Morgunblaðið - 30.11.1980, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980
103
+ AFRIKUHJALP Rauöa krossins
1980 hefur veriö mikiö í fréttum
síöasta mánuöinn og ekki af ástæöu
lausu. Söfnunin heppnaöist framar
öllum vonum þeirra, sem aö henni
stóöu, og útkoman: 205 millj. kr.,
eöa rúmar 900 kr. á hvern íslending
og er ísland annaö í rööinni á
Norðurlöndum hvaö árangur
snertir, en söfnunin var samnor-
ræn, eins og kunnugt er.
íslenzk börn eiga hvaö mestan
heiðurinn af þessum árangri og þá
hvíldi ekki minnsta starfiö á starfs-
mönnum aðalskrifstofu Rauöa
krossins aö Nóatúni 21 í Reykja-
vík. Fastir starfsmenn skrifstofunn-
ar sinntu miklum hluta viöbótar-
starfsins vegna söfnunarinnar í
aukavinnu og þáöu engin laun
fyrir. Viö heimsóttum skrifstofuna í
vikunni og kynnum hér þá starfs-
menn sem mest komu viö sögu í
söfnunarherferöinni.
Jón Ásgeirsson var sérstak-
lega ráöinn sem fram-
kvæmdastjóri söfnunarinnar
og hefur reyndar nokkrum
sinnum áöur komiö viö sögu
sem framkvæmdastjóri
landssafnana. Á honum hvíldi
aöalþungi undirbúnings og
framkvæmdar söfnunarinn-
ar. Hann verður viö ýmis
önnur störf hjá RKÍ fram aö
áramótum. „Hvaö þá tekur
viö veit enginn" sagöi hann.
Jón var áöur fréttamaður hjá
Ríkisútvarpinu eins og alþjóö
er kunnugt.
Ómar Friðþjófsson er erind
reki Rauöa krossins. Hann
heimsótti deildirnar um allt
land fyrir söfnunina og var í
stööugu sambandi viö fé-
lagsmenn.
Ljósm. Mbl. RAX.
Ótaldir lögöu leiö sína
beint til aöalskrifstof-
unnar meö fjárframlög
og skólabörn roguöust
þar inn meö söfnunar-
bauka sem þau sjálf
útbjuggu og söfnuöu í. Á
þeim þremur hvíldi hið
ábyrgöarmikla starf aö
taka í mót fénu, fylgjast
með gíróreikningunum
— „Þær voru reyndar
allt í öllu" sagöi einn
starfsbræöra þeirra um
þær, en þær eru, taliö
frá vinstri: Anna Guð-
jónsdóttir, Brynhildur
Gísladóttir og Sólveig
Ólafsdóttir.
Auöur Einarsdóttir sér um
samband viö útlönd og þar á
meöal aöalstöövarnar í Genf.
Hún fréttir fyrst manna af
Pálma Hlöðverssyni, en hann
er við hjálparstörf í A-Afríku
og sér um aö söfnunarféö
komist örugglega til skila og
til hjálpar þeim sem mest eru
hjálpar þurfi.
„Losaraliöiö" svokall-
aöa sér dags daglega
um losun söfnunarkassa
RKÍ. j söfnunarherferö-
inni voru þeir á þönum
um allt meö söfnunar-
fötur, tómar og fullar,
allt eftir því hvort þeir
voru aö koma eöa fara.
Þeir eru, taliö frá vinstri:
Karl Hirst, Magnús
Gunnarsson, Siguröur
Þorvaldsson, Páll
Pálsson og Páll Zoph-
oniasson. Á myndina
vantar Stefán Pálsson,
en hann var „úti aö
aka" með „blóðsugurn-
ar“, þ.e. hann var viö
blóðsöfnun fyrir Blóö-
bankann. Ljósm. Emilía
iuaiE9ya n
Síöast en ekki sízt. Ara-
grúi barna og fullorð-
inna sjálfboöaliöa unnu
aö söfnuninni og engin
leiö er aö tetja upp öll
þau nöfn. Viö birtum hér
mynd af nokkrum full-
trúum þeirra, en hún var
tekin í einum grunn-
skóla höfuöborgarinnar
aöalsöfnunardaginn.
fclk í
fréttum
t