Morgunblaðið - 07.11.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.11.1980, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1980 Ragnar Arnalds í f járlagaræðu: Sighvatur lof- aði sendiherr- um kauphækkun til að greiða álagða tekjuskatta MEÐ nýjum skattaloKum 1978 var undanþáKa starfsmanna íslenzkra sendiráða frá jfreiðslu tekjuskatts felld niður. — Einu ok hálfu ári síðar. haustið 1979. ritar þáverandi fjármáiaráðherra. SÍKhvatur BjörKvinsson, hréf til utanríkis- ráðuneytisins. þar sem hann lýsir því yfir. að þar sem þetta nýmæli i skattaloKum muni hafa í för með sér rýrnun á kjörum starfsfúlks sendiráða. ok með hliðsjón af við- hröKðum við sama fyrirbrÍKði á oðrum- Norðurlöndum. muni hann sjá svo um. fyrir hönd fjármála- ráðuneytisins. að sendiráðsmenn fái kauphækkun sem nemi væntan- leKum tekjuskatti. eftir að nýju skattalöKÍn komi til framkvæmda. betta vóru orð ItaKnars Arnalds. núverandi fjármálaráðherra. í fjár- laKaræðu í Kær. „Hæpið virðist," sagði Ragnar, „að fjármálaráðherra geti lofað tilteknum hópi manna að þeir fái greiðslur úr ríkissjóði á fjárlögum næstu ára til að greiða skatta, sem Alþingi hefur samþykkt að leggja á.“ Ráðherra sagði ennfremur, að „árslaun íslenzks sendiherra á Norðurlöndum hafi verið áætluð á verðlagi um mitt þetta ár rúm 41 m.kr., þar af eru um 30% grunn- laun, en 70%, launa- og staðarupp- bót, m.a. til að greiða laun þjónustu- fólks á gestkvæmum heimilum sendiherrahjóna. — Sendifulltrúi hefur 70% af launum sendiherra. Aðrir sendiráðsmenn miklu minna.“ Ragnar Arnalds Sighvatur Björgvinsson, fv. fjár- málaráðherra, sagðist í þessu efni hafa fallizt á tillögur skrifstofu- stjóra ráðuneytis síns, að fara að dæmi nágrannaþjóða, með þeim fyrirvara þó, að Alþingi samþykkti. Hafa yrði í huga að inni í þessum tölum, sem nefndar hefðu verið, væru ekki einungis laun sendiherra og sendifulltrúa, heldur rekstrar- kostnaður, er heyrði til sendiráði, og að skattkerfisbreytingin hefði skert áður umsamin eða ákveðin kjör. Sighvatur Björgvinsson: Tuttugu milljarða nýskattar 1980 en minni niðurgreiðslur en áður EF BORNIR eru saman textar í þjóðhagsáætlun forsætisráðherra og fjárlaKaræðu fjármálaráðherra um væntanleKa stöðu ríkissjóðs i árslok 1980, má KlóKKt sjá, hvað veldur þvi. að ríkissjóður stendur skár en stundum áður. Ástæðurnar eru fyrst ok fremst tvær, að tekjur ríkissjóðs hafa vaxið mikið. miðað við fyrri ár. veKna stóraukinnar skattheimtu, ok að niðurKreiðslur eru mun minni í ár en á sama tima í fyrra. Tekjur ríkissjóðs hafa vaxið mun meira en sem nemur verðb<jlKUvexti. þó hann sé ærinn. Söluskattur var hækkaður um 2 stig sl. haust. Þessi hækkun gaf ríkissjóði á árinu 1980 10—11 millj- arða króna umfram það sem þessi tekjustofn gaf 1979. Söluskatturinn var enn hækkaður um 1 '/£% á þessu ári, sem gefur fjármálaráðherra 7 milljarða króna til viðbótar. Til viðbótar hinum 11 umfram milljörð- unum. Beinir skattar hafa og gefið ríkissjóði um 6 milljarða króna 1980, umfram það sem skattreglur ársins 1979 hefðu staðið til. Þannig hefur Ragnar Arnalds haft a.m.k. 20 milljarða króna til ráðstöfunar í ár, sem Tómas Árnason, fyrrv. fjár- málaráðherra, hafði ekki á liðnu ári. Ef þessar viðbótartekjur hefðu ekki til komið, eða niðurgreiðslur verið sambærilegar í ár og 1979, væri útkoma ríkissjóðs önnur og stórum verri. Ekkert hefur breytzt hjá fjármálaráðherra að öðru