Morgunblaðið - 04.12.1980, Síða 14

Morgunblaðið - 04.12.1980, Síða 14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1980 14 RoUin’ right along WMBtrAKO t'AU. rw; of rur jovnsry CLOSE ENCOUNTERS OF THE SOVIET KIND MRÍÍW* The Houston Po? Grocer\ clerks won t c? Conferees OK budget, allow for ’8i tax eut Rússneski „Björn- inn“ við Island vek- ur mikla athygli... EINS OG fram hefur komið í fréttum, birti handaríski fluRherinn nýlega einstæð- ar myndir af því er rússn- esk njósnaþota fór inn á íslenzka loftvarnasvæðið í septembermánuði sl. Mynd- irnar hafa vakið KÍfurleKa athygli erlendra hlaða ok tímarita víðs vegar, eins ok sjá má hér á síðunni. Eins og jafnan er rússn- esk njósnaþota kemur inn á varnasvæðið, héldu tvær bandarískar Phantom-þotur til móts við Björninn í þetta skipti. Þegar Phantom nálg- ast rússneska Björninn er hraði þotanna ofsalegur, yf- ir þúsund mílur á klukku- stund. Um leið og Phant- om-þoturnar fara framhjá Birninum, nota varnar- liðsmenn táknmál til að stugga við hinum óboðna gesti, sem síðan breytir um stefnu og fjarlægist. Phant- om fylgir Birninum síðan eftir, þar til hann er kominn út af íslenzka loftvarna- svæðinu. Þessar óvelkomnu heim- sóknir rússneskra njósna- véla inn á íslenzka loftvarnasvæðið hafa tíð- kazt um langt árabil, en það vekur athygli, að þeim hefur fjölgað mjög á undanförnum árum, eins og sést á því að á árinu 1979 voru þær 170. Árið 1978 fóru sovézkar njósnaþotur um 150 slíka leiðangra inn á loftvarna- svæðið við ísland, en það ár voru þeir nærfellt tvöfalt fleiri en þeir voru að meðal- tali næstu fimm ár á undan. A-evrópskir kommúnistar: Saka Vesturlönd um nýtt kalt stríð Prag, 3. desember. AP. LUBOMIR Strougal. forsætisráð- herra Tékkóslóvakíu. hefur sak- að ýmsa aðila á Vesturlöndum um að vera að hverfa aftur til kaldastríðsáranna með því að reyna að auka og efla vopnabún- að vestrænna ríkja. Þá sögðu Tékkar einnig í dag. að „hræsnis- full“ væri sú samþykkt Efna- hagsbandalagsins að bjóðast til að hjálpa Pólverjum og vara jafnframt við rússneskri íhlutun. Strougal bar þessar ásakanir fram í hádegisverðarboði til heið- urs Willi Stoph, leiðtoga austur- þýskra kommúnista, sem kom í gær til viðræðna við tékkneska ráðamenn. Það er í fyrsta sinn sem æðstu ráðamenn þjóðanna eiga fund með sér siðan verkfölhn hófust í Póllandi í ágúst sl. Tékkar og Austur-Þjóðverjar hafa verið hvað harðastir í gagnrýni sinni á þróun mála í Póllandi. í yfirlýsingu, sem lesin var í tékkneska ríkisútvarpinu, voru leiðtogar Efnahagsbandalagsríkj- anna sakaðir um hræsni í afstöðu sinni til málefna Pólverja og sagðir vera „að reyna að hvetja pólsku þjóðina til andstöðu við sína réttkjörnu fulltrúa". Sagt var, að sú aðstoð, sem Pólverjum hefði -borist frá Vesturlöndum, væri „ekki til þess gerð að rétta við efnahag þjóðarinnar, heldur vatn á myllu andsósíalskra afla, sem reyndu að grafa undan undir- stöðum