Morgunblaðið - 07.11.1980, Side 32
fGRUnDIO) LITTÆKI AKAI
100.000 kr. staögr. atsláttur
eöa 300.000 kr. útborgun.
Gildlr um öll littæki.
GRUNDIG vegna gaaöanna.
1
HF
triptiiMwíl*
HLJOMTÆKI
100.000 kr. staögr. afsláttur
eöa 300.000 kr. útborgun
í flestum samstaeöum.
AKAI er hógaeöa merki ó góöu verði.
y
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1980
Bókagerðarfélög-
in boða verkf all
17. nóvember
SAMEIGINLEGUR félagsfundur bókagerðarmannafélaganna
þriggja. Hins íslenzka prentarafélags, Grafiska sveinafélagsins og
Bókbindarafélags ísiands, samþykkti í gær að beina þeim
tilmælum til trúnaðarmannaráða féiaganna að boða til verkfalls
frá og með mánudeginum 17. nóvember til þess að þrýsta á um
gerð nýrra kjarasamninga. Fulltrúaráð félaganna samþykktu í
gærkveldi að verða við þessum tilmælum fundarins, sem var
fjölmennur, en hann sátu á milli 150 — 200 manns. Að sögn
formanns Félags íslenzka prentiðnaðarins, Haralds Sveinssonar,
munu stjórn og samninganefnd FÍP koma saman í dag til að
ræða mótaðgerðir.
Tillagan, sem lögð var fram á
félagsfundi bókagerðarmanna, um
verkfall, var samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum gegn tveim-
ur. Að sögn Ólafs Emilssonar,
formanns HÍP, urðu síðan umræð-
ur undir liðnum „önnur mál“ um
samningamálin í heild. Kom þá
fram tillaga frá bókagerðarnema
um að allar kröfur félaganna yrðu
endurvaktar. Þessi tillaga var
samþykkt, en í kjölfar þeirrar
samþykktar kom fram önnur til-
laga um að þau samningsdrög,
sem fyrir lægju að 4. kafla kjara-
samningsins yrðu lýst ógild. Var
hún borin fram af mönnum, sem
töldu, að einungis HÍP-félagar
ættu að greiða atkvæði um kafl-
ann, þar sem hann væri í kjaras-
amningi HIP. Var tillagan þá
samþykkt með 32 atkvæðum HÍP-
manna gegn 18. Var þá komið
talsvert los á fundinn, og höfðu
allmargir HÍP-félagar gengið af
fundi, þar sem þeir töldu fundinn
sem slíkan, sameiginlegan fund
félaganna þriggja, ekki hafa lög-
sögu í þessu máli.
Er þessi niðurstaða var fengin,
kröfðust 20 HÍP-félagar þess, að
nýr félagsfundur yrði boðaður í
HÍP um næstu helgi, en sam-
kvæmt lögum HÍP þarf 25 félaga
til þess að krefjast félagsfundar.
Þessir 20 menn tilgreindu ekki,
hvert fundarefnið ætti að vera.
Ólafur Emilsson kvaðst búast við
því, að stjórn HIP yrði við þessari
ósk um félagsfund og muni hún
hafa samband við þá menn, sem
að henni stóðu og afla upplýsinga
um fundarefnið, sem mun vera 4.
kafli kjarasamningsins.
Á sáttafundi í fyrradag buðu
vinnuveitendur kauphækkun, sem
er að meðaltali um 4%, eða á
bilinu 3,9 í 4,3%. Þessu hafnaði
samninganefnd bókagerðarmanna
og taldi ekki umræðugrundvöll. Þá
mun sáttasemjari ríkisins hafa
leitað hófanna meðal formanna
félaganna þriggja, hvort viðbrögð
samninganefndarinnar yrðu önn-
ur, ef boðin væru um 6%. Því var
einnig hafnað.
Herra Sigurbjörn Einarsson sleit í gær síðasta kirkjuþingi er hann situr sem biskup þar sem hann
hyggst láta af embætti á næsta ári. Á myndinni eru frá vinstri Jón Guðmundsson, sr. Eiríkur J.
