Morgunblaðið - 04.12.1980, Side 1

Morgunblaðið - 04.12.1980, Side 1
64 SIÐUR 271. tbl. 68. árg. FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Börnum rænt á skiálftasvæðinu Napoli. 3. des. AP. VELKLÆTT fólk ekur inn á jarðskjálftasvæðin á Suður-Ítalíu <>K hefur á brott með sér ung börn. sem yfirvöld óttast að verði seld fósturforeldrum fyrir offjár að sögn dómstóla í dag. Um 1.000 börn misstu foreldra sina eða nánustu skyldmenni í jarðskjálftanum. Tveir rannsókna- dómarar hafa verið sendir til Avellino. á miðju svæðinu. til að tryKKja lönlejíar ættleiðinKar. Bið- tími eftir fósturbörnum er fimm ár i Napoli. Itölsk yfirvöld hófu í dag baráttu gegn gripdeildum og okri á jarð- skjálftasvæðunum og stjórnmála- menn kröfðust strangra ráðstafana til að tryggja öryggi fólks sem af komst og vistasendinga. Dómurum var skipað að koma upp dómstólum í tjöldum og hjól- hýsum í flóttamannabúðum vegna gripdeildanna og lögregluliðsauki var sendur til. tuga bæja vegna gripdeilda og óeirða síðustu daga. Varaborgarstjórinn í Napoli sagði að þúsundir fórnarlamba jarðskjálftanna hefðu unnið ótrúleg skemmdarverk í mörgum skólum borgarinnar. Þrír til viðbótar voru handteknir fyrir gripdeildir í dag og maður, sem stal tjöldum, var dæmdur í 20 mánaða fangelsi. Það var fyrsti dómurinn fyrir gripdeild- ir á jarðskjálftasvæðinu. Vito Scalia, áhrifamaður í flokki kristilegra demókrata, hvatti til þess í Róm, að lýst yrði yfir herlögum á svæðinu. Þingmaður úr flokki nýfasista hvatti til þess, að refsingar fyrir glæpi gegn þeim sem af komust eða vistasendingum yrðu þyngdir um helming. Um tólf kippir fundust á Suður- Ítalíu í dag, en engar fréttir bárust um skaða á mönnum. Rúmlega 25 lík fundust. Tilræði við Briissol. 3. desembor. AP. ÓÞEKKTIR árásarmenn skutu í dag tveimur skotum að Christo- pher Tugendhat. öðrum tveggja fulltrúa Breta í stjórnarnefnd Efnahagsbandalagsins, en hæfðu ekki. að sögn taismanns handa- lagsins. Tugendhat var að fara frá heimili sínu til vinnu, þegar skotið var úr bifreið, sem ók burtu Tugendhat á ofsahraða. A eftir gaf stjórnar- nefndin út yfirlýsingu, þar sem tilræðið var fordæmt og látin í ljós samúð með Tugendhat og fjölskyldu hans. Talsmaðurinn neitaði að svara því, hvort írskir hryðjuverka- menn væru grunaðir. Þeir voru grunaðir um að myrða belgískan kaupsýslumann í fyrra í misgrip- um fyrir staðgengil sendiherra Breta hjá NATO. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni í Reno, Nevada, í Bandaríkjunum. Þrir biðu hana og um 20 slösuðust. Ilér koma hjúkrunarliðar vegfarendum til hjálpar eftir slysið. Hussein svarar kostum Assads Damaskus. 3. desember. AP. ABDULLAII Bin Abdel Aziz prins. yfirmaður Þjóðvarðliðsins í Saudi-Arabíu og sérlegur sendimaður Khaleds konungs. kom í dag til Damaskus með svar Husseins Jórdaniukonungs við tveimur skilyrðum Sýrlendinga fyrir þvi að draga úr viðsjám. sem hafa leitt af miklum liðssafnaði á landamærum Sýrlands og Jórdaniu. Israelsk næturárás á virki PLO í Líbanon Damour. Líbanon. 3. desember. AP. ÍSRAELSKAR landgöngusveitir réðust með stuðningi fallbyssu- báta búnum eldflaugum og þyrlum á vígi palestinskra skæruliða 19 km sunnan við Beirút i dag. Frelsissamtök Palestinu (PLO) sögðu. að tveir ska'ruliðar hefðu fallið og fjórir líbanskir borgarar týnt lífi í tæplega tveggja tíma bardögum. Skæruliðar sögðu. að ísraelsmenn virtust líka hafa orð- ið fyrir manntjóni. þar sem miklar blMslettur hefðu fundizt í stöðv- um þeirra eftir árásina. Israelska herstjórnin sagði, að „ótiltekinn fjöldi" skæruliða hefði fallið í „flókinni og fullkominni" næturárás, en allir ísraelsku her- mennirnir snúið heilu og höldnu tjl stöðva sinna. Israelsmenn sögðu, að tveimur bifreiðum með Palestínumönnum hefði verið veitt fyrirsát og skæru- liðar drepnir. Israelsmenn virðast einnig hafa sprengt upp hús með þungu vopni eftir skotárás skæru- Methafi í fjarvistum Palermo, 3. des. AP. METIIAFI ítala í fjarvistum. borgarstarfsmaðurinn Luigi Cincotta i Palermo á Sikily, hefur verið rekinn að sögn yfirvalda. Cincotta hefur starfað í tíu ár, en þar af hefur hann verið fimm ár heima hjá sér og notað til þess veikindavottorð og önnur leyfi til að tryggja sér frí frá vinnu. Auk þess hafði Cincotta aukastarf og seldi húsgögn. liða samkvæmt hljóðritun, sem var útvarpað. Skæruliðar segja, að árásin hafi verið gerð á átta km kafla á strandveginum við Damour. ísra- elska herstjórnin sagði, að þetta hefði verið „fyrirbyggjandi aðgerð" WashinKton. 