Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 34
98 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980 Jóla-umbúða- pappír — Gjafapappír 20 cm — 40 cm — 57 cm rúllur. Félagsprent- Mikið úrval, gott verð. Sendum út um smiðjail h/f allt land. Spítalastíg 10, sími 11640. NOACK LJÓSKASTARAR Viö bjóöum NOACK-leitarljóskast- ara í 60 mismunandi útfærslum meö halogen-perum 100—3000 wött og langdrægi aö 3350 m viö 1 lux. Einnig NOACK-ísljóskastara 100—2000 wött og langdrægi upp í 7 km. Áratuga góö reynsla á íslenzk- um skipum. Leitiö upplýsinga hjá: SMITH & NORLAND H/F Innflytjendur — verkfr. Nóatúni 4 — sími 28300. Sérstakt kynningarverð Allir vita, aö frönsk matar- gerö er frábær, En . . . vissir þú, aö þaö er franska Thermor eldavélin einnig? V'iö bjóöum Thermor eld- hústæki svo séíT! 0jdavél- ar, hellur, bökunarofna, viftur o.fl. á sérstöku kynningarveröi þessa dagana. Thermor er meöal stærstu og viöurkenndustu fram- leiöenda í sinni grein í Evrópu. Kjölur s.f. Borgartúni 33, Reykjavík. Símar: 21490, 21846. Víkurbraut 13, Keflavík. Sími: 2121. Útsölustaöir: ísafjörður: Póllinn. — Bolungarvík: Byggingavöruverzlun Jóns Fr. Einarssonar. — Hvammstangi: Kaupfélag V-Hún- vetninga. — Blönduós: Kaupfélag A-Húnvetninga. — Húsavík: Bókaverzlun Þórarins Stefánssonar. — Hella: Kaupfélagið Þór. — Vestmannaeyjar: Róbert Sigur- mundsson. — Keflavík: Kaupfélag Suðurnesja. — Helliss- andur: Óttar Sveinbjörnsson. Húsavíkurpistill Allt frá því að ég kom til Húsavíkur í fyrsta sinn fyrir svo mörgum árum að ég þori ekki að nefna það — hefur mér aldrei blandast hugur um að staðurinn sé sérlega sumarfagur. Hins vegar eru ekki ýkja mörg ár síðan að svo æxlaðist til að ég fór að eiga þangað erindi í svartasta skammdeginu, þ.e.a.s. um jólaleytið, og satt best að segja fannst mér í fyrstu leika æði svalur andblær um þennan norðlæga kaupstað, en eftir því sem þessum vetrarferðum fjölg- aði hefur mér sýnst staðurinn einnig búa yfir vissum tófrum á þeirri árstíð. Það dylst engum sem til Húsavíkur kemur að það virðist hafa verið lögð mikil alúð við ræktun grenitrjáa og eru þau bæði há- og fagurlega vaxin, einnig má sjá þar spengilegar aspir sem ekki kæmi mér á óvart að næðu 8—10 m hæð. sem er ríkjandi hjá kaupstaðar- búum við að fegra lóðir sínar og umhverfi með hverskyns rækt- un. Eftir því sem formaður deild- arinnar, Svanlaug Björnsdóttir, sagði mér er félagsstarfið nyrðra með svipuðu sniði og hér, reynt er að hafa einn fræðslu- fund á ári og að vorinu er „opið hús“ og gefst félögum þá tæki- færi til að glugga í bækur og tímarit og einnig skrár yfir söluplöntur frá ýmsum gróðr- arstöðvum, þá er fyrirgreiðsla um piöntukaup veitt eftir því sem ástæður leyfa hverju sinni. Eitt mikilsverðasta atriðið í félagsstarfinu taldi formaður þó þau góðu kynni sem orðið hefðu meðal félagsmanna, sem m.a. opnuðu leið til plöntuskipta. Plöntubasar sem jafnan er hald- inn á vorin hefur komið sér vel, ekki síst fyrir byrjendur í fag- inu. Vetur við Búðará Ljósmynd VlkurhlaðiA Fleiri trjátegundir má nefna svo sem birki, reynivið og lerki og að viðbættum ýmsum runnagróðri gefur þetta bænum notalegt svipmót hvort heldur er á sól- ríkum sumardegi er „laufi skrýðist lundur" eða köldum vetri meðan viðirnir eru snævi þaktir. Svo bar það við nú fyrir skömmu að ég átti erindi til Húsavíkur og fannst þá forráða- mönnum GÍ tilvalið að ég tæki með mér r.okkrar litskugga- myndir af blómum því ekki gefast deildunum úti á landi oft tækiiæ.".' í'* slíkrar þjónustu frá félagsins hálfu. Þegai" "ur^ur kom var svo eitt kvöldið skotið á fundi á Snælandi og áhugafólk hvatt til þess að mæta. Þarna var brugðið á tjaldið vel hálfu öðru hundraði litmynda að mestu leyti af fjölærum jurtum, tók það fast að 3 klst. með stuttu kaffihléi og var sannarlega ánægjulegt að eyða kvöldinu með þeim áhugasama hópi sem þarna var samankominn. Húsa- víkurdeild GÍ komst fyrst á blað í ársskýrslu félagsins 1975 og hefur allt frá þeim tíma unnið þarft og gott verk og vafalaust átt þátt í þeirr almenna áhuga Það kom mér skemmtilega á óvart hversu framarlega Hús- víkingar, einkum konurnar, standa í ræktun útirósa, og hafa fengist við þá iðju um langt árabil. Það merkilegasta í því sambandi er að þar er ekki eingöngu um ræktun aðfenginna rósastilka að ræða, heldur græðlingaræktun sem tekist hefur frábærlega vel og veit ég dæmi þess að um 60 blómstr- andi rósir hafi verið þar í einum og sama garði! Hef ég von um að fá í þáttinn meiri vitneskju um rósarækt þeirra Húsavíkur- kvenna og jafnvel leiðbeiningar — J)egar dag tekur að lengja. í íölv hpssa spjalls langar mig að minnast örfáum Cr?um * I skruðgarð Húsvíkinga og úti- vistarsvæði sem nú er í upp- byggingu. Svæðið sem fyrir þetta hefur verið valið er með- fram Búðará að sunnan en áin er mjög miðsvæðis í kaupstaðn- um. Norðan árinnar er húsaröð með gömlum og grónum görðum sem þegar setja mjög svipmót á þetta undurfagra svæði, sem ég hygg að marga muni fýsa að sjá áður en langt um líður. Gangi ykkur vel á ræktunar- brautinni, Húsvíkingar! Ums.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.