Morgunblaðið - 14.10.1980, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980
21
Dan Halldorsson
sigraði í Florida
• Arnór Guójohnsen skoraói eina mark Lokeren um heljíina. Á
morKun verður hann i sviðsljósinu á Lenin-leikvanKÍnum í Moskvu,
er fsland mætir Rússum í Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu.
Arnór skoraði
Lokeren tapaði
- Standard vann hins vegar
stórsigur gegn Antwerp
Íslensk/kanadíski kylfiníiur-
inn Dan Ilalldorsson bar sigur
úr býtum á Pensacola — golf-
mótinu f Florida um helttina. en
á þessu árlega móti keppa
jafnan mantir af sterkustu
kylfingum heims.
Þegar níundu holu var lokið i
síðustu umferðinni, voru fjórir
kylfingar jafnir Halldorsson,
þ.á m. Bandaríkjamaðurinn Tom
Kite.'Hinir drógust smám sam-
an aftur úr þar til að aðeins Kite
og Halldorsson voru jafnir og
efstir á 13. holu. Þá sendi Dan
Urvalio
í GÆRKVÖLDI lék kín
verska landsliðið i körfuknatt-
leik sinn fjórða og síðasta leik
hér á landi að þessu sinni.
Mætti liðið þá úrvalsliði KKÍ.
Úrvalsliðið sigraði í leiknum
með 105 stigum gegn 93. Staðan
í hálfleik var 59 gegn 55
úrvalsliðinu i hag. Leikur lið-
anna var bráðskemmtilegur á
að horfa og sýndu leikmenn
beggja liða góð tilþrif. Framan
HOLLENDINGAR og Vestur-
Þjóðverjar léku vináttulands-
leik i knattspyrnu um helgina
og skildu þjóðirnar jafnar.
Bæði lið skoruðu eitt mark og
komu bæði mörkin i fyrri hálf-
leik. en þá þótti knattspyrnan
sem liðin sýndu vera frábær.
Siðari hálfleikur var sýnu lak-
ari.
Skilyrðin voru slæm, völlurinn
í Eindhoven glerháll eftir
slyddu-veður. Fyrstu mínúturn-
ar urðu menn að hugsa fyrst og
fremst um að standa í fæturnar,
en smátt og smátt vöndust menn
hálkunni og liðin fóru að sýna
sínar bestu hliðar. Þjóðverjarnir
voru sterkari framan af og
Horst Hrubesch var óheppinn að
skora ekki strax á annarri mín-
étu leiksins, en markvörður Hol-
lendinga, Van Breukelen, varði
JOHN Bond, framkvæmdasíjóri
Norwich City i fyrstu deildinni
ensku, cr nú að athuga málin
þar sem að Manchester City
hefur falast eftir honum. Bond
hefur lýst yfir áhuga sínum að
taka við stjórnvölnum hjá City
með þeim orðum að hann sé
búinn að vera hjá Norwich svo
lengi að nú sé timi til kominn
að breyta til. Margir álíta hins
vegar að hann telji lið sitt ekki
nógu gott tii þess að halda sæti
sinu i 1. deild og þó það sýnist i
fljótu bragði verið að fara úr
öskunni i eldinn að fara frá
Norwich til Man. City, þá eru
flestir á þvi að efniviðurinn hjá
tvær niður i röð á einu undir
pari, Kite lék sömu tvær á pari
og einu yfir, þannig að Halldors-
son náði þriggja högga forystu
sem hann lét ekki af hendi.
Hann lék samtals á 275 höggum,
en þeir Garry Hallberg og Mike
Sullivan skutust fram fyrir Kite
og voru jafnir í 2.-3. sæti á 277
höggum. Dan Halldorsson
hreppti 36.000 dollara fyrir sig-
urinn. A þessu keppnistímabili
hefur Dan Halldorsson grætt
yfir 100.000 dollara fyrir afrek
sín á golfvöllum um gervöll
Bandarikin ...
sigraði
af leiknum höfðu Kinverjarnir
forystu en upp úr miðjum fyrri
hálfleik komst úrvalið yfir og"
eftir það var sigri þeirra ekki
ógnað. Stigahæstu leikmenn úr-
valsins voru Danny Shoues með
28 stig, Val Bracy 23, Keith
Yow 22. Af islensku leikmönn-
unum skoruðu Gunnar Þor-
varðarson og Ríkharður 4 stig
meistaralega. Og þremur mínút-
um síðar mátti engu muna að
Martin Jol sendi knöttinn í eigið
net eftir stórsókn Vestur-Þjóð-
verja. En Hollendingar tóku sig
á og jafntefli í hálfleik var mjög
sanngjarnt.
