Morgunblaðið - 07.11.1980, Page 22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1980
22
Anna Eiríksdóttir
Minningarorð
Með upphafi þéttbýlis á Selfossi
við Ölfusárbrú var brotið blað í
byggðaþróun á Islandi. Þetta var
fyrsta þéttbýli inni í landi, fjarri
sjó.
Fram að þeim tíma hafði öll
þéttbýlismyndun verið á strönd-
inni, en með upphafi Selfosskaup-
staðar hefst nú byggðarþróun,
hver þéttbýliskjarninn af öðrum
er reistur inni í landi. Þegar ég
kom fyrst á Selfoss, cétt fyrir
1930, voru þar fjögur hús, ef ég
man rétt. Nú eru íbúar þar á
fjórða þúsund.
Lengi býr að fyrstu gerð. Það
var mikið lán fyrir Selfossbyggð
hve frumbyggjarnir þar voru mik-
ið afreksfólk. Einn af fyrstu land-
nemunum þar sem á mörgum
sviðum stóð í forustu og setti sinn
svip á staðinn var Anna Eiríks-
dóttir í Fagurgerði, en hún lést
nýlega (22. september) og langar
mig til að minnast hennar með
nokkrum orðum.
Anna Eiríksdóttir var fædd að
Sandhaugum í Bárðardal í Suður-
Þingeyjarsýslu 28. mars 1904. For-
eldrar hennar voru Eiríkur Sig-
urðsson bóndi á Sandhaugum og
kona hans Guðrún Jónsdóttir frá
Jarlsstöðum í sömu sveit.
Anna ólst upp í glöðum systk-
inahópi en þau systkinin voru sex.
Á Sandhaugum var mikið mús-
íklíf, eftir því sem þá gerðist. Á
heimilinu var orgel og Guðrún
móðir Önnu, sem var mjög músík-
ölsk, kenndi börnum sínum á
orgelið, en hjá Önnu komu músík-
hæfileikar fljótt í ljós, og vík ég að
því síðar.
Sautján ára gömul hleypti Anna
heimdraganum og fór suður á
land, en margt af frændfólki
hennar var þá flutt suður. Hún
var nokkuð hjá Unni í Holti í Flóa,
móðursystur sinni og að minnsta
kosti eitt sumar hjá Sturlu móður-
bróður sínum á Fljótshólum.
Þar næst lá leið hennar til
Kaupmannahafnar, en þar bjó
föðursystir hennar, Björg Dahl-
man, og var hún að nokkru í skjóli
hennar meðan hún dvaldi í Höfn.
I Kaupmannahöfn stundaði
Anna nám við handavinnuskóla,
og það með svo góðum árangri að
hún fékk verðlaun er hún útskrif-
aðist þaðan.
Að námi loknu lá leiðin heim
aftur og 30 október 1925 verða
tímamót í lífi hennar, en þá giftist
hún Birni Sigurbjarnarsyni. Hann
var þingeyingur, fæddur í Hring-
veri á Tjörnesi 8. maí 1891. Hann
var mikill persónuleiki og brá
stórum svip á umhverfi sitt.
Þau Anna og Björn settust að á
Selfossi, fyrst í gamla Lands-
bankahúsinu en Björn var gjald-
keri útibúsins og gegndi því starfi
meðan kraftar entust.
Árið 1934 byggðu þau sér stórt
og fallegt einbýlishús á einum
fegursta stað á Selfossi á bakka
Mig langar með nokkrum orðum
að minnast vinkonu okkar, Stellu,
en undir því nafni þekktu flestir
vinir hennar hana. Stella lézt 1.
nóvember sl.
Stella fæddist á Norðfirði 19.
janúar 1928. Foreldrar hennar
voru hjónin Guðrún Björnsdóttir
og Örnólfur Sveinsson er þar voru
búsett.
Ung var Stella tekin í fóstur af
hjónunum Signýu Jónsdóttur og
Eiríki Sigurðssyni fyrrverandi
skólastjóra á Akureyri, en þau
bjuggu um það leyti á Norðfirði.
Stella mat fósturforeldra sína
mikils, en Signý fósturmóðir
hennar iézt árið 1958.
Eiríkur Sigurðsson hefur alltaf
borið mikla umhyggju fyrir vel-
ferð Stellu, og mat hún þann góða
hug til hennar að verðleikum, þá
ekki sízt er hann lét einskis
ófreistað, að hún ætti góðan sama-
stað, þegar heilsan var farin að
bila, og fékk hún með hans hjálp
íbúð í Hátúni 10, sem varð henni
ómetanleg aðstoð.
