Morgunblaðið - 04.12.1980, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1980
Óveðrið á Reyðarfirði
Mjólkurfræðing-
ar sömdu í gær
Farmenn sátu á 52ja stunda
sáttafundi og eru ekki búnir
SAMNINGAR tókust milli
mjólkurfra-óinxa ok viðsemjenda
þeirra í gærmorKun ok í KærdaK
var unnið að því að ganga frá
kjarasamninKnum. Samkvæmt
upplýsinKum MorKunblaðsins er
samkomulaKÍð í stil við aðra
samninKa, sem Kerðir hafa verið
við iðnaðarmenn. Meðaltals-
hækkun launa er um 11% ok
samninKurinn er utan kjarna-
samninKs.
Farmenn voru einnig á sátta-
fundi í gær og hafði sá fundur
hafizt klukkan 16 á mánudag.
Þegar honum lauk hafði hann
staðið í 52 klukkustundir, sem er
„karphúsmet" í lengd sáttafunda,
en áður áttu bókagerðarmenn og
viðsemjendur þeirra metið, 44ra
klukkustunda sáttafund. Samn-
ingar tókust ekki, þótt aðalkjara-
samningur liggi þegar fyrir, er
enn eftir að ganga frá ýmsum
atriðum. Veruleg hreyfing komst
á samningaviðræður í fyrradag,
árdegis, er sáttanefnd lagði fram
innanhússtillögu.
Vestfirðingakaffi á sunnudag
Reyðfirðingar fóru ekki varhluta af veðurhamnum, sem gekk yfir norðaustanvert landið sl. mánudag,
eins og þessi mynd, sem Ásgeir Metúsalemsson tók, sýnir Klögglega. en Rússajeppinn feykist yfir á
toppinn 4 einni hrinunni.
Patrick Gervasoni:
Verði sendur beint
til Frakklands
— neiti islenzk stjórnvöld mér um hæli og vernd
YFIRLÝSING frá Fatriek Ger-
vasoni. pólitískum flóttamanni
sem staddur er á íslandi.
Vegna þeirrar undarlegu stöðu
sem málefni mín hérlendis eru nú
komin í vil ég taka fram eftirfar-
andi:
Eg hef beðið um hæli sem
pólitískur flóttamaður hér á ís-
landi. Einfalt ætti að vera að
svara þeirri spurningu'minni neit-
andi eða játandi. Samningar þeir
sem nú fara fram bakvið tjöldin
um málefni mín eru tímasóun og
annað ekki á meðan þeir ganga
útá það eitt að pólitískir aðilar
komi sér saman um það með
hverjum hætti ég verði fluttur
hreppaflutningum til Danmerkur.
Mér er satt að segja ekki ljóst
hvaðan sú hugmynd er komin,
sjálfur hef ég aldrei beðið um og
mun aldrei biðja um að verða
fluttur þangað, enda hef ég í
höndum tvö bréf frá þarlendum
yfirvöldum með tilkynningum um
að ég sé þar „óæskilegur". Neiti
íslensk yfirvöld mér um hæli og
vernd þá sem í því felst vil ég ekki
vera fluttur einsog flækingshund-
ur milli landa heldur sendur beint
til Frakklands þarsem ég mæti
dómurum mínum einsog mann-
eskja, augliti til auglitis með
stuðningi fólks sem þorir að taka
afstöðu í málinu.
Það er betra hlutskipti en vernd
þeirra sem ekki geta tekið afstöð-
una með réttindum mínum en
skortir hugrekki til að standa við
þá afstöðu sína. Allt tal hérlendra
yfirvalda um að vernda mig utan
sinnar eigin lögsagnar er fyrir-
sláttur einn og blekkingar. Geti
þeir ekki veitt mér skjól á sínu
eigin lögsagnarsvæði er naumast
von til að vernd þeirra dugi
fremur annarstaðar. Vilji dóms-
málaráðuneytið standa við þá
ákvörðun sína að vísa mér úr
landi, bið ég því um að vera sendur
beint til Frakklands.
Um leið og ég undirstrika þenn-
an vilja minn vil ég biðja fyrir
bestu kveðjur til krakkanna sem
verið hafa á vakt í ráðuneytinu.
Þau eru raunverulegur stuðning-
ur. Gleðileg jól.
P.G.
