Morgunblaðið - 19.11.1980, Side 18

Morgunblaðið - 19.11.1980, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1980 Þingmenn spyrja um efnahagsráðstafanir: Engin bein svör frá ráðherrum Ummæli viðskiptaráðherra túlkuð sem skerð- ingaráform varðandi nýgerða kjarasamninga EINS OG frá hefur verið sagt í Moruunhlaðinu haðst ólafur Jóhannesson. utanríkisráðherra, undan því á fundi i Sameinuðu þin>;i þriðjudaxinn 11. nóvember sl. að svara ýmsum fyrirspurnum varðandi hliðarráðstafanir með Kjaldmiðilsbreytin>;u. en Ólafur Kegndi þá embætti viðskiptaráðherra i fjarveru Tómasar Arnasonar. Satíði Ólafur bezt fara á því að þinKheimur fenRÍ „svör frá fyrstu hendi“, en Tómas væri væntanlegur heim 16. nóvember og yrði til staðar á þar næsta fundardegi Sameinaðs þintfs. Tómas Arnason. viðskiptaráð- herra. sagði síðan á fundi Sameinaðs þinKs í gær, að samræmdar efnahagsráðstafanir. sem koma ættu til framkvæmda samhliða KjaldmiðilsbreytinKU. væru ekki fullbúnar en myndu latíðar fyrir Alþintíi strax ok tiltækar væru. PersónuleKt álit sitt væri hinsveKar það, að þessar ráðstafanir þyrftu að ná til allra þátta verðmyndunar i landinu. þ.á m. verðbóta á laun, fiskverðs o.fl. Þessi ummæli túlkaði Karvel Pálmason (S) sem yfirlýsinKU um, að KanKa ætti á umsamin kjör nýKerðra samninKa aðila vinnumarkaðarins. Þing og þjóð bíður svara Friðrik Sophusson (S) hóf þessa framhaldsumræðu (um fyrirspurn Þorvaldar Garðars þess efnis, hvort ekki væri rétt að bíða með Kjald- miðilsbreytinKU, unz samstaða væri um nauðsynleKar hliðarráðstafanir, er tryggðu markmið myntbreyt- ingarinnar). Lengi hefur verið beðið svara ráðherra um efnahagsmála- stefnu og efnahagsaðgerðir, en þögnin ein hefur verið svar ríkis- stjórnarinnar. Þögnin hefur og um- lukið ýmsa þá, sem stundum hafa hátt látið, er kjaraatriði vóru ann- ars vegar, eins og Guðmund J. Guðmundsson formann VMSÍ. Nú hefur utanríkisráðherra kunngert þingheimi, að viðskiptaráðherra muni svara hér nú þeim efnahags- málaspurningum, sem brenna á allra vörum. Þing og þjóð bíður svarsins — og ekki sízt fulltrúar á ASÍ-þingi. í umfjöllun og deiglu Tómas Árnason, viðskiptaráð- herra, sagðist áður hafa svarað spurningu dagskrármálsins. Það svar var tvíþætt. í fyrsta lagi að ég er efnislega sammála fyrirspyrj- anda, að gera verður samræmdar efnahagsráðstafanir samhliða gjaldmiðilsbreytingu, ef hún á að ná markmiði sínu. í annan stað, að ekki væri hægt að fresta mynt- breytingu nú þar eð hætt var, þegar fyrir nokkru, prentun hinna gömlu seðla, svo vant myndi verða gjald- miðils og valda öngþveiti í efna- hags-, atvinnu- viðskiptamálum, ef fresta ætti myntbreytingu um ára- mót. Ríkisstjórnin hefur enn í umfjöll- un, hverjar verði hliðarráðstafanir. Það mál er í deiglu en verður lagt fyrir þingið þegar og fullbúið er. Eg get þó endurtekið það persónulega álit mitt, og vísað um leið til stefnuræðu forsætisráðherra og at- hugasemda fjármálaráðherra með fjárlagafrumvarpi, að gera þarf samræmdar ráðstafanir, er taka á ölium þáttum verðmyndunar. Að fresta 1. desember Halldór Blöndal (S) vísaði til fyrri ummæla Tómasar, að fresta bæri verðbótum á laun 1. desember nk. unz efnahagsráðstafanir yrðu tiltækar. Hann sagði óhjákvæmi- legt að ríkisstjórnin, í ljósi sam- ráðsyfirlýsinga, legði fram ráða- gerðir sínar áður en eða á meðan ASÍ-þing stendur. Svar ráðherra hér og