Morgunblaðið - 14.10.1980, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980
17
Það var engin ör
tröð á veitinga-
húsum
Aþenuborgar.
Tímanna tákn fyrir breska
hóteliðnaðinn.
aðeins 80% hótelnýting og 62%
hvað varðar séríbúðir og sumar-
hús. Þó var samdrátturinn lang-
me.stur á Kanaríeyjum.
ÍTALÍA Á ítalíu fækkaði
ferðamönnum um 15% í sumar
og vilja margir kenna þar um
„óguðlegum" verðhækkunum.
Sumir staðir hafa orðið verr úti
en aðrir, t.d. Sorrento, þar sem
samdrátturinn nam 21%. Á veit-
ingastöðunum fækkar þeim sí-
fellt, sem leyfa sér einhvern
munað í mat og drykk, og þeir,
sem í fyrra gistu á fyrsta flokks
hóteli, láta sér nú nægja annars
flokks hótel.
GRIKKLAND Útlitið var allt
annað en glæsilegt fyrst í vor en
úr því rættist þó heldur vegna
langvarandi rigninga í N-Evrópu
framan af sumri. Þrátt fyrir það
er talið, að ferðalöngum hafi
fækkað um 15%. Samdrátturinn
kom samt mjög misjafnlega
fram og t.d. voru vinsælustu
ferðamannastaðirnir, eins og
Rhodos, Krít og Korfu, fullbók-
aðir en ýmsir staðir aðrir voru
með öllu tómir.
TYRKLAND „Ferðamanna-
kreppa, ferðamannakreppa,"
hrópuðu tyrknesku dagblöðin og
enda ekki að ósekju. Erlendum
ferðamönnum fækkaði um 40% í
sumar og var það ekki síst að
kenna vaxandi hryðjuverkum og
eldsneytisskorti. Hótel, sem
höfðu 90% nýtingu í fyrra, urðu
að sætta sig við 30% nýtingu í
sumar, þrátt fyrir niðursett verð
fyrir útlendinga.
í ferðamannaþjónustunni á
það við, að eins dauði er annars
brauð. Samdrátturinn í sólar-
landaferðum olli því, að ferðalög
innanlands í Norður-Evrópu
jukust mjög, t.d. í Þýskalandi og
Austurríki. Átta af hverjum tíu
Svíum fóru ekki út fyrir land-
steinana í sumar og á sænsku
eyjunni Gotlandi var svo margt
um manninn um sinn, að 12.000
manns börðust um 4.000 reið-
hjól, sem voru til leigu. í hérað-
inu Var í Frakklandi var ástand-
ið líka þannig eitt sinn, að
300.000 manns reyndu að koma
sér fyrir á tjaldstæðum, sem
ætluð voru 150.000.
Af Norðurálfuþjóðunum eru
Bretar langverst settir, en þar
minnkuðu ferðalög innanlands
um 40% og tala erlendra ferða-
manna jókst ekkert frá því í
fyrra. Aðalástæðan fyrir því er
stórhækkað verð og hátt verð á
pundinu. London er orðin ein af
dýrustu höfuðborgum í heimin-
um og ferðamenn kvörtuðu um
okur þegar pylsa með öllu var
komin upp í rúmar 600 krónur,
næturgisting á fínu hóteli ásamt
miðdegisverði kostaði 150.000 kr.
og morgunverður í bresku járn-
brautunum rúmar 6.000 kr.
Viðskiptin hafa verið svo bág-
borin, að hið fína Savoy Hotel er
að ráðgera að breyta sumum
svítunum í leiguhúsnæði.
(Þýtt og endursagt úr Time.)
Garðar Sigurðsson, fyrrv. form.
þingfararkaupsnefndar:
Óhjákvæmilegt eftir það
sem gerðist í sumar
- að kjaradómur taki við ákvörðun-
um um kaup og kjör þingmanna
„ÉG IIEF ekkert nema gott eitt
um það að segja. enda á ég ekki
von á þvi, að sá þingmaður
finnist nú. sem sé ginnkeyptur
fyrir setu í þingfararkaups-
nefnd.“ sagði Garðar Sigurðs-
son. formaður þingfararkaups-
nefndar siðasta þings, er Mbl.
leitaði álits hans á þeim frum-
varpsdrögum, sem þingflokkun-
um hafa verið kynnt, um að
kjaradómur ákveði kaup og kjör
alþingismanna.
„Ég sé enga ástæðu til annars
en að setja þetta allt í kjaradóm,
bæði kaupið og annað og tel
reyndar, að eftir það, sem gerðist
í sumar, sé það óhjákvæmilegt,"
sagði Garðar.
Sem kunnugt er urðu miklar
umræður um ákvörðun þingfar-
arkaupsnefndar eftir að þingi
lauk í vor og hart deilt um það,
hvort þingmenn hefðu almennt
vitað um ákvörðun nefndarinnar
eða ekki. „Ég á ekki von á öðru,
en að ýms ummæli, sem þá féllu,
komist aftur á dagskrá, þegar
þessi mál ber á góma á þessu
þingi,“ sagði Garðar.