3. des. AP. JIMMY Carter Bandaríkjaforseti sagði í dag, að Bandaríkin fylgdust „með vaxandi ugg“ með einsta'ðri upphyggingu" herafla Sovétríkj- anna meðfram pólsku landamær- unum. Hann varaði við því. að stefna og afstaða Bandaríkjanna „gagnvart Sovétríkjunum yrði fyrir beinum og mjög neikva'ðum áhrifum frá hvers konar valdbeit- ingu Rússa í Póllandi". Háttsettur starfsmaður Hvíta hússins sagði að mikilva'gt væri að það væri á hreinu að valdbeiting mundi hafa víðtæk áhrif i alþjóða- málum. Ilann sagði að komið hefði fram. að Rússar væru í vaxandi mæli reiðuhúnir til að beita hern- aðaríhlutun, þótt ekkert benti til að slikar aðgerðir va*ru yfirvof- andi. Bandarískir embættismenn sögðu í dag, að þeir hefðu engar sannanir fyrir því, að Rússar hefðu ákveðið að senda herlið inn í Pólland og neituðu að bollaleggja hvernig Bandaríkin kynnu að bregðast við rússneskri innrás í Pólland. Edmund S. Muskie utanríkisráð- herra sagði á blaðamannafundi, að ekkert benti til að ákvörðun um til að draga úr hæfni PLO til árása á skotmörk í Israel. Skæruliðar í Damour sögðu, að bátur og þyrlur Israelsmanna hefðu sézt úr stöðvum á landi og lagt hefði verið til atlögu við þá þegar þeir stigu á land. íhlutun hefði verið tekin, en hernað- arviðbúnaður Rússa á landamærun- um héldi áfram. Hvort þetta væru æfingar eða þrýstingur á Pólverja væri aðeins hægt að geta sér til um, en viðbúnaðurinn héldi áfram. Tals- maður utanríkisráðuneytisins tók í sama streng. Þriggja daga fundi landvarnaráð- herra og yfirmanna herafla Var- sjárbandalagsins lauk í Búkarest í dag að sögn Tass, og talið er víst að Embættismenn í Amman segja, að Sýrlendingar hafi hörfað burtu með um 50.000 hermenn þegar Hussein samþykkti: • Að gefa skriflega yfirlýsingu um, að hann aðstoðaði ekki Bræðralag Múhameðstrúar- manna, sem hefur haldið uppi herferð gegn sýrlensku stjórn- inni í tvö ár. • Að löfa því að halda áfram að viðurkenna PLO sem eina lög- lega fulltrúa Palestínumanna. Þetta á að draga úr þeim ótta Hafez Assad forseta, að Huss- aðalmálið hafi verið áhrif ástands- ins í Póllandi á varnarviðbúnað bandalagsins. I Washington er sagt, að loftvarnaæfingar Rússa á pólsku landamærunum kunni að byrja á morgun. Sovézka stjórnarmálgagnið Iz- vestia sakaði í dag vestræna fjöl- miðla, einkum vestur-þýzka, um að heyja „sálfræðilegan hernað“ gegn Póllandi. Vestræn blöð séu notuð til að stofna til „vandræða" í Póllandi, ein konungur muni kanna sér- frið, þegar Ronald Reagan tek- ur við forsetaembætti í Banda- ríkjunum. Hussein konungur neitar því, að Jórdaníumenn standi í nokkru sambandi við bræðralagið og seg- ist engan áhuga hafa á því að veikja sýrlenzku stjórnina. Hann segist einnig viðurkenna PLO og ekki vilja sérfrið. Talsmaður Husseins neitar því, að hann hafi látið undan nokkrum skilmálum Sýrlendinga, en segir hann taka vel í sanngjarnar tillögur til að binda endi á tilgangslausa deilu. þau séu „verkfæri" til beinna af- skipta af innanlandsmálum. Vest- ur-þýzk áróðursmálgögn reyni að veikja Pólland til að ýta undir „hefndarstefnu". Stjórn pólska kommúnistaflokks- ins varaði í yfirlýsingu í dag við fólki, sem „reyndi að ýta nýju verkalýðsfélögunum út á blindgötu pólitískrar andstöðu". Flokksleið- toginn Stanislaw Kania hélt því jafnframt fram, að til staðar væru öfl „sem leyndu ekki gagnbylt- ingarmarkmiðum sínum“. I ályktuninni er farið hörðum orðum um hópa sem stundi starf- semi fjandsamlega flokki og ríki og reyni að koma á öngþveiti með „pólitískri hentistefnu". Aframhald- andi ólga og spenna stofni innan- landsfriði og þjóðarhagsmunum í hættu. Þetta eru talin varnaðarorð til óháðra verkalýðsfélaga og and- ófshópa. Utanríkisráðherra Belgíu, Charl- es Ferdinand Nothomb, fer til Varsjár á morgun og mun ræða við pólska leiðtoga um aðstoð Efna- hagsbandalagsins við Pólland í framhaldi af tilboði leiðtoga banda- lagsins í Luxemborg. Carter lýsir vaxandi ugg vegna Póllands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.