Morgunblaðið - 14.10.1980, Síða 38

Morgunblaðið - 14.10.1980, Síða 38
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980 Verulegar samdrátt- araðgerðir í Svíþióð Schmidt ræðst á gjaldeyrishöft BeiMin. 12. október. — AP. HELMUT Schmidt kanzlari gagnrýndi um helgina ný gjaldeyris- höít Austur-Þjóðverja og kallaöi þessar nýju reglur „víðtækt brot“ á samningum landanna. Schmidt fór hörðum orðum um gjaldeyrisreglur Austur- Þjóðverja á fundi með félagi póstmanna í Vestur-Berlín og kvað þær miða að því að draga úr ferðum vestrænna gesta. Hann sagði að harðlínumönnum í austur-þýzku stjórninni hefði fundizt, að nú væri rétti tíminn til að grípa til þessara ráðstaf- ana vegna nýlegra atburða í Evrópu (þ.e. Póllandi) og skoraði á Austur-Þjóðverja að fella regl- urnar úr gildi. Samkvæmt reglunum, sem tóku gildi í dag, verða vestrænir ferðamenn eldri en sex ára að kaupa austur-þýzk mörk fyrir 14 dollara hvern þann dag, sem þeir dveljast í Austur-Þýzkalandi. Þetta er tvöfalt hærri upphæð og í sumum tilfellum fjórfalt hærri upphæð en áður hefur tíðkazt. Reglurnar koma harðast niður á eftirlaunafólki, sem hefur ekki efni á þessu, og mun draga úr heimsóknum Vestur-Þjóðverja til ættingja í Austur-Þýzkalandi. Fjögurra manna fjölskylda, sem vill heimsækja ættingja í Austur-Berlín, verður nú að greiða minnst 56 dollara á dag. Sjö til átta milljónir Vestur- landabúa ferðast til Austur- Þýzkalands á ári. Um helgina mynduðust langar biðraðir við eftirlitsstöðvar á austur-þýzku landamærunum, þar sem Vesturlandabúar vildu nota síðasta tækifærið til að heimsækja Austur-Þýzkaland áður en nýju reglurnar gengju í gildi. Talið var, að þrisvar sinn- um fleira fólk en venjulega hefði farið yfir landamærin. Verkföll halda áf ram hjá Fiat Tórínó. 13. okt. — AP. VERKFALLSMENN og stuðn- ingsmenn þeirra, hertu í dag verkfallsvörsluna við Fíat-bíla- verksmiðjurnar í Tórínó 13. dag- inn í röð. Búist var við að Arnaldo Forlani, sem nú reynir að koma saman 40. ríkisstjórninni á Ítalíu frá stríðslokum, hefði afskipti af deilunni nú í vikunni. Ástæðan fyrir vinnudeilunum er uppsögn 23.000 starfsmanna á sl. þremur mánuðum. Hryðjuverkamenn dæmdir í V-Berlín Bcrhn. 13. okt. — AP. DÓMSTÓLL I Vestur-Berlín fann I dag fimm menn seka um að vera félagar í hryðjuverkasamtökunum „2. júní“ og að hafa tekið þátt í að ræna stjórnmálamanninum Peter Lorenz. sem á sinum tima hauð sig fram til borgarstjóraembættisins í Vestur-Berlín fyrir kristilega demó- krata. Ránið á Peter Lorenz þótti eitt- hvert mesta tilræði við vestur-þýskt samfélag af hálfu hryðjuverka- manna um miðjan þennan áratug. Hann var látinn laus úr haldi eftir fimm daga þegar ránsmönnunum höfðu verið greiddar 50,000 dollara og fimm liðsmönnum Rauðu her- deildarinnar, eða Baader-Meinhofs- hópsins, hafði verið sleppt og flogið me' þá til Jemen. Veður víða um heim