Morgunblaðið - 04.12.1980, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1980
13
Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins:
Bíðum endanlegrar
niðurstöðu Gerva-
soni-málsins
„ÉG SVARA engu um það. Við
skulum sjá, hvernig framvind-
an verður áður en við forum að
ræða málið á þennan hátt,“
sagði Svavar Gestsson, formað-
ur Alþýðubandalagsins. er Mbl.
ræddi við hann í gær um
Gervasoni-málið og spurði.
hvort Alþýðubandalagið myndi
gera það að fráfararatriði úr
rikisstjórninni. „Við skulum
fyrst sjá niðurstöður málsins,“
sagði Svavar, þegar Mbl. spurði
hvort hann teldi framvinduna
ekki skýra í ljósi ákvörðunar
dómsmálaráðherra. „Það er
ekki endanlega frágengið, hver
niðurstaða málsins verður,“
svaraði Svavar. „Dómsmálaráð-
herra hefur sagt, að hann ætli
ekki að bcita valdi í þessu máli
og þá er að finna lausn, sem
allir geta sætt sig við.“
„Afstaða Alþýðubandalags-
ins er skýr í samþykkt okkar
landsfundar og min skoðun er,
að enginn skaði sé að þvi, þótt
þessi maður fái hér landvistar-
leyfi. Við höfum reynt að stuðla
að því að finna lausn. sem allir
aðilar hefðu fulla sæmd af,“
sagði Svavar. „Þetta mál hefur
verið rætt í rikisstjórninni, en
það er svo með mörg mál og
reyndar flest. að viðkomandi
ráðherrar fara hver með sín
embættisverk. En þetta mál
hefur verið rætt í ríkisstjórn-
inni og menn hafa skipzt á
skoðunum um það.“
Spurningu Mbl. um álit hans á
yfirlýsingu Guðrúnar Helgadótt-
ur um að þetta mál réði því,
hvort hún yrði áfram stuðnings-
maður ríkisstjórnarinnar eða
gerðist stjórnarandstæðingur,
svaraði Svavar með því að vísa
til þess, sem eftir honum er haft
í upphafi fréttarinnar.
Aurar:
Engin vandkvæði
i tölvuvinnslu
MATTHÍAS Á. Matthiesen, alþingismaður. lagði fyrir skömmu fram
fyrirspurn á Alþingi. þar sem hann spurði á hvern hátt ríkissjóður
fyrirhugaði að framkvæma upptöku aura vegna myntbreytingarinnar
um áramót, a) við greiðslu almennra krafna, b) við greiðslu launa og
bóta almanna trygginga og c) við skráninu fjárhæða i bókhaldi
rikissjóðs og ríkisstofnana.
í tilefni þessa sneri Mbl. sér til
Stefáns Þórarinsspnar, rekstrar-
stjóra Seðlabanka íslands og innti
hann eftir því hvort um einhver
vandkvæði yrði að ræða við upp-
töku aura t.d. í sambandi við
tölvuvinnslu.
„Breytingin hefur ekki í för með
sér nein vandræði í sambandi við
tölvuvinnslu og það þarf ekki að
gera neinar breytingar á gildandi
lögum hennar vegna. Það þarf
einfaldlega að breyta tölvuforrit-
um. Reikningseiningin verður eft-
ir sem áður einn eyrir, þannig að
þarna er spurningin aðeins um
færslu kommunnar. Greiðsluein-
ingin verður aftur á móti fimm
aurar, þannig að gjaldkerar verða
að hækka og lækka eftir ákveðn-
um reglum, en það skapar engin
vandkvæði," sagði Stefán.
Hvað líður nefndar-
áliti um niðurfell-
ingu barnaskatta?
— spurði Halldór Blöndal á Alþingi í gær
UMRÆÐUR urðu um þingsköp á
Alþingi i gær, er Ilalidór Hlöndal
spurðist fyrir um hvað liði nefnd-
aráliti um tillögu er hann hcfur
flutt um niðurfellingu á sköttum
á börn og unglinga, en frumvarp
þess efnis flutti þingamaðurinn
ásamt tveimur öðrum þingmönn-
um fyrr í vetur. í frumvarpinu
var jafnframt gert ráð fyrir að
þau gjöld er þegar hefðu verið
greidd. yrðu endurgreidd.