leyti. Fjárlagafrumvarpið byggir á tveimur meginforsendum um efna- hagsþróun á komanda ári: 42% verðlagshækkun og 33% gengis- lækkun, sagði Sighvatur. Hvað þýð- ir þessi 33% gengislækkun,? spurði hann. Að nýkrónan, sem kemur hundraðföld í ársbyrjun, verður orðin að 67 aurum í árslok og 30 aurum í lok kjörtímabils, ef þessar Sighvatur Björgvinsson fjárlagaforsendur standast, sem alls ekki er gefinn hlutur, miðað við reynslu þess árs, en þá var reiknað með 30% verðlagsþróun sem varð hinsvegar 58%. Sighvatur spurði: Verður gripið til aðgerða af hálfu stjórnvalda til að sporna gegn viðblasandi verð- lagsþróun 1981, og ef svo er, verða þær ráðstafanir þá lagðar fyrir væntanlegt ASÍ-þing síðar í þessum mánuði? Tómas Árnason, viðskiptaráðherra: „Geta undirstöðuat vinnuvegir gengið í 70% verðbölgu?44 „SÍJ HEFUR ekki orðið raunin á, að þróunin i verðlags- og. launa- ug Kengismálum hafi samrýmst áformum stjórnarinnar í efnahags- málum,“ sagði Tómas Árnason. viðskiptaráðherra, í fjárlagaum ræðu á AlþinKÍ í Kær. „Það má orða það svo. að rikisstjórnin hafi keypt vinnufriðinn því verði að fresta. að hluta. niðurtalninKU verðlxjlKunn- ar í áföngum." „Auðvitað torvelda almennar Krunnkaupshækkanir í þjóðfélag- inu viðnám KeKn verðlxjlKu ... Þær Krunnkaupshækkanir. sem samið hefur verið um. munu valda 15— 20% hækkun verðbólKU á næstu 6—12 mánuðum.“ Tómas Árnason sagði orðrétt: „Án verðlagsáhrifa grunnkaups- hækkana stendur verðbólgan um þessar mundir j 52—53%. Nú er Ijóst að grunnkaupsh#kk- anir um 9—10%, komu inn í verðlag- ið frá 1. nóvémber sl. Ef ekki tekst neitt samkomulag um ráðstafanir til að bremsa verðbólguna, þá koma verðbætur launa, verðhækkanir laundbúnaðarvara, útseld vinna og fleira af fullum þunga inn í hagkerf- ið 1. desember nk. Um áramótin kemur svo nýtt fiskverð. Til þess að undirstöðuatvinnuvegirnir standist fyrirsjáanlegar hækkanir tilkostn- aðar 1. desember og 1. janúar nk. verður gengisaðlögun að fara fram. Ef það ekki skeður stöðvast útflutn- ingsframleiðsla þjóðarinnar. Og hvar standa menn þá? Jú — ná- kvæmlega eins og fyrir 1. desember, nema að verðbólgan hefur hækkað verulega. KaUpmáttur launa verður í besta falli óbreyttur en allt atvinnuöryggi þjóðarinnar ótraust- ara. Á þessu ári munaði hársbreidd að frystihúsin og útgerðin stöðvuð- ust að meira eða minna leyti vegna verðbólgunnar. Sama er að segja um útflutningsiðnaðinn. Þá er spurn- ingin: Tekst okkur íslendingum að halda undirstöðuatvinnúvegunum Tómas Árnason viðskiptará^horra gangandi ef verðbólgan fer upp í 70%, að ég tali nú ekki um meira. Það er vissulega kominn tími til að stinga við fótum og þó miklu fyrr hefði verið. Er nú ekki ráð að þjóðin þoli það, að allsherjar viðnámsað- gerðir í efnahagsmálum verði gerð- ar sámhliða gjaldmiðilsbreyting- unni um áramótin. Að sameinað verði verðbótatímabil allra kostnað- arþátta 1. janúar nk. og hafin verði »unhæf niðurtalning verðbólgu frá im tílna." .