Á unglingsárum stundaði Stella
nám við Húsmæðraskóla Árnýar
heitinnar Filipusdóttur í Hvera-
gerði, og kom þá í ljós hve hög hún
var og velvirk til allrar handa-
vinnu, og er ótrúiegt hve miklu
hún afkastaði á því sviði í skólan-
Ölfusár og nefndu Fagurgerði,
sem var gamalt örnefni. Hvergi
finnst mér Ölfusá jafn falleg og
frá Fagurgerði. Fallegt er að líta
upp eftir henni þar sem hún liðast
um hvanngræna hólma.
Anna og Björn eignuðust 6 börn
og eru fimm á lífi. Þau eru Aldís,
gift Óskari Sigurðssyni kennara,
búsett á Selfossi, Björn, var giftur
Guðrúnu Hafliðadóttur sem lést
fyrir fjórum árum. Hann býr í
Reykjavík og er vélstjóri, Sturla
húsamálari, giftur Lóu Ingileifs-
dóttur, býr á Selfossi, Anna Guð-
rún, gift Herði Sigurgrímssyni
bónda í Holti í Stokkseyrarhreppi.
Einn dreng er Valtýr hét misstu
þau í æsku. Var þá þungur harmur
kveðinn að fjölskyldunni í Fagur-
gerði því að Valtýr var glæsilegt
ungmenni.
Eins og áður er sagt kom brátt í
ljós að Anna hafði gott músíkeyra,
og þótt hún væri að mestu sjálf-
lærð kom þessi hæfileiki hennar
brátt í góðar þarfir á Selfossi.
Hún stofnaði kirkjukór og gerðist
organisti hans, fyrst við Laugar-
dælakirkju og síðan við Selfoss-
kirkju eftir að hún var reist. Eins
og vænta mátti þráði Anna að afla
einkatíma til Reykjavíkur hjá
snillingnum Róbert Ábraham, en
það var vissulega þrekvirki eins og
ferðum var þá háttað en konan sex
barna móðir.
Eins og sjá má af þessu gerðist
um. En það háði henni annars í
störfum hve hreyfingar hennar
voru hægar. Stella minntist oft á
dvöl sína í skólanum og átti hún
góðar endurminningar og vini frá
þeim tíma.
Stella var vel greind og að
eðlisfari glaðsinna og gat verið
glettin í góðra vina hóp. Hún bar
með sér góðvild og glatt bros, hvar
sem hún fór, enda eignaðist hún
góða og óvenjulega trygga vini og
var það henni mikill styrkur í
lífinu að finna velvild annarra.
Þá var Stella kjarkmikil og
þrátt fyrir margskonar vanheilsu
seinni árin, sem flestum hefði
fundist erfitt að bera, þá kvartaði
hún aldrei.
Hún var Guði þakklát og treysti
handleiðslu Hans og þessvegna
var henni eðlilegt að segja að sér
liði æfinlega vel, ef hún var spurð.
Mörgum ber að þakka þegar
minnst er allra þeirra er sýndu
henni vináttu.
Hún hafði samband við systkini
sín, og vil eg vegna þess að mér er
það kunnugt, þakka systrum
hennar, Gyðu og Sigrúnu ásamt
uppeldissystur hennar Lilju fyrir
þá miklu umhyggju og árvekni,
sem þær sýndu henni í veikindum
hennar og einnig meðan hún var
við góða heilsu.
Anna brautryðjandi á Selfossi
hvað sönglíf varðaði og býr stað-
urinn enn að starfi hennar, því
Selfoss stendur nú framarlega
hvað sönglíf og söngmennt snert-
ir. I fótspor ötulla brautryðjenda
kemur jafnan nóg af góðum
mönnum.
Á öðru sviði stóð Anna í
fremstu fylkingu landnemanna á
Selfossi. Það var á sviði blóma- og
trjáræktar. Fagurgerði átti stóra
lóð og þar var plantað trjám svo
að þar er nú einn af fegurstu
görðum í Árnessýslu. í ræktun-
armálunum naut Anna ötuls
stuðnings bónda síns. Björn and-
aðist 3. mars 1969.
Eftir lát manns síns tók Anna
við sumum trúnaðarstörfum hans,
var umboðsmaður Happdrættis
háskólans og Brunabótafélags ís-
lands. Þau störf annaðist hún
meðan heilsan entist.
Anna var víðsýn kona og vel
lesin. Hún hugsaði mikið um
eilífðarmálin og var ötull liðsmað-
ur sálarrannsóknafélagsins þar
sem henni dugði ekki það sem
stendur í gömlum bókum um þau
mál.
Við sem þekktum Önnu í Fagur-
gerði söknum hennar sem góðs
vinar en um leið þökkum við fyrir
að hafa notið þeirrar gæfu að
verða henni samferða á lífsleið-
inni. Biessuð sé minning hennar.
