Morgunblaðið - 07.11.1980, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1980
Félagsmálaráð Reykjavikur:
Börn giftra foreldra
og sambúðarfólks fái
aðgang að dagheimilum
MEIRIIILUTI félaKsmálaráðs
Reykjavíkurborgar hefur sam-
þykkt, að frá 1. janúar 1981 fái
bðrn KÍftra foreldra og sambúð-
arfólks aðganK að daKheimilum
borKarinnar gegn tvöföldu
Kjaldi og skal fjöldi þeirra
miðast við 10%, en að öðru leyti
er dagvistunarrýminu skipt
þannig, að börn einstæðra for-
eldra hafa 60%, börn stúdenta
16%, börn annarra námsmanna
10% og 4% eru ætluð börnum
vegna erfiðra heimilisástæðna.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
vildu ekki opna dagheimilin
fyrir börn giftra foreldra og
sambúðarfólks, nema að því
marki, sem forgangshóparnir
nýttu ekki dagvistunarrýmið. Þá
vildu fulltrúar sjálfstæðisflokks-
ins, að foreldrar og sambúðar-
fólk greiddi ekki lægra gjald á
dagheimilum, en þau þurfa að
greiða fyrir börn í einkadagvist-
un, sem dagvistardeild Félags-
málastofnunar hefur milligöngu
um að útvega. Tillaga meirihlut-
ans var samþykkt með 4 atkvæð-
um, en fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins sátu hjá.
Bergur Felixson, fram-
kvæmdastjóri dagvistunar
barna, sagði í samtali við Mbl. í
gærkvöldi, að þegar síðast hefði
verið talið á biðlista forgangs-
hópanna að dagvistunarrými,
hefðu verið á honum 250 börn,
flest börn námsmanna.
Eftir heimild ríkisstjórnar-
innar um 19% hækkun gjalda
dagheimila og skóladagheimila,
hækkar gjaldið úr 42 í 50 þúsund
krónur á mánuði og sagði Bergur
ljóst, að Reykjavíkurborg
greiddi á þessu ári yfir 70%
heildarkostnaðarins. Gjald fyrir
börn í einkadagvistun er nú rétt
tæpar 120 þúsund krónur á
mánuði.
Ríkisstjórnin samþykkti einn-
ig hækkun leikskólagjalda um
20% og hækka þau úr 25 í 30.000
krónur. Bergur Felixson sagði að
Reykjavíkurborg greiddi rétt
tæpan helming heildarkostnaðar
leikskólanna.
Hættuástand á
Kröflusvæðinu
í mánaðarlokin
JARÐVÍSINDAMENN telja líkur
á því, að umbrot verði á Kröflu-
svæðinu eftir tvær vikur eða í lok
þessa mánaðar. Guðmundur Sig-
valdason sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að líkur á að kvika
hlaupi til suðurs í átt að Bjarnar-
flagi hefðu ekki aukizt.
Þær hefðu alltaf verið fyrir hendi
og væru það enn þá. „Eg tel, að
miklar líkur séu á því, að á svæðinu
verði eldgos, en hvar get ég ekki
sagt um. Um það verður ekkert sagt
fyrr en aðeins, að við vonum,
einhverjum klukkutímum áður en
það gerist,“ sagði Guðmundur Sig-
valdason er Morgunblaðið spurði
hann um þessi mál í gær.
„Þróunin á svæðinu hefur verið
sú síðustu daga, að bungan uppi við
Leirhnúk hefur haldið áfram að
vaxa með sama hraða. Eins og núna
horfir verður bunguhæðin komin í
svipaða stöðu eftir tvær vikur og
var í byrjun októbergossins. Við
teljum því, að hættuástand verði
komið á svæðinu fyrir mánaðamót.
Venjan hefur verið sú, að hraðinn
hefur verið mikill á landrisinu í
byrjun þess, en hefur síðan minnk-
að. I októbergosinu gcrðist það hins
vegar, að lítið tæmdist úr kviku-
hólfinu og því næst sama hæð og þá
mjög fljótt aftur," sagði Guðmund-
ur.
Landkrabbar frum-
sýndir á Hornafirði
Hornafiröí, 6. nóvember.
LEIKFÉLAG Hornafjarðar frum-
sýnir „Landkrabba" laugardaginn 8.
nóv. nk. í félagsheimilinu Sindrabæ,
Höfn Hornafirði. Höfundur leikrits-
ins er Hilmar J. Hauksson og
leikstjóri er Ingunn Jensdóttir.
Leikarar eru 18 og eru flest hlutverk
viðamikil.
Leikurinn gerist í litlu sjávar-
plássi og segja má, að á sviðinu sé 1
stk. frystihús með öllu sem því
fylgir og ber það nafnið „Skeggla". í
leiknum kennir ýmissa grasa sam-
hliða hinum margvíslegu frysti-
hússtörfum, svo sem söngs, dans,
gleði, ástar og sorgar, og eitt er víst
að ekki þurfa áhorfendur að láta sér
leiðast á meðan á sýningu stendur,
því að efnisþráður og atburðarásin í
„Skegglu" sér vel fyrir því að fólk
skemmti sér.
Æfingar hófust í september og
hafa gengið vel, þrátt fyrir síldar-
törn og sláturtíð og hafa aðstand-
endur sýningarinnar svo til lagt
nótt við dag eins og venja er þegar
æfingar á leikritum standa yfir.
— Einar
Þorsteinn Sigurbergsson og Sigrún Eiriksdóttir i hlutverkum sinum 1
Landkröbbum.
