Morgunblaðið - 07.11.1980, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 07.11.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1980 31 • Torfi MaKnússon skorar gegn ÍS. Fremst sér í Miley, Bandarikja- manninn i liði Vals. Magnús þjálfar IBÍ MAGNÚS Jónatansson mun þjálfa knattspyrnulið ísafjarðar næsta keppnistimabil. Magnús sagðist gera sér vonir um að fá fjóra góða knattspyrnumenn til liðs við sig. Væntanlega þá Örn- ólf Oddsson, Jón Oddsson og Sverri Herbertsson. Magnús mun ganga frá samningnum við iBl i dag. Magnús hefur þjálfað 1. deildar lið KR undanfarin ár og náði ágætis árangri með liðið en öllum að óvörum var hann látinn hætta störfum með liðið skyndi- lega á síðasta keppnistímabili. -þr. Valur Valsson orðinn Valsari NÚ ERU hinir og þessir knatt- spyrnumenn að hyggja að félaga- skiptum sínum fyrir næsta keppnistimabil. Enda ekki ráð McDonald til Fulham MALCOLM McDonald, miðherj- inn fyrrverandi hjá Arsenal og Newcastle, er nú orðinn framkvæmdastjóri hjá 3. dcildar liðinu Fulham. Fulham var í 2. deild á siðasta kcppnistímahili, féll. og hefur gengið illa það sem af er þessum vetri. McDonald tekur við af Bohhy Camphell, sem var rekinn fyrir hálfum mánuði. nema í tíma sé tekið. Valur Valsson, knattspyrnumaðurinn efnilegi úr FH, hefur tilkynnt félagaskipti yfir í Val. Má segja að það fari vel á því að lcikmaður mcð nafninu Valur Valsson gangi i félagið. Ekki hafa fleiri leik- menn gengið frá félagaskiptum I Val, en heyrst hefur að ýmsir hafi í hyggju að ganga tii liðs við félagið. Eyjaleikmennirnir Sam- úel Grytvik og Sighvatur Bjarna- son hafa báðir verið nefndir í því tilviki en hvorugur þeirra hefur þó formlcga tilkynnt félaga- skiptin. Valur sigraói eftir framlengingu ISLANDSMEISTARAR Vals sigruðu lið ÍS með 104 stigum gegn 98 eftir framlengdan leik i Islandsmótinu i körfuknattleik i gærkvöldi. Leikur liðanna var lengst af mjög jafn og spennandi og sjaldan skildi nema eitt stig liðin að i leiknum þar til i framlengingunni. Þá sigruðu Valsmenn örugglega, skoruðu hverja körfuna af annarri en lið ÍS lék eins og þeir hefðu ekki lengur trú á þvi að þeir gætu sigrað i leiknum. Valsmenn hafa nú fengið til liðs við sig þriðja Bandarikjamanninn. Sá heitir Miley og lék áður með háskólaliði i Indiana. Lék hann frckar lítið með í leiknum og er greinilega ekki í góðri æfingu. Þó var hann sterkur i fráköstunum þegar hann var inn á. Allur fyrri hálfleikurinn var í jafnvægi og liðin hnífjöfn, staðan í hálfleik var 46—45 fyrir ÍS. Blökkumaðurinn Coleman lék mjög vel fyrir IS og skoraði 25 stig í fyrri hálfleik. Sama var uppá teningnum í síðari hálfleik, eitt og tvö stig skildu liðin að og þau skiptust á um forystuna í leiknum. Þegar aðeins tvær mínútur voru eftir var mjög mikil spenna komin í leikinn, staðan var þá jöfn 86—86. ÍS náði að komast yfir í 88—86, Valur jafnaði ogTorfi kom Val yfir með tveimur vítaskotum, 90—88. Árni Guðmundsson jafn- aði svo metinn fyrir IS með góðu skoti. Mikill darraðardans var stiginn síðustu sekúndur