Morgunblaðið - 07.11.1980, Side 1
40 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
248. tbl. 68. árg.
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
íraksher herðir
árásir á Abadan
ÍRAKAR hófu i dag
stórskotaliðsárás á Abadan eftir
nokkurt hlé. að sögn írana. sem
einnig segjast hafa hrundið árás
íraka á borgina og styrkt veru-
lega stöðu sina þar. írakar neita
eindregið þeim fréttum. Báðir
stríðsaðiljar halda þvi fram. að
Flugrán í
Venezúela
Caracas. 6. nóv. AP.
ÞRÍR vopnaðir menn ra>ndu í
dag DC-9-þotu frá venezúel-
enska flugfélaginu Avensa með
62 mónnum innanhorðs og
neyddu flugmennina til að
lenda á Kúbu. að þvi er haft
var eftir talsmanni flugfélags-
ins.
Flugvélinni var rænt 12 mín-
útum eftir að hún hóf sig á loft
frá flugvellinum í Caracas það-
an sem förinni var heitið til
Puerto Ordaz í Austur-Venezú-
ela. Flugræningjarnir eru taldir
vera þrír en ekki er vitað
hvernig þeir eru vopnaðir. Þetta
er í fyrsta sinn í sjö ár, að
flugvél er rænt í Venezúela en
samkv. samningum við Fidel
Castro ber Kúbumönnum að
framselja venezúelenska flug-
ræningja. Sambúð Venezúela og
Kúbu er nokkuð stirð um þessar
mundir en í síðasta mánuði
hótaði Castro að slíta öllu sam-
bandi við stjórnina í Caracas ef
hæstiréttur landsins staðfesti
sýknudóm yfir fjórum flugræn-
ingjum, sem rændu kúbanskri
flugvél fyrir fjórum árum með
þeim afleiðingum, að 73 menn
fórust.
verulegt mannfall hafi orðið i liði
fjandmannanna.
Haft var eftir íröskum hers-
höfðingja í dag, að íraski herinn
gæti haldið yfir ána og hertekið
Abadan ef hann fengi skipun um
það, enda væri borgin umkringd á
alla vegu. Abadan er síðasta vígi
írana við Shatt-al-Arab og hefur
Khomeini sagt, að það megi ekki
henda að borgin falli. íranir
segja, að íslamskir byltingarverðir
verjist enn í Khorramshahr en
vestrænir fréttamenn bera þær
fregnir til baka. Að þeirra sögn er
borgin að heita má í rústum og
ekkert lífsmark að sjá nema
íraska hermenn.
Bankastjóri íranska seðlabank-
ans sagði í dag, að staðið yrði við
allar erlendar fjárskuldbindingar
og að greitt yrði af lánum, allt að
tveimur milljörðum dollara, sem
tekin hefðu verið í Bandaríkjunúm
og í Vestur-Evrópu.
Forseta gefin gjöf Ronald Reagan. væntanlegur forseti Bandaríkjai.na. tekur við gjöf.
skyrtubol með forsetamerkínu. úr hendi væntanlegs varaforseta. George Bush. á heimili Reagans í Los
-------- Angeles i gær. Með þeim á myndinni eru eiginkonur þeirra. AP-símamynd
„Yfirgangssemi Rússa
verður höfð í huga“
— sagði Reagan á fyrsta blaðamannafundi eftir kosningar
Los AnKcles, 6. nóv. AP.
RONALD Reagan, væntanlegur
forseti Bandaríkjanna, sagði i
dag. að hann a-tlaði að láta
einskis ófreistað til að leysa
bandarísku gíslana í íran úr
haldi en tók þó skýrt fram. að
hann myndi ekki hlanda sér í
viðkvæmar samningaviðra>ður á
þeim tíma sem Carter ætti enn
Afganir hrinda
árásum Rússa
Islamahad. 6. nóvcmbor. AP.
SOVÉSKT herlið, stutt flugvélum
og skriðdrekum. varð þrívegis frá
að hverfa þegar það reyndi að ráða
niðurlögum afganskra frelsissveit-
armanna í þremur bæjum. aðeins
100 km fyrir norðan Kahúl. Þessar
fréttir eru hafðar eftir japönskum
fréttamanni. sem í mánuð hefur
dvalist meðal afganskra ska>ru-
liða.