nú hefði hins vegar hvorki verið skýrt né fullnægjandi. Hall- dór minnti og á að vinstri stjórnin 1978 hefði skorið niður tvö vísitölu- stig með loforðum um samsvarandi lækkun skatta. — Tímabært væri fyrir fjármálaráðherra, Ragnar Arnalds, að svara því nú, hvort hann hygðist standa við það fyrir- heit sem enn væri óefnt. Hvað kostar þessi „hugarfarsbreyt- ing“? Ragnhildur Ilelgadóttir (S) sagði tímabært að létta þagnar- skyldu af viðskiptaráðherra svo hann gæti gefið þingi og þjóð umbeðnar upplýsingar í afgerandi máli. Hún vitnaði til orða, sem ráðherrar hefðu látið falla, varð- andi gjaldmiðilsbreytinguna, sem stuðla hefði átt að „hugarfarsbreyt- ingu“ þjóðarinnar í verðbólgumál- um, að þeirra dómi. Gjaldmiðils- breytingin ein, án aðgerða er tryggja markmið hennar, er blekk- ing, sem veldur naumast „hugar- farsbreytingu“. En vill nú ekki forsætisráðherra, eða einhver ann- ar ráðherra, svara þeirri spurningu, hvað þessi „hugarfarsbreyting" (gjaldmiðilsbreyting) kostar þjóð- félagið? Vanvirðing við þing og þjóð Matthías Bjarnason (S) sagði ekkert eðlilegra en þingmenn spyrðu óhjákvæmilegra spurninga varðandi viðblasandi efnahags- vanda og væntanleg viðbrögð stjórnvalda. Það væri þingleg skylda þeirra og þinglegur réttur. Engu væri likara en ríkisstjórnin væri bæði heyrnarlaus og mállaus og raunar sitthvað bogið við önnur skilningarvit hennar að auki. Frá henni kæmu engin svör, hvorki til þingmanna né „samráðsaðila" að Ólafslögum. Hvar er verið að vinna að endur- skoðun nýs vísitölugrundvallar, eins og látið er að liggja? Hvert hefur samráðið verið, sem lofað var, við launafólkið í landinu varðandi þetta kjaraatriði? Kona á priki Pétur Sigurðsson (S) sagði kom- ið fram að færustu sérfræðingar stjórnvalda fengjust nú við verð- bólguvandann, en dult færi, hverjir, hvar og hvernig væri að verki staðið. Hann sagði menn ekki hafa litið til þess möguleika, sem hæst- virtur forsætisráðherra hefði áður reynt, samanber fréttir um konu á priki norður við Kröflu á sinni tíð. Pétur sagði ódrengilegt, er þing- menn reyndu að æra Guðmund J. Guðmundsson í ræðustól, úr þagn- arró. Annar Dagsbrúnarfulltrúi á ASÍ-þingi hefði tekið af GJG ómak- ið í útvarpinu í gærkvöldi (dagur og vegur). Sá hefði sagt kaupmáttar- rýrnun 1114% frá því í september 1978 en á þessu tímabili hefðu allir svokallaðir vinstri flokkar lagt hönd á stjórnvöl. Þessi Dagsbrún- arfulltrúi hefði og farið hinum háðulegustu orðum um „baráttu" ríkisstjórnarinnar gegn verðbólg- unni. Vonbrigði Eyjólfiír Konráð Jónsson (S) sagði menn hafa búizt við mark- verðum svörum og upplýsingum frá viðskiptaráðherra, eftir að þessum dagskrárlið hefði verið sérstaklega frestað, að beiðni utanríkisráð- herra, til að réttur ráðherra gæti gefið rétt svör „frá fyrstu hendi". En það fólst ekkert í svörum ráðherrans og þau valda vissulega vonbrigðum. Slík neitun á upplýs- ingum í afgerandi máli fyrir þjóð- arbúið er vanvirðing við Alþingi. Ráðgerð myntbreyting er óðs manns æði án marktækra hliðar- ráðstafana. Þingið á heimtingu á svörum af hálfu ríkisstjórnarinnar. Sama gildir um ASÍ-þing og þjóðina alla. Að lokum skoraði EKJ á forsætisráðherra að svara fyrir- spurn frá Pétri Sigurðssyni, þess efnis, hvort fulltrúar 40 þúsund launþega, sem mæta til ASÍ-þings 24. nóvember nk., fái „skýrðar fyrirhugaðar ráðstafanir ríkis- stjórnarinnar, sem