Akureyri Amsterdam Aþena Berlín BrUssel Chicago Feneyjar Frankfurt Faareyjar Genf Helsinki Jerúsalem Jóhannesarborg Kaupmannahöfn Las Palmas Lissabon London Los Angeles Madrid Malaga Mallorca Míami Moskva New York Oslo París Reykjavfk Rió de Janeiro Rómaborg Stokkhólmur Tel Avfv Tókýó Vancouver Vínarborg 0 alskýjað 12 heióskirt 26 heiöskírt 9 rígning 12skýjaó 12 heióskirt 13 þokumóóa 10 skýjaó 6 alskýjaó 8 skýjaó 12 skýjaó 28 heióskírt 29 heiðskirt 11 skýjaó 24 skýjaó 20 heióskírt 13 heióskirt 24 skýjaó 18 heiðskirt 23 léttskýjaó 18 léttskýjaó 31 heióskírt 14 heióskírt 16 skýjað 12 heíóskírt 13 skýjaó 4 skýjaó 20 rigning 14 skýjaó 9 skýjaó 28 heióskírt 21 skýjað vantar 12 rigning Stokkhúlmi. 13. oktúbcr. AP. SÆNSKA stjórnin til- kynnti í dag nýjar efna- haRsráðstafanir til að mæta vaxandi efnahags- vanda í landinu. Aðgerðir stjórnar Thorbjörns Fáll- dins nú miða að því að draga úr útgjöldum ríkis- ins. Mikill halli er fyrir- sjáanlegur á fjárlöKum og eru aðgerðir stjórnarinn- ar nú fyrsti liður í áætlun stjórnarinnar. Dregið verður verulega úr útgjöldum til félagsmála og opinberra aðgerða. Utgjöld til þessara þátta lækka um tæp- lega 700 milljarða íslenzkra króna. Búist er við að þrátt fyrir þessar aðgerðir verði halli á fjárlögum um 60 millj- arðar sænskra króna. Verðlag hækkar, þannig hækka lyf, verðskrá lækna, járnbrautarfargjöld og mat- væli. Dregið verður úr útgjöld- um til húsnæðismála og nýtt fyrirkomulag á ellilífeyri og námslánum, sem þýðir minni útgjöld. íraskir hermenn hvíla sig eftir töku hafnarinnar í Khorrams- hahr. Eldsúlur stíga til himins. Sovézk aðst oö við bæði íran og Irak Beinit, 13. oktúber. - AP. RÚSSAR virðast aðstoða bæði írani og íraka og reyna að gegna virkara hlutverki í Miðausturlönd- um að sögn diplómata. En þetta er hættuleg stefna, sem getur mistekizt, á sama hátt og stefna þeirra í Ogaden-stríðinu á austur- horni Afríku þegar þeir reyifdu að styðja bæði Eþíópíumenn og Sómalíu- menn. Aðstoð Rússa virðist vera með þessum hætti: — Birgðir sovézkra skotfæra og varahluta í Suður-Jemen og Eþíópíu eru notaðar til að endur- nýja birgðir íraka og sendar sjóleiðis til jórdönsku hafnarborg- arinnar Aqaba. Suður-Jemen og Eþíópía hafa gert vináttu- samninga við íraka og aðstoð þessara landa er í samræmi við gamla samninga. Á sama tíma eru birgðir í Líbýu og Sýrlandi sendar flugleiðis til Teheran ásamt hergögnum frá Norður-Kóreu. Þar á meðal kunna að vera varahlutir í bandarísksm- íðaðar F-5-þotur, sem Víetnamar komust yfir þegar Saigon féll. Teheran-útvarpið hafði eftir sendiherra Rússa í íran, Vladimir Vinogradov, í síðustu viku, að Rússar væru reiðubúnir að veita hernaðaraðstoð, en Rússar neit- uðu því að hafa lagt fram slíkt tilboð. Abolhassan Bani-Sadr for- seti sagði í viðtali við AP um helgina, að hann vissi ekkert um slíkt tilboð, en taldi að Rússar gætu