leiksins en þrátt fyrir að leikmenn ÍS væru með boltann tókst þeim ekki að skora sigurkörfuna. Valur - IS 104-98 Leikurinn var því framlengdur og þá tóku Valsmenn öll völd á vellinum í sínar hendur og sigruðu örugglega. Lið Vals lék allvel. Lengst af léku þeir án Bandaríkja- mannsins Miley sem kom til dæmis ekkert inn á í síðari hálfleik fyrr en fjórar mínútur voru til leiksloka. Kristján lék frábærlega vel bæði í vörn og sókn. Sama er að segja um þá Torfa Magnússon og Ríkharð Hrafnkelsson. Þá átti Jóhannes Magnússon góðan dag og hitti vel. Það fer ekki milli mála að lið Vals hefur jafnbestu íslensku leik- mönnunum á að skipa. Lið IS byggir svo til allt sitt upp á Coleman og þrátt fyrir að hann ætti stórleik og skoraði 50 stig og hirti fjöldann allan af fráköstum kom allt fyrir ekki. Leikmenn ÍS börðust vel allan leikinn en svo var eins og eitthvert vonleysi kæmi á í framlengingunni. Þá misheppnuðust skot í góðum fær- um og sendingar fóru forgörðum. Bjarni Gunnar átti ágætan leik, svo og Ingi og Árni Guðmundsson. Stig Vals: Kristján Ágústssön 26, Torfi Magnússon 25, Ríkharður Hrafnkelsson 23, Miley 14, Jó- hannes Magnússon 12, Jón Glæsilegt hús vígt í NÝTT og glæsilegt íþróttahús verður vígt í Kcflavik á morgun hefst athöfnin klukkan 14.00. Atburður þessi markar tímamót i öllu iþróttalífi i Keflavík. því hingað til hefur orðið að notast við ónóga aðstöðu. Salurinn í hinu nýja húsi er 22x44 metrar og er því fullkominn að stærð til allra innanhússkapp- leikja og um leið svo rúmur, að íþrótta- Keflavík stunda má fleiri íþróttagrein, en eina í einu ef mönnum þóknast. Sem fyrr segir, hefst vígsluat- höfnin á morgun klukkan 14.00. Þá verða ræðuhöld og slíkt. Athöfnin heldur síðan áfram á sunnudaginn með umfangsmikilli íþróttasýn- ingu, sem hefst klukkan 10.00 og linnir ekki fyrr en klukkan 17.00. Verða flestar íþróttagreinar á dagskrá og keppendur af flestum stærðum og gerðum. Steingrímsson 2, Gylfi Þorkelsson 2. Stig ÍS: Coleman 50, Bjarni Gunn- ar 16, Árni Guðmundsson 14, Ingi Stefánsson 10, Pétur Hansson 4. Gísli Gislason 4. — þf- Einkunnagjöfin í körfuknattleik LIÐ ÁRMANNS: Hörður Arnarson 5 Atli Arason 4 Kristján Rafnsson 6 Bernharð Laxdal 4 Davíð Ó. Arnar 8 Guðmundur Sigurðsson 3 Valdemar Guðlaugsson 5 Kári Schram 4 LIÐ VALS: Sigurður Hjörleifss. Gylfi Þorkelsson Bjartmar Bjartmarss. Kristján Ágústsson Jóhannes Magnússon Torfi Magnússon Jón Steingrímsson Ríkharður Ilrafnkelss. Þórir Magnússon Lið ÍS: Bjarni Gunnar Albert Guðmundsson Árni Guðmundsson Ingi Stefánsson Pétur Ilansson Gisli Gíslason Lið Vals: Ríkharður Ilrafnkelsson 7 Kristján Ágústsson 8 Jóhannes Magnússon 6 Torfi Magnússon 7 Jón Steingrímsson 5 Gylfi Þorkelsson 5 Þórir Magnússon 5 Einkunnagjöfin 10. Heimsmælikvarði 9. Framúrskarandi 8. Mjög góður 7. Góður 6. Frambærilegur 5. Þokkalegur 4. Lítt áberandi 3. Slakur 2. Mjög slakur 1. Fyrir neðan allar hellur. Allar vörur verzlunarinnar á hlægilega lágu verði. Brunaútsala

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.