Morgunblaðið - 14.10.1980, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980 2 3
Óeirðaalda gengur yfir Breta
— 8 ungmenni hafa beðið bana á knattspyrnuvöllum
síðustu tvö árin en menn greinir á um lausnir
SÍÐUSTU tvö árin hafa átta ungmenni látið lífið með voveiflegum
hætti á áhorfendapöllum enskra knattspyrnuliða. Eitt þeirra dó fyrir
skömmu eftir átök á leikvelli MiddlesbrouKh, er heimaliðið átti í höggi
við Nottingham Forest í 1. deild. Þetta er ekki ný bóla hjá Engilsöxum
og síður en svo bundið við Bretlandseyjar. En hvergi færist þessi
ófögnuður jafn ört i aukana og þar. Og hverjar eru svo skýringarnar?
Ætli nokkur viti þær með vissu?
Áhorfendum fækkar
Þegar þetta er haft í huga,
skyldi engan undra þó að
áhorfendum að enskum knatt-
spyrnuleikjum fækki. Það eru víst
fáir Englendingar jafn
áhugasamir um knattspyrnu og
gamla knattspyrnukempan Emlyn
Hughes. Engu að síður bannar
hann syni sinum að fara á
knattspyrnuleiki. Og þúsundir for-
eldra um allar Bretlandseyjar
fara að dæmi hans, því að þeir
hafa ekki áhuga á að fá börnin
heim útötuð í hlandi, hráka eða
blóði. Og þeir hafa heldur ekki
áhuga á að vitja afkvæma sinna
eftir kappleiki á sjúkrahúsum eða
líkhúsum. Venjulega eru óeirða-
seggirnir á hverjum leikvelli í
miklum minnihluta, en þeir halda
hópinn og geta gert hreint ótrú-
legan óskunda innan um mikið
fjölmenni.
Það eru fleiri skýringar á þvi að
áhorfendum fækkar. Dýrtíð er
mikil í Bretlandi og lífskjör al-
mennings æði misjöfn. Þá er það
og alkunna, að það fækkar á
vellinum ef heimaliðinu gengur
illa, eða leikur neikvæða og leiðin-
lega varnarknattspyrnu með litl-
um árangri. Þó að þessi atriði geti
vegið þungt, er ekki vafi, að
aðalástæðan er engu að síður
umsvif geðveikrax)fbeldisseggja.
Allir þvo hendur sínar
Bresk yfirvöld segja yfirleitt:
„Þetta er knattspyrnufélögunum
að kenna, þau gera ekkert fyrir
áhorfendur sína, koma ekki upp
aðstöðu fyrir þá eða neitt.“ Félög-
in svara um hæl: „Þetta er ekki
okkar einkamál, þetta er ekki
síður vandamál samfélagsins."
Þannig þvo allir hendur sínar og
meðan sá háttur er á hafður mun
ástandið ekki batna. Ýmsir hafa
sínar einkalausnir. Má nefna
mann að nafni Gordon Jago,
kunnan breskan þjálfara, áður hjá
QPR og Millwall, en nú í Banda-
ríkjunum. Hann segir: „Ég myndi
aldrei snúa til Bretlands á nýjan
leik nema viðkomandi félag sem
ég væri á förum til myndi sam-
þykkja einhliða tillögur mínar um
lausn þessa vandamáls. Og þær
eru í stuttu máli að loka stæðun-
um og hleypa aðeins því fólki inn á
völlinn sem kemst í sæti. Síðan
myndi ég breyta stæðunum í
sætasvæði, þar sem fjölskyldur
gætu setið saman í góðu yfirlæti.
Hverjum aðgöngumiða myndi síð-
an fylgja trygging fyrir því að
engar óspektir myndu eiga sér
stað meðan á leik stæði.“
Þetta gengur víða...
Slíkt gengur víða, eins og þeir
sem sáu sjónvarpsþáttinn um
bandarísku knattspyrnuna á dög-
unum, vita. Alan Hubbard, kunn-
ur enskur íþróttafréttamaður,
segir: „Það kostaði tæp 7 pund
fyrir einn fullorðinn og barn á
landsleik Englands og Noregs
fyrir skömmu. Fyrir sömu upphæð
fór ég með alla fjölskylduna á
knattspyrnuleik í Bandaríkjunum
í sumar. Aðstaða áhorfenda vestra
er ótrúleg og þeir sem gera sér að
góðu frumstæða aðstöðu Bret-
landseyja, myndu halda sig
dreyma. Allir sitja, boðið er upp á
veitingar, það þarf ekki að ryðjast
ásamt hundruðum annarra til að
komast á salerni og fjölskyldum er
gert kleift að halda hópinn. Leik-
irnir eru spennandi og skemmti-
legir og fyrir leik, í hléi og eftir
leik, fara fram alls kyns skemmti-
atriði á vellinum. Kvöldið leið án
klámyrða á áhorfendapöllunum,
engir bílar voru skemmdir á
bifreiðastæðunum, enginn var
sleginn, enginn sprændi á náung-
ann og enginn hrækti á næsta
mann. Reyndar gerðu áhangendur
hvors liðs um sig gys að
áhangendum hins liðsins, en allt
var góðlátlegt."