Horst Hrubesch skoraði mark
Þjóðverja á 35. mínútu. Hann
skallaði þá örugglega í netið
aukaspyrnu Hansa Muller. Ernie
Brandts, hollenski miðvörður-
inn, var sökudólgurinn er Þýska-
land fékk aukaspyrnuna, en
hann bætti fyrir brot sitt með
því að skora jöfnunarmark Hol:
lands fimm mínútum síðar. í
síðari hálfleik gekk hvorki né
rak, en þó kom nokkrum sinnum
til kasta markvarðanna, þeirra
Hans Van Breukelen og Eike
Immell, sem lék sinn fyrsta
landsleik fyrir Vestur-Þýska-
land aðeins 19 ára.
síðarnefnda félaginu sé meiri
og betri.
En það eru ýmsir snagar í
þessu máli. I fyrsta lagi er Bond
samningsbundinn hjá Norwich. í
öðru lagi skuldar City Norwich
enn stórfé fyrir miðherjann
Kevin Reeves, sem City keypti
frá Norwich á síðasta keppnis-
tímabili. Er talið að skuldin
nemi 750.000 sterlingspundum.
Forráðamenn Norwich hafa gef-
ið í skyn að þeir kunni að hafa
meiri áhuga á einhverjum leik-
mönnum City í stað auranna
sem þeir eiga inni. En þegar
þetta er ritað er óvíst hvert
framhaldið verður.
ARNÓR Guðjohnsen skoraði
mark fyrir lið sitt Lokeren um
helgina. en það dugði hvorki til
jafnteflis eða sigurs, Molenbeek
svaraði með þremur og Lokeren
tapaði 1—3. Þetta var þriðja
tap Lokcren á keppnistímahil-
inu og féll liðið við það niður i
sjötta sætið. Lokeren virðist
sem fyrr vera með betri liðum i
Belgiu, en vantar hins vegar
greinilega stöðugieika i leiki
sina. Standard vann öruggan
stórsigur á Antwerp. Ásgeir
skoraði ekki i leiknum, en átti
þó góðan leik. Jafnt var i
hálfleik, 1 — 1, eftir að Antwerp
hafði náð forystunni. En í síðari
hálfleik var alger einstefna og
Standard skoraði fjórum sinn-
um án svars. Úrslit leikja urðu
sem hér segir:
ítalir sigruðu Luxemborg 2—0
í 5. riðli undankeppni HM i
knattspyrnu um helgina, en
leikurinn fór fram i Luxem-
borg. Leikurinn var enginn
leikur í orðsins fyllstu
merkingu. ítalir léku illa og
létu það bitna á mótherjum
sinum. þeir spörkuðu í allt og
alla og tveir leikmanna Lux-
emborgar þurftu að fá aðhlynn-
ingu á sjúkrahúsi.
Hasarinn hófst strax á 30.
mínútu. Bakvörðurinn Gentile
sparkaði þá í fæturnar á Paul
Phillip án þess að knötturinn
væri nokkurs staðar nærri.
Gentile þessi þykir oft koma
villimannlega fram á leikvelli og
er skemmst að minnast ummæla
argentínska landsliðsþjálfarans
Luis Menotti, sem horfði á
landsleik ítala og Englendinga í
Evrópukeppninni á Ítalíu síðasta
sumar. Þar fékk Gentile það
hlutverk að gæta Tony Wood-
cock. Menotti sagðist hafa fengið
í magann að horfa á aðfarir
Gentile. Alltaf slapp hann þó úr
Molenbeek — Lokeren 3—1
Courtrai — Beringen 2—0
Beerschot — FC Liege 2—1
Standard — Antwerp 5—1
Beveren — Gent 5—0
Berchem — Waregem 1—1
Cercle Brugge — Ánderl. 0—2
Winterslag — Waterschei 0—1
Lierse — FC Brugge 1 — 1
Anderlecht hefur forystuna í
belgísku deildarkeppninni, hefur
hlotið 13 stig að átta umferðum
loknum. Beveren, Standard og
Molenbeek eru saman í 2.-4.
sæti með 12 stig hvort félag.
