Morgunblaðið - 04.12.1980, Qupperneq 30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1980
30
• Það var oft hart barist í leik Hauka og Nettelstedt i gærkvöldi. Hér
er einn línumaður Hauka tekinn óblíðum tökum. Ljósm. köe
„Vinnum útileikinn
með fjórum mörkum“
— segir Lárus Karl Ingason
„ÞETTA var skammlaust hjá
okkur, við fengum alls ekki skell
eins og ég sagði fyrir leikinn. En
við vinnum útileikinn með fjór-
um mörkum!“ sagði Lárus Karl
Ingason og glotti. Ilann átti
stórleik í sóknarleiknum hjá
Haukum og kom vestur-þýsku
risunum hvað eftir annað i opna
skjöldu.
„Við misstum tökin á leiknum í
lok beggja hálfleika og gáfum
besta manni Nettlestadt, Miljak.
ekki nægar gætur. Það hcfur
kannski verið einhver þreyta i
mönnum. En við þurfum alls ekki
að skammast okkar fyrir þessa
frammistöðu, þvert á móti ...“
bætti Lalli Kalli við.
— KK
„Gleymdum þeim örvhenta“
— sagði Hörður Harðarson
„ÞAÐ VAR virkilega svekkj-
andi að tapa þessum leik með
þriggja marka mun, jafntefli
hefði ekki verið ósanngjarnt mið-
að við gang leiksins,“ sagði Hörð-
ur Ilarðarson í viðtali við Mbl.
eftir leik Hauka og Nettelstedt.
„Þýska liðið var mun lakara en
ég átti von á og um leið náðum
við að sýna góðan leik. Vörnin
var aðall okkar að þessu sinni og
höfum við liklega ekki sýnt
slfkan varnarleik það sem af er
vetri. Gæfumuninn gerði að mínu
viti, að við gleymdum þeim örv-
henta, Miljak, gersamlega. Hann
lék okkur grátt i fyrri hálfleik,
en við náðum að halda honum
niðri í síðari hálfleik. En undir
lokin spratt hann upp aftur og
skoraði sigurmörk þýska liðs-
ins,“ sagði Hörður enn fremur og
bætti við að lokum: „Ég vil
ekkert segja um útileikinn,
þýsku liðin eru oft önnur á
útivelli en á heimavelli og róður-
inn verður erfiður.
— gg
„Þýska liðið kom
mer á óvart"
— sagði Axel Axelsson
„ÞAÐ KOM mér verulega á óvart
hversu illa lið Nettlestedt lék að
þessu sinni,“ sagði Axel Axels-
son, handknattleiksmaður úr
Fram. sem var meðal áhorfenda
að leik Hauka og þýsku hikar-
meistaranna, en Axel er öllum
hnútum kunnur í vestur-þýskum
handknattleik eftir dvöl sína hjá
Dankersen.
„En rtiðurinn verður mun erf-
iðari hjá Haukum i síðari leikn-
um, þessi þýsku lið leika oft illa á
útivöllum i Evrópukeppnum og
þau eru allt önnur viðfangs
þegar á heimavöll er komið.
Haukarnir eiga eftir að mæta allt
öðru liði f Nettlestedt ...“ bætti
Axel við og talaði eins og véfrétt.
— gg
Tékkar lögðu Tyrki
TÉKKAR sigruðu Tyrki 2—0 í
4-riðli undankeppni HM i gær-
kvöldi, en leikið var í Prag.
Tékkar töpuðu sem kunnugt er
fyrsta leik sínum í riðlakeppn-
inni fyrir skömmu, en þá mættu
þeir Wales.
Sigur Tékka í gærkvöldi var
mjög öruggur, en lokatölurnar
urðu 2—0. Bæði mörkin skoraði
Zdenek Nehoda, á 15. og 18.
minútu leiksins. Tékkar klúðr-
uðu fjölda færa eftir það, en
Tyrkirnir áttu varla hættulegt
færi allan leikinn.
