Morgunblaðið - 14.10.1980, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 5.500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 280
kr. eintakiö.
Ráðherrar á öndverðum
meiði í Flugleiðamálinu
Ekki fer á milli mála, að Steingrímur Hermannsson,
samgönguráðherra, og Ragnar Arnalds, fjármálaráð-
herra, eru á öndverðum meiði í Flugleiðamálinu.
Fjármálaráðherra sendir Flugleiðum bréf, þar sem
fyrirheit um bakábyrgð vegna Atlantshafsflugs er bæði
þokukennt og óljóst. Af því tilefni segir samgönguráð-
herra í viðtali við Morgunblaðið í fyrradag, að hann sé
„mjög óhress yfir því, að fjármálaráðherra sé að flækja
þetta mál með bréfi sínu til Flugleiða, það á að ganga
hreint til verks og þetta mál liggur fyrir afgreitt í
ríkisstjórninni". Af hverju er fjármálaráðherra að
„flækja málið“, eins og samgönguráðherra kemst að orði?
í bréfi sínu til Flugleiða segir fjármálaráðherra, að það
sé skilyrði fyrir ríkisábyrgð, að félagið selji eignir. Um
þetta skilyrði segir Steingrímur Hermannsson hins vegar
í samtali við Morgunblaðið í fyrradag: „Skilyrðið um sölu
eigna til þess að fá ríkisábyrgð er óframkvæmanlegt eins
og það er sett fram í bréfi fjármálaráðherra...“
Samgönguráðherra segir ennfremur: „Ég tel ekki, að það
sé nokkur sem vill kaupa Hótel Esju eða skrifstofuhús-
næði Flugleiða, en það væri viðleitni að auglýsa. Mér er
kunnugt um, að verið er að kanna möguleika á að selja
hlut Flugleiða í Aerogolf í Luxemborg, en persónulega tel
ég, að félagið eigi ekki að selja hlut sinn í Cargolux, sem
er líklega einhver verðmætasta eign félagsins."
Niðurstaðan af ummælum Steingríms Hermannssonar
í viðtali við Morgunblaðið er sú, að fjármálaráðherra sé
að flækja málið varðandi bakábyrgð vegna Atlantshafs-
flugs og að hann hafi sett skilyrði fyrir ríkisábyrgð, sem
að dómi samgönguráðherra er óframkvæmanlegt. En
hvers vegna er fjármálaráðherra að flækja málið og setja
skilyrði, sem eru óframkvæmanleg? Ástæðan hlýtur að
vera sú, að fjármálaráðherra sé andvígur þeirri afstöðu,
sem samgönguráðherra hefur markað og ríkisstjórnin
hefur sem heild tekið í Flugleiðamálinu. Augljóst er, að
Alþýðubandalagið hefur ekki gefizt upp við að koma
Flugleiðum á kné, og nú þegar að því er komið að ganga
frá bakábyrgð vegna Atlantshafsflugs og ríkisábyrgð
vegna rekstrar félagsins yfir veturinn, stefna alþýðu-
bandalagsmenn að því að tefja afgreiðslu þessara mála
með þeim hætti, að Flugleiðir komist í þrot.
Það er ekki sízt eftirtektarvert, hversu þokukennd svör
fjármálaráðherra eru í sambandi við bakábyrgð vegna
Atlantshafsflugs, vegna þess, að Flugleiðir hafa ekki farið
fram á þá bakábyrgð, heldur er það ríkisstjórnin, sem
hefur farið fram á það við fyrirtækið að taka við þessari
bakábyrgð og halda Atlantshafsfluginu áfram. Þetta
gerir ríkisstjórnin til þess að koma til móts við það
starfsfólk, sem ella mundi missa atvinnu sína. Nú virðist
hins vegar sem Alþýðubandalagið hafi ekki lengur
áhyggjur af því og ráðherrar þess halda þannig á málum,
að allt eins getur verið, að ekkert verði úr áframhaldandi
Atlantshafsflugi og endurráðningum í sambandi við það.
Steingrímur Hermannsson segir réttilega, að Flugleiðir
„verða að fá þessa ríkisábyrgð mjög fljótt, því ella er
mikil hætta á því, að félagið verði stopp á næstu vikurn".
Af þessum ástæðum er nauðsynlegt, að lýðræðisflokkarn-
ir á Alþingi taki höndum saman um að afgreiða
ríkisábyrgðina til Flugleiða með eðlilegum hætti og láti
kommúnista ekki komast upp með þá skemmdarstarf-
semi, sem þeir stunda nú í flugmálum okkar íslendinga.