Gestur Sturluson.
Eg kynntist Stellu þegar hún
var 12 ára. Eg dvaldi í tvö sumur
með ungan son okkar á heimili
fósturmóður hennar í sveit og má
segja að frá þeim tíma hafi leiðir
Stellu og fjölskyldu okkar legið
saman. Hún varð fjölskylduvinur
okkar.
Fyrir þessi 40 ára góðu kynni,
tryggð hennar og fölskvalausu
vináttu við okkur vil ég þakka
henni. Við munum öll sakna henn-
ar, svo tíður gestur var hún á
heimili okkar, og þó sérstaklega
hjá Guðlaugu mágkonu minni, en
þar átti Stella vini að mæta.
Friður Guðs veri með henni. Eg
sendi Eiríki Sigurðssyni og konu
hans ásamt öðrum vandamönnum
samúðarkveðju fjölskyldu okkar.
Lydía Pálmarsdóttir.
+
Elskuleg frænka mín,
JENNIE E. THORWALDSON,
Vista,
California,
andadist 11. september.
Borghildur Pétursdóttir.
t
Eiginmaöur minn og faöir,
TRYGGVI STEFÁNSSON,
byggingameistari,
Hafnarfiröi,
lézt 5. nóvember sl.
Dagbjört Björnsdóttir,
Þórhallur Tryggvi Tryggvason.
t
Maöurinn minn og faðir okkar,
KALMANN SIGURDSSON
frá Staö í Höfnum,
lést aö Landakotsspítala, miövikudaglnn 5. nóvember.
Jaröarförin auglýst síöar.
Ingunn Guömundsdóttir,
Sigríöur Kalmansdóttir,
Guörún Kalmansdóttir,
Ólafur Hafsteinsson.
t
Eiginmaöur minn,
ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON,
skipasmíóameistari,
Noröurgötu 60, Akureyri,
sem andaöist þann 1. nóvember, veröur jarösettur frá Akureyrar-
kirkju, laugardaginn 8. nóvember kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Flugbjörgunarsveitina,
Akureyri og Hjálparsveit skáta, Akureyri.
Þóra Steindórsdóttir.
Björg Ornólfsdótt-
ir - Minningarorð
t
Faðir minn, fósturfaöir og afi,
SIGFÚS ÓLAFSSON,
Hlíð, Siglufirði,
veröur jarösunginn frá Siglufjaröarkirkju, laugardaginn 8. nóv-
ember kl. 2 e.h.
Þorfinna Sigfúsdóttir, Steingrímur Magnússon,
Margrét Ólafsdóttir, Jón Dýrfjörö,
Bragi Dýrfjöró, Bírgir Dýrfjörö.
t
Faöir okkar, tengdafaöir og afi,
GÍSLI FRIÐRIK JÓHANNSSON,
múrari,
Faxastíg 15, Veatmannaeyjum,
veröur jarösunginn frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugardag-
inn 8. nóvember 1980 kl. 2.
Haukur Gíslason, Hanna Samúelsdóttir,
Soffía Gísladóttir,
Siguróur Gíslason, Frióleif Valtýsdóttir,
Ellý Gísladóttir, Gísli Einarsson,
Jóhanna Gísladóttir, Ágúst Birgisson
og barnabörn.
t
Faöir okkar. tengdafaöir og afi,
OLAFUR SIGURJÓNSSON,
Dvergasteini, Reyóarfirói,
veröur jarðsunginn frá Reyöarfjaröarkirkju, laugardaginn
nóvember kl. 14.00.
Maria Olafsdóttir,
Vigfús Ólafsson, Sigrún Guönadóttir,
og barnabörn.
Kveðja:
Sigtryggur Jóns-
son frd Keldunesi
Mig langar nú við leiðarlok
Sigtryggs (Tryggva) Jónssonar frá
Keldunesi í Kelduhverfi að þakka
honum ánægjuleg kynni. Hann
var sjúkur maður og aldraður
orðinn, kominn í hjólastól, er
okkar kynni hófust. í mínum
augum var Tryggvi þó altaf heill,
það var hans hrausta sál og
göfuga drengskaparhjarta. Studd-
ur var Tryggvi til hinstu stundar
af sinni elskulegu eiginkonu.
Hann tók örlögum sínum af æðru-
leysi og mikilli sálarró.
Minningin um Tryggva mun
ætíð verða mér hvatning á fram-
tíðarbrautinni til dyggðarlegs og
góðs lífernis.
Guð blessi Tryggva og eigin-
konu hans Rakel Sigrvaldadóttur
sem nú hefur kvatt sinn ástkæra
lífsförunaut.
Katrín Þórisdóttir