í ræðu sinni minnti Halldór á,
að Steingrímur Hermannsson
hefði lýst stuðningi sínum við
málið, og heitið að beita sér fyrir
því að leiðrétta það. Halldór
sagðist því vilja fá svör um það,
hvort brátt væri að vænta nefnd-
arálits, og hvort af endurgreiðslu
yrði á þessu ári. Taldi hann
þingnefndina hafa átt að taka
málið tii afgreiðslu þegar í staö,
eðli þess samkvæmt. Alþingis
væri að kveða upp úr um málið en
ekki nefndar.
Halldór Ásgrímsson, formaður
fjárhags- og viðskiptanefndar,
svaraði, og sagði að auðvelt hefði
verið fyrir Halldór að fá upplýs-
ingar um málið, og óþarft hefði
verið að hlaupa með það í ræðu-
stól án þess. Sagði Halldór Ás-
grímsson að ekkert væri því til
fyrirstöðu að veita allar upplýs-
ingar. Sagði hann málið hafa verið
tekið fyrir -þegar í stað, og um-
sagna hefði verið óskað með
venjulegum ’nætti. Sagðist hann
ekki beita sér fyrir afgreiðslu
mála fyrr en þau hefðu hlotið
eðlilega meðferð. Ekkert væri
óeðlilegt við afgreiðslu þessa máls,
fullyrðingum um annað væri því
vísað til föðurhúsanna.
Halldór Blöndal tók aftur til
máls, og sagðist hann muna eftir
því að Halldór Ásgrimsson hefði
hraðað skattamálafrumvörpum í
gegnum nefnd sína, en seinagang-
ur í þessu máli sýndi andstöðu
hans við það frá upphafi.
fllMAGI
—--
//--------------------------------------------------, ■ !'" -------r——-------------------------
' r':
IJOO -■ .;vx f,
Steingrímur Baldvimson
Steingrímur í Nesi var merkiiegt skáld, og
móðurmálið lék honum á tungu. Hér er aö
finna alburðakvæði svo sem Heiðmyrkur, sem
hann orti er hafln beiö dauða síns í gjá í
AðaWalshraun! í fimm dægur og var þá
bjargaðfyrlr tUviíiun
Steingrfmur bjó á bökkum Laxár og var mikitl
, Ur. Skyldi einhver hafa lýst bÉ$^p|l
, Ai þegar laxinn bítur á en hanmá(i$§|Sl
þessarivísu:
Þogmr atríkkar •tangarlaumur 'í&SjÍ
• löngin nigiur. hjóiiþ mtlar,
þttur um möar þungur ttrmumur
þmnin tmug trið Imtinn hjmlmr. ml
V/
Almenna
pbókafeiajP
Austiirstra'ti 18. - Sími 25511.
Sambyggt tæki
með toppgæði
SHARP SG-1H/HB:
Klassa steríó sam-
stæöa í „silfur“ eöa
„brons“ útliti.
Breidd 390 mm. Hæð 746 mm / 373 mm.
Dýpt 330 mm.
* □□
DOLBY
fyrir betri upptökur.
• Útgangsorka
2x27 Wött
v/4 Ohm.
Reimdrifinn
hálfsjálfvirkur
plötuspilari
m. magnetic
pickup.
Rafeinda
móttökumælir.
• LM, MW
og FM bylgjur.
• Rafeinda
"Topp”
styrkmælir.
SG-1HB
'AIETAL
Stilling fyrir metal
kassettur.
SHARP CP-1H/HB:
Hátalarar, bassa og diskant (2 way), 25
Watta í „silfur“ eöa „brons“ útliti.
Breidd 220 mm. Hæð 373'mm. Dýpt 18.3 mm.
Allt settiö, verö kr.: 596.000-
áfS^. HLJOMT/EKJADEILD
(ILli\KARNABÆR
USJ" , LADGAVEGT6$ SjMI 25999
Útsölustaðir: Karnabær<31æsib«í-FatavaÍV;fefióvjK^ Pofljö Ákranesi - ^plié isafirð! - /dthóli SiglufiVði
k. ðj’ Cesar Akureyri-Hornabær HÖrnafirði -€yj|8'ær Vestmannályjum - M M 'h/f. Selfpssi. >