boðaðar voru í stefnuræðu forsætisráðherra að fylgja myndu í kjölfar myntbreyt- ingarinnar?" Búið að svara fyrirspurninni Gunnar Thoroddsen, forsætis- ráðherra, sagði að búið væri að svara dagskrárspurningunni frá Þorvaldi Garðari, hvort unnt væri að fresta gjaldmiðilsbreytingunni. Þeirri gjörð verður ekki frestað. Fyrirspurnum Péturs Sigurðssonar og Halldórs Blöndal verður svarað er þær koma á dagskrá. Það er ekki þinglegt að krefjast svara við þeim fyrr. Ráðherra sagði rangt að verð- bólga æddi áfram. Hún væri minni í ár en í fyrra. Og fyrirspurn um, hvað hugarfarsbreyting þjóðarinn- ar kosti efast ég um að að hægt verði að svara, þó allir hagfræð- ingar okkar verði settir í gang. Hvað um ASÍ-þing? l’étur Sigurðsson (S) ságði utan- ríkisráðherra hafa lofað svörum um hliðarráðstafanir á þessum degi. Gjaldmiðilsbreytingin hefði verið á verkefnaskrá stjórnarinnar frá því í febrúar sl. og stefnuræða forsæt- isráðherta tæki af öll tvímæli um, að samræmdar efnahagsráðstafan- ir skuli fylgja í kjölfar hennar. Spurningin er hvort ríkisstjórnin hyggst veita Alþingi og fulltrúum 40.000 launþega á ASI-þingi svör við brennandi spurningum. Eftir 1114% kaupmáttarrýrnun frá því í september 1978 á ASÍ-þing siðferði- lega kröfu á því að fá að vita, hvort höggva á enn í nýgerða kjarasamn- inga. Mergurinn málsins Ragnhildur Ilelgadóttir (S) sagði rangt hjá forsætisráðherra að óþinglegt væri að spyrja um grundvallaratriði og forsendur þess að gjaldmiðilsbreytingin, dag- skrármáiið, næði þeim markmiðum, sem að væri stefnt; — eða það aðgerðarleysi og ósamkomulag í ríkisstjórn, sem snúið gæti mynt- breytingunni upp í andstæðu sína hvað árangur varðar, þ.e. að hún yrði til tjóns í stað gagns fyrir þjóðarbúið. Hér hefði einungis ver- ið spurt um merg málsins, og fullkomlega á þinglegan hátt. Þá endurtók RII spurningu sína um kostnað gjaldmiðilsbreytingar („hugarfarsbreytingar") og sagðist ekki trúa því, að þá kostnaðartölu vantaði í búreikninga ríkisstjórnar- innar. Tómas Árnason viðskiptaráðherra. Ekki réttur samanburður Magnús II. Magnússon (A) sagði vísitölur erlendis vera reiknaðar út mánaðarlega og yfirfærðar á árs- grundvöll. Hér væru þær reiknaðar út á 3ja mánaða fresti (sem væri ónákvæmara) og yfirfærðar á árs- grundvöll. Þegar forsætisráðherra fengi út verðbólguhjöðnun 1980, miðað við 1979, notaði hann rangar reikningsforsendur. Hann notaði fyrst 3ja mánaða tímabil 1981, sem út af fyrir sig væri rétt, en aðra aðfcrð til að fá út samanburðartölu 1979, eða ársgrundvöll. Ef notaður væri samanburðargrundvöllur sömu mánaða 1979 og 1980 væri samanburðartalan 41,2% 1979 en 51% 1980. Sú væri útkoman í verðbólguvextinum ef réttur sam- anburður eða sambærilegar tölur væru notaðar. Það er fyrir neðan virðingu ríkisstjórnar að notast við svoddan blekkingu, eins og hún hefur gert í þessu máli, sagði MHM. Ráölaus ríkisstjórn Geir Hallgrimsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði það hald sumra manna að stjórnar- myndunin í febrúar sl. hefði ekki sízt snúizt um „samræmdar efna- hagsaðgerðir". En ekkert hefði á þeim bólað síðan. Framsóknarmenn létu að vísu í sér heyra á 3ja mánaða fresti, en ekkert gerist. Alþýðubandalagsráðherrar yppta öxlum en þriðji aðilinn virðist stikkfrí í leiksýningunni. Sama er hvort spurt er um hvað ríkisstjórnin ætli að gera eða hve- nær væntanlegar