Brldge
Umsjóni ARNÓR
RAGNARSSON
Reykjavíkurmót
í tvímenningi
Undankeppni Reykjavíkur-
mótsins í tvímenningi fer fram
25. og 26. október og 9. nóvem-
ber. Spilað verður í Hreyfilshús-
inu og hefst keppnin kl. 13 alla
dagana.
Væntanlegir þátttakendur eru
beðnir að láta skrá sig hjá
Reykjavíkurfélögunum eða Vig-
fúsi Pálssyni (sími 83533) sem
fyrst. Keppnisgjald verður 12
þúsund kr. á par. Keppnisstjóri
verður Agnar Jörgensson.
Úrslitin verða spiluð 22. og 23.
nóvember á sama stað og verður
þátttökugjaldið þá 10 þúsund kr.
Bridgefélag Selfoss
Þegar einni umferð af 7 er ólokið í
hraðsveitarkeppninni er staða efstu
sveita þessi:
Sveit Gunnars Þórðarsonar 107 stig
Sveit Halldórs Magnússonar 105 stig
Steingerðar 81 stig
Sveit Guðjóns Einarssonar 67
Sveit Þórðar Sigurðssonar 65
Minningarmótið um nýlátinn heið-
ursfélaga, Einar Þorfinnsson, hefst
eins og áður hefur verið greint frá,
18. október 1980 og verður spilað í
Selfossbíói. Mótið hefst kl. 13 (laug-
ardag) og er áætlaður fjöldi 30 pör og
verða spiluð 2 spil milli para. Spilað
verður um silfurstig, ef leyfi fæst.
Þátttöku ber að tilkynna til Vil-
hjálms Pálssonar í síma 99-2255 fyrir
kl. 21 miðvikudaginn 15. okt. 1980.
Þetta er opið mót og eru spilarar af
öllu landinu velkomnir. Góð verðlaun
verða í boði.
Skráning í þetta mót er í fullum
gangi, en ennþá er hægt að bæta við
pörum.
Skák
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
sem byrjunin hafi sannað skilnings-
leysi ungu mannanna á skák, en sem
kunnugt er les hann sjálfur aldrei
skákbækur, enda ekki fyrir að taka
vitleysuna upp eftir öðrum, svo sem
kemur fram í ágætri ferskeytlu sem
hann setti saman um þetta efni:
„Enga leiki æskan skilur,
allt af bókum lærir hún.
Það er eins og blinda bylur.
blási yfir heiðarbrún“:
Aðrar skákir í toppnum féllu í
skuggann af þessari viðureign.
Margeir sótti fast að Helga, en röng
fórn í tímahraki neyddi hann til þess
að taka þráskák. Elvar féll á tíma
gegn Jóhannesi í jafnteflisstöðu.
6. umferð
Jóhannes — Helgi 0—1
Jóhann — Margeir 1—0
Ásgeir — Karl 1—0
Jón Árni — Magnús 0—1
Elvar — Jónas P. 1—0
Jón Torfason — Benóný 1—0
Helgi vann peð eftir byrjunina
gegn Jóhannesi, en lék síðan herfi-
lega af sér og tapaði manni. Jóhann-
es, sem fékk skyndilega gjörunnið
tafl upp í hendurnar var naumur á
tíma og lék öllu af sér og tapaði.
Jóhannes náði miklu rýmri stöðu
gegn Margeiri, sem síðan lék af sér
skiptamun og tapaði.
Þeir Ásgeir og Magnús voru nú
komnir aftur upp í toppinn eftir
mótlætið í fyrstu umferðunum. Nýj-
ung Benónýs i byrjuninni gegn Jóni
Torfasyni, stóðst ekki ströngustu
kröfur, þannig að hann hafnaði að
lokum með 50% vinninga, eða þrjá,
sem var auðvitað allt of lítið.
Hljómtæki
með
® toppgæði...
Bestu kaupin hvernig sem á er litið
SG-330
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR MAGNARI 2x20
WOTT R.M.S. ÚTVARP: 4 ÚTVARPSBYLGJUR, FM
FW, STERIO LW, MW, SW.
PLÖTUSPILARI: HÁLF-
SJÁLFVIRKUR, S-ARM-
UR, MAGNETIC PICKUP.
SEGULBAND: MEO
UH SJÁLFLEITARA.
HÁTALARAR: 2 STK. 40
WÖTT.
Verö meö
hátölurum:
kr. 480.000.
Ws&KARNABÆR
Útsölustaðir:
Karnabær Laugavegi 66 — Karnabær Glæsibæ
Eplið Akranesi — Eplið ísafirði
Álfhóll Siglufiröi —Cesar Akureyri
Hornabær Hornafirði —
Eyjabær Vestmannaeyjum
I