Morgunblaðið - 04.12.1980, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1980
Snaran í ann-
arri útgáfu
Snaran eftir Jakobínu SÍKurðar-
dóttur er nýlega komin út 1 annarri
útKáfu hjá Máli og menninKU.
Bókin kom fyrst út árið 1968 og
vakti þá þegar athygli og greindi
menn á um efnislegt inntak bókar-
innar, en í bókinni deilir höfundur á
stóriðju, erlent fjármagn og yfirráð
um leið og hún dregur upp mynd af
verkamanni framtíðarinnar og setur
hann í félagslegt og sögulegt sam-
hengi. Um hitt voru menn sammála
að Jakobina hefði í þessari skáld-
sögu fitjað upp á nýju formi sem
ekki hafði verið reynt áður, og
reyndar ekki eftir það, og vakti það
ekki síður athygli. Á bókarkápu eru
fáein sýnishorn eða brot úr ritdóm-
um sem birtust árið sem bókin kom
út.
Snaran er 120 bls. og ljósprentuð í
Repró/Formprent. Kápuna gerði
Gunnar Gunnarsson hjá Auglýs-
ingaþjónustunni.
Djúpivogur:
Bílar skemmd-
ust í óveðrinu
Djúpavuip 2. deseraber 1980.
í gær geysaði hér norðvestan
aftakaveður. Nokkrir bílar
skemmdust, er þakplötur og fleira
brak fuku, rúður brotnuðu í
nokkrum húsum en ekki urðu slys
á mönnum. Veðurhæðin var mest
frá klukkan 10.30 til 13.30 en lægði
nokkuð síðdegis.
Meirihlutinn af þaki gamla
frystihússins fauk, og var það að
hluta til klætt með nýlegu báru-
járni, en að öðru leyti asbestplöt-
um, sem hafa verið á því frá
upphafi.
— Ingimar.
Alþýðuleikhús-
ið með „jóla-
sveinadagskrá“
ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ hefur að
undanförnu æft upp „jólasveina-
dagskrá“ vegna þess að mikið
hefur verið leitað til þess varð-
andi alls konar skemmtiatriði,
uppákomur og jólasveinadag-
skrár. Nokkrir félagar í Alþýðu--
leikhúsinu hafa því tekið sig
saman og samið söngva og leiki
og annað léttmeti til skemmtun-
ar á jólaskemmtunum. Þeim sem
áhuga hafa á slíku efni er því
bent á að hafa samband við
Alþýðuleikhúsið.
(Úr fréttatilkynningu).
Erlend fréttaskýring
Er ísraelski
Verkamannaflokkurinn
að liðast í sundur?
Valdabarátta Peres og Rabins að ná hámarki
ENN hefur magnast ágreiningurinn milli þeirra tveggja Yitzaks
Rabins og Shimon Peres, sem keppa um formannsstööu í ísraelska
Verkamannaflokknum, en landsþing hans verður nú um miðjan
desember og þess beðið með töluverðri spennu og óþreyju.
Ástæöan til þessa nýja báls milli mannanna tveggja, sem lengi hafa
eldaö saman grátt silfur er frásögn sem birtist í franska blaöinu
l’Express, þar sem sagði aö kaupsýslumaöur að nafni Bezalel
Mizrahi hafi greitt sekt þá sem Lena Rabin var dæmd aö greiða
þegar þaö komst upp fyrir rúmum þremur árum, að hún haföi átt
ólöglegan bankareikning í Bandaríkjunum. Rabin hefur kallaö frótt
blaösins „örgustu lygi“ og borið Peres þeim sökum, aö standa á
bak við birtingu þessarar fréttar. Því hefur Peres náttúrlega
harðlega neitaö.
Bezalel Mizrahi vann á sl. ári
meiöyröamál gegn ísraelska
dagblaöinu Ha’aretz, sem sak-
aöi hann um aö vera fors-
prakka í skipulögöum glæpa-
hring í ísrael. Hins vegar hefur
þetta vissulega loöaö viö Miz-
rahi þrátt fyrir aö blaöiö væri
dæmt til aö greiöa honum
skaöabætur fyrir áburöinn.
