Morgunblaðið - 14.09.1980, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 14.09.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1980 29 ur stúlkunum og persónuleika þeirra, því sumar stelpurnar voru með óheyrilega frekju hér og þar þótt þær væru ljúfar eins og lömb fyrir dóm- urunum. Sumar stelpurnar sem í fyrstu virtust mjög fallegar og hafa eitthvað til brunns að bera hröpuðu í áliti þegar maður fór að kynnast þeim og í ljós kom frekja þeirra og leiðinleg framkoma. Valhoppadi niður alla stiga Keppnin var mjög spenn- andi á lokasprettinum og þeg- ar verið var að velja 12 stúlkur í úrslitin rétti ég tíu putta upp til Guðs. Það var komið upp í 8, 10 og ekkert hafði skeð og eftir var fullt af stúlkum sem ég var búin að bóka í efstu sætin. Svo kom 11 og síðan var beðið í nokkra stund og þá kom mitt nafn. Ég gat ekki stillt mig og valhoppaði niður alla stiga yfir mig ánægð. Ég hafði aldrei lent í því að vera svona heppin á síðustu stundu. Við 12 sem vorum valdar í úrslit vorum kallaðar fram og þá skeði leiðinlegt atvik. Við stóðum fremst á sviðinu, en tjaldið var látið falla á milli okkar og þeirra 68 sem ekki voru eins heppnar og þar með voru þær algjörlega úr leik og fengu ekki einu sinni að fylgj- ast með lokakeppninni nema í gegn um sjónvarp í búnings- Þessar tólf stúlkur komust í úrslit af 80 keppendum í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Alheimur 1980, en Guöbjörg, sem er ó miðri mynd, varð númer 6 í keppninni. klefum í kjallaranum. Meðal þessara stúlkna voru mjög fagrar stúlkur, sem höfðu lagt sig mjög fram og í búnings- klefunum sauð upp úr meðal nokkurra þeirra meðan loka- keppnin fór fram. Úrslitin urðu síðan þau að Ungfrú Bandaríkin varð nr. 1 og hún var vel að því komin, er feikilega fallega vaxin og geð- ug í alla staði. Nr. 2 varð fulltrúi Skotlands, þá Nýja Sjálands, Filippseyja, Svíþjóð- ar, Islands og Kanada en annað var ekki gefið upp. Með lappirnar hangandi upp í loft Allt í sambandi við þessa keppni var háð ströngum regl- um. Okkur var bannað að reykja og drekka áfengi, en hins vegar sátu sumar stelp- urnar lengst af inni á klósetti til þess að bjarga málinu. I þessu landi þykir það gróft og karlmannlegt að reykja. Nokk- uð hópuðu stelpurnar sig sam- an, þær spænskumælandi héldu hópinn og ég var mikið með stúlkunum frá Bermuda, Bahama, írlandi og Englandi. Við vorum ekkert að trekkja okkur yfir þessu, en sumar stúlkurnar sváfu með lappirn- ar hangandi upp í loft til þess að viðhalda fegurðinni. í heild var virkilega gaman að þessu stússi, það voru svo misjafnar manngerðir í þessum stóra hópi. Teknar með aukabobbinga Þá voru einnig reglur um að ekki mætti vera með gervi- brjóst, gervimjaðmir, ekki hárkoílu eða magabelti. Ég skammaðist mín fyrir að þeir skyldu jafnvel trúa slíku upp á mann, en það kom á daginn að varnaglinn var eðlilegur, því fyrir úrslitakvöldið voru tvær teknar með aukabobbinga í brjóstahöldurum. Sumar not- uðu hártoppa og gerfineglur voru allsráðandi, tveggja sentimetra langar, takk. Með þessu móti er þetta ekki feg- urðarsamkeppni, heldur mis- heppnuð sýning. Ég hefði ekki þekkt sumar stelpurnar ómál- aðar. Samkeppnin er vissulega hörð og auðvitað er það sorg- legt að komast ekki í úrslit. Sumar stúlkurnar eiga hags- muna að gæta. Afríkustelp- urnar t.d., eiga annaðhvort von á mikilli hyllingu eða tómatakasti þegar heim kem- ur, allt eftir því hvernig fer. týri og kom margt til. Einn daginn var okkur boðið að heimsækja forseta landsins, en það var nú ekki meiri reisn yfir því en svo að það var leitað á okkur að myndavélum í forsetaboðinu. í þessari mót- töku var sendiráðsfólk frá ýmsum löndum og okkur stúlkunum var stillt upp áður en gamall maður gekk í salinn, uppdubbaður með konu