Morgunblaðið - 07.11.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 07.11.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1980 15 Iceland Shipping í Panama bjargaði Hilmar Reksten UM ÞESSAR mundir fer fram erfðaf járskipting í dánarbúi norska skipakóngsins Hilmars Reksten er lézt i fyrrasumar. Frægt varð fyrra mál sem höfðað var á hendur Reksten fyrir meint brot á skatta- og gjaldeyrislöggjöf, en hann skuldaði hundruð milljóna dollara er hann féll frá. Skráðar eignir í dánarbúinu eru óverulegar og fyrir rétti i fyrra sagðist Reksten hvorki eiga eignir né hafa tekjur af eignum. Erik Foss borgarfógeti í Bergen lýsti bú Rekstens gjaidþrota og að erfðafjárskiptamálið yrði að fara fram fyrir opnum dyrum. Lánardrottnar Rekstens munu ekki ríða feitum hesti frá erfða- fjárskiptunum nema sönnur fá- ist á að Reksten hafi átt veru- legar eignir í öðrum löndum. Orðrómur hefur verið á kreiki í Noregi í mörg ár að Reksten hafi í raun og veru átt eigur upp á milljarða dollara í útlöndum, og var tilgangur réttarhaldanna yf- ir honum í fyrra sá, að reyna að leiða þessar eigur fram í dags- ljósið. Var Reksten sagður hafa komið milljarða verðmætum undan með því að selja eignir að nafninu til eigin fyrirtækjum í löndum þar sem hann naut skattfríðinda. Reksten neitaði að hafa átt fyrirtæki af þessu tagi, en viðurkenndi að hafa veitt slíkum fyrirtækjum rekstrar- ráðgjöf. Hann var hreinsaður af ákærum um meiriháttar skatt- svik og gjaldeyrisbrot, en engu að síður sendur reikningur fyrir 600 milljónum norskra króna vegna „of lágra skatta". Enn er ekki búið að greiða þennan reikning og mun gjaldheimtan í Bergen líklega gera kröfu í dánarbúið fyrir upphæðinni sem hefur hækkað vegna dráttar- vaxta. Einn lánardrottinn, Aker skipasmíðastöðin, hefur þegar gert kröfur í dánarbúið að upp- hæð á milli 40 til 60 milljóna dollara. Einn lánardrottnanna er dul- arfullt fyrirtæki með nafninu Iceland Shipping, sem skráð er í Panama, en ekki er vitað um hverjir eigendur þess eru. Félag- ið keypti árið 1975 60 milljóna dollara skuldir Rekstens á að- eins 20 milljónir dollara, eða þriðjung nafnverðs skuldanna, sem voru í eigu skipafyrirtækja í Noregi, Kanada, Bretlandi og Japan. Þessi skipafélög höfðu hótað að láta lýsa Reksten gjald- þrota er Iceland Shipping skaut allt í einu upp kollinum og keypti Reksten út úr þeim vand- ræðum. Lánardrottnarnir komust ekki að því hverjir stóðu á bak við tilboð Iceland Shipping, en grun- ur lék á að þar hefði Reksten sjálfu'r og vinir hans verið að verki. Að kröfu skiptaréttar hefur skiptaráðandi í dánarbúi Rek- stens rannsakað skjöl búsins ef í þeim skyldu vera upplýsingar um eignir í útlöndum. Engar sannanir um eignir af þessu tagi hafa fundizt í skjölunum, aðeins óljósar vísbendingar. Lögerf- ingjar Rekstens, en þeir eru sjö að tölu, kunna að krefjast ítar- legrar leitar eftir duldum eign- um í útlöndum. Kynni sú krafa að hleypa af stað fjölskylduerj- um og leiða hið sanna í ljós um vitneskju fjölskyldu Rekstens á gjörðum hans, en við vitnaleiðsl- ur í máli hans í fyrra kusu fjölskyldumeðlimir að þegja þunnu hljóði. (Þýtt og endursagt.) Simamynd AP. Á stund ósigurs — Carter í heimaborg sinni Plains í Georgíu á kjördag. Ceausescu í Skandinavíu Stokkhólmi. 7. nóvember. AP. NICOLAE Ceausescu Rúm- eníuforseti kom í dag í fjög- urra daga opinbera heimsókn til Svíþjóðar. Frá Svíþjóð held- ur forsetinn í opinberar heim- sóknir til Danmerkur og Nor- egs. Ceausescu mun í heimsókn- inni eiga viðræður við ráða- menn, og er búist við að þær muni fyrst og fremst snúast um alþjóðamál, og að þá beri m.a. Pólland, Afganistan og Mið- austurlönd á góma. Einnig mun forsetinn undirrita þriggja ára viðskiptasamkomulag við Svía- Sunday Times dæmdar bætur í Thalidómíðmáli StrashourK. 