Rabin kveöst nú ætla aö höföa
mál á hendur l’Express og
neyöa blaöiö til aö gefa upp
heimildarmenn sína og gengur
hann út frá því sem gefnu, aö
hann muni þá geta klekkt
hressilega á Peres, því aö hann
er sannfærður um aðild hans
aö málinu, þrátt fyrir afdráttar-
lausar neitanir Peres. Rabin
sagöi á blaöamannafundi í Tel
Aviv eftir aö frásögnin í l’Ex-
press birtist aö hann heföi án
árangurs reynt að stööva birt-
ingu hennar, því aö hann heföi
frétt af henni fáeinum dögum
áöur. Hann heföi einnig fariö
fram á viö franska dómstóla aö
þeir bönnuöu útkomu blaösins
en þaö heföi veriö of seint,
biaöiö heföi þá verið komiö í
dreifingu. í frásögn blaösins var
tekiö svo til oröa aö „Shimon
Peres fyrverandi varnarmála-
ráöherra heföi leynivopn á
hendur Rabin, ávísun upp á
250 þús. ísraelskar lírur, sem
heföi verið notuö til aö greiöa
sekt Lenu Rabin".
Þetta mál hefur oröiö til aö
hleypa enn meira illu blóöi í þá
baráttu, sem lengi hefur staöiö
milli mannanna tveggja og er
bæöi af persónulegum og póli-
tískum toga spunnin. Mörgum
fylgismönnum Verkamanna-
flokksins þykir þetta súrt í
broti, vegna þess aö veljist
sterkur forystumaöur til aö
leiöa flokkinn, er vísast aö hann
gæti leitt Verkamannaflokkinn
fram til sigurs í kosningunum á
næsta ári.
Fulltrúar hafa verið kjörnir á
þingiö og flest bendir til aö
Peres hafi stuöning meirihluta
þeirra. En Rabin er ekki á því
aö gefast upp. Hann bendir á
aö í skoöanakönnununum um
fylgi þeirra upp á síökastið hafi
hann jafnan veriö meö meira en
Peres. Shimon Peres hvatti til
þess eftir aö fyrir lá aö hann
nyti stuönings meirihluta á
væntanlegu landsþingi, aö
menn reyndu aö standa saman,
svo aö Verkamannaflokkurinn
gæti sigrað Likudbandalagiö í
kosningunum.
Þaö er Ijóst aö áhugi er á
landsþinginu utan landamæra
ísraels, því aö ýmsir framá-
menn jafnaöarmannaflokka í
Evrópu hafa ákveöið aö sækja
þaö, og meöal þeirra er sagöur
Anker Jörgensen forsætisráð-
herra Danmerkur.
Baráttan milli Peres og Rabins er
ekki ný til komin. Rígur og
persónulegar illdeilur hafa sett
sinn svip á samskipti þeirra
lengi, en magnaöist mjög eftir
aö upp komst um margnefndan
bankareikning frú Rabins, eig-
inmaöur hennar varö aö segja
af sér í miöri kosningabarátt-
unni 1977 og Likudbandalagiö
komst þá til valda. Svo virtist
þó um stund sem Rabin áliti
hyggilegast aö hætta þá af-
skiptum af stjórnmálum, enda
litu landar hans hann heldur
óhýru auga og fannst sem ýms
önnur minni hneykslismál innan
Verkamannaflokksins bentu til,
aö í forystuliöi hans væri ekki
allt í sómanum. Rabin var talinn
ekki sterkur sem leiötogi, þótt
honum heföi farnazt mætavel í
ýmsum embættum, sem hann
gegndi áöur en til þess kom aö
hann væri geröur aö forsætis-
ráöherra.
En Rabin gat ekki á sér setiö og
ákvaö aö keppa viö Peres um
formennsku í Verkamanna-
flokknum. Eftir fráfall Yigals
Allons, sem einnig sóttist eftir
formennskunni, færöist Rabin í
aukana og reri aö því öllum
árum aö tryggja sér fylgi þeirra
sem höföu áöur stutt Allon.
Raunar haföi Rabin byrjaö aö
reyna aö afla sér stuönings
Þörungavinnslan:
Sovéskt verksmiðjuskip
kemur með kolmunna
til Grundarf jarðar
SKOSKA fyrirtækiö, sem keypt
hefur þangmjöl af Þörunga-
vinnslunni á Reykhólum á Baróa-
strönd. mun ekki kaupa þaöan
mjöl í framtíðinni, að því er
Ómar Ilaraldsson forstjóri Þör-
ungavinnslunnar tjáði Morgun-
blaðinu í gær. Sagði hann full-
trúa fyrirta'kisins í Skotlandi
hafa komið hingað til lands fyrir
hálfum mánuði, og þá tilkynnt
þessa ákvörðun.
Fram til þess tíma sagði Ómar, að
jafnvel hefði verið búist við að
fyrirtækið keypti svipað magn og
áður, en ekki hefði enn verið ákveð-
ið, hvernig brugðist yrði við þessum
nýju aðstæðum. Sagði hann fund
verða haldinn í Lundúnum fyrir 20.
janúar á næsta ári, og þar myndi
koma í ljós hvort samkomulag
næðist um skaðabætur. „Þar reynir
á hvort sú upphæð er þeir vilja
greiða, og sú upphæð er við þurfum
að fá, er svipuð, en takist ekki
samkomulag munum við rekp málið
fyrir dómstólum," sagði Ómar.
