Morgunblaðið - 14.09.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1980
31
Polýfonkorinn
Kórskóli Pólýfónkórsins hefst 29. september. Kennt
veröur í Vöröuskóla (á Skólavöröuholti) á mánudags-
kvöldum kl. 20—22 — 2 stundir í senn í 10 vikur.
Kennslugreinar:
Raddbeiting og öndun
Heyrnarþjálfun
Rytmaæfingar
Nótnalestur.
Kennarar:
Ingólfur Guöbrandsson, söngstjóri
Herdís Oddsdóttir, tónmenntakennari
Siguröur Björnssón, óperusöngvari
Ruth L. Magnússon, óperusöngvari.
Kennslugjald aöeins kr. 15.000 — Notfæriö ykkur
þetta tækifæri til aö taka upp þroskandi tómstunda-
starf og njótiö leiðsagnar fyrsta flokks kennara.
Þátttaka tilkynnist í síma 21424 og 26611 á daginn
en 43740 og 72037 á kvöldin.
Unnur Guðjónsdótt-
ir - Minningarorð
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
Fædd 21. ágúst 1909.
Dáin 5. september 1980.
Þann 15. september kveðjum við
Unni hinstu kveðju. Hún var sæl
að fá að hverfa inn í dýrðina. Það
átti hún skilið eftir þá hörðu
baráttu sem lífið setti henni. Hún
var búin að vera mikill sjúklingur
mörg undanfarin ár og dvaldist
síðast á Elli- og hjúkrunarheimil-
inu Grund.
Unnur var fædd að Flateyri og
fluttist þaðan 2ja ára gömul til
ísafjarðar og átti þar heima til
tvítugsaldurs er hún fluttist til
Reykjavíkur og kynntist hún þar
manni sínum Steina Helgasyni,
ættuðum frá Hvítanesi í Kjós.
Eignuðust þau einn son, Kristján,
sem kveður nú ástkæra móður
sína ásamt sonum sínum tveimur.
Lífsbaráttan var hörð á þessum
tímum og þurfti Unnur að vinna
hörðum höndum. Vann hún meðal
annars í 12 ár á næturvakt á
Kleppsspítala. Hún missti mann
sinn þegar sonurinn var aðeins 11
ára gamall. Nokkrum árum síðar
kynntist hún Baldvini Kristins-
syni og hófu þau búskap að
Friðarlundi í Mosfellssveit.
Mikil vinátta myndaðist með
þeim Birni, syni Baldvins, og
Unni, sem alla tíð hefur haldist.
Og eftir að Björn giftist hefur
Sara kona hans verið henni sem
tengdadóttir og börn þeirra sem
hennar barnabörn og dvaidist hún
oft á þeirra fagra heimili.
Eftir lát Baldvins fluttist Unn-
ur til Reykjavíkur. Kynntist hún
elskulegri konu, Ingu Guðþjörns-
dóttur, Hverfisgötu 114, sem
reyndist henni sem besta dóttir þó
óskyld væri. Dvaldist hún á henn-
ar heimili þar til hún fór á
Elliheimilið Grund.
Ég sem skrifa þessar línur er
fyrrverandi tengdadóttir hennar
og reyndist hún mér sérstaklega
elskuleg bæði meðan ég var gift
syni hennar og eftir að við slitum
samvistum. Það var ekki ósjaldan
sem hún stakk peningum í lófa
mér af því litla sem hún átti, hún
var sannkölluð tengdamóðir mín
alla tíð og mér og mínum elskuleg
og góð.
Með þessum línum mun ég
minnast hennar með þakklæti og
virðingu fyrir það sem hún reynd-
ist fyrr og síðar. Ég bið góðan Guð
að veita henni góða heimkomu á
nýja staðinn.
Nii rrtu lcidd min Ijúfa.
lÍNtÍKarA Druttins i.
Þar ittu hvild aA hafa
hArmunaa ok rauna fri.
VIA GuA þú mitt nú mæla
miklu (eKri en sól.
llnan ok eilif sa’la
er þin hji lambsins stól.
Með hinstu kveðju og þakklæti.
María Þorsteinsdóttir.
Félagsfundur —
kvikmyndasýning
Skýrslutæknifélag íslands efnir til félagsfundar og
kvikmyndasýningar í Regnboganum, sal C, aö
Hverfisgötu 54. Fundurinn hefst kl. 13, miðvikudag-
inn 17. september 1980.
Dagskrá:
1. Fundarsetning. Dr. Jón Þór Þórhallsson, formaöur Skýrslu-
tæknifélagsins.
2. Kevin R. Batchelor, sem er sérfræðingur frá endurskoðunarfyr-
irtækinu Alexander Grant & Co. í Bandaríkjunum, mun kynna
efni kvikmyndar þeirra er sýnd verður. Kvikmyndin er leikin, en
byggir á sannsögulegum viðburðum, þ.e. fjármálahneyksli, sem
varð í bandarísku tryggingafyrirtæki. Aöalástæöur fyrir þessu
hneyksli voru misnotkun gagna og*skortur á eftirliti og stjórn á
tölvuvinnslu fyrirtækisins.
3. Kvikmyndasýning: „The Billion Dollar Bubble" on the Equity
Funding Scandal.
Kevin R. Batchelor mun kynna endurtekiö námskeiö um
endurskoöun tölvukerfa, sem áætlaö er að halda á vegum
Stjórnunarfélags íslands og Skýrslutæknifélagsins, í fyrri hluta
nóvembermánaðar n.k.
Félagsmenn Skýrslutæknifélagsins eru vinsamlegast beðnir að
athuga, að þessi fundur er vegna tímaskorts ekki boðaður á
heföbundinn hátt í félagsbréfi.
Stjórn Skýrslutæknifélags Íslands.
ÚRVALS HEIMILISTÆKI
FRAI
Frá KPS, Noregi bjóðum við úrvals heimilistæki á hagstæðu
verði:
Eldavélar 3ja og 4ra hellna, kæliskápa, frystiskápa, frysti og
kæliskápa, uppþvottavélar, frystikistur og gufugleypa.
Litir:
Svartur, hvítur, karrygulur, avocdogrænn og Inkarauður.
Komið og skoðiö þessi glæsilegu tæki eða skrifið eftir
myndalista.
SENDUfl GEON PÓSTKROFU
EF
EINAR FARESTVEIT & CO HF.
BERGSTAÐASTRATI I0A - SlMI 16995
Raf hf. Glerárgötu 26, Akureyri.
/