Herslumuninn vantaði hjá
baráttuglöðu liði Hauka
— en róðurinn verður þungur eftir
þriggja marka sigur Nettlestedt
HAUKAR þurfa ekki að skammast sin fyrir 3 marka tap gegn vestur
þýska stórliðinu TuS Nettlestedt i fyrri leik liðanna í 2. umferð
Evrópukeppni bikarhafa, en liðin leiddu saman jesta sína í
Hafnarfirði í gærkvöldi. Lokatölur urðu 21 — 18, en allt fram á siðustu
tvær minúturnar, munaði aðeins einu marki og jafntefli hefði
sannarlega verið það sanngjarnasta sem komið gat út úr leiknum. En
Haukarnir klúðruðu þremur vitaköstum í leiknum og þannig á ekki
að vinna leiki. Engu að siður léku Ilaukar þarna sinn lang besta leik á
þessu keppnistimabili og leikur liðanna var lengst af hörkuspennandi
og hnifjafn. Þó verður að segjast eins og er, að róðurinn verður
þungur i síðari leiknum, því verra er að sækja Þjóðverja heim, en að fá
þá i heimsókn. Loks staðan í hálfleik, 13—10 fyrir TuS Nettlestedt.
Frumkvæði Hauka
Það voru Haukarnir sem að
gáfu tóninn í leik þessum og eftir
fremur taugaslappa byrjun hjá
báðum liðum, náðu Haukarnir
góðum tökum á leiknum og kom-
ust í 3—1. Það var Lárus Karl
Ingason sem skoraði þrjú fyrstu
mörkin með glæsilegum skotum af
línunni. Lárus er mun lægri í
loftinu en þýsku „boltarnir" og
ekki útilokað að þeir hafi hrein-
lega týnt honum þegar mest á
reið. Haukarnir léku sérlega vel
lengst af í fyrri hálfleik. Til
dæmis stóð um tíma' 5—3 fyrir
Hauka og nokkru síðar 6—4.
Sigurður Sigurðsson stóð einnig í
stórræðum um þetta leyti, ekki
síður en Lalli Kalli, Sigurður
skoraði eitt mark og fiskaði tvö
víti sem bæði gáfu mörk. TuS
jafnaði leikinn í 6—6, en þrátt
fyrir það hélt lið Hauka foryst-
unni allt þar til að 6 mínútur voru
til leikhlés. Þá stóð 9—8 fyrir
Hauka, en Árna Hermannssyni
var þá vikið af leikvelli fyrir
óþarfa brot. Nettlestedt skoraði
tvívegis og þrátt fyrir að Júlíus
Pálsson minnkaði muninn með
En síðan hófu Haukarnir að saxa
jafnt og þétt á forystu TuS og
náðu aftur upp baráttunni og
hinum góða varnarleik sem sást
til liðsins í fyrri hálfleik. Munur-
inn var aðeins tvö mörk, 15—17,
þegar 10 mínútur voru eftir. Þjóð-
verjarnir skoruðu úr vítaköstum,
en Árni Hermannsson og Júlíus
Pálsson fiskuðu víti sem send voru
rétta boðleið, 17—18 og fimm
mínútur eftir.
Nú leið drjúg stund áður en að
næsta mark var skorað og geta má
þess, að Haukarnir voru með
knöttinn þegar aðeins tæpar tvær
mínútur voru til leiksloka. Þá
reyndi Stefán Jónsson vægast sagt
ótímabært skot úr bláhorninu og
auðvitað geigaði það. Þess í stað
fengu Þjóðverjarnir knöttinn og
Júgóslavinn Miljak skoraði með
þrumuskoti. Þar með var sigurinn
í höfn og Miljak þessi bætti
tveimur mörkum við áður en yfir
lauk. Viðar svaraði fyrir Hauka
með einu marki, en lokastaðan
varð sem sagt 21—18.
Góður leikur Hauka
Haukarnir geta verið stoltir af
frammistöðu sinni í gærkvöldi.
Haukar-Nettlestedt
18:21
liðsins í vetur. Framför. Júlíus var
góður á köflum og Hörður kraft-
mikill, en óheppinn. Aðrir gáfu
allt sem þeir áttu, en voru þó ekki
afgerandi.
Þýska liðið er gott og mun
örugglega taka hressilega á í
heimaleik sínum. Afburðamenn í
liðinu eru Júgóslavinn Miljak, sem
hreinlega vann leikinn fyrir TuS á
lokasprettinum, og Landsliðsmað-
urinn Dieter Waltke, sem áður lék
með Axel Axelssyni hjá Danker-
sen.
I stuutu máli:
Evrópukeppni bikarhafa í hand-
knattleik: Haukar — Nettlestedt
18-21 (10-13)
Mörk Hauka: Viðar Símonarson 5,
3 víti, Lárus Karl Ingason 4,
Stefán Jónsson, Sigurður Sigurðs-
son, Hörður Harðarson, Árni
Sverrisson og Júlíus Pálsson 2
mörk hver.
