í byrjun kvenna-
- ný bók
árs 1975 og hefur veitt því
forstöðu siðan.
Bókina skrifa 22 konur um
margvísleg efni. Elzti höfundur-
inn var um áttrætt er hann
skrifaði grein sína, en jngsti
höfundurinn átján ára. Askrif-
endur að bókinni eru orðnir
allmargir en enn er hægt að láta
skrá sig á lista. í ritnefnd eru:
Valborg Bentsdóttir, Guðrún
Gísladóttir og Svanlaug Baid-
ursdóttir.
í fréttatilkynningu frá útgef-
endum segir, að allmargar bæk-
17
ur hafi verið skrifaðar til heið-
urs körlum í tilefni af merkisaf-
mælum þeirra, en konur hafi
ekki hlotið slíka sæmd fyrr.
Útgáfan er að nokkru leyti
tengd sjötugsafmæli Önnu Sig-
urðardóttur.
AK.I.VSIM.ASIMISN Klí:
22480
JHotjOmiblflbib
Hörður
Bergmann__________
á feróalagi í
KAUPMANNAHÖFN
Mér finnst gaman aö þvæl-
ast um göngugöturnar í gamla
bænum Strikiö og Köbmager-
gade. Þarna eru búöir og krár
af öllu tagi — utandyra og
innan. Sé nógur
tími er tilvaliö aö
slóra í fornbóka-
verslunum í
Fiolstræde. Á
þessu svæöi er líka
nóg af matsölu-
stööum sem
bjóöa danskan mat á góöu
veröi, s.s. viö Grábrödretorv og
í Löngangsstræde. Aö kvöld-
lagi finnst mér tilvaliö aö
heimsækja djassbúllurnar viö
Nikolaj plads eöa Montmartre í
Nörregade, þar eru oft góöir
kraftar og aöallega spiluö
„gammeldags jazzmusik“. Svo
er líka vert aö athuga aö í
konsertsalnum í Tivoli er eitt-
hvaö um aö vera áriö um
kring — oft eitthvaö á
heimsmælikvaröa. Góöviöris-
degi aö sumarlagi er gaman aö
eyöa í stóru göröunum noröan
viö Gothersgade — Kongens
have og Botanisk
have. Sé maöur
kominn þangaö
er ekki langt eftir
aö vötnunum og
Nörrebro hverfinu
meö sínu sér-
kennilega and-
rúmslofti og brogaöa mannlífi.
Sé fariö í dagsferö út úr
borginni er tilvaliö aö halda í
noröurátt. Þar er t.d. Frilands-
museet í Lyngby meö gömlum
sveitabæjum, myllum o.fl., Fre-
deriksborg Slot í Hillerod
meö glæsilegu minjasafni og
loks má nefna hiö heimsfræga
nútímalistasafn, Louisiana,sem
stendur í fallegu umhverfi úti
viö Eyrarsund.
FLUGLEIÐIR