ráðstafanir verði kunngjörðar Alþingi, sem á um þær að fjalla, svarið er sama þögnin, sama aðgerðarleysið, sama ráðleys- ið. Þrátt fyrir „holskeflutal" við- skiptaráðherra þegja aðrir ráðherr- ar. Allt þetta bendir til að ríkis- stjórnin sé enn jafn ósamstiga um efnahagsráðstafanir og þegar sam- ið var um ráðherrastólana í febrú- armánuði sl. Að gefa upp boltann Karvel Pálmason (A) sagði Tóm- as Árnason, ráðherra, hafa „gefið upp boltann" fyrir hálfum mánuði er hann lét þau orð falla að eftir grunnkaupshækkanir yrði ekki komizt hjá efnahagsaðgerðum stjórnvalda. Vilja ráðherrar, t.d. ráðherrar Alþýðubandalags, lýsa því yfir ótvírætt hér og nú, að ekkert það verði í komandi efna- hagsráðstöfunum, sem gengur á nýumsamin kjör launafólks innan ASÍ? Ef ekki fást skýr svör við þessari spurningu, aðeins mark- laust hjal og rósatal, verður ASÍ- þing að grípa til sinna ráða. AIMÍIGI Hvers vegna þegja stjórnarliðar? Sigurgcir Sigurðsson (S) sagði hér fjallað um eitt meginskyldu- og viðfangsefni Alþingis, sem snerti alla þætti þjóðarbúskaparins, verð- bólguna. En hvers vegna þegja allir óbreyttir þingmenn stjórnarliðs- ins? Bendir það til þess að þeir viti þegar, hvað á spýtunni bangir, þó þögn þyki heppileg fram yfir til- teknar dagsetningar. „Taka þarf á öllum „kostnaðarþáttum“ Tómas Árnason, viðskiptaráð- hcrra, sagði eðlilegt að þingmenn spyrðu margs varðandi þetta um- ' ræðuefni. En svör yrðu að bíða síns tíma og sjálfgefið væri að leggja þessi mál fyrir Alþingi þegar full- unnin væru í hendur þess. Hér var kallað fram í: „fyrir jól?“ Ég vil ekkert segja um dagsetningar, sagði ráðherra. Ég tel rétt að tekið verði á öllum kostnaðarþáttum verðmyndunar, ekki bara kaupþættinum, heldur öllum þáttum, þar á meðal verðbót- um á laun, fiskverði o.fl. Lækka má skatta til að tryggja kaupmátt lægstu launa. Fiskverð — þáttur í launum sjómanna Pétur SÍKurðsson (S) sagði fisk- verð ákvarðandi fyrir laun sjó- manna. Að gefnu tilefni í orðum viðskiptaráðherra vil ég staðhæfa, að ekki verður tekið með sama hætti á kjaraskerðingu um fiskverð nú og stundum áður. Sammála um meginatriði Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S) sagði þessa umræðu sýna, að fyrirspurn hans hefði verið tíma- bær. Allir, sem talað hafa, eru sammála um, að myntbreyting án samræmdra hliðarráðstafana er haldlaus. Og staðreynd er, að sam- ræmd efnhagsstefna er enn ekki til hjá ríkisstjórninni, sem þó var talin mynduð um slíkt fyjrirbæri. Nú, á elleftu stundu, getur ríkisstjórnin ekki tíundað hvað fylgja á mynt- breytingunni, til að gera hana gildandi. Verst er að tíminn er hlaupinn frá okkur, sagði ÞGKr, þó síðbúin stefna fæðist. Myntbreyt- inguna hefði þurft að undirbyggja með vandlega undirbúnum, sam- ræmdum ráðstöfunum, sem verið hefðu henni farvegur til gagns. Þennan farveg hefur láðst að byggja. Tómas boðar krukk í kjarasamninga Karvel Pálmason (A) sagði Tóm- as Árnason kjarkaðastan og hrein- skiptastan ráðherranna í þessu máli. Ekki væri þó hægt að túlka orð hans um verðbætur á laun, fiskverð o.fl. á annan veg en þann að þau miði að skerðingu þeirra kjaraatriða, sem aðildarfélög ASÍ sömdu um 24. október sl. Þetta kæmi og fram í frétt Tímans 7. nóvember sl., höfð eftir ráðherran- um. Hér er boðuð ákveðin skerðing á nýgerðum kjarasamningum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.