Morgunblaðið - 19.11.1980, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1980
15
Efnahagsbandalagsríkin:
Agreiningur um
aflaskiptingu
Briissel. 18. nóvember. AP.
FYRSTU lotu í nýjustu viðræðum
Efnahag.sbandalagsríkja um
sameÍKÍnloKa fiskveiðistefnu
lauk án árangurs þar sem flest
ríkin kvortuðu undan þvi að
þeim væri ætluð of lítil sneið af
aflanum.
Fiskveiðinefnd bandalagsins
hefur, að viðhöfðu samráði við
fiskifræðinga, fram 988.795 smá-
lestir í lögsögu bandalagsins á ári.
Sjávarútvegsráðherrar banda-
lagsríkjanna lögðust sumir hverj-
ir gegn þeirri skiptingu aflans sem
fiskveiðinefndin lagði til, og var
ágreiningnum skotið til embætt-
ismanna og sérfræðinga.
Bretum var í tillögum fiskveiði-
nefndarinnar ætlað 31% aflans,
en síðan var sú hundraðstala
hækkuð í 35,2. Brezki sjávarút-
vegsráðherrann undi ekki þeirri
niðurstöðu, heimtaði 45% af afl-
anum og skírskotaði til þess, að
60% af afla bandalagsríkjanna
væri veiddur við Bretlandsstrend-
Unglingar
særðir
skotsári
Uamallah. 18. nóvember. AP.
ÍSRAELSKIR hermenn særðu 10
unga Palestínumenn skotsári er
til átaka kom milli unglingahópa
og hermanna á mótmælafundum
þeirra fyrrnefndu á Vesturbakk-
anum.
Þá myrtu aftökusveitir Mo-
hammed Hamed Abu Ouarda
borgarstjóra í Jabalia-flótta-
mannabúðunum, en hann var
ákafur stuðningsmaður friðar-
sáttmála Israela og Egypta.
Fulltrúar Palestínumanna lýstu
ábyrgð á átökunum í Ramallah á
hendur ísraelskum hermönnum,
og sögðu þá beinlínis hafa egnt til
uppþota.
r
Afram
verkfall
Ilelsinki. 18. nóvember.
írá Harry Granberg. fréttaritara Mbl.
VERKFALL blaðamanna
við blöð, tímarit og á
fréttastofum heldur áfram.
Samningaviðræður lágu
niðri fyrstu fimm daga
verkfallsins, sem nú hefur
staðið yfir í viku.
Þá gerðust fulltrúar Dana óðir
og uppvægir er hlutdeild þeirra í
aflanum var minnkuð úr 32% í
26,3% í tillögum fiskveiðinefndar-
innar til að vega á móti aukinni
hlutdeild annarra ríkja.
Fulltrúar Frakka lýstu einnig
óánægju sinni með að hlutdeild
þeirra í afla Efnahagsbandalags-
ríkja yrði minnkuð úr um 30% í
11,6%, þar sem heildartekjan
hefði ekki minnkað nema um 6% á
síðustu tveimur árum.
Þjóðverjar undu ekki heldur því,
að hlutur þeirra yrði 13 af hundr-
aði, og jafnframt fannst Hollend-
ingum sem þeim væri ætluð of lítil
sneið af kökunni, en gert var ráð
fyrir að þeir fengju að veiða 7,8%
aflamagnsins. Einkum mótmæltu
þeir niðurskurði í síldveiðikvóta
sínum. Eina þjóðin, sem var sátt
við sinn hlut, voru Irar, en lagt
var til að þeir fengju að veiða
4,1% aflans. Gert er ráð fyrir því,
að reynt verði að leiða þennan
ágreining til lykta á fundum í
desember.
Auk ágreinings um aflaskipt-
ingu bafa Bretar krafizt þess að fá
að sitja einir að fiskveiðum allt að
12 sjómílum frá Bretlandsströnd-
um, og að þeir hefðu forgang að
veiðum á svæðum frá 12 til 50
sjómílum undan landi. Þjóðverjar,
Hollendingar og Frakkar eru ekki
reiðubúnir að gefa Bretum þetta
eftir, og segjast eiga „sögulegan
rétt“ á því að fá að veiða upp við
landsteina í Bretlandi.
m
Leikkonan Dinah Shore stendur hér við hlið Zuhin Mehta.
stjórnanda Fílharmoníuhljómsveitar New York-borgar. Myndin
var tekin er Metha hafði tekið við Scopus-verðlaununum sem
félag velunnara hebreska háskólans i Los Angeles veitir. Faðir
Metha. Meli, sem stofnaði sinfóníuhljómsveitina í Bombay á
Indlandi hefur einnig unnið til þessara verðlauna og árið 1977
hlaut Dinah Shore Scopus-verðlaunin.