Tvískinnungur
Sem fyrr segir, hafa yfirvöld
lýst því yfir, að félögin og leik-
mennirnir sjálfir eigi mikla sök á
hvernig áhorfendur haga sér,
vegna þess að þeir eru teknir til
fyrirmyndar. Einn frægasti
knattspyrnumaður Englendinga,
Kevin Keegan, var ekki ánægður
með þessa afgreiðslu yfirvalda og
sagði: „Þeir eru bara að þvo eigin
hendur með þessu og bjarga sér út
úr vandamálinu með ómerkilegu
málskrúði. Knattspyrnumenn eiga
ekki að svara fyrir mistök yfir-
valda." Skömmu síðar var félagi
Keegans hjá Southampton,
Charlie George, kærður fyrir lík-
amsárás, er hann rétti ljósmynd-
ara einn á lúðurinn. Hafði mynda-
smiðurinn fátt til saka unnið, en
George mun hafa barið hann
vegna þess að honum þótti blaða-
maðurinn vera fyrir sér er hann
ætlaði að framkvæma horn-
spyrnu.
Sama laugardag var Mel nokkur
Blyth, miðvörður Millwall, í
sviðsljósinu. Lið hans lék á útivelli
gegn Colchester og gekk illa. Blyth
kenndi markverði sínum um ófar-
• Þeir eru ekki beint vinalegir á
svipinn þessir drengir, fylgi-
sveinar enska landsliðsins á Evr-
ópukeppni landsliða á Ítalíu í
sumar. Tveir hafa málað breska
fánann á andlit sín. síðan geta
þeir barið fólk án þess að þekkj-
ast. fáninn notaður sem grima.
irnar og reifst mjög í honum og
skammaðist. Svo illa lét Blyth, að
lögreglumaður stöðvaði leikinn,
gekk inn á völlinn og varaði Blyth
við að halda orðaflaumi sínum
áfram. Var Blyth síðan kærður
bæði fyrir lögreglunni og knatt-
spyrnusambandinu fyrir ósæmi-
lega hegðun á leikvelli. Af þessu
má ráða, að sökin liggur ekki öll á
einum hóp manna.
Áfengi kemur
við sögu
Enginn vafi leikur á því, að
áfengisneysla margra áhorfenda
kemur við sögu varðandi óeirðirn-
ar. Á flestum ef ekki öllum meiri
háttar leikvöngum Bretlandseyja,
er hægt að fá sér í glas og er sú
aðstaða óspart notuð. Auk þess er
það hefð í Bretlandi að hanga á
„pöbbum" síðustu klukkustundirn-
ar fyrir leiki, syngja, ræða málin
og síðast en ekki síst, hella í sig
áfengi, en það þarf fáum að segja
að bjórneysla í óhófi hefur ölvun í
för með sér. Undir áhrifum áfeng-
is eru margir erfiðari viðureignar
og hafa lítil tök á sjálfum sér eins
og dæmin sanna. A.m.k. eitt af
þekktari knattspyrnufélögum
Englands, Aston Villa, hefur nú
látið af áfengissölu á leikvangin-
um. Fleiri eru talin munu fylgja
fordæmi Villa og er það spor í
rétta átt. Menn segja: Ef ölvun við
akstur er bönnuð, því ekki einnig á
knattspyrnuleik?
Hugarfar ekki rétt
Það er sem sagt möguleiki á því
að Bretar séu að taka við sér í
þessum málum, a.m.k. eru þeir
farnir að ræða vandamálið. En
hugarfarið verður að vera í lagi og
því er ekki að heilsa í öllum
tilvikum. Áður er vikið að þeim
áhrifum sem neikvæð varnar-
knattspyrna hefur á fjölda áhorf-
enda. Stoke City berst í bökkum í
1. deild og þar ríkir það hugarfar
eitt, að halda sínu í deildinni, með
öllum tiltækum ráðum, þó það
þýði að pakka í vörn í hverjum
leik. Alan Durban er þar við
stjórnvölinn og hefur hann verið
talinn einn efnilegasti fram-
kvæmdastjóri Englands af yngri
kynslóðinni. En hugarfar hans er
þetta: „Ef fólk vill fá skemmtun,
ætti það að útvega sér trúða í stað
þess að horfa á knattspyrnu. Ef
knattspyrnan á að veita manni
skemmtun, þá er engin þörf fyrir
framkvæmdastjóra og þjálfara
...“ Meðan enn örlar á slíku
hugarfari, eru Bretar svartsýnir
að vandamál knattspyrnunnar í
dag verði leyst með öllu. En
hverju einasta spori sem tekið er í
rétta átt, er fagnað meðal Engil-
saxa ...
• Hlúð að slösuðum eftir uppþot á Boundry Park, leikvelli Oldham. Það er nýlunda þar um slóðir. Yfirieitt
eru það áhangendur þekktari liða, svo sem Chelsea, West Ham. Newcastle og Manchester Utd., sem láta að
sér kveða...