Eiriksson, hr. Sigurbjörn Einarsson, Vilhjálmur Hjálmarsson og sr. Pétur Sigurgeirsson. Ljósm. Emílía
Landsbankinn veitti % umbeðins láns til Flugleiða:
Samkomulag allra þing-
flokka um Flugleiðamálið
„ÞESSI fyrirgreiðsla Landsbankans dugir okkur a.m.k. fyrst í stað, og
við vonumst síðan til að frambúðarlausn fáist fljótlega á okkar málum
og þá kæmi væntanlega sú fjárupphæð, sem á vantar,“ sagði Sigurður
Helgason, forstjóri Flugleiða, í samtali við Mbl., er hann var inntur álits
á þeirri ákvörðun Landsbanka íslands að lána félaginu til skamms tíma
liðlega 2,25 milljarða króna, cða 4 milljónir dollara. en félagið fór fram
á liðlega 3.36 milljarða króna, eða 6 milljónir doilara.
í frétt Landsbankans í gær segir
m.a., að bankaráð hafi á fundi
sínum fallizt á fyrirætlun banka-
stjórnar um að bankinn tæki erlent
lán að upphæð 4 milljónir dollara,
sem hann síðan endurlánaði Flug-
leiðum til skamms tíma. Muni
félagið nota þessa fjárhæð til
greiðslu aðkallandi rekstrarskulda
erlendis. Þá segir í frétt bankans,
að veð þau, sem félagið bjóði fram
vegna þessarar lántöku, séu full-
nægjandi.
Ennfremur segir í frétt bankans,
að fjármálaráðherra hafi í bréfi í
gær tekið fram, að ríkisstjórnin
muni, eins fljótt og tök séu á og
heimild Alþingis liggi fyrir, veita
umbeðna ríkisábyrgð að því marki,
sem eignastaða félagsins leyfi. Nýtt
lán verði þá tekið til lengri tíma
gegn ríkisábyrgð og skammtímalán
bankans endurgreitt. Ennfremur
verði erlent rekstrarlán að upphæð
6 milljónir dollara, sem Landsbank-
inn útvegaði Flugleiðum í desember
á sl. ári, endurgreitt eins fljótt og
tök eru á, af andvirði flugvéla eða
annarra eigna, sem félagið muni
selja.
Samkvæmt upplýsingum Mbl.
mun Flugleiðamálið verða afgreitt
frá fjárhags- og viðskiptanefnd efri
deildar Alþingis í dag, en náðst
hefur samkomulag allra þingflokka
um málið. Málið verður síðan vænt-
anlega afgreitt frá efri deild Al-
þingis á mánudag. Samkvæmt upp-
lýsingum Mbl. var m.a. gengið út
frá því í nefndarsamþykkt fjár-
hags- og viðskiptanefndar, að geng-
ið yrði til samninga við Flugleiða-
menn um, að hlutafé ríkisins yrði
aukið í 20%. Athugað yrði með
hlutabréfakaup starfsmanna og tal-
ið eðlilegt, að þeir fengju í kjölfarið
einn mann í stjórn fyrirtækisins og
að ríkið fengi tvo menn í stjórn
fyrirtækisins. Þá er gert ráð fyrir
aukaaðalfundi fyrirtækisins í þess-
um mánuði.
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, sagði í samtali við Mbl.,
að þessi atriði yrðu rædd á stjórn-
arfundi Flugleiða, sem haldið verð-
ur áfram í dag, en honum var
frestað í gærkvöldi.
Mesta verðbólguár áratugarins:
Launahækkanir 55% —
Verðbólga milli ára 58%
MEÐALVERÐBÓLGA milli áranna 1979 og 1980 verður a.m.k. 58%,
sagði Matthías Á. Mathiesen. í fjárlagaumra'ðu á Alþingi í gær. Það
hefur ekki gerzt áður, að verðbólgan, á hvaða mælikvarða sem mælt
er, færi yfir 50%, eins og raunin varð 1979 og raun verður 1980. Nú
koma einstakir ráðherrar, sem bera ábyrgð á efnahagsstefnunni og
framkvæmd hennar, og segjast horfa með hryllingi til holskeflunnar,
sem ríður á þjóðarbúinu eftir 1. desember nk.. en þá koma til
framkvæmda launahækkanir. sem, að viðbættum fyrri hækkunum á
árinu. þýða samtals 55 —56% launahækkun frá upphafi árs til loka
þess. Meðallaunahækkun frá 1979 til 1980 mun vera 51—52%.