Klippt var á lyftitaug
og tveir drukknuðu
Saxthorpe, 18. nóvember. AP.
BREZKUR björgunarmaður og
handariskur orrustuflugmaður
drukknuðu er gerð var tilraun til
að bjarga bandariska flugmann-
inum úr sjó, eftir að þota hans
hafði lent í árekstri við aðra þotu
sömu gerðar á æfingaflugi undan
Englandsströndum í morgun.
Brezki björgunarmaðurinn seig
niður til flugmannsins í lyftitaug
björgunarþyrlunnar, en er verið
var að lyfta þeim upp úr sjónum
flæktust þeir í strengjum fallhlíf-
ar flugmannsins. Ákváðu björgun-
armenn þá að skera á vírinn, þar
sem hætta væri á að strengir
fallhlífarinnar beinlínis klipptu
útlimi af mönnunum tveimur þeg-
ar á þeim stríkkaði.
Undir venjulegum kringum-
stæðum hefðu tvímenningarnir
átt að fljóta á sjónum, en hið
versta veður var á slysstað og
drukknuðu þeir báðir, því ókleift
reyndist að ná þeim upp vegna
veðurs og önnur þyrla kom of
seint á slysstað til að bjarga þeim
upp.
Aðdragandi slyssins var sá, að í
morgun hófu tvær A-10-orrustu-
þotur bandaríska flughersins í
Bretlandi sig til lofts frá Bentwat-
ers í Suffolk og ætluðu til æfinga
skammt undan austurströnd Bret-
iands. Vildi það óhapp til, að
þoturnar rákust saman og kom
eldur upp i þeim. Önnur þeirra
náði til lands og sprakk í tætlur er
hún var í þann veginn að hrapa
niður við þorpið Saxthorpe í Nor-
folk. Flugmaðurinn skaut sér út
skömmu áður og lenti í fallhlíf
skammt frá þorpinu. Hann slasað-
ist lítillega. Hin þotan hrapaði í
hafið um 12 sjómílur undan
ströndinni með fyrrgreindum af-
leiðingum. Lík flugmannsins og
björgunarmannsins, sem var
þaulvanur björgunum af þessu
tagi, fundust síðar.
Sambandsflokkurinn íhugar
samsteypustjórn í Færeyjum
Frá JÓKvani Arjce fréttaritara Mbl. i
Færeyjum 18. nóv.
Sambandsflokkurinn og
Þetta gerðist 19. nóvember
1493 — Kristofer Kolumbus
finnur Tuerlo Rico.
1792 — Franska byltingar-
stjórnin býður aðstoð öllum
þjóðum, sem viija steypa ríkis-
stjórnum.
1807 — Frakkar gera innrás í
Portúgal.
1808 — Steyn kemur á sveitar-
stjórnum í Prússlandi.
1809 — Frakkar sigra Spán-
verja við Ocana og ná allri
Andalúsíu nema Cadiz.
1858 — Brezka-Kólomhía í Kan-
ada verður krúnunýlenda.
1919 — Öldungadeild Banda-
ríkjaþings hafnar Versalasamn-
ingunum.
1942 — Þýzki herinn í Stal-
íngrad umkringdur.
1946 — Fyrata ráðstefna UN-
ESGO haldin í París.
1962 — Fyrst haldnir jazz-
tónleikar í Hvíta húsinu.
1969 — Önnur lending mannaðs
geimfars á tunglinu (Conrad og
Bean).
1973 — Orkukreppa veldur
mestu verðbréfalækkun i 11 ár í
New York.
1976 — Auðmannsdótturinni
Patricia Hearst sleppt úr haldi.
1977 —' Anwar Sadat kemur til
ísraels í friðarferð.
Afmæli. Robert Devereux, 3ji
jarl af Essex (1566—1601) —
Karl I af Englandi og Skotlandi
(1600—1649) — Bertel (Allrert)
Thorvaldsen, dansk-ísl. mynd-
höggvari (1770—1844) — Ferdi-
nand de Lesseps, faðir Súez-
skurðar (1805—1894) — James
A. Garfield, bandarískur forseti
(1831—1881) — Indira Gandhi,
indverskur stjórnmálaleiðtogi
(1917-).
Andlát. 1828 Franz Schubert,
tónskáld — 1883 Sir William
Siemens, uppfinningamaður.
Innlent. 1216 d. Páll Sæmundar-
son frá Odda — 1770 f. Albert
Thorvaldsen — 1796 d. Þorkell
h’jeldstetl stiftamtmaður — 1875
Myndastytta Thorvaldsens af-
hjúpuö á Austurvelli — 1899
Fríkirkjan í Reykjavík stofnuð
— 1949 Skógaskóli fyrst settur
— 1962 d. Jón Stefánsson list-
málari — 1965 d. Bjarni Jónsson
vígslubiskup — 1971 Geirfinnur
Einarsson hverfur — 1908 f.