NÆSTKOMANDI sunnudag, 7.
des., efnrr VestfirðinKafélagið til
kaffidags í Domus Medica, Egils-
götu 3, kl. 3. Eins og íyrr á
slíkum fjölskyldudöKum býður
félagið Vestfirðingum 70 ára og
eldri sem Kestum félagsins, og
væntir þess að yngri kynslóðin
fylgi þeim og kaupi sér kaffi.
ásamt börnum sinum. Kökur og
smámunir á basar eru vel þegin
frá vinum og félögum.
Tilvalið er að mæla sér þarna
mót við vini og ættingja, sem
annars sjást sjaldan, einnig Vest-
firðinga, sem staddir væru í borg-
inni.
Félagið efndi í sumar, á ári
trésins, til gróðursetningarferðar
til Hrafnse.vrar við Arnarfjörð,
fæðingarstaðar Jóns Sigurðssonar
forseta, með tré, runna og blóm,
sem félagsmenn gróðursettu þar í
tilefni af hundruðustu ártíð hans
og konu hans, Ingibjargar Einars-
dóttur. Vonandi lifa allar þær
plöntur vestfirska veturinn af, og
eiga eftir að fegra Hrafnseyri um
langa framtíð.
I ágúst voru fjórir styrkir veitt-
ir að upphæð kr. 750.000 úr
Menningarsjóði vestfirskrar æsku
til vestfirskra ungmenna, allra
búsettra á Vestfjörðum. Fimmtu
umsókninni var ekki hægt að
sinna, þar sem aðeins var um
námskeið að ræða og sjötta um-
sóknin kom of seint.
Aðalfundur félagsins var hald-
inn 2. nóv. að Hamraborg 1,
Kópavogi. Þar kom fram að félag-
ið verður 40 ára 16. des. og á næsta
ári eru 40 ár síðan fyrsta Vestfirð-
ingamót á vegum félagsins var
haldið.
í stjórn og varastjórn félagsins
eru: Sigríður Valdemarsdóttir,
Þorlákur Jónsson, Guðrún Jóns-
dóttir, Haukur Hannibalsson,
Salvör Veturliðadóttir, Aðalsteinn
Eiríksson, Þórður Kristjánsson,
Matthildur Guðmundsdóttir, Árni
Örnólfsson og Þórunn Sigurðar-
dóttir._____*-*_*_____
Norræna húsið:
Follesdal talar
um siðfræði og erfða-
fræðirannsóknir
DAGFINN Follesdal. heimspeki-
prófessor við Oslóar-háskóla.
flytur fyrirlestur í Norræna hús-
inu í dag kl. 17.15. Fyrirlestur-
inn, sem er á ensku, nefnist
„Some Ethical Aspects of Recom-
binant DNA Research" og fjallar
um siðferðilegar x afleiðingar
erfðafræðirannsókna.
Follesdal, sem hér er í boði
Norræna hússins, var fyrirlesari á
Málþingi norrænna heimspekinga
um síðustu helgi, auk þess sem
hann fjallaði um meginstefnur í
heimspeki nútímans í Norræna
húsinu í fyrradag.
Fyrirlesturinn í dag er haldinn
að tilstuðlan Rannsóknarstofu
Háskólans í lífeðlisfræði og
Líffræðistofnunar Háskólans.
Nemendur Stýrimannaskólans lýsa
yfir stuðningi við dómsmálaráðherra:
Þjóðviljinn neitaði að
birta bréf nemendanna
SKOÐANAKÖNNUN hefur leitt í
Ijós. að yfirgnæfandi meirihluti
nemenda við Stýrimannaskólann í
Reykjavík styður eindregið ákvörð-
un Friðjóns Þórðarsonar dóms-
málaráðherra um að Frakkinn
Patrirk Gervasoni fái ekki ha-li hér
sem politiskur flóttamaður og hann
skuli hverfa af landi brott.
Fulltrúar nemendaráða skólans
gengu á fund dómsmálaráðherra
skömmu fyrir hádegi í gær og
afhentu honum eftirfarandi bréf:
Dómsmálaráðherra, Friðjón Þórð-
arson.
Samkvæmt skoðanakönnun meðal
nemenda í Stýrimannaskólanum í
Reykjavík, hefur komið í ljós, að
yfirgnæfandi meirihluti nemenda
skólans styður eindregið ákvörðun
dómsmálaráðherra í máli Patrek
Gervasonis.
