Morgunblaðið - 14.10.1980, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980
13
F.v. Sigriður Sigurðardóttir, ólöf Ólafsdóttir og Ilildigunnur
Sveinsdóttir. Þær munu sjá um afgreiðsluna í hinni nýju bókadeild
Pennans.
Penninn opnar bóka-
deild í verzlun sinni
að Hallarmúla 2
SÍÐASTLIÐINN föstudag opnaði i
Penninn sf. bókadeild í verzlun
sinni að Hallarmúla 2. Leitazt
verður við að hafa úrvalið sem
mest í bókadeildinni, — þar
verða á boðstólum bækur og
tímarit við allra hæfi, auk þess
sem starfsfólkið mun sérpanta þá
bókatitla sem viðskiptavinurinn
óskar eftir. Lögð verður áherzla
á bækur og timarit sem tengjast
tómstundaiðju íslendinga, s.s.
efni fyrir iþróttamanninn, hesta-
manninn, garðyrkjumanninn,
laxveiðimanninn o.s.frv. Penninn
sf. rekur einnig ritfangaverzlan-
ir á Laugavegi 84 og í Hafnar-
stræti 18. Fyrirtækið hefur verið
starfrækt i nær fimmtíu ár og nú
starfa hjá þvi fjörutiu manns.
Verzlunarstjóri í hinni nýju
bókadeild Pennans er Sigríður
Sigurðardóttir, Sissa, sem starfað
hefur við bókaverzlun í þrjá ára-
tugi og nýtur mikillar virðingar
vegna þekkingar sinnar og reynslu
á þessu sviði. Blaðamaður Morg-
unblaðsins átti stutt spjall við
Sissu og var hún fyrst spurð
hvenær hún hefði hafið störf við
bókaverzlun.
„Ég byrjaði sem jólasveinn í
ísafold fyrir tuttugu og átta árum,
ég kaila það fólk jólasveina sem
kemur til starfa í jólaösinni,"
sagði Sissa. „Þá var Oliver Steinn
verzlunarstjóri hjá ísafold en
Kristján Oddsson, sem er núna
bankastjóri Verzlunarbankans,
tók síðan við af honum. Svo varð
ég verzlunarstjóri einhvern tíma
eftir 1960, ég man ekki nákvæm-
lega hvaða ár það var. Það var svo
loks eftir tuttugu og átta ára starf
þarna sem ég tók í mig kjark og
sagði upp, en vissi þá ekki fyrr til
en ég var búin að ráða mig hérna."
Hvernig er að starfa við bóka-
afgreiðslu — er ekki erfitt að
standa við afgreiðsluborðið dag-
langt?
„Nei, það er alls ekki erfitt, og
því skemmtilegra sem meira er að
gera. Því meira sem maður vinn-
ur, því hægar eldist maður. Við
höfðum ágæta viðskiptavini í ísa-
fold og það eru einmitt viðskipta-
vinirnir sem gera þetta starf svo
skemmtilegt. Sumir sem koma í
bókaverzlun vita ekki hvers konar
bók þeir ætla að fá og það er mjög
ánægjulegt að geta leiðbeint slík-
um viðskiptavinum. Þá er að
þreifa sig áfram og finna út
hverju fólkið hefur áhuga á og
yfirleitt tekst þannig að finna bók
sem viðskiptavinurinn er ánægður
með.“
Þú gætir kanpski að lokum sagt
frá einhverju skemmtilegu sem
komið hefur upp á í þriggja
áratuga afgreiðslustarfi?
„Já, það gæti ég, en ég þori bara
alls ekki að fara neitt út í þá
sálma. Það gerist alltaf eitthvað
stórskemmtilegt öðru hvoru í
þessu starfi, það yrði efni í heila
bók sem ég skrifa kannski um það
leyti sem ég læt af afgreiðslustörf-
um. Það verður áreiðanlega met-
sölubók," sagði Sissa að lokum.
Nýveriö er Húsgagnaverzlun Guðmundar flutt úr Hagkaupshúsinu.
Verzlunin á 10 ára afmæli á þessu ári og minnist afmælisins með
húsgagnasýningu i nýrri verzlun að Smiðjuvegi 2 i Kópavogi, sem
opnaði um mánaðamótin.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
1*1 vn.l.VSlR l M M.I.T I.Wl) l»K(i \K
I>1 \l (il.VSIH I MOH(.r\HI. \»)IM