Morgunblaðið - 04.12.1980, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.12.1980, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1980 Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra: Yill breytingar til að lækka kostnað við flugstöðvarbygginguna Hefur lagt fram tillögu í ríkisstjórn um byrjunarframkvæmdir á næsta ári „ÉG HEF borið fram tiIIöKU í ríkisstjórninni um flugstöðvar- hygginguna. þannig aö hafizt verði handa á næsta ári,“ sagði Ólafur Jóhannesson, utanríkis- Tveir meiddir eftir bílslys Djúpavogi, 3. desember. UM áttaleytið í gærkvöldi var framhyggðum Rússajeppa ekið utan í jarðýtu sunnan Berufjarð- ar. skammt innan við Djúpavog. Tveir menn, sem voru í bílnum, voru fluttir til Reykjavíkur í gærkvöldi, en meiðsli þeirra voru minni en á horfðist í upphafi. Bíllinn er talinn ónýtur. — Fréttaritari ráðherra. er Mbl. spurði hann í gær, hvað flugstöðvarmálinu liði. Ólafur sagðist ekki geta sagt til um. hvenær endanleg byggingar- áætlun lægi fyrir. þar sem hann hefði farið fram á breytingar í þá átt aö lækka kostnaðinn við bygginguna. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér munu niðurstöður nýj- ustu kostnaðaráaúlunar vera á bilinu 50—60 milljónir dollara. eða jafnvirði 29—35 milljarða króna. Inni i þeirri kostnaðar- áætlun er um mismikinn fram- reikning að ra“ða vegna verð- bólgu í Bandaríkjunum og einnig tölur yfir ýmsan kostnað utan- húss, eins og við aðveitur, bila- stæði og umhverfi. Fast framlag Bandaríkjamanna til flugstöðvarbyggingarinnar er 20 milljónir dollara, en einnig hafa þeir fallizt á að greiða kostnað af aðbúnaði utan flug- stöðvarbyggingarinnar, sem tal- inn er nema allt að 30 milljónum dollara. Ólafur Jóhannesson, utanríkis- ráðherra, sagði í samtalinu við Mbl. í gær, að hann vildi ekki nefna neinar.tölur um þá kostnað- arlækkun, sem hann hefði farið fram á, en endurskoðun bygg- ingarnefndar mun beinast að því, hvort unnt sé að haga málum þannig, að kostnaður okkar af flugstöðvarhúsinu verði sem næst- ur framlagi Bandaríkjamanna, sem er eins og fyrr segir 20 milljónir dollara, eða jafnvirði tæpra 12 milljarða króna. Mbl. spurði Ólaf, hvað hann vildi fá mikið fé í framkvæmdir við flugstöðina á næsta ári, en hann kvaðst ekki vilja nefna neinar tölur í því sambandi, þar sem endurskoðun vegna beiðni hans um breytingar væri ekki lokið. Hins vegar sagðist hann aðeins reikna með byrjun á fram- kvæmdum og með öllu væri óvíst, hvað hægt yrði að gera tímans vegna á næsta ári, þótt samþykkt fengist nú til framkvæmda. Mbl. spurði Ólaf um undirtektir við tillögu hans. „Það er ekki búið að samþykkja hana,“ svaraði utan- ríkisráðherra, „og óvíst, hvort málið komizt í gegn, þótt það sé á mínum óskalista." Tryggingastofnun ríkisins: Bætur afgreidd- ar í bönkum Þeir sem sækja bæturnar í stofnunina geta sótt þær frá og með 12. desember Sinfóníuhljómsveit íslands: Þrjú verk eftir Tschaikofsky á tónleikum í kvöld SJÖTTU áskriftartónlcikar Sin- fóníuhljómsveitar íslands verða í Háskólabíói í kvöld kl. 20:30. Á efnisskrá eru verk eftir Tschai- kovsky, píanókonsert nr. 1, Hnotubrjóturinn og 1812-forIeik- urinn. I 1812-forleiknum gerði tónskáldið ráð fyrir aðstoð lúðra- sveitar og mun lúðrasveitin Svan- ur vera hljómsveitinni til aðstoð- ar. Einleikari á píanó er