Mörk TuS: Miljak 8, Waltke 6, 2
víti, Pickel og Keller 2 hvor,
Kölling og Lazercevic eitt hvor.
Víti í súginn: Tvö varin frá Herði
Harðar, Júlíus skaut einu í stöng.
Gunnar Einarsson varði eitt víti.
Brottrekstrar: Árni Hermannsson
og Þjóðverjinn Waldheim í 4
mínútur hver, Svavar Geirsson í 2
mínútur.
Dómarar voru danskir og sluppu
þeir bærilega frá sínu.
-gg-
Lárus Karl Ingason sleppur úr gæslunni á linunni og skorar glæsilega eitt af mörkum sinum i leiknum.
óvæntu marki, skoruðu Þjóðverj-
arnir tvö í viðbót á sama tíma og
vítakast Harðar Harðarsonar var
varið. Ekkert gekk upp síðustu
mínútur hálfleiksins.
Barningur í síðari
hálfleik
Síðari hálfleikur byrjaði ekki
gæfulega fyrir Hauka. Kania
skoraði 14 mark TuS og tvö víti í
viðbót fóru forgörðum hjá Hauk-
um, auk þess sem að Viðar Símon-
arson skaut í stöng úr opnu færi.
Man. City áfram
Fjórðungsúrslitin í ensku
deildarbikarkeppninni hafa farið
fram síðustu kvöidin. f gærkvöldi
sló Manchester City lið WBA út,
sigraði 2—1 á heimavelli sinum.
Liverpool sigraði Birmingham
3—1 á Anfield í fyrrakvöld og
West Ham sigraði Tottenham
1—0 á Upton Park. Davíð Cross
skoraði sigurmark West Ham, en
þeir Dalglish, Johnson og
McDermott mörk Liverpool.
Margir voru til að spá liðinu
hinum mestu hrakförum gegn
TuS, ekki síst er höfð er í huga hin
slaka frammistaða liðsins á ís-
landsmótinu í handknattleik. En
Haukarnir sýndu klærnar hressi-
lega og sýndu að þeir geta leikið
vel ef þeir nenna og vilja. Gunnar
markvörður Einarsson átti stór-
leik, varði 18 skot, en fyrir framan
hann var líka sterk vörn, sem tók
á móti Þjóðverjunum mjög fram-
arlega á vellinum . Var þetta
glannaleg varnaraðferð, en hún
heppnaðist ágætlega. Lárus Karl
Ingason og Sigurður Sigurðsson
voru bestu menn Hauka, auk
Gunnars, en Lárus var á köflum
hálf sofandi í vörninni. En hann
bætti það upp með glæsilegum
mörkum af línunni. Sigurður var
góður bæði í vörn og sókn, greini-
lega efnilegur. Viðar hélt spilinu
gangandi og gerði það vel þó öðru
hvoru sendi hann knöttinn annað
en til samherja. Sóknarleikur
Hauka gekk mjög greiðlega og
hratt fyrir sig, sérstaklega er
tekið er mið af 1. deildar leikjum
Ljósm. Mbl. KÖE.
Auðvelt hjá
V-Þjóöverjum
VESTUR-Þjóðverjar sigruðu
Búlgari i landsleik i knattspyrnu
sem fram fór í Soffíu í gærkvöldi.
Leikurinn var liður í 1. riðli
undankeppni IIM. Lokatölur
urðu 3—1, eftir að staðan í
hálflcik hafði verið 2—0.
Manfred Kaltz skoraði ba>ði
mörkin í fyrri hálfleik, annað úr
víti, en Karl Ileinz Rumenigge
bætti þriðja markinu við áður en
Jonehv skoraði eina mark Búlg-
ara.
Þetta var fyrsti leikur Vestur-
Þjóðverja í riðlakeppninni að
þessu sinni. en Austurríki og
Búlgaría hafa forystuna í riðlin-
um, 4 stig hvor þjóð, Austurrík-
ismenn eftir tvo leiki, en Búlgar-
ir eftir þrjá leiki. Albanir eru
einnig í riðlinum og hafa þeir 2
stig að 3 leikjum loknum. Finnar
eru enn án stiga eftir 3 leiki.
*