sér við hlið sem var hálfsofandi. Þeim var stillt upp á pall og síðan fengum við þann heiður að heilsa forsetanum áður en hann gekk út. Hugsaðu þér, bjóða okkur og leita síðan á okkur. Það kom heimamönnum mikið á óvart að maður skyldi hafa hugmynd um stjórnmál landsins. Þeir héldu víst að maður væri einhver dúkka. Þjóðfélagsástandið þarna virðist vera mikill grautar- pottur, ruddalegt af hálfu hins opinbera og gengið á almúgan- um eins og hann sé eitthvað. rusl. Heimamenn reyndu þó að setja annan blæ á þetta fyrir heimspressuna og gera mikið fyrir okkur. Mikid um að fólk samgleðjist Gleði fólks var þó áberandi þegar svo bar undir og það samgiaddist okkur sem hrepptum þessa ferð. Hér skautbúning tveimur dögum fyrir brottförina héðan að heiman og það gekk upp vegna þess að Guðni Þórðarson í Sunnu frétti af vandræðum mínum og bjargaði málinu. Það var áberandi að stúlkur frá Norðurlöndunum voru í gömlum þjóðbúningum, en margir hinna búninganna voru alls kyns fígúrubúningar. Einnig komum við fram í sundbolum og síðan kjólum. Tveimur dögum fyrir keppn- ina áttu dómarar keppninnar 5 mínútna viðtal við okkur hver, en áður höfðum við komið 10 í einu fyrir 10 dómara. í þessum viðtölum var gengið á milli borða eins og maður væri í spilavist eða hringdans, en þetta var mjög þægilegt fólk að tala við. Ég held þó að eðlilegra hefði verið að dómarar hefðu kynnst bet- Guðbjörg ásamt fulltrúa Bandaríkjanna, sem var kjörinn Ungfrú Alheimur. Hér heima tekur enginn eftir þessu. Flestar stelpurnar eru gerð- ar út frá sínum löndum í þessa keppni og það er miðað við að hún veki heimsathygli, en ég varð að sjá um allt mitt sjálf. Ég hefði getað verið í galla- buxum allan tímann og þó er maður fulltrúi íslands þar sem 600 milljónir manna fylgjast með beinni útsendingu. Það er heppilegt að maður hefur það í sér að vilja vera landi og þjóð til sóma, en sum fötin sem ég var með fékk ég lánuð. Leitað á okkur í forsetaboðinu Þessi ferð var mikið ævin- fyrirtæki í heimi fyrir sýn- ingarstúlkur, var ein af dóm- urum keppninnar. Þegar ég mætti hjá henni í 5 minútna viðtalinu sagði hún strax: Skrifaðu heimilisfangið og þú getur byrjað strax í ágúst. — Ég sagði ekkert og þá sagði hún um hæl: Hvað, viltu ekki verða módel? Reyndar fengum við tvær tilboð frá Eileen Ford, en hin var Ungfrú Kanada sem bjó með mér í herbergi og varð númer 7 í keppninni. Við fylgdumst þannig að má segja. Það getur verið að ég fari út til New York um næstu mánaða- mót til starfa hjá Eileen og þá verð ég eins og sjómaður hér' á heimilinu. En okkur finnst allt í lagi að ég fari og reyni þetta, það er ekkert víst að dæmið gangi upp hjá henni með mig, en hún kvaðst fegin að ég hefði ekkert verið í sýningarstörf- um, kvaðst ætla að skóla mig til eftir sínu höfði áður en ég hæfi starf. Tískusýningarstarf hjá Eileen Ford er mjög eftir- sótt, og gefur mikið í aðra hönd. En ég geri mér fyllilega ljóst, að starfið er erfitt og samkeppnin mikil. Samt lang- ar mig til þess að spreyta mig. En hvað sem má nú um allt þetta segja þá er ég reynslunni ríkari og eftirminnilegust eru ánægjuleg kynni af fjölmörg- um þátttakendum í keppninni. heima keppast allir við að rægja þann niður sem er áberandi og það er svo lítið um að fólk samgleðjist, en slíkt var í svo ríkum mæli hjá þessu fátæka fólki. Ég varð við beiðni fólks og gaf fleiri hundruð eiginhandaráritanir á götum úti þegar fólk flykkt- ist að eins og maður skipti einhverju máli. En þarna úti var mjög vinalegt fólk og hlýtt í viðmóti. Þá verd ég eins og sjómadur á heimilinu Hvað kom út úr þessu? Atvinnulega séð má segja að það hafi verið tilboð um tísku- sýningastarf. Eileen Ford, sem rekur þekktasta og stærsta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.