Þessar tölur sýna, sagði þing- bólguvexti, enda hefur Tómas
maðurinn, að verðbólgan hefur
aldrei verið okkur óhagstæðari.
Fjárlög ársins 1980 voru byggð á
áætlaðri 31% verðlagshækkun á
árinu, þó reyndin hafi orðið sú
sem fyrr segir. Þetta fjárlaga-
frumvarp gerir hins vegar ráð
fyrir 42% meðalverðhækkun 1981.
Verði reynslan söm þá og í ár, má
gera ráð fyrir hátt í 80% verð-
Arnason, verðlagsmálaráðherra
stjórnarinnar, spáð a.m.k. 70%
verðbólgu, án bremsuaðgerða.
Nú er það spurning mín tili
fjármálaráðherra, sagði Matt-
hías, hvort ríkisstjórnin áformar
að skerða kaupgjaldsvísitölu á
næsta ári þannig, að markmiðum
fjárlagafrumvarpsins um „að-
eins“ 42% verðlagshækkun verði
náð. Viðskiptaráðherra spáir yfir
70% verðbólgu, sem brýtur að
sjálfsögðu forsendur fjárlaga-
frumvarpsins, ef ríkisstjórnin
grípi ekki í taumana, og þá helzt
fyrir 1. desember nk., en ekki
síðar en samhliða gjaldmiðils-
breytingu um áramót.
Matthías sagði, að árið 1980
væri eitt mesta verðbólguár þessa
verðbólguáratugar, þrátt fyrir
boðaða niðurtalningu, en áfram
sæti ríkisstjórn, sem ekki vissi
sitt rjúkandi ráð, eða situr á
ráðagerðum, sem ekki þola dags-
ins ljós að sinni og ekki eru í
samræmi við kosningaloforð
flokks fjármálaráðherra frá árinu
1978 um „samningana í gildi".
Sjá fréttir frá fjárlaga-
umræðu á bls. 18.
Barnaskattar í borgarstjórn:
Tillögu um nið-
uriellingu út-
svars vísað frá
BORGARSTJÓRN vísaði í gær-
kvöldi frá, með 8 atkvæðum
gegn 7. tillögu frá þeim Birgi
Isl. Gunnarssyni og Albert
Guðmundssyni um að fallið
yrði frá innheimtu útsvara.
sem lögð hafa verið á börn
innan 16 ára aldurs, vegna
tekjuársins 1979. Frávisunar-
tillagan var lögð fram sem
tillaga frá meirihluta borgar-
stjórnar, en hann skipa sem
kunnugt er fulltrúar Alþýðu-
flokks. Framsóknarflokks og
Alþýðubandalags. í rökstuðn-
ingi með frávísunartillögunni
segir m.a., að eðlilegt sé að um
þessi mál gildi sama regla alls
staðar á landinu.
í umræðum um tillögu þeirra
Birgis og Alberts kom m.a.
fram, að nokkur sveitarfélög
hefðu þegar tekið ákvörðun um
að falla frá innheimtu þessara
útsvara og bentu því borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins á,
að þessi röksemd meirihlutans
stæðist ekki.
Upphæð sú, sem hér um
ræðir, nemur 17,6 milljónum
króna, en heildarupphæð
álagðra skatta á börn undir 16
ára aldri nemur 84 milljónum
króna.
Þeir Birgir og Albert lögðu
einnig fram á fundinum vara-
tillögu þess efnis, að borgar-
stjórn skoraði á Alþingi að
samþykkja það frumvarp, sem
nú liggur fyrir þinginu um
niðurfellingu skatta á börn inn-
an 16 ára aldurs. Þessi tillaga
var einnig felld og féllu atkvæði
þannig, að 7 sjálfstæðismenn
voru henni fylgjandi, en meiri-
hlutinn andvígur, að Sjöfn Sig-
urbjörnsdóttur undanskilinni,
en hún sat hjá. Tillagan féll því
á jöfnum atkvæðum.