Japanski fréttamaðurinn, Hiromi
Hagakura, sagði í Islamabad í dag,
að afgönsku skæruliðarnir hefðu
veitt innrásarliðinu öflugt viðnám
og hann sagðist nú skilja hvers
vegna 85.000 rússneskum hermönn-
um hefði ekki tekist að bæla niður
andstöðu landsmanna. Hiromi
sagði, að Rússar hefðu ráðist inn í
bæinn Taghab á brynvörðum bif-
reiðum og skriðdrekum auk þess
sem gerðar hefðu verið loftárásir á
hann. Afgönsku skæruliðarnir
hefðu þá skotið á innrásarliðið úr
hverju húsi og beitt skriðdreka-
byssum, sem þeir hefðu komist yfir
í fyrri átökum, og eyðilagt fjöldann
allan af rússneskum vígvélum og
fellt 65 rússneska hermenn.
Hiromi sagði, að afgönsku skæru-
liðarnir kysu helst að berjast að
næturlagi til að forðast rússnesku
fallbyssuþyrlurnar, sem þá skortir
vopn til að beita gegn. Hann sagði,
að Rússarnir væru hataðir jafnt af
fullorðnum sem börnum og að
skæruliðarnir hefðu margoft lýst
því yfir við sig, að þeir mundu ekki
hætta fyrr en síðasti rússneski
hermaðurinn væri kominn til
Rússlands.
eftir í emba'tti. A fyrsta blaða-
mannafundi sínum eftir kosn-
ingar. sagði Reagan. að yfir-
gangssemi Rússa yrði höfð í huga
þegar teknar yrðu ákvarðanir
um takmörkun vopnahúnaðar.
„Það er ekki nóg að semja bara
um víghúnaðarmál. heldur verð-
um við að líta á ástand heims-
mála. hvort við viljum búa við
frið í öllum heimi eða ra>ða um
vopn,“ sagði hann. Ilann hét því
einnig. að strax yrði unnið að því
að „breyta kosningaloforðunum í
raunveruleika“.
Á blaðamannafundinum nefndi
Reagan þrjá menn sem ráðgjafa
sína í utanríkismálum, öldunga-
deildarþingmennina Henry M.
Jackson og Richard Stone, og
lögfræðinginn Edward Bennett
Williams. „Við erum þegar farnir
að vinna að stjórnarmyndun,"
Afganskir skæruliðar, sem þrívegis hafa hrundið sovéskri árás á þrjá bæi fyrir norðan Kabúl. sjást hér
skoða skemmdir, sem urðu i loftárásum og stórskotaliðsárás Rússa á bæinn Taghab. APsimamynd
sagði Reagan á fundinum en frá
honum var útvarpað um öll
Bandaríkin. Með Reagan á fundin-
um var væntanlegur varaforseti
hans, George Bush. Þegar Reagan
var spurður hvort hann ætlaði að
ræða við sovéska ráðamenn áður
en hann tæki formlega við emb-
ætti, svaraði hann því neitandi og
sagði, að slíkt mætti skilja sem
svo að þjóðin væri ekki einhuga og
ætti auk þess ekki við á meðan
Carter væri forseti.
Á blaðamannafundinum vildi
Reagan ekki ræða um væntanlega
ráðherra í stjórn sinni en sagði, að
„vel gæti verið“ að þeirra á meðal
yrði a.m.k. einn demókrati. Haft
er eftir heimildum, að þeir sem
komi einna helst til greina í
ráðherraembætti séu: Henry Kiss-
inger fyrrum utanríkisráðherra,
sem fengi þá aftur sitt gamla
starf; Alexander Haig, fyrrv. yfir-
hershöfðingi NATO og starfs-
mannastjóri Nixons. Einnig
orðaður við utanríkisráðherra-
embættið. William Simon, fyrrv.
fjármálaráðherra, sem tæki við
því starfi aftur; Alan Greenspan,
formaður ráðgjafanefndar í efna-
hagsmálum í tíð Fords. Greenspan
er einnig orðaður við fjármálin.
George P. Schultz, fyrrv. fjár-
málaráðherra Nixons. Hann er
talinn koma til greina í nokkur
embætti, t.d. sem fjármálaráð-
herra eða ráðherra án ráðuneytis,
sem ynni að stefnumörkun í
innanlandsmálum.
í veislu í gær þar sem kosn-
ingasigrinum var fagnað, sagði
Reagan, að ásamt öðrum heilla-
óskaskeytum hefði honum borist
skeyti frá Brezhnev, sem hefði
sagst „hlakka til samvinnunnar
o.s.frv.“ Reagan, sem hefur lofað
að hætta við Salt 11-samninginn
og hefja viðræður um nýjan, var
þá spurður hvernig honum líkaði
að fá skeyti frá kommúnistaleið-
toga. „Ég lít svo á, að þetta sé eins
og hvert annað formsatriði, svar-
aði Reagan.