hafa átt við aðstoð innan rammasamninga, sem voru gerðir við fyrrverandi stjórn. Bani-Sadr sagði í viðtalinu, að írakar hefðu ekkert varalið lengur tiltækt og kvað það stefnu írana að þreyta innrásarherinn áður en ráðizt yrði til atlögu gegn honuni. Hann sagði, að íranir teldu ekki viðræður um vopnahlé koma til greina fyrr en írakar hörfuðu með herlið sitt og lofuðu að skipta sér ekki af innanlandsmálum í íran Hann sagði, að gíslamáiið mundi sennilega dragast á langinn vegna stríðsins og að þingið kyn i að setja fram ný skilyrði. írar • mundu grípa til hernaðarleg ráða gegn öllum arabaríkjum, se veittu Irökum hernaðarstuðnir . en íranir mundu ekki sprengja upp olíusvæði við flóann. Líbýa, Sýrland og Alsír styddu nú írani, en Iranir fengju enga aðstoð frá þessum löndum. Nokkrir vara- hlutir í bandarísk hergögn væru keyptir á ótilteknum mörkuðum. Iranir væru fúsir að virða áskorun um vopnahlé frá Kurt Waldheim, framkvæmdastjóra SÞ, til að gera innilokuðum skipum á Shatt-al- Arab-sundi kleift að komast burtu. Bagdad-útvarpið taldi í gær upp hergögn, sem það sagði að Sýr- lendingar hefðu sent Irönum rétt áður en stríðið hófst, og sakaði þá og Líbýumenn um að gera íraka að óvinum araba nr. 1 í stað Israelsmanna. Sýrlendingar vís- uðu ásökuninni eindregið á bug og sögðu þá ráðstöfun Iraka að slíta stjórnmálasambandi „óréttlætan- lega“. Þetta geráist 14. okt 1974 — SÞ viðurkennda Frelsissa tök Palestínu (PLO). 1968 — Fyrsta beina sjónvarpssen? ingin frá bandarísku geimfari. 1964 — Martin Lnther King f friðarverðlaun Nóbels. 1958 — Malagasy-lýðveldið (Ma- ga3kar) fær sjálfstæði. 1944 — Bretar og Grikkir fre Aþenu. 1939 — „Royal Oak“ sökkt á Sc; flóa (800 fórust). 1933 — Þjóðverjar segja sig Þjóðabandalaginu. 1930 — Byltingartilraun fasist; Finnlandi. 1929 — Fyrstu tilraunir með le skipið „Rlol“. 1884 — „Mahdíinn“ tekur Om<: man í Súdan herskildi. 1813 — Bæjarar segja Frök) stríð á hendur. 1809 — Vínar-friðurinn. 1806 — Orrustan við Jena (Na leon sigrar Prússa) — Orrustan Auerstádt (Napoleon sigrar Saxe 1066 — Orrustan við Hastings: Vilhjálmur bastarður og Normannar sigra Englendinga (d. Haraldur Englandskonungur). Afmæli. Jakob II, brezkur konungur (1633-1701) - William Penn, faðir Pensylvaníu (1644—1718) — Eamon de Valera, írskur stjórnmálaleiðtogi (1882-1975) - Dwight D. Eisen- hower, bandarískur hermaður og forseti (1890-1969). Andlát. 1976 Edith Evans, leikkona. Innlei t. 1861 f. Bjarni Þorsteinsson — 1873 F. Halldóra Bjarnadóttir — 1897 F. dr. Kristinn Guðmundsson — 1939 Laxárvirkjun fullgerð — 1953 „Ingólfur Arnarson" rýfur löndur.arbannið og landar í Grimsby — 1956 Togarinn „Fylkir" sekkur — 1979Ólafur Jóhannesson segir af sér. Orð dogsins. Vald spillir, algert vald gerspi ir — Acton lávarður, brezkur sagnfr eðingur (1834—1902).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.