Waterschei, Lokeren, Courtrai,
Lierse og Berchem háfa öll níu
stig og eru saman í 5.-9. sæti.
Markatala Lokeren færir liðinu
sjötta sætið.
greipum dómarans, sem hins
vegar bókaði Woodcock fyrir að
ýta Gentile frá sér einhverju
sinni! En Phillip fékk fimm spor
í fótlegginn og kom ekki inn á
aftur.
Tveimur mínútum síðar skor-
aði bakvörðurinn Colovatti fyrra
markið með ágætu langskoti. En
varla hafði leikurinn hafist á ný,
er varnarmaðurinn Bossi var
borinn af leikvelli með takkaför
á gagnauganu! ítalir áttu meira í
leiknum, en rangstöðugildrur
Luxemborgara veiddu hvern ít-
alann af öðrum. Það fór í
taugarnar á þeim og nokkru
fyrir leikslok skellti Causio Ant-
on Schreiner flötum, mjög gróf-
lega. Loks lyfti dómarinn rauða
spjaldinu, en Schreiner fékk
einnig að skoða það þar sem
hann réðist með kjafti og klóm á
Causio. Nokkru síðar var Ant-
ognioni einnig rekinn af leikvelli
fyrir grófan leik, en rétt áður
hafði hann skotið í ■stöng úr
vítaspyrnu. Það var loks Roberto
Bettega sem skoraði annað mark
Itala á lokamínútunum.
Víkingur
mætir Fram
í kvöld
EINN leikur fer fram í
kvöld i 1. deild íslandsmóts-
ins i handknattleik. Viking-
ur og Fram eigast þá við í
Laugardalshöllinni og hefst
leikurinn klukkan 20.00.
Gengi þessara félaga hefur
verið misjafnt i haust. Vík-
ingur hefur hlotið fimm stig
af sex mögulegum og hefur
haiað inn stig hvort sem
liðið hefur leikið vel eða illa.
Framarar hafa hins vegar
verið heillum horfnir, ekki
fengið stig og þcgar komnir
i logandi fallhættu. Leikur-
inn verður athyglisverður, á
þvi er litill vaíi...
Frakkar
burstuöu
Kýpurbúa
FRAKKAR unnu algeran
yfirburðasigur gegn Kýpur í
landsleik i knattspyrnu um
hclgina. Leikurinn, sem var
liður i öðrum riðli undan-
keppni HM, fór fram á
Kýpur. Bcrnard Laeombe
skoraði fyrsta markið strax
á fyrstu minútu og I’latini
(2) og Larios bættu við
mörkum fyrir hlé. Larios
skoraði annað mark sitt
strax i byrjun siðari hálf-
leiks og þeir Didier Six og
Bernard Zimako innsigluðu
sigurinn með mörkum sín-
um undir lok leiksins.
ísland
tapaði
KÍNVERJAR sigruðu ís-
lendinga i landsleik i körfu-
knattleik sem háður var i
Borgarnesi á laugardaginn.
Lokatölur leiksins urðu
93—83 fyrir Kinverja.
íslendingar léku þennan
leik mjög vel framan af að
sögn sjónarvotta og höfðu
góða forystu snemma í síðari
hálfleik. En síðan ekki sög-
una meir. Ríkharður Hrafn-
kelsson var stigahæstur hjá
íslandi með 16 stig, en þeir
Torfi Magnússon og Jón Sig-
urðsson skoruðu 14 stig hvor.
Létt hjá
Aarhus
DANSKA meistaraliðið í
handknattleik. Aarhus
KFUM, sigraði finnska
meistaraliðið BK — 46 Kar-
is i. fyrri leik liðanna i
Evrópukeppni meistaraliða
um helgina með 25 mórkum
gegn 18, eftir að staðan i
hálfleik hafði verið 11—8.
Leikurinn fór fram á heima-
velli finnska liðsins og má
því fastlega gera ráð fyrir
því að Aarhus vinni siðari
ieikinn, heimaleik sinn, ör-
ugglega.
Heine Sörensen var mark-
hæstur hjá Aarhus með 10
mörk, en Jesper Petersen
skoraði fimm mörk og Jan
Have fjögur. Maður að nafni
Bo Westerholm var mark-
hæstur hjá Karis, hann skor-
aði 9 mörk.
hVor. — þr.
Risarnir skildu jafnir
Fer Bond til Man. City?
Grófir ítalir
unnu Luxemborg