Morgunblaðið - 14.10.1980, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980
/ t *—Jr—* '—-r
t.
Á föstudatfinn var lokið við að reisa þakhoKa hins mikla íþróttahúss sem nú er i smíðum sunnan
SundlauKarinnar á Akureyri. Kapp verður lagt á að koma húsinu undir þak í haust svo að unnt verði
að vinna innanhúss af fullum krafti þótt vetur leggist að. Ljósmynd Mbl. Sv.P.
Matthías. Á. Mathiesen um fjárlagafrumvarpið:
Staðfestir skipbrot
niðurtalningarleið-
ar Framsóknarflokks
„FJÁRLAGAFRUMVARPIÐ
endurspeglar ástand efnahags-
og peningamála í dag. í frum-
varpinu er ekki að finna neina
stefnumótun í þessum málum.
frekar en hjá ríkisstjórninni
sjálfri,“ sagði Matthias Á.
Mathiesen, alþingismaður. í sam-
tali við Mbl., er hann var inntur
álits á fjárlagafrumvarpinu fyrir
1981, sem nú
fram.
reynast um 60%. í þessu fjárlaga-
frumvarpi er gert ráð fyrir 42%
meðalverðlagshækkun á milli ára,
án þess að nokkrar raunhæfar
tillögur sé að finna, til þess að svo
geti orðið," sagði Matthías Á.
Mathiesen að síðustu.
Atkvæðagreiðsla
rumvarpmu íynr x i 1 1
hefur verið íagt ,*>meðal bankamanna
um samningsdrög
Sjómannasambandið óánægt og bendir á þróun siðustu 3ja ára:
21% meiri afla þarf nú til
að f iska upp í tryggingu
Á FUNDI i framkvæmdastjórn Sjó-
mannasamhands Íslands í gær var
samþykkt ályktun þar sem mót-
mælt er þeirri ákvörðun stjórn-
valda. „sem tekin var með siðustu
fiskverðsákvörðun. þar sem enn
cru auknar greiðslur til útgerðar-
innar framhjá skiptaverði sjó-
manna“. ! ályktuninni er bent á. að
síðan í október 1977 hefur þróunin i
fiskverðshækkunum orðið með
þeim hætti. að sjómaðurinn þarf nú
21—22% meiri afla tii að fiska upp
í kauptryggingu sina og er þá
miðað við núverandi fiskverð.
í ályktuninni segir svo m.a.:
Þrátt fyrir það, að sjómannasam-
tökin gera sér fulla grein fyrir þeim
aukna vanda, sem útgerðin hefur átt
við, vegna aukins kostnaðar sem
stafar af olíuverðshækkunum, lítur
framkvæmdastjórnin svo á, að sá
vandi eigi ekki að verða leystur með
einhliða álögum á sjómenn með
stjórnvaldaaðgerðum. Þar sem við
teljum að sjávarútvegurinn sé undir-
stöðugrein í atvinnulifi þjóðarinnar
verður þjóðin öll að axla þann vanda
Fluttu 1200 Nígeríu-
menn til Jidda
LIÐLEGA 40 flugliðar Flugleiða
sem unnið hafa við píiagrímaflug
félagsins að undanfornu milli Nig-
eriu og Saudi-Arahíu komu heim í
gærkvoldi. en von er á Oðrum 40 i
dag með flugi 615 frá Luxcmhurg.
Fyrri hópurinn er starfsfólk sem
annaðist flugið milli Maiduguri og
Jidda. en síðari hópurinn milli
Lagos og Jidda.
Samkvæmt upplýsingum Jóhann-
esar Óskarssonar forstöðumanns
flugdeildar voru alls flognar 34
ferðir frá Maiduguri með 252 í
hverri ferð eða alls um 8600 manns
og frá Lagos voru flognar 18 ferðir
með alls um 3300 manns. Samanlagt
voru því fluttir um 12 þúsund
pílagrímar til Jidda, en eftir um það
bil 10 daga hefjast flutningarnir til
baka.
Jó’ annes sagði að í heild hefði
þetta gengið vel, smávegis örðugleik-
ar hefðu komið upp eins og t.d. þegar
flugliðarnir komu til Lagos að vegna
misskilnings leigutaka var ekki til
hótelpláss fyrir allt fólkið fyrstu
nóttina og gisti hluti þess í flugvél-
inni.
Samþykktu
stuðningsyfir-
lýsingu við
samninganefnd
BÓKAGERÐARFÉLÖGIN héldu fé-
lagsfund í gær. þar sem stjórnir og
samninganefnd félaganna þriggja.
Ilins islenzka prentarafélags. B<)k-
bindarafélags Islands og Grafiska
sveinafélagsins, gerðu félogum sín-
um grein fyrir stöðu samningamál-
anna. Á fundinum voru engar
ályktanir samþykktar um dagsetn-
ingu verkfailsboðana.
