Morgunblaðið - 07.11.1980, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1980
11
Þjónustumiðstöð
íyrir aldraða
• Til þess að ná sem bestum
árangri í virkri öldrunarþjónustu
er nauðsynlegt að samhæfa sem
flesta þætti starfseminnar bæði
heilbrigðisþjónustuþætti og fé-
lagslega þætti og þjónustu á
heimilum og stofnanaþjónustu,
svo að úr verði ein samfelld
starfsemi sem hefur hugtakið
„Þjónustumiðstöð fyrir aldraða",
verði notað um slíka samhæfa
þjónustu (Geriatric Unit) á
ákveðnu svæði (Area Geriatric
service). Dagleg afgeiðsla á slíkri
þjónustumiðstöð í höndum starfs-
hóps sem í eru læknir, félags-
ráðgjafi og hjúkrunarfræðingur.
Starfshópurinn afgreiðir hvern
einstakling eftir eðli þarfa hans,
hvort heldur er með innlögn á
öldrunarlækningadeild, dagspít-
alavistun, eða skipulagningu
heimaþjónustu, svo sem heima-
hjúkrunar og heimilishjálpar.
Þessar vinnuaðferðir þykja nú
orðið sjálfsagðar í flestum ná-
grannalöndum okkar og árangur-
inn skilar sér í minnkaðri ásókn á
ævivistunarstofnanir. Með öðrum
orðum, sjúklingurinn er aðstoðað-
ur til að vera á heimili sínu eins
lengi og hægt er. Þetta fyrirkomu-
lag hefur verið haft til hliðsjónar
við uppbyggingu á starfsemi öldr-
unarlækningadeildarinnar, en til
þess að slík þjónustueining gangi
snurðulaust vantar hér á nánari
samvinnu við félagsmálastarfsemi
borgarinnar svo og nánari sam-
vinnu við framhaldsdvalar-
stofnanirnar.
Því miður hafa öldrunarlækn-
ingar ekki hlotið þann sess í
heilbrigðisþjónustunni sem þær
þurfa að hafa miðað við það
stærðarhlutfall sem þær eru í
heilbrigðiskerfinu, má sem dæmi
um þetta nefna að á nýafstöðnu
Heilbrigðisþingi var varla minnst
á þessi mál. Ennþá virðist meiri
hluti lækna og annarra heilbrigð-
isstétta hugsa um þessa þjónustu í
formi steinkassa utan um lang-
legusjúklinga. Ein af meginástæð-
unum fyrir þessu er skortur á
fræðslu í öldrunarþjónustu fyrir
heilbrigðisstéttir. Engin kennsla
er í öldrunarlækningum við
læknadeild Háskóla íslands og
deildin viðurkennir ekki sérgrein-
ina sem slíka í reglugerðum sín-
um. A meðan afstaða heilbrigð-
isstétta er með þessum hætti er
róðurinn þungur að koma á fót
viðunandi öldrunarþjónustu hér-
lendis.
Neyðarástand í
óldrunarþjónustu
• Margir telja að neyðarástand
ríki í öldrunarþjónustu á Reykja-
víkursvæðinu. Það er orð að sönnu
því að enginn getur neitað að
heilbrigðisþjónusta aldraðra er al-
gjör hornreka í heilbrigðiskerfinu
og sérstaklega um Reykjavíkur-
svæðið. Flestar tillögur til úrbóta
eru þó mjög einhæfar og takmark-
ast eingöngu við byggingu stofn-
ana. En það er þó ekki nema ein
hliðin á lausn vandans því að lítið
þíðir að byggja stofnanir ef ekkert
er um það hugsað hvernig ein-
staklingnum vegnar úti í þjóðfé-
laginu. Slíkar stofnanir eru jafnan
alltaf fullar og biðlistarnir utan
við þær jafn langir hversu margar
sem þær eru. Lausn vandamálsins
er miklu margþættara en þessir
þættir verða allir að haldast í
hendur ef árangur á að nást.
Nokkrar tillögur
til úrbóta_____________________
1. Auka veg öldrunarlækninga
innan heilbrigðisþjónustunnar
með viðurkenningu sérfagsins í
læknanámi, kennslu í öldrun-
arlækningum við læknaskóla og
öðrum skólum fyrir heilbrigð-
isstéttir.