Shura Cherkassky og stjórnandi Wolde- mar Nelson. Woldemar Nelson, sem er fædd- ur í Úkraínu, lærði snemma fiðlu- leik hjá föður sínum og hlaut hann alhliða tónlistarmenntun við tón- listarháskólann í Novosibrisk. Lék hann síðan með ýmsum hljóm- sveitum og kammersveitum og nam síðan hljómsveitarstjórn. Vann hann fyrstu verðlaun í alþjóðasamkeppni í Moskvu 1971 og var eftir það aðstoðarmaður Kyril Kondrasjins við Moskvu Fílharmóníuna. Frá árinu 1977 hefur hann verið búsettur í Vestur-Þýzkalandi. Shura Cherkassky hefur oft leikið hérlendis áður, bæði með Sinfóníuhljómsveitinni og á ein- leikstónleikum. Kom hann fyrst fram 9 ára gamall í fæðingarborg sinni, Odessa. Fluttist hann árið 1923 með fjölskyldu sinni til Bandaríkjanna og eftir nám í Curtis-tónlistarskólanum í Fíla- delfíu ferðaðist hann um Amer- íku, Afríku og Ástralíu og árið 1946 kom hann fyrst fram í Evrópu. Hefur hann verið á stöð- ugum hljómleikaferðum. VEGNA yfirvofandi verkfalls hankamanna hefur Trygginga- stofnun ríkisins gert ráðstafanir til greiðslu tryggingabóta nú þegar. Samkvæmt upplýsingum Eggerts G. Þorsteinssonar. for- stjóra stofnunarinnar, geta þeir tryggðu, sem fengið hafa greiðsl- ur í gegnum lánastofnanir, sótt bætur sínar í bankastofnanir frá og með deginum í dag. Slíkar greiðslur hafa venju- legast verið greiddar inn á banka- reikninga 10. hvers mánaðar, en er nú flýtt. Um er að ræða allar bætur Tryggingastofnunarinnar. Þá hefur Tryggingastofnunin látið alla umboðsmenn stofnunarinnar utan Reykjavíkur og nágrennis vita og munu þeir auglýsa sína útborgunardaga hver í sínu um- dæmi eins og venja hefur verið. Hins vegar munu þeir, sem enn hafa fengið greiðslur sínar beint frá stofnuninni, geta vitjað þeirra í stofnuninni frá og með 12. desember. Eggert kvað þetta vera varúð- arráðstafanir, sem gerðar væru vegna hugsanlegs verkfalls banka- starfsmanna, sem koma á til framkvæmda næstkomandi mánu- dag. Eggert kvað ákaflega mikinn ótta hafa gripið um sig meðal fólks vegna þessa ástands og hefði sími Tryggingastofnunarinnar verið rauðglóandi í gær vegna þessa. Bankamenn kol- felldu sáttatillöguna — Bankarnir samþykktu — Sáttasemjari ræðir við deiluaðila árdegis BANKAMENN kolfelldu sátta- tillögu sáttanefndar rikisins i allsherjaratkvæðagreiðslu um til- löguna. Nei sögðu 1.295 eða 64,5%, já sögðu 779 cða 34,3%, auðir seðlar voru 64 og ógildir 5. Vetrarvertíð SV-lands: Útlit fyrir minni fiskgengd en var í ár „AFKASTAGETA botnfiskaflot- ans er yfir milljón tonn á ári,“ sagði Sigfús Schopka. fiskifræð- ingur. á aðalfundi LÍÚ í gær og hann hélt áfram: „Þessi stað- reynd er þeim mun sárgræti- legri. þegar allir útreikningar sýna. að afrakstursgeta botn- fiskstofnanna er ekki nema 800, í hæsta lagi 850 þúsund tonn.“ Sigfús vék nokkuð að afla þessa árs og horfum á næsta ári. Sagði hann, að þorskaflinn í ár stefndi í 415 þúsund tonn þrátt fyrir aukn- ar takmarkanir á árinu og fer aflinn fram úr því, sem menn væntu. Sagði hann meginskýring- una á aflaaukningunni umfram það, sem búist hefði verið við, liggja í því, að þorskur hefði nú aftur gengið hingað af miðunum við Grænland. Ekki aðeins frá A-Grænlandi, heldur einnig frá V-Grænlandi og néfndi hann því til stuðnings endurheimtur danskra fiskmerkja. Síðan sagði Sigfús: „Á næstu