Eins og fram kom í frétt Morgun-
blaðsins í gær, hafa forráðamenn
Þörungavinnslunnar nú ákveðið að
kaupa 500 tonn af kolmunna af
Sovétríkjunum, til vinnslu í verk-
smiðjunni.
Ómar Haraldsson sagði, að
ástæða þess að leitað væri til
Sovétríkjanna um þessi kaup væru
Sr. Fjalar Sig-
urjónsson skip-
aður prófastur
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
hefur gefið út skipunarbréf handa
séra Fjalari Sigurjónssyni til að
vera prófastur í Skaftafellspróf-
astsdæmi frá og með 1. nóvember
1980 að telja.
þau, að kolmunnavertíðin í fyrra
hefði brugðist hér á landi, fá skip
stundað veiðarnar og lítið veiðst. Sá
afli er komið hefði á land, hefði
komið á Austfjarðahafnir, en þar
sem þar var ekki aðstaða til að
slægja kolmunnann og frysta, fór
hann í bræðslu. Sá kolmunni, sem
barst til verksmiðjunnar, kom hins
vegar af hafrannsóknaskipinu Haf-
þóri, og var landað á Suðurnesjum.
Kolmunninn frá Sovétríkjunum
mun koma hingað til lands í verk-
smiðjuskipi, og mun það að öilum
líkindum losa í Grundarfirði.
ólafur Guðmundsson formaður Norræna félagsins á Egilsstöðum við
nokkrar myndanna úr barnateikningasamkeppninni milli vinabæj-
anna 5.
Blómlegt starf Norræna
félagsins á Egilsstöðum
STJÓRNARFUNDIR norræna félagsins á Egilsstöðum hafa verið all
tíðir á árinu — og yfir vetrarmánuðina hafa verið haldnir á
ákveðnum tima mánaðarlega. Eins og venjulega hefur drjúgur hluti
starfsins verið fólginn i hvers konar fyrirgreiðslu, upplýsingamiðlun
og fræðslustarfsemi, fyrst og fremst i tengslum við norrænu félögin i
vinabæjunum. skóla og aðrar stofnanir þar — svo og sveitarstjórn-
arskrifstofur.
í maí efndi Norræna félagið á
Egilsstöðum til kynningar vina-
bæjanna í máli og myndum: Eids-
voll í Noregi, Skara í Svíþjóð, Soro
í Danmörku og Soulahti í Finn-
landi. Talið er að hartnær 600
manns hafi skoðað þessa sýningu.
Ennfremur var efnt til samkeppni
barnateikninga frá vinabæjunum
fimm. Veitt voru þrenn bókaverð-
laun. Fyrstu verðlaun hlaut
Dagný Hjálmarsdóttir, Egils-
stöðum.
Norræna félagið tók á móti
nokkrum erlendum gestum á ár-
inu. Má í því sambandi m.a. nefna
hóp skólanemenda og kennara frá
Æfinga- og tilraunaskóla
Kennaraskólans í Torshavn, hóp
danskra lýðháskólamanna — og
stjórnskipaða nefnd Færeyinga til
að gera tillögur um
framhaldsskólamál þeirra með
menntamálaráðherrann, Hergeir
Nielsen, í broddi fylkingar.
Ýmislegt er í bígerð hjá félag-
inu t.d. í sambandi við norræna
málaárið — en frekari tilkynn-
ingar þar að lútandi bíða aðal-
fundar, sem haldinn verður hinn
6. des. næstk. kl. 14.00 í Egils-
staðaskóla.
Nokkur brögð hafa verið að því
að félagar hafa gleymt að greiða
árgjöld sín til félagsins. Hér mun
vera um 30 félaga að ræða sem
eiga eftir að greiða árgjald 1980.
Hlutaðeigendur eru vinsamlega
beðnir að bregða nú skjótt við og
greiða árgjaldið kr. 5.000, (fimm-
þúsund 00/100). Athygli skal vak-
in á því að greiði félagar ekki
árgjöld sín falla þeir sjálfkrafa út
af félagaskrá (missa félagsrétt-
indi).
Formaður Norræna félagsins á
Egilsstöðum er ólafur Guð-
mundsson (kjörinn til 2ja ára) —
en auk hans sitja í stjórn: Halldór
Sigurðsson, Jón Ólafur Sigurðs-
son, Helgi Halldórssson og Elísa-
bet Svavarsdóttir.
(FrúttatllkynnlnK).