Þegar erfiðleikar steðja að í svo mikilvægri atvinnugrein,
eiga menn að taka á þeim með velvilja en ekki illvilja sem
greinilega ræður ríkjum hjá alþýðubandalagsmönnum.
„Verzlun á ís-
landi í klemmu“
GUNNAR Snorrason, formaður
Kaupmannasamtaka íslands. gekk
á fund viðskiptaráðherra, Tómasar
Árnasonar. i tcærdaK og afhenti
honum orðsendingu samtakanna. t
bréfinu, sem ráðherra var afhent
var miði, sem á var letrað: Verzlun
á íslandi, og á hann fest þvotta-
klemma. Sams konar bréf var
siðan sent öllum þingmönnum.
Gunnar sagði í samtali við Mbl.,
að innihald bréfsins ætti að tákna,
að verzlun á íslandi væri í klemmu
um þessar mundir. „Þetta er ein-
faldlega okkar aðferð til að tjá
stjórnmálamönnum hvernig komið
er fyrir þessari atvinnugrein, sem
hefur verið mjög afskipt í saman-
burði við aðra atvinnuvegi. Við
töldum boðskap okkar komast betur
til skila, með því að senda þing-
mönnum kveðju sem þessa, heldur
en að senda þeim langa greinargerð,
sem ekki nema hluti þeirra myndi
lesa," sagði Gunnar.
„Það er ekki hægt að líta framhjá
þeirri staðreynd, að verzlun á Is-
landi, er á fallanda fæti. Þar er
fyrst til að taka, að verzun er rekin
fyrir lánsfé að mjög miklu leyti, og
samkvæmt fyrirmælum Seðlabank-
ans er alltaf verið að minnka þetta
lánsfé, sem óneitanlega leiðir af sér
vöruskort fyrr eða síðar.
Þá má nefna í sambandi við
vörubirgðir, að ef þetta lánsfé fæst,
þá er það í flestum tilfellum verð-
tryggt, en vörubirgðir sem keyptar
eru fyrir það eru það hins vegar
ekki. Þetta setur verzlunina óneit-
anlega í mikla sjálfheldu, vörulager-
í Kjarvalssal hlustuðu ungir og gamlir á erindi um manninn og hungrið. Á veggjum voru myndir
skólabarna um efnið. Ljósmyndir Guðjón.
Maður og hungur
Hungurvakan á Kjarvalsstöðum
HUNGURVAKA ’80 stóð á Kjarvalsstöðum allan laugardaginn
frá hádegi og fram að miðnætti. Tók fjöldi manns þátt í henni,
bæði börn og fullorðnir, en hungurvakan skiptist í ráðstefnu þar
sem rætt var um hungrið í heiminum og í annan stað alls konar
skemmtiefni, flest tengt tilgangi vökunnar, sem Líf og land stóð
að í samvinnu við Rauða krossinn. En tilgangurinn var að vekja
athygli á söfnun þeirri, sem yfir stendur handa hungruðum i
Austur-Afríku og hungruðum í heiminum almennt.
Hornaflokkur Kópavogs hóf vökuna kl. 13.30 undir stjórn
Björns Guðjónssonar og átti sinn þátt i henni allt til kvölds.
Klukkan þrjú opnaði menntamálaráðherra, Ingvar Gíslason,
ráðstefnuna Maður og hungur í Kjarvalssal. En jafnframt voru
annars staðar í húsinu alls konar atriði. Nemendur úr
Feliaskóla og nemendur af leiklistarsviði Menntaskólans við
Sund túlkuðu t.d. milli kl. 2 og 3 hungur og græðgi á 3 stöðum.
Fyrsta atriði var fólk í kjörbuð að gramsa af græðgi, þá hópur
hungraðra og vesælla og loks mátti sjá hóp við allsnægtaborð,
sem tróð í sig af mestu græðgi. Þá var kvikmyndasýning, föndur
og fleira fyrir börn, en þessum þætti stjórnaði Halldór Lárusson.
Stóð dagskráin til kl. 7.
Krakkarnir horfðu af áhuga á ýmiskonar sýningar og uppákomur,
sem stóðu alian daginn.
Á Kjarvalsstöðum mátti sjá
hungur og hjálparstarf túlkað á
ýmsan hátt á myndum skóla-
krakkanna.
Á hungurvökunni safnaðist
drjúgt i bauka Rauða krossins.