Morgunblaðið - 19.11.1980, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1980
Flugrekstur í Afriku:
Umræður á al-
gjöru frumstigi
- segir Sigurður Helgason forstjóri
MORGUNBLAÐIÐ innti Sigurð
IleÍKa.son íorstjóra Flujílciða eft-
ir því í gær á hvaða stigi
viðræður væru við aðila í Nígeríu
um samstarf við Flugleiðir í
flugrekstri.
Sigurður kvað þær umræður á
algjöru frumstigi, aðili sá sem
hefði leigt tvær vélar Flugleiða í
haust í pílagrímaflug milli Níg-
eríu og Saudi-Arabíu hefði imprað
á þessari hugmýnd og hún hefði
verið rædd á nokkrum fundum,
m.a. þegar Nígeríumaðurinn
Adamu kom til Islands fyrr á
árinu vegna samninga við Flug-
leiðir. En Sigurður benti á að það
væri löng leið á milli þess að vilja
hefja flugrekstur og koma því í
framkvæmd.
Stefnt mun að frekari viðræðum
um málið á næstunni.
Flugstöðvarbyggingin:
Undirbúningi lýk-
ur um mánaðamótin
„ÉG ER ekki búinn að leggja
tilloguna fram í rikisstjórninni. en
það verður væntanlega á næst-
unni.“ sagði Ólafur Jóhannesson,
utanríkisráðherra, er Mbl. spurði
hann í gær. hvað liði tillögu hans
Hert eftirlit
á riðusvæðum
A FUNDI ríkisstjórnarinnar í gær
var ákveðið að herða mjög eftirlit
með fé í Jökulsárhlið og í Jökuldal
vegna riðuveiki, sem upp hefur
komið á þessu svæði. Einstaka kind-
um, sem grunsamlegar þykja, verður
hins vegar lógað og rannsaka á til
hlítar hvort um riðuveiki sé að ræða.
Bætur munu koma fyrir fé, sem
lógað verður af þessari ástæðu.
Sauðfjárveikinefnd taldi í tillögum
sínum til ríkisstjórnarinnar, að
æskilegast væri að lóga öllu fé á
fjórbýli að Hrafnabjörgum í Jökuls-
árhlíð í haust, en í þessari ákvörðun
ríkisstjórnar felst, að um slíkan
niðurskurð verður ekki að ræða að
sinni a.m.k.
um byggingu nýrrar flugstöðvar á
Keflavíkurflugvclli.
„Það hefur ennþá frestast loka-
hönnun flugstöðvarbyggingarinnar,
en nú er stefnt að því að allt verði
tilbúið um næstu mánaðamót,"
sagði Ólafur, en búizt hafði verið
við, að svo yrði um miðjan þennan
mánuð.
Mbl. spurði Ólaf, hvort þessi
frestur þýddi frestun á tillögu hans
í ríkisstjórninni. „Ég býst við, að ég
bíði eitthvað eftir þessu,“ sagði
Ólafur. „En hitt rekur á eftir, að
málið þarf að ræða í ríkisstjórninni
í sambandi við lánsfjáráætlun."
Beint símasamband
við Norðurlönd í dag
FRÁ OG með miðvikudeginum
19. nóvember 1980 verður hægt
að velja símanúmer á Norður-
löndum beint með aðstoð sjálf-
virku millilandasímstöðvarinnar
í Múla.
Vetrarríki á loðnumiðum
LOÐNUAFLINN á vertíðinni los-
ar nú 300 þúsund tonn. en undan-
farið hafa skilyrði verið erfið til
veiða á miðunum 60 — 80 mílur
norður af Ilorni. Um 25 bátar eru
nú á Ioðnuveiðum. Bræla hefur
verið síðustu daga. en þó rofað til
á milli. þannig að skipin hafa náð
að kasta. í fyrrakvöld fundu
skipin allgóðar lóðningar og köst-
uðu í dimmingunni, en um mið-
nætti voru komin 8 vindstig og
grimmdarfrost. Hafísinn hefur
hins vegar svifað frá þannig að
hann er ekki til trafala í augna-
blikinu.