efnahagslífsins". Afganistan: 14 foringjar vegn • / /1• i / • ír í fjolbylishusi Nýju-Delhi, 3. desember. AP. HAFT ER eftir vestramum sendi- mönnum. að styrjöldin í Afgan- istan sé nú með þeim hætti. að afganskir skæruliðar geri skyndiárásir á rússneska innrás- arliðið og leppa þeirra. en forðist meiriháttar átök. Sagt er. að sovéskir hermenn ráði stærstu burgunum. helstu þjóðvegum. en andkommúnískir skæruliðar hafi landið að öðru leyti á valdi sínu. T7' ií Veður víða um heim Akureyri 2 skýjaó Amslerdam 7 heióskírt Aþena 19 heiöskírt Berlín 1 snjókoma Chicago 0 skýjaó Frankfurt -5 snjókoma Faereyjar 2 skýjað Genf 0 snjókoma Helsinki 4 skýjaó Jerúsalem 21 þoka Jóhannesarborg 23 |>oka Kaupmannahöfri i 3 skýjaö Las Palmas 21 heiöskírt Lissabon 9 heiðskírt London 6 skýjaö Los Angeles 20 skýjaö Madrid 10 skýjaö Malaga 14 léttskýjað Mallorca 11 alskýjað Miami 8 skýjaö Moskva -5 snjókoma New York 16 skýjaö Osló 2 heióskírt París 4 rigning Reykjavík 1 súld Ríó de Janeiro 28 rigning Rómaborg 10 rigning ðtokkhólmur 3 skýjaó Tel Aviv 23 skýjaó Tókýó 20 heiðskírt Vancouver 1 snjókoma Vínarborg - skýjaó „Eftir 11 mánaða styrjöld situr allt við það sama,“ var haft eftir heimildum. „Sovétmenn hafa ekki náð því takmarki, sem þeir settu sér með innrásinni. Þeir ráða yfir helstu þjóðvegunum og borgunum, oftast nær, og yfir landsbyggðinni aðeins þegar þeir eru með ógrvnni liðs.“ I fréttum frá Pakistan segir, að 14 afganskir foringjar í her Karm- als forseta hafi verið skotnir til bana sl. laugardag, þegar tveir menn ruddust inn í íbúðarblokk í eigu stjórnarinnar og hófu skot- hríð. Talið er, að ástæðan fyrir morðunum sé valdabarátta innan kommúnistaflokksins. Haft er eftir heimildum í Kabúl, að tveir sovéskir hermenn hafi verið drepnir þegar þeir fóru ránshendi um hús og híbýli í einu hverfa borgarinnar. Rússneskir hermenn og afganskir öryggis- verðir umkringdu strax hverfið, en íbúarnir tóku á móti þeim með grjóthríð og vörnuðu þeim vegar- ins. Urðu þeir þá frá að hverfa við svo búið. Mosley látinn London. 3. des. AP. SIR OSWALD Mosley. leiðtogi brezkra fasista á árunum eftir 1930. lézt í dag á heimili sínu í Orsay, útborg Parísar. 81 ára gamall. Ilann bjó í Frakklandi frá stríðslokum og var í haldi í Bretlandi til 1943. Mosley var talinn einn glæsi- legasti stjórnmálamaðurinn af yngri kynslóðinni eftir fyrri heimsstyrjöldina og varð ráð- herra í stjórn Verkamanna- flokksins, en hallaði sér að fasisma vegna fyrirlitningar á brezkum stjórnmálamönnum. . Þumalína Jólakjólar, blússur, skyrtur, vesti og buxur Mjög fallegir úti- og inni-trimmgallar, naarfatnaður og náttföt í miklu úrvali, allt til sex ára aldurs, að óglaymdu: Allt til SÆNGURGJAFA og TÆKIFÆRISBRJÓSTAHÖLD fyrir mömmu. WELEDA jurta-snyrtivörurnar óviöjafnanlegu fást ainnig fyrir alla fjölskylduna. NÆG BÍLASTÆDI. Sandum í póstkröfu. Þumalína Leifsgata 32, S. 12136.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.