• Fjárlagaræða: Staða ríkissjóðs í viðunandi jafnvægi m.a. vegna tekjuaukningar ríkissjóðs á árinu STAÐA ríkissjóðs verður í viðun- andi jafnvægi á þessu ári. sagði fjármálaráðherra í fjárlagaræðu í gær, í fyrsta sinn um árabil. minna. Of snemmt er þó að segja nákvæmlega til um, hver verður afkoma ríkissjóðs í árslok, en hún ætti að geta verið í járnum. Skýringin er tvíþætt, sagði hann, önnur sú, að tekjur ríkis- sjóðs hafa aukizt meir en verðlag hefur hækkað (um rúmlega 60% miðað við sama tímabil í fyrra, þ.e. á fyrstu 8 mánuðum árs), en hin, að útgjöld hafa hækkað Tekjuaukning ríkissjóðs á þessu ári stafar fyrst og fremst af hækkuðum óbeinum sköttum, sagði ráðherra, en einnig hefur eignarskattur hækkað vegna hærra fasteignamats en reiknað var með. Viðskjptaráðherra um tekjupóst í fjárlagafrumvarpi: Hættulegur vjðskipta- hagsmunum Islands SAMKVÆMT samningum ís- lands við Efnahagsbandalagið þurfum við ekki að greiða tolla af útflutningsvörum. sem fluttar eru á þetta markaðssvæði. og nema a.m.k. 10 milljörðuin króna í ár, sagði Tómas Árnason. viðskiptaráðherra. í gær. Þrátt fyrir þetta var fjáriagafrumvarp ársins 1981 lagt fram þannig. að gert er ráð fyrir áframhaldi aðlögunargjalds sem tekjustofni. sem við erum skuldbundnir til að fella niður nú í árslok, sam- kvæmt samningum. EBE mót- mælir og gjaldinu og telur það andstætt samningi íslands við bandalagið. Tómas Árnason las bókun, sem hann hefur gert á fundi ríkis- stjórnarinnar, þar sem minnt er á, að þegar samningar tókust um 3% aðlögunargjald hafi því vérið heit- ið af íslands hálfu að gjaldið yrði skilyrðislaust fellt niður í árslok 1980. Kannað hefur verið, hvort enn megi framlengja gjaldið, en af- staða samningsaðila okkar er neikvæð, sagði viðskiptaráðherra, og „telja má fullvíst, að t.d. EBE muni ekki sætta sig við framleng- ingu þess og geti jafnvel gripið til mótaðgerða, sem skaði mikilvæga viðskiptahagsmuni íslands.“ Þess er því að vænta, að þetta mál verði tekið til nánari athugunar sam- hliða afgreiðslu frumvarpsins. , Jnnflutningsgjöki aumasta böl skattamála'4: Álögur á heimilis- tæki 175%, „bensín á leikföng skattfrítt“ — sagði f jármálaráðherra í f járlagaræðu RAGNAR Arnalds, fjármálaráð- herra, sagði í fjárlagaræðu á Alþingi i gær. að ríkisskattar af innflutningi réðust af tilviljun- arkenndari og órökréttari regl- um en beinir skattar. Tollalög- gjöfin væri og hinn mesti frum- skógur. Þannig þyrftu þeir. sem „kaupa sér flugvél til að leika sér á um helgar“, engin gjöld að borga af þessu leikfangi, hvorki toll. vörugjald eða söluskatt. Sama gilti um eldsneytið, en flugvélabensín væri langtum ódýrara en bensín á bifreiðir. Auk þess liggur grunur á, sagði ráð- herra, að stundum sé það notað á bifreiðir. En sá, sem kaupir heim- ilistæki, eins og ísskáp eða hnífa- pör, borgar 80% toll, 24% vöru- gjald og 23% söluskatt, eða sam- tals 175% gjöld. „Líklega er þetta aumasta svið íslenzkra skatta- mála hvað mismun varðar." Ráðherra sagði löngu tímabært að stokka þessi mál upp og væru þau nú í endurskoðun í nefnd í fjármálaráðuneytinu. Reglur um áætl- aða skattstofna í endurskoðun Hert innheimta söluskatts „ÁKVÆÐI nýsettra skattalaga um áætlun tekna og tekjufærslu á óverðtryggðum skuldum, virð- ist/koma mjög illa niður á þéim bændum, sem verst eru settir fjárþagslega og orka því tvímæl- is,“ sagði Ragnar Arnalds fjár- málaráðherra í fjárlagaræðu í gær. Sérstök nefnd vinnur að athug- un á álagningu tekjuskatts á bændur að sögn ráðherra. Önnur nefnd vinnur að rannsókn á kjör- um og skattgreiðslum einstæðra foreldra. Ráðherra sagði koma til mála að eignarskattur 4erði í tveimur þrepum. Stefnt væri í herta inn- heimtu söluskatts og strangari viðurlög yið bókhaldsbrotum. Þá væru í undirbúningi sérstakar aðgerðir til aukins skattaeftirlits.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.