Síðan á laugardag hafa eftirtal-
in skip tilkynnt Loðnunefnd um
afla:
Laugardagur: Óli Óskars (sem
veiðir fyrir Óskar Halldórsson)
780, Magnús 500, Haförn 600,
Huginn 390, Gísli Arni 300, Bjarni
Ólafsson 800, Náttfari 300, Ársæll
200.
Nýr sveitarstjóri
í Mývatnssveit
VuKum, Mývatnssveit. 18. 11.
SVEITARSTJÓRASKIPTI urðu
hér í Mývatnssveit um síðustu
helgi. Jón Friðriksson. sem verið
hefur sveitarstjóri í rúmlega 2 ár,
lét af því starfi og tekur við
bæjarstjórastöðu í Ólafsfirði.
Arnaldur Bjarnason frá Fosshóli
hefur verið ráðinn sveitarstjóri
Skútustaðahrepps. Við bjóðum Arn.
ald velkominn til starfa hér, jafn-
framt þökkum við fráfarandi sveit-
arstjóra, Jóni Friðrikssyni, ágæt
störf. Kristján
Sunnudagur: Sigurfari 200, Fífill
450, Víkurberg 350, Sigurður 400.
Mánudagur: Huginn 580.
Þriðjudagur: Magnús 500, Haf-
örn 450, Skírnir 340, Hákon 500.
Landsnúmer eru skráð í síma-
skránni. Gjöld fyrir sjálfvirk sam-
töl verða eftirfarandi:
Til kr. á mín.
Danmerkur 859
Færeyja 859
Finnlands 936
Noregs 936
Svíþjóðar 936
Söluskattur er innifalinn í þess-
um upphæðum.
Gjöldin eru að meðaltali tæp-
lega 20% lægri en fyrir handvirka
þjónustu nema við Færeyjar þar
sem munar tæpum 5%.
Tilkynning frá IV»st ok simamálastofnun.
Óncitanlcga var vetrarlegt um að litast í Reykjavík í gær, þegar vetur
konungur lét til sín taka. Ljó,m. Mbl. Emilia Bjorg BjOrnsdó.tir.
Yerkbanni aflýst
í prentiðnaðinum
FÉLAGSFUNDIR í Bókbindara-
félagi íslands og Grafiska sveina-
félaginu samþykktu í gær
nýgerðan kjarasamning bóka-
gerðarmanna og aflýstu bæði
félögin verkföllum. Þar með var
aflýst verkhanni Vinnuveitenda-
samhands íslands gegn blaða-
mönnum á Morgunhlaðinu.
Dagblaðinu og Vísi og öðrum
starfshópum á þeim blöðum og í
fyrirta'kjum prentiðnaðarins, en
FÍP hafði skilyrt afboðun verk-
bannsins samþykki félaganna á
samningunum. Verkhannið var
boðað frá og með miðnætti síð-
astliðnu
Arnkell B. Guðmundsson, for-
maður Bókbindarafélagsins kvað
samningana hafa verið samþykkta
samhljóða í BFÍ. Ársæll Ellerts-
son, formaður GSF, kvað samn-
ingana þar hafa verið samþykkta
með góðum meirihluta.
Blaðamannafélag íslands hefur
boðað verkfall frá og með næsta
miðnætti hafi samningar ekki
tekizt fyrir þann tíma. Verkfalls-
boðunin er bundin við þau þrjú
blöð, sem verkbann náði til, Morg-
unblaðið, Dagblaðið og Vísi.
Kjarasamningur bókagerðar-
manna gildir frá 1. nóvember
síðastliðnum.
Eiríkur Sigurðsson
fv. skólastjóri látinn
EIRÍKUR Sigurðsson fyrrverandi
skólastjóri á Ákureyri lézt í Land-
spítalanum 17. þessa mánaðar. Ei-
ríkur fæddist 16. október 1903 í
Hamarsscli í Geithellnahreppi,
Suður-Múlasýslu. Foreldrar hans
Sigurður Þórðarson og kona hans
Valgerður Mekkín Eiríksdóttir.