vetrarvertíð kemur 1974-árgang- urinn til hrygningar. Þessi ár- gangur er lélegur og ólíklegt verður að teljast, þótt aftur gangi þorskur af Grænlandsmiðum hingað á næstu vetrarvertíð, að sú ganga verði nægilega stór til þess að vega upp þennan lélega árgang. Það má því búast við minni fiskgengd á komandi vetrarvertíð SV-lands, en var á þessu ári. Á hinn bóginn mun stóri árgangur- inn frá 1976 verða mikilvægastur árganga í veiðunum á næsta ári utan hinna hefðbundnu vertíð- armiða SV-lands.“ Hafrannsóknastofnunin lagði í ársbyrjun til, að hámarksafli á ýsu yrði um 60 þúsund lestir, en nú er útlit fyrir, að aflinn í ár verði undir 55 þúsund tonnum, sem var ýsuafli síðasta árs. Stofn- unin lagði til að hámarksafli á ufsa yrði einnig 60 þúsund tonn, en útlit er fyrir, að aflinn verði undir því hámarki. Nú er unnið að endurskoðun á ástandi beggja þessara stofna. Karfaafli fer hins vegar fram úr tillögum Hafrannsóknastofn- unar fyrir þetta ár og þess má geta, að Alþjóða hafrannsókna- stofnunin hefur lagt til nokkurn niðurskurð á karfaafla í N-Atl- antshafi á næsta ári. Um grálúð- una sagði Sigfús, að Hafrann- sóknastofnunin hefði lagt til 15 þúsund tonna hámarksveiði grá- lúðu á árinu, en útlit væri fyrir, að aflinn yrði nær tvöfalt meiri. Á kjörskrá voru 2.328 banka- menn. og atkvæði greiddu 2.143 eða 92,1%. Sáttatillagan er felld með meiri mun en samningarnir. sem tókust um miðjan október. Þá sögðu 57,8% nei, en 38,2% já. Kjörsókn var þá heldur dræmari eða 88.9%. Atkvæðagreiðsla fór einnig fram meðal bankaráða, en þar eru alls 50 atkvæði og er vægi þeirra mismunandi eftir stærð bank- anna. Niðurstaðan þar varð, að sáttatillaga sáttanefndar var samþykkt með 49 atkvæðum gegn Verkfall bankamanna kemur til framkvæmda hinn 8. desember næstkomandi, þ.e. á mánudag, ef samkomulag tekst ekki fyrir þann tíma. Vilhjálmur Hjálmarsson, sáttasemjari í deilunni, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær- kveldi, að hann hefði boðað deilu- aðila til sín árdegis í dag til skrafs og ráðagerða og myndi hann eftir það ákveða, hvenær sáttafundur yrði boðaður. Sagði Vilhjálmur, að allt yrði gert til þess að freista þess að ná deiluaðilum saman, svo að ekki þyrfti að koma til banka- mannaverkfalls á mánudag. Ediksöltuð síldarflök: Framleiðslu hætt í FYRRADAG var sent skeyti frá Síldarútvegsnefnd til framleið- enda á ediksaltaðri sild, þar sem sagði, að þar sem kaupendur i Vestur-Þýskalandi hafa krafist tafarlausrar stöðvunar á fram- leiðslu ediksaltaðra síldarflaka, vegna framboðs erlendis á fersk- síld frá íslandi á óeðlilega háu verði. Þvi var i dag samþykkt á fundi með framleiðendum, að stöðva söltun á ediksöltuðum flökum nú þegar. Þá gerðist það í gær, að Helga II, seldi síld í Hirtshals, á 1,08 danskar krónur. Ennfremur seldi bátur í Cuxhaven fyrir mjög lágt verð, eða 82 pfenninga kílógramm- ið. Virtist það koma Þjóðverjun- um gjörsamlega úr jafnvægi, að sögn eins síldarverkanda er Morg- unblaðið ræddi við í gærkvöldi, enda verðið lágt (ca. 2,50 D.kr.) beint inn á þýskan markað. Voru Þjóðverjar sagðir mjög reiðir vegna þessa í gær. Eggert Knuth greifi látinn EGGERT Knuth, greifi, sem var sendiherra Dana á Islandi á árun- um 1956—59, er látinn, 79 ára að

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.