Talsverðar umræður urðu á fund-
inum, sem stóð frá því klukkan
rúmlega 17 og til tæplega 20. Sam-
þykkt var traustyfirlýsing á samn-
inganefnd félaganna og kjörnir voru
fulltrúar HÍP á væntanlegt þing
Alþýðusambands íslands. Ekki hef-
ur verið boðað til sáttafundar í
kjaradeilu bókagerðarmanna og Fé-
lags íslenzka prentiðnaðarins.
I Maidugure var verið að taka
nýjan flugvöll í notkun og vígðu
Flugleiðir völlinn fyrir farþegaflug
milli landa.
sem að þessari atvinnugrein steðjar.
í upplýsingum, sem Sjómanna-
sambandið hefur unnið, kemur fram
að árið 1977 þurfti 60 tonna afla til
að háseti á 200 tonna báti fengi í
hlut, sem nam kauptryggingunni. Nú
þarf sama skip að fá 73 tonn til að ná
kauptryggingu hásetans. Á 500
tonna togara þarf 90 tonn til að ná
kauptryggingu hásetans, en árið
1977 þurfti 16 tonnum minni afla eða
74 tonn til að háseti fengi í sinn hlut
samsvarandi upphæð og kauptrygg-
ingin var þá.
Kauptrygging háseta hefur hækk-
að um 319,5% frá 1977, en verulega
meiri afla þarf nú til að ná trygging-
unni. Til samanburðar má nefna, að
laun verkamanna í dagvinnu í fisk-
iðnaði hafa hækkað um 320,3% á
þessu tímabiii og laun iðnaðar-
manna í byggingariðnaði um
315,19%. Frá 1977 hefur verð á tonni
af 1. flokks þorski hækkað um
270,41%.
„Frumvarpið staðfestir, að
niðurtalningaleið Framsóknar-
flokksins, sem átti að leysa efna-
hagsvandann hefur beðið skip-
brot. Það stefnir allt í sömu átt og
á yfirstandandi ári. Skattheimtan
verður aukin, m.a. um 5 milljarða
króna, þar sem skattvísitölunni er
ekki ætlað að fylgja launabreyt-
ingum milli ára, og þeim tekjum
ætlað að mæta gjöldum vegna
aukinna ríkisumsvifa.
Þá er ætlun ríkisstjórnarinnar,
að auka enn erlendar lántökur, nú
um 14 milljarða króna, eða um
67% frá árinu í fyrra, og fjár-.
magna þannig opinberar fram-
kvæmdir. í fjárlögum 1980, var
gert ráð fyrir 30% meðalverðlags-
hækkun, sem mun hins vegar
DAGANA 14. og 15. þessa mánað-
ar munu bankamenn greiða at-
kvæði um samningsdrög þau, sem
stjórn Félags íslenzkra hanka-
manna hefur þegar samþykkt með
fyrirvara. Kosið verður í hverri
starfsdeild aðildarfélaganna undir
stjórn trúnaðarmanns og er reikn-
að með því að talningu atkvæða
ljúki á föstudag, verði samgöngur
í lagi.
Undanfarið hefur verið talsvert
um kynningarfundi meðal banka-
manna og komið fram nokkur
óánægja með samningsdrögin og
telja margir þau þunnan þrettánda
og segja þau ekki nógu ljós, en
drögunum svipar talsvert til samn-
inganna sem gerðir voru við BSRB,
að sögn viðmælenda blaðsins.
Ríkissjóður sat hjá við af-
greiðslu Atlantshafsflugs
RtKISSJÓÐUR greiddi atkvæði
með aukningu hlutafjár á hluthafa-
fundi Flugleiða i siðustu viku
samkvæmt upplýsingum Höskuidar
Jónssonar ráðuneytisstjóra í fjár-
málaráðuneytinu, en hins vegar sat
rikissjóður hjá þegar atkvæða-
greiðsla fór fram um það hvort
halda ætti áfram fluginu yfir
Norður-Atlantshaf.
Ríkissjóður ræður rúmlega 6%
atkvæöa í Flugleiðum. Morgunblaðið
spurði ráðuneytisstjórann að því
hvort það skyti ekki skökku við að
ríkissjóður skyldi sitja hjá í þeirri
atkvæðagreiðslu eftir að ríkisstjórn-
in hafði óskað eftir framhaldi á
Norður-Atlantshafsfluginu við
stjórn Flugleiða og fjallaö um fjár-
hagslega aðstoð og fyrirgreiðslu til
þess, en Höskuldur Jónsson ráðu-
neytisstjóri sagði að þarna hefði
verið um ákvörðun Ragnars Arnalds
fjármálaráðherra að ræða og talið
hefði verið eðlilegra að aðrir hlut-
hafar tækju ákvörðun um það.
Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri VSI:
Vísum á Alþingi, ef sátta-
tillagan verður að lögum
„ÞAÐ er kristaltært, að Vinnu-
veitendasamband íslands sem-
ur aldrei undir hótunum um
lagasetningu.“ sagði Þorsteinn
Pálsson, framkvæmdastjóri VSÍ
i samtali við Morgunblaðið i
gær. „Það er jafnframt Ijóst, að
kröfur einstakra forystumanna
innan Alþýðusambandsins um
lagasetningu, sýna, að þeir hafa
aldrei æltað sér að semja. held-
ur þvinga kjarasamninga í
gegnum löggjöf.“
„Menn verða að gera sér grein
fyrir," sagði Þorsteinn Pálsson,
„að þótt svona tillaga falli vel að
lagasetningarhugmyndum, þá
eru ýmsir endar enn óhnýttir.
Utan þessarar tillögu eru þrír
starfshópar innan veitingahús-
anna, bakarar, undir- og yfir-
menn farskipa, a.m.k. fjórir hóp-
ar byggingariðnaðarmanna, raf-
virkjar, kjötiðnaðarmenn,
mjólkurfræðingar og þrír hópar
bókagerðarmanna. Öllum þess-
um hópum yrði vísað niður í
Alþingi eftir þá lagasetningu,
sem núna er í loftinu."
„Það var auðvitað vonlaust, að
sáttatillagan fengi nokkru
breytt um stöðu kjaramálanna á
meðan engin lausn var fengin á
prentaradeilunni. Það mátti öll-
um vera ljóst og er nánast
furðulegt, að sjá sáttatillögu um
greiðslur í matartíma á helgi-
dögum og greiðslur á fæði far-
andverkafólks, áður en lausn var
fundin á þeim þætti kjara-
málanna, sem var helzti
ásteytingarsteinninn — prent-
aradeilunni."
Þorsteinn Pálsson kvað sátta-
tillögu sáttanefndar gera ráð
fyrir of miklum kauphækkunum,
og færi hún langt fram úr þeim
mörkum, sem sett voru með
samkomulaginu við BSRB. „Hún
getur ekki leitt til minna en 8 til
10% gengisfellingar," sagði
framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins og kvað við-
brögð VSÍ við verkföllum verða
ákveðin jafnskjótt og tilkynnt
verður um vinnustöðvanir.
Haukur Már Haraldsson, blaðafulltrúi ASÍ:
Út í hött, að segja að ASÍ
vilji lögbinda tillöguna
„ALÞÝÐUSAMANDIÐ leit á til
lögu sáttanefndar sem umra'ðu-
grundvoll,“ sagði Haukur Már
Haraldsson, hlaðafulltrúi Al-
þýðusambands íslands I samtali
við Morgunblaðið í ga‘r. „í hana
vantar þó ákveðin atriði og hún
er engan veginn fullkomin. Eigi
að síður lcit viðræðunefnd ASÍ
svo á að á henni mætti byggja
sam ni ngaviðræður."
Morgunblaðið spurði Hauk Má
um þær hugmyndir, sem fram
hefðu komið um lögbindingu til-
lögu sáttanefndar. Hann svaraði:
„Þetta er einkaskoðun Guðmundar
J. Guðmundssonar. Stefna Al-
þýðusambandsins er að ná samn-
ingum við samningaborðið og þess
vegna höfum við nú setið við það í
hátt í ár. Þetta er grundvallar-
sjónarmið Alþýðusambandsins.
Fulltrúar VSÍ hafa látið að því
liggja að þetta sé skoðun ýmissa
aðila innan ASI. Það er hins vegar
aðeins einn aðili innan ASÍ, sem
hefur orðað þetta. Því er það út í
hött, þegar VSI-menn segja að
ASÍ stefni að löggjöf. Það á sér
enga stoð.“
Haukur Már Haraldsson kvað
hugmynd Guðmundar J. Guð-
mundssonar hafa komið til um-
ræðu á 14 manna nefndarfundi
ASÍ, sem haldinn var í gær. Þar
kom fram, að Guðmundur var einn
um þessa skoðun, að lögfesta bæri
tillögu sáttanefndar. Fundurinn
ákvað að kalla saman 43ja manna
nefnd ASÍ á morgun, miðvikudag,
klukkan 14 í „karphúsinu". 14
manna nefndin kaus nefnd 7
manna til þess að gera tillögu um
aðgerðir verkalýðshreyfingarinn-
ar.
„Það kom fram í máli manna á
fundinum," sagði blaðafulltrúi
ASÍ, „að eftir þessi viðbrögð
Vinnuveitendasambandsins við
innanhússtillögu sáttanefndar, að
ekki væri lengur hægt að bíða með
boðun harðra aðgerða. Jafnframt
því verður áfram reynt að finna
samningsflöt á deilunni, en boðun
aðgerða getur ekki lengur beðið.“