Eiríkur lauk kennaraprófi 1933, en
„Tek það sem sérstaka
traustsyfirlýsingu“
BJÖRG Einarsdóttir var ein-
róma endurkjörin formaður
Ilvatar, félags sjálfsta*ðiskvenna
í Reykjavik, á aðalfundi félags-
ins I fyrrakvöld. I því tilefni
ræddi Mhl. við hana í gærkvöldi
og við spurðum fyrst hvað henni
væri eíst í huga eftir fundinn.
„Ég met mikils að verða aðnjót-
andi trausts félaga minna I
Hvöt, en það leggur mér jafn-
framt skyldur á herðar. Og það
er vissuiega heillandi að takast á
við að uppfylla þá skyldu.
Reiknaðir þú með mótframboði
á fundinum?
Ég vissi ekki um neitt mót-
framboð, en tel sjálfsagt að
reikna ævinlega með mótfram-
boðum. Að fleiri en einn gefi kost
á sér til trúnaðarstarfa, líkt og
forystu í félögum, er aðeins
vottur um líf og starf. I félögum,
þar sem lýðræðislega er að mál-
um staðið, eru kosningar heil-
brigð aðferð til að ná fram
afstöðu bæði til manna og mál-
efna.
Hins vegar er auðvitað hægt að
misnota það eins og annað, t.d.
þarf útkoma í kosningum á fundi
ekki að endurspegla heildarsjón-
armið félagsmanna, heldur að-
Bjðrg Einarsdóttir, formaður
Ilvatar
eins þeirra sem sækja fundinn.
Og i því sambandi finnst mér rétt
að minna á, að óvirkir félagar
geta alltaf átt á hættu að
afskiptaleysi þeirra brjóti braut
utanaðkomandi öflum og félög
þeirra því beinlínis tekin fyrir
augunum á þeim.
Varðandi afgreiðslu mála á
aðalfundi Hvatar í fyrradag, vil
ég aðeins segja þetta: Miðað við
hversu mikill órói hefur verið að
undanförnu við stjórnarkjör í
öðrum sjálfstæðisfélögum, mátti
álykta að eins yrðí hjá Hvöt. Tel
ég það m.a. skýringu á, hversu
fjölsóttur aðalfundurinn var, en
töluvert á þriðja hundrað manns
sótti fundinn — fólk var reiðubúið
að láta skoðun sína í ljósi, ef til
kosninga skyldi draga.
Og raunar megum við, sem
vorum í framboði til stjórnar-
kjörs nú, vel við una og ég leyfi
mér að taka það sem sérstaka
traustsyfirlýsingu við mig, að
ekki kom mótframboð.
hafði þá meðal annars stundað nám
við Lýðháskólann í Askov, verið á
kennaranámskeiði þar og við Kenn-
araháskóla Kaupmannahafnar.
Hann hafði einnig áður verið skóla-
stjóri við unglingaskólana á Seyðis-
firði og í Neskaupstað. 1933 varð
hann kennari við Barnaskóla Akur-
eyrar og yfirkennari við hann frá
1949. 1957 varð hann fyrsti skóla-
stjóri Oddeyrarskólans á Akureyri
og gegndi þeirri stöðu í 10 ár eða til
1967.
Eftir að Eiríkur hætti kennslu
snéri hann sér að mestu að ritstörf-
um og sendi hann frá sér fjölmargar
bækur, bæði þýddar og frumsamdar
um fjölbreytilegustu málefni. Hann
var einnig um tíma ritstjóri barna-
blaðsins Vorsins.
Eiríkur vann einnig mikið og
ötullega að félagsstörfum ýmiss kon-
ar og aðallega að málefnum Bindind-
ishreyfingarinnar, Guðspekifélags-
ins og málefnum kennara.
Hann var tvígiftur, fyrri kona
hans var Guðrún Signý Jónsdóttir,
en hún er nú látin. Seinni kona hans,
Jónína Steinþórsdóttir, lifir mann
sinn.
Eiríkur Sigurðssun.