7. nóvember. AP. MannréttindadómstólL Evrópu úr- skurðaði í dag. að ríkissjóði Bret- lands væri skylt að greiða tæplega 23 þúsund sterlingspund af máls- kostnaði Sunday Times vegna Thalidómíð-málsins. Blaðið fór fram á að ríkissjóður endurgreiddi um 40 þúsund pund. Dómstóllinn úrskurðaði, að brezk- ir dómstólar hefðu brotið 10. grein mannréttindaskrár Evrópu er lög- bann var lagt á birtingu greina um Thalidómíð-harmleikinn svonefnda. Á árunum 1959 til 1962 fæddust hundruð vanskapaðra barna í Bret- landi, en vansköpun barnanna var rakin til þess, að mæður þeirra hefðu neytt kvalastillandi lyfja á meðgöngutímanum. Thalidómíð- lyfja. Lögbann var lagt við birtingu greinanna á þeirri forsendu að skaðabótamál væru óútkljáð og að birtingin gæti haft áhrif á störf dómara. Sunday Times áfrýjaði lögbannsúrskurðinum á sínum tíma til æðsta áfrýjunardómstóls Breta, Lávarðadeildarinnar, en tapaði. Pólland: Áfrýjunarmálið tekið fyrir í næstu viku Gdansk. 5. nóvember. AP. HÆSTIRÉTTUR Póllands mun fjalla um áfrýjun hinna óháðu verkalýðsfélaga á úrskurði und- irréttar varðandi stofnskrá hins nýja Alþýðusambands næstkomandi mánudag, að þvi er dómsmálaráðherra landsins, Jerzy Bafia, skýrði frá i dag. Verkalýðsleiðtogar, með Lech Walesa, ítrekuðu í dag þá af- stöðu sína, að þeir mundu undir engum kringumstæðum hvika frá ákvæðum þess uppkasts að stofnskrá sambandsins, en hins vegar kæmi til grejna ,að bæta inn i það yfirlýsingu um að ekki væri fyrirhugað að breyta sam- handinu i stjórnmálaflokk. Við réttarhöldin í síðasta mánuði var kveðinn upp sá úrskurður að í stofnskránni skyldi getið um „forystuhlutverk Kommúnistaflokksins", en verkalýðssamtökin áfrýjuðu þeim úrskurði á þeirri forsendu að pólitískar yfirlýsingar ættu ekki heima í stofnskrá sambands af þessu tagi. Walesa lét svo ummælt í dag, að sambandið „gæti efnt til verkfalls ef á þyrfti að halda", og kynni slík vinnustöðvun að standa allt að því einn mánuð, en hann tók fram um leið að sjálfur væri hann andvígur frekari vinnustöðvun en þegar hefði átt sér stað í landinu. Hann var að því spurður, hvort verkalýðsleið- togar óttuðust ekki „íhlutun að utan“, og svaraði: „Nei, ég tel ekki ástæðu til að óttast slíka íhlutun, en jafnvel þótt til henn- ar kæmi mundum við ekki ótt- ast. Ef þessi þjóð yrði knúin til að greiða sitt gjald fyrir frelsi á ný, þá mundi hún gera það, en um leið mundi mikið ávinnast. Þeir gætu tekið okkur herskildi, en enginn gæti neytt okkur til að vinna fyrir hernámsliðið," sagði Walesa. 1551 — Stokkhólmsvíg (aftökur sænskra aðalsmanna og kirkju- höfðingja hefjast) — Svisslend- ingar semja frið við Frakka með Genfarsáttmálanum. 1659 — Pýreneafriður Spánverja og Frakka. 1733 — Escurial-sáttmáli Frakka og Spánverja undirritaður. 1742 — Varnarbandalag Breta og Prússa gegn Frökkum gert. 1781 — Síðasta. aftaka Rannsókn- arréttarins á Spáni. 1811 — Orrustan vlð Tippecanoe: sigur Norður-Anterfkumanna, ó Indíánum Tecumseh. T917 — Októberbyltingin í Rúss- landi. 1944 — Franklin D. Roosevelt kos- inn forseti í fjórða sinn. 1956 — Bretar og Frakkar hætía hernaðaraðgerðum í Egyptalandi. 1972 — Vestur-' og Austur-Þjóð- verjar taka upp formlegt samband. 1975 — Dómunum yfir Indiru Gandhi fyrir kosningasvik hnekkt í hæstarétti á Indlandi. Afmæli. Marie Curie, frönsk vís- indakona (1867—1934) — Joan Sutherland, áströlsk söngkona (1926---). Andlát. 1862 Bahadur Shah II, síðasti Mógúlkeisari Indlands. Innlent. 1222 d. Sæmundur Jóns- son í Odda — 1550 Jón biskup Arason höggvinn ásamt sonum sínum — 1718 Danska herskipið „Giötheborg" strandar á Hraun- skeiði — 1941 lÞjóðstjórnin“ biðst lausnar — 1942 Togarinn „Jón Ólafsson“ talinn af með 13 möflnum — 1952 d. Árni Pálsson. — 1863 f. Þorleifur H. Bjarnason — 1885 f. Vilhjálmur Finsen, sendiherra. Orð dagsins. Ekkert kemur í staðinn fyrir heilann ef eitthvað þarf að segja, en þögnin er næst- bezt — Óþekktur höfundur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.