Virðingarfyllst,
f.h. nemenda
Stýrimannaskólans,
Guðmundur Bárðarson. formaður.
Ágúst T. Ragnarsson. Þórður örn
Kartfikon, Ólafur Hallgrímsson,
Stefán Guðmundsson, Hafþór
Gylfason. Sveinn Jónsson, Maron-
Björnsson, Pétur D. VilberKsson.
Karl Eron Sigurðsson.
Guðmundur Bárðarson, formaður
nemendaráðs Stýrimannaskólans,
tjáði Mbl. í gærkvöldi, að fulltrúar í
nemendaráði hefðu farið á alla
fjölmiðla í gær og óskað birtingar á
bréfinu til dómsmálaráðherra. Þess-
ari málaleitan hefði verið vel tekið
alls staðar nema á Þjóðviljanum.
„Við komum á ritstjórnarskrif-
stofu Þjóðviljans rétt um klukkan 12
og fengum viðtal við Einar Karl
Haraldsson ritstjóra," sagði Guð-
mundur. „Hann las bréfið yfir og
sagöi, að Þjóðviljinn myndi ekki
birta það af pólitískum ástæðum.
Hann sagði, að Þjóðviljinn væri
málgagn Alþýðubandalagsins og
okkur skildist að blaðið birti ekki
skoðanir, sem færu í bága við.stefnu
flokksins. Ég spurði þá, hvort ekki
væri sjálfsagt að birta allar skoðan-
ir, en ritstjórinn svaraði því neit-
andi. Þá þökkuðum við pent fyrir og
kvöddum."
Karvel Pálmason um alþýðubandalagsmenn í verkalýðshreyfingunni:
Svífast einskis og
nota öll meðul
„ÞESSI rógsherferð Þjóðvilja-
manna og kommúnista gegn
Karli Steinari Guðnasyni minn-
ir mig á það. sem gerðist
gagnvart Birni Jónssyni og mér
1974 í vinstri stjórninni,“ sagði
Karvel Pálmason alþingismað-
ur í samtali við Morgunhlaðið í
gær. „Ég sé ekki betur en þetta
sé enn eitt dæmið um það,
hvernig sumir einstaklingar í
forystusveit kommúnista i
verkalýðshreyfinKunni vinna,
þegar þeir telja sig þurfa að
klekkja á pólitiskum andstæð-
inKÍ“
„Þessir menn svífast einskis,"
sagði Karvel, „og nota öll meðul.
Að mínu viti er þetta upplogið
frá upphafi til enda. Auðvitað er
það ljóst í sambandi við ASÍ-
þing og viðræður manna í milli
þar, þá ræðast menn nú oft og
einatt við í trúnaði. Var það
einnig gert á þessu þingi. Hins
vegar virðist það vera, að innan
hóps kommúnista sé æði marga
menn að finna, sem gjörsamlega
er útilokað að ræða við í trún-
aði.“
Karvel Pálmason sagði: „Eins
og þetta mál snýr að mér, þá veit
ég ekki til, og hef enga ástæðu til
að ætla, að Karl Steinar hafi
verið með neitt baktjaldamakk,
a.m.k. ekki bak við mig. Mér var
kunnugt um það, að ýmsir okkar
manna töldu nauðsynlegt að
spyrjast fyrir um það hjá Al-
þýðubandalaginu, hvort þeir
vildu samstarf við alþýðuflokks-
fólk, en því var alfarið hafnað.
Karl hreyfði þessu við tiltekna
einstaklinga og samstarfsmenn
við hann um langt árabil. Þessir
sömu einstaklingar, sem ræddu
við okkur af hálfu Alþýðubanda-
lagsins voru fyrir löngu búnir að
gera samkomulag við stjórnar-
liða innan Sjálfstæðisflokksins,
framsóknarmenn og alþýðu-
bandalagsliðið sem heild, í þá átt
sem niðurstaða þingsins varð. Á
sama tíma ræddu þessir menn
við okkur um samstarf. Þetta er
auðvitað hreinn skrípaleikur,
sýnir innræti þeirra og að með
þeim bærast engin heilindi í
samstarfi og viðræðum."
Að lokum sagði Karvel Pálma-
son, að þessari rógsherferð væri
ekki aðeins beint gegn Karli
Steinari Guðnasyni, heldur fleiri
alþýðuflokksmönnum innan
verkalýðshreyfingarinnar.