Virkar öldrunarlækningar
þurfa að vera snar þáttur í
starfsemi allra sjúkrahúsa.
2. Skipuleggja þarf svæðaþjón-
ustu fyrir aldraða með sam-
tengingu allra þátta öldrunar-
þjónustunnar, bæði heilsufars-
legra og félagslegra, og af-
greiðslu til neytandans frá
einni þjónustumiðstöð fyrir til-
tekið svæði. Gjarnan þarf að
koma á ströngu eftirliti með
úthlutun ævivistunarplássa til.
þeirra sem eru í mestu þörfinni
á hverjum tíma.
3. Auka þarf hjúkrunarrými fyrir
þunga hjúkrunarsjúklinga að
verulegu magni á Reykjavík-
ursvæðinu og suðurlandsund-
irlendinu.
4. Efla þarf heimaþjónustu að
miklum mun bæði á Reykjavík-
ursvæði svo og öðrum byggðar-
lögum landsins og stuðla með
því að fráhvarfi fólks frá stofn-
anaáráttu þeirri sem nú virðist
herja hér á landi.
Þróunin hefur því miður orðið á
þann veg í þjóðfélagi okkar, að
hlutverk fjölskyldunnar í umönn-
un gamalmenna hefur minnkað að
mun og eitthvað verður að koma í
staðinn. Að setja öll gamalmenni
á stofnun sem ekki geta bjargað
sér á eigin spýtur er fráleit
hugsun og ómannúðleg þar sem
vitað er að þau atriði sem orsaka
vandræði á heimilunum eru oft
auðleyst með opinberri hjálp inni
á heimili. Þetta er rauði þráðurinn
í allri stefnumörkun í öldrunar-
þjónustu í dag og um allan heim.
síðan ég byrjaði að dunda við
skriftirnar, en það varð þó
ekki að neinni alvöru fyrr en
það fór að hægjast um hjá mér
og ég var orðin ein. Þetta hafði
lengi verið að brjótast um í
mér, en þetta er nú mest til
gamans gert og gefur lítið í
aðra hönd enn sem komið er,
en auðvitað má maður ekki
ætlast til of mikils.
Bækurnar, sem komnar eru
út, heita Gæfumunur og
Breyttir tímar, svo eru vænt-
anlegar tvær bækur í fram-
haldi þessara tveggja, Niður-
setningurinn og Sólris, en síð-
an er enn ein tilbúin sem
heitir Gull í mund.
Kann prýðilega við
mig hér
Það er góður aðbúnaður hér
og aðstaðan á allan hátt góð,
svo ég kann prýðilega við mig.
Þó mætti vera hér svolítill
sundlaugarpollur, ég er viss
um að það gerði fólkinu hér
nvjög gott ef það gæti svamlað
svolítið og látið líða úr sér í
heitum potti. Það er alveg
ábyggilegt, að hér er verið að
reyna að gera eins vel og unnt
er, þó að eitthvað skorti
kannski á. En ég held þó að
það bezta, sem hægt væri að
gera fyrir okkur gamla fólkið,
væri að láta okkur fá frían
síma, sjónvarp og útvarp.
Þetta allt eru mikilvægir
þættir í lífi okkar og þó
sérstaklega síminn, því við
erum mörg orðin fótalaus og
komumst lítið frá, þannig að
við höfum mikið samband við
ættingja og vini í gegn um
símann. Þetta fyndist mér
verulegur fengur, ef það gæti
orðið.“
Snyrtivöruverzlunin Body
shop opnar að Laugavegi 66
NÝLEGA opnaði verzlunin Body
shop að Laugavegi 66 og er hún
fyrsta sérverzlun hér á landi sem
hefur eingöngu á boðstólum
snyrtivörur gerðar úr náttúru-
legum efnum. Fyrirtækið Mel-
korka sf rekur verzlunina í
samvinnu við bresku verziunar-
keðjuna Body shop. sem rekur
verzlanir viða um Bretland og á
þátt í rekstri verzlana í sex
íöndum utan þess.
