Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1980
3
Vorum ekki í hættu fyrr en brotin úr
skrúfublöðunum þeyttust í allar áttir
Heldur óþægileg
lífsreynsla
„Merkilegt nok, þá varð
mér tiítölulega lítið um
óhappið, því ég er talsvert
flughræddur þegar ég flýg
með venjulegum flugvélum.
Það var reyndar enginn tími
til þess að verða hræddur,
þyrlan hrapaði svo snögglega.
Við vorum raunverulega ekki
í neinni hættu fyrr en spað-
arnir fóru að lemjast í jörð-
ina og brotin úr þeim þeytt-
ust í allar áttir,“ sagði Rolf
Árnason starfsmaður Lands-
virkjunar er Mbl. ræddf við
Hermann Sigurðsson
hann um þyrluslysið við Búr-
fell.
„Við vorum þarna við mæl-
ingar á ísingu og vindi, sem
unnið hefur verið við undan-
farin ár. Þetta var í annað
skiptið á skömmum tíma, því
að í fyrra skiptið mistókust
mælingarnar, svo líklega
hafa forlögin verið þarna með
hönd í bagga. Við höfðum
tekið eldsneyti, fengið okkur
hádegismat í Búrfellsvirkjun
og vorum að fara í loftið,
þegar óhappið varð. Það var
norðangola og sterkt sólskin
svo við sáum ekki línuna fyrr
en of seint. Flugmaðurinn
náði því ekki að lyfta þyrl-
unni yfir vírinn og afturhluti
hennar og spaðarnir lentu því
á honum.
Eftir þetta gerðist allt svo
snögglega að ég gerði mér
varla grein fyrir því, hvað var
að gerast, þó virtist mér
flugmaðurinn hafa nokkuð
gott vald á þyrlunni þar til
við lentum á jörðinni.
Það var ekki fyrr en spað-
arnir fóru að lemjast í jörð-
ina, að hættan varð veruleg
og það var þá, sem ég fékk
talsvert högg á hægri fótinn.
Eg marðist illa og það blæddi
talsvert inn á legginn.
Þetta var auðvitað fremur
óþægileg lífsreynsla, en eftir
á finnst mér þetta ósköp
einfalt," sagði Rolf að lokum.
Enginn tími til
að verða hræddur
„Þetta gerðist mjög óvænt, en
ég held að hvorugum okkar
hafi brugðið verulega. Ég
reyndi að gera það sem hægt
var til að koma okkur sem
heillegustum til jarðar og
enginn tími var til að verða
hræddur," sagði Hermann
Sigurðsson þyrluflugmaður
er Mbl. ræddi við hann um
óhappið.
„Það sem olli þessu voru
nokkrir samverkandi þættir:
Það var nokkuð misvindað,
við þyrluðum upp talsverðu
ryki er við tókum á loft,
sennilega hefur einnig blásið
nokkuð aftur undir þyrluna í
flugtakinu, við höfðum sólina
í augun og síðast en ekki sízt
vissi ég ekki af vírnum, sem
við lentum á.
Ég tel okkur ekki hafa
verið í alvarlegri hættu. Þó
var nokkur hætta á að hlutir í
skrúfublöðunum köstuðust í
okkur er þau brotnuðu í
jörðinni og sennilega hafa
þau valdið meiðslum Rolfs.
Vélin kom það skökk niður að
hún lagðist á hliðina og þá
lömdust skrúfublöðin í jörð-
ina og þeyttust í allar áttir.
Það er talsvert mikið flogið
í kringum línur á hálendinu
og getur það skapað nokkra
hættu. Það er einnig talsvert
öryggisleysi að engar leiðir
eru merktar, lendingastaðir
ómerktir og flugtaksleiðir
ekki heldur."
Verkfall við
Hrauneyja-
foss — og
blaðamenn
á sáttafundi
VERKFALL hófst tjá Verkalýðs-
félaginu Rangæingi á miðnætti í
fyrrinótt og á miðnætti siðast-
liðnu gekk i gildi verkbann
Vinnuveitendasambandsins á
aðra starfshópa á Tungnaár-
samningssvæðinu. í gær vann
iðnaðarmannahópar þar efra, en
nú liggur öll vinna þar niðri
vegna verkbannsins. í gærkveldi
hafði ekki verið boðaður sátta-
fundur í deilunni. en þess var
vænzt að hann yrði þó haldinn i
dag.
Einu aðilarnir, sem voru á
sáttafundi í gær voru blaðamenn
og útgefendur dagblaðanna. Fund-
ur hófst klukkan 14, en síðasta
sáttafundi lauk í fyrrinótt klukk-
an 03.30. Var þess vænzt að
sáttafundurinn yrði langur, en
boðað verkfall Blaðamannafélags-
ins kemur til framkvæmda að öllu
óbreyttu á miðnætti í nótt. Vinnu-
veitendasambandið aflýsti í gær
boðuðu verkbanni, sem koma átti
til framkvæmda á miðnætti síð-
astliðnu, er ljóst var að öll bóka-
gerðarfélögin þrjú höfðu sam-
þykkt samningana og aflýst verk-
falli.
Rikisstjórnin:
Engar hækk-
anir voru af-
greiddar í gær
RÍKISSTJÓRNIN afgreiddi ekki á
fundi sínum í gær þær hækkunar-
heimildir verðlagsráðs, sem Mbl.
hefur skýrt frá, en þar er um að
ræða hækkanir á fargjöldum
Landleiða, bíómiðum, brauðum og
gosdrykkjum.
sœlueyjor suður i höfum
Kanaríeyjar ganga undir auknefninu sælueyjar
— og þær rísa svo sannarlega undir því.
Kanaríeyjar eru sá staður, þar sem erill hversdagsins liður
hvað fljótast úr kroppnum ofan í heitan sandinn á
sólvermdum baðströndunum.
A undanfömum 11 árum hafa þúsundir íslendinga sótt til
,,sælueyja“ endunýjaðan andlegan og líkamlegan þrótt
— og stytí um leið svartasta skammdegið.
Brottfarir í vetur:
19. des. - 9. jan. - 30. jan. - 20 feb. -
13. mars. — 3. apríl - og 24. apríl._
Verð frá kr. 495.000,-
Hagstæðir greiðsluskilmálar:
Útborgun 1/3 fargjalds og eftirstöðvar
á 4 mánuðum.
Kanaríeyjabæklinginn og allar frekari upplýsingar fáið þið hjá okkur.
FLUGLEIDIR • URVAL • Samvinnuferdir • ÚTSÝM
Sími 27800. Sími 26900 LðflC/Sý/1 hf. Sími 27077 Sími 26611