17
Frá ostamarkaðinum að Bitruhálsi 2. Þarna gefst áhugasömum kaupendum kostur á að bragða hinar ýmsu
osttegundir áður en kaupin eru gerð.
Mjólkurdagar 1980:
Kynning á mjólkurvör-
um að Bitruhálsi 2
MJÓLKURVIKU lýkur með
þremur mjólkurdögum i húsi
Osta- og smjörsölunnar að
Bitruhálsi 2. Þar hefur verið
sett upp sýning i anddyri húss-
ins, í matsal fer fram sýni-
kennsla i gerð ýmissa mjólkur-
rétta og eru þar gefnar mat-
prufur. I verziuninni verður
markaður og hlutavelta en á
markaðnum verða seldir kynn-
ingarpakkar með ýmsum
mjólkurvörum. Einnig verða
seldir ostar, þar á meðal nýjar
tegundir sem ekki hafa enn
komið á aimennan markað.
Margskonar vinningar verða á
hlutaveltunni — ávísanir á út-
tekt i Klakahöllinni. ostar og
ostaskerar og ýmsar mjólkur-
vörur.
Undanfarin ár hafa alþjóða-
samtök mjólkurframleiðenda
helgað sér einn dag á ári og
kallað „mjólkurdag". Nú þegar
hafa verið ákveðnir alþjóðlegir
mjólkurdagar næstu tvö ár, 26.
maí 1981 og 27. maí 1982. Þá fer
fram samræmd kynning á mjólk
og mjólkurvörum í þeim löndum
sem eigá aðild að þessum félags-
skap. íslenska mjólkurdags-
nefndin ákvað hins vegar að
vikan 3.-9. nóvember yrði sér-
stök mjólkurvika.
Það sem meðal annars hefur
verið gert í þessari viku er að
nemendum í flestum grunnskól-
um utan höfuðborgarsvæðisins
hefur verið boðið að heimsækja
mjólkurbúin. Á markaðinn komu
sérstakar mjólkurumbúðir sem
gerðar voru í samráði við tann-
verndunarsjóð Tryggingastofn-
unar ríkisins. Þá hefur verið sent
til grunnskólanna námsefni sem
nefnt hefur verið „Hvað verður
um mjólkina hennar Huppu". í
vetur hefur einnig verið dreift til
nokkurs hluta nemenda grunn-
skólanna leiðbeiningum um holl-
an morgunverð.
Mjólkurframleiðendur standa
að mestu undir kostnaði af
starfsemi mjólkurdagsnefndar.
Á undanförnum árum hefur
mestu af því fjármagni, sem
nefndin hefur haft til ráðstöfun-
ar, verið varið til auglýsinga.
Síðastliðin tvö ár hefur aukin
áherzla verið lögð á að kosta
útgáfu á ýmsu fræðsluefni. Má
til dæmis nefna útgáfu á bækl-
ingi fyrir nemendur í grunnskól-
um, veggspjöld og kvikmynd.
Tilgangurinn með „Mjólkur-
dögum 1980“ er að vekja athygli
neytenda á þeirri þróun sem
orðið hefur á framleiðslu
mjólkurafurða hin seinustu ár. Á
síðasta áratug hefur framleiðsl-
an sífellt orðið fjölbreyttari og
nýjar tegundir bætzt við á hverju
ári. Af ostum eru nú til um 37
tegundir. í þessari viku eru
kynntar þrjár nýjar tegundir —
Rjómaostur (Cream Chese) frá
Mjólkurbúi Flóamanna og nýir
mjólkurostar frá mjólkursam-
lögunum á Sauðárkróki og Húsa-
vík..
Önnur sýning á Boeing-Boeing
Önnur sýning Leikfélags Keflavíkur á gamanleiknum
„Boeing-Boeing" eftir Marc Camoletti verður í Félagsbíói
í kvöld. Leikstjóri er Sævar Helgason.
Iceland Seafood Corporation:
5% verðmætaaukning á tíma
bilinu janúar — september
VERÐMÆTI sölu Iceland Sea-
föod Corporation, dótturfyrir-
tækis Sambandsins i Bandaríkj-
unum, á fyrstu þrcmur ársfjórÁ
ungum þessa árs nam 66,4 millj-
ónum dollara og var salan sam-
tals um 54 milljónir Ibs. i magni
talið.
Þessar upplýsingar komu
fram í skýrslu Guðjóns B. ólafs-
sonar. framkvæmdastjóra á ár-
legum haustfundi stjórnar fyrir-
tækisins, sem haldinn var fyrir
skömmu.
Magnaukningin er um 2%, en
verðmætaaukningin er liðlega 5%.
í sölu á fiskréttum varð 2%
samdráttur í magni, en um 3%
aukning í verðmæti. Sala á fisk-
flökum dróst hins vegar saman
um 4% í magni, en 3% í verðmæti.
Fram kom, að á fyrra helmingi
ársins hefur markaðshlutdeild
fyrirtækisins í fiskréttum aukizt í
8,1% úr 7,8% áður, en í flakasölu
hefur hún minnkað í 5,7% úr 6,0%
árið áður.
Þá hefur allur tilkostnaður
fyrirtækisins aukizt mjög, ekki
sízt vextir. Ennfremur hefur sam-
keppnin aukizt mjög á Banda-
ríkjamarkaði.
I ágústmánuði sl. voru fram-
leidd í verksmiðju fyrirtækisins
5,1 milljón lbs. af fiskréttum, og er
það meira en nokkru sinni fyrr í
einum mánuði. Hjá Iceland Sea-
food Corporation starfar nú 321
maður, og er það mesti starfs-
mannafjöldi hjá fyrirtækinu til
þessa.