Vörur þær, sem Body shop
selur, skera sig úr öðrum snyrti-
vörum fyrir það, að þær eru
gerðar úr náttúrulegum efnum úr
jurtaríkinu. Þess má geta að eitt
af þeim efnum, sem notaðar eru í
vörur fyrirtækisins, er jojoba-olía
er kemur í stað hvallýsis í snyrti-
vörum. Allar vörur fyrirtækisins
eru þess eðlis að þær spilla ekki
umhverfinu og aðlagast náttúr-
unni að lokinni notkun.
í verzluninni Body shop eru á
boðstólnum um 200 tegundir af
snyrtivörum til hirðu á öllum
líkamanum, svo sem. hárlitir, hár-
næring, húðolíur, krem af ýmsu
tagi, svitaeyðir, sjampó, rakkrem
o.fl. Þá er það nýmæli að við-
skiptavinir geta komið með ílát,
sem keypt hafa verið í verzluninni
og fengið í þau aftur. Var þetta
tekið upp í tvíþættum tilgangi.
Annars vegar til að spara við-
skiptavinum fé, því algengt er að
umbúðir um snyrtivörur kosti
þriðjung af kaupverði, en hins
vegar í þeim tilgangi að draga úr
mengun af plastumbúðum, sem
ekki eyðast í náttúrunni.
Eigendur verzlunarinnar eru
Þórunn Skaptadóttir og Sigur-
björg Einarsdóttir, sem rekur
hana í samvinnu við brezka fyrir-
tækið Body shop. Verzlunarkeðja
sú var stofnuð fyrir fjórum árum
af ungri konu, Anitu Roddick, sem
er aðaleigandi fyrirtækisins og
stjórnar því. Hún er nýfarin frá
íslandi en hér dvaldi hún um tíma
og aðstoðaði við uppsetningu
verzlunarinnar.
t verzluninni Body shop Laugavegi 66. Þórunn Skaptadóttir
stendur inni i áfyllingarstúkunni en Sigurbjörg Einarsdóttir
fyrir framan.
sunnudagskvöld í
Þaö eru allir velkomnir á Sólarkvöld
Samvinnuferða-Landsýnar I Súlnasal.
Frábœr skemmtiatriöí, glæsílegir bingó-
vinningar, hörkufjör á dansgólfinu og
síöast en ekki síst - öndvegismatur á
ódýru verði.
V.
Diskópardans á heimsmælikvaröa
GARY KOSUDA
kemur alla leið frá Honolulu og sýnir einstaka
hæfileika sina í dansi með Sóleyju Jóhannsdóttur.
Þessi danssýning slær flest út sem sýnt hefur veriö
á íslenskum dansfjölum til þessa!
Leynigestir
Við fáum frábæra skemmtikrafta í heimsókn á
sunnudagskvöld og harðneitum að afhjúpa leynd-
armáliö fyrr en nær dregur.
Kanaríeyjakynning
I hliðarsal sýnum við glænýja kvikmynd frá Kanarí-
eyjum til fróðleiks og skemmtunar fyrir alla sól-
dýrkendur.
Feröabingó
Og áfram höldum við í ferðabingóinu. Að venju
spilað um glæsileg feröaverölaun.
Tískusýning
Módelsamstökin koma með enn eina ferska og
fallega tískusýningu og sýna að þessu sinni tísku-
fatnað á alla fjölskylduna frá TORGINU. Nýjasta
úralinan frá SEIKO einnig sýnd.
Spurningakeppni
Spumingakeppni fagfélaganna fór glæsilega af
stað á síöasta sólarkvöldi. Nú reyna prentarar að
stöðvasigurgöngu bakaranna.
Keppt er um sex Lundúnarferöir í leiguflugi
Samvinnuferða-Landsýnar.
Magnús Axelsson aö venju meö hljóö-
nemann í kynningunni og stjómandlnn
Siguröur Haraldsson aö sjálfsögöu á
vaktinni. Vanir menn sem tryggja eld-
fjöruga og vei heppnaða sunnudags-
skemmtun.
Matseöill kvöidsins
Meadaillons d’agneau au grenache noir.
Verð aðeins kr. 7.600
Ragnar Bjarnason fer á kostum ásamt
hljómsveit sinnl.
Dansaft til kl. 01
Húslö opnað kl. 19.00
Borðapantanlr I afma 20221
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTR4ETI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
. illi
J