Elsa Sigfúss.
Orð dagsins. Orð eru það eina
sem varir að eilífu — William
Hazlitt, enskur rithöfundur
(1778-1830).
Javnaðarflokkurinn héldu í
dag með sér fund um myndun
nýrrar landsstjórnar í Fær-N
eyjum.
Formaður Sambandsflokks-
ins, Pauli Ellefsen segir að í
fyrstu umferð muni Sam-
bandsflokkurinn ræða við alla
flokka, nema Þjóðveldisflokk-
inn, um myndun samsteypu-
stjórnar.
Á morgun, miðvikudag,
verður fundur með Sambands-
flokknum og Fólkaflokknum
en þar á eftir ræðir Sam-
bandsflokkurinn við Sjálfstýr-
isflokkinn og Framfara- og
fiskvinnsluflokkinn.
Að fundunum loknum mun
Sambandsflokkurinn íhuga
möguleika á samsteypustjórn.
Pauli Ellefsen segir að Sam-
bandsflokkurinn sé reiðubúinn
til að eiga aðild að lands-
stjórn.
Kekkonen úr
Rússlandsför
Ilclsinki, 17. nóvember,
írá Harry (>ranborK, fréttaritara Mbl.
KEKKONEN forseti kom í dag,
mánudag, heim úr opinberri
heimsókn til Sovétríkjanna. í
sameiginlegri yfirlýsingu. sem
gefin var út í lok heimsóknarinn-
ar', fullyrða Kekkonen og sovézk-
ir leiðtogar. að öll vandamál á
alþj«')ðavettvangi megi leysa á
friðsamlegan hátt.
Einnig var fjallað um öryggis-
mál á norðurslóðum í tilkynning-
unni, og þar er svo komist að orði,
að Finnar og Sovétmenn muni
gera allt sem í þeirra valdi
stendur til að viðhalda því jafn-
vægi sem ríkir í norðurhlutum
Evrópu og við Eystrasalt. Mikil
nauðsyn sé á einarðri samvinnu
viðkomandi ríkja í stað vopna-
kapphlaups. Sovétmenn hétu því,
að gera það sem í þeirra valdi
stæði til að tryggja að kjarnorku-
vopnum yrði ekki komið fyrir á
Norðurlöndum.
I tilkynningunni er minnst á að
utanríkisstefna Finna gangi út frá
því að samskipti og samvinna við
Sovétmenn verði aukin. Samvinnu
Finna og Sovétmanna á sviði
efnahagsmála voru gerð alveg
sérstök skil í tilkynningunni, sem
var níu síður að lengd.
Skuldir
aukast
Genf, 18. nóvembor. AP.
SKULDIR austantjalds-
ríkja við vestræn ríki juk-
ust á árinu, og er því spáð
að þær verði um 65 millj-
arðar dollara um næst-
komandi áramót, sam-
kvæmt spám efnahags-
stofnunar Sameinuðu þjóð-
anna.
Skuldirnar eru meiri pn tekjur
austantjaldsríkja af útflutningi á
árinu koma til með að verða, en á
síðasta ári var verðmæti útflutn-
ings austantjaldsríkja um 45
milljarðar dollara. Þrátt fyrir
hinar miklu skuldir eru vestrænar
lánastofnanir reiðubúnar til að
halda áfram að veita autantjalds-
löndum lán.
Veður
víða um lieim
Akureyri -4 skýjaó
Amsterdam 10 skýjaó
Aþena 25 heióskírt
Berlin 12 heiðskírt
BrUssel 9 rigning
Chicago 6 skýjaó
Feneyjar 8 þoka
Frankfurt 14 rigning
Færeyjar 0 snjóél
Genf 13 skýjað
Helsinki vantar
Jerúsalem 21 léttskýjað
Jóhannesarborg 27 heiðskírt
Kaupmannahöfn 11 léttskýjaö
Las Palmas vantar
Lissabon 16 úrkoma
London 10 skýjaö
Los Angeles 23 heiðskírt
Madrid 13 léttskýjaö
Malaga 16 léttskýjaö
Mallorca 20 skýjað
New York 5 rigning
Osló 0 skýjað
París 16 skýjað
Reykjavtk -1 úrkoma i gr.
Ríó de Janeiro 30 heiöskírt
Rómaborg vantar
Stokkhólmur 7 rigning
Tel Aviv 24 léttskýjað
Tókýó 18 heiðskírt
Vancouver 8 skýjaö
Vínarborg 17 heiðskírt