Morgunblaðið - 04.12.1980, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1980
31
Ódýrar íslenzkar töskur m/Fram, K.R. og Valsmerkj-
um.
Verð aðeins kr. 5.900.- SliniltÖSklir
léttar og fallegar næl-
ontöskur frá Puma
mjög hentugar fyrir
sundfötin og ýmislegt
fleira. Verö aðeins kr.
4.800.-
Höfum einnig fyrirliggjandi
mikiö úrval af allskonar
íþróttatöskum frá Puma í
mörgum stæröum.
III uöriiworzluvi
Inqdf/ O/karr/onar
KLAPPAHSTIG 44
SIMI 11 783
• Hinn leikreyndi og harðskeytti fyrjrliði Víkings, Páll Björgvinsson, sem hér kemur á fullri ferð í uppstökk á vörn Tatabanya stjórnaði
liði sínu eins og herforingi til sigurs í gærkvöldi. Ljósm. Krístján Einarsson
Úrvalið af
íþróttatöskum
er hjá okkur
,,Ég er stoltur
af strákunum
mínum í
Víking“
sagði Bodan þjálfari
ÉG ER i gifurlcga góðri
æfingu um þessar mundir og
mér fannst þetta ekki erfitt,
sagði stórskyttan í Víkingi,
Þorbergur Aðaisteinsson. —
Það er hálfsvekkjandi að
hafa ekki unnið stærri sig-
ur. Við áttum að taka þá
með fjórum mörkum. Lið
þeirra var gott. þeir voru
fljótir og hafa góða bolta-
meðferð, en ég reiknaði með
þeim stærri og likamlega
sterkari, sagði Þorbergur.
Tatabanya er klassalið, á
því er cnginn vafi. Þetta lið
sigraði Gummersbach á
heimavelli þeirra í Dort-
mund með fjórum mörkunt
og það eitt sýnir styrkleika
þeirra. Ég er ánægður með
leik Víkings í kvöld, liðið lék
vel. En þetta er búið að vera
erfitt. Fyrst fáum við ekki
frestun á leiknum gegn Val.
Erum að fara i Evrópu-
keppni, en verðum að leika í
íslandsmóti tveimur dögum
fyrir stórleik. furðuiegt.
Leikmenn minir eru út-
keyrðir. Við áttum að geta
unnið stærri sigur. í Évr-
ópukeppni má ekkert tæki-
færi mistakast til þess að
vinna stærri sigur. Við unn
um sanngjarnan sigur en ef
við hefðum nýtt tækifæri
okkar, hefðum við unnið enn
stærri sigur. Ég er stoltur af
strákunum minum, sagði
svo þjálfari Víkings. Bodan,
í lokin.
Aðalfararstjóri Ungverja
sagði eftir leikinn:
— Ég var nú í það
minnsta að vonast eftir jafn-
tefli i leiknum en því miður
þá tókst okkur ekki að ná
þvi. Við verðum að sigra í
heimaleik okkar og það ætl-
um við okkur. Vikingar léku
mjög vel og eru með sterkt
lið. Þá voru áhorfendur
stórkostlegir. Þeir gáfu iið-
inu 3 til 4 mörk með gifur-
lega góðum stuðningi sin-
um.
- ÞR
SJÁ ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Á BLS. 62 0G 63
færði
er frábært lið. Tveir leikmenn
voru á dögunum valdir í heimslið-
ið í handknattleik, þeir Bartalos
markvöðru sem leikið hefur 253
landsleiki fyrir Ungverjaland og
er einn albesti markvörður heims.
Og hornamaðurinn Kontra, en
hann var besti maður liðsins gegn
Víkingum. Liðið lék mjög yfirveg-
að hélt boltanum vel og mikil
hraði var í sóknarleik þeirra og
öllum leikkerfum. Það er alvaeg
ljóst að róður Víkinga verður
erfiður í Ungverjalandi.
í STUTTU MÁLI:
Víkingur—Tatabanya 21—20
(11-11)
Mörk Víkings: Þorbergur Aðal-
steinsson 7, Páll Björgvinsson 5,
Steinar Birgisson 4, Árni Indriða-
son 4, og Guðmundur Guðmunds-
son 1.
Mörk Tatabanya: Kontra 5, Basti
6, Gubányi 4, Babos 2, Katona 3.
Kristján Sigmundsson varði eitt
vítakast.
Tveimur leikmönnum úr hvoru liði
var vísað útaf til kælingar í 2
mínútur.—ÞR.
Frábær leikur Víkings
þeim glæsilegan sigur
“ÉG ER alveg í skýunum yfir þessum glæsilega sigri okkar.
Tatabanya hefur tvo heimsliðsmenn i liði sýnu og hefur á
undanförnum árum sýnt frábæra frammistöðu, þannig að við getum
verið stoltir yfir sigri okkar „ sagði Páll Björgvinsson fyrirliði
Víkings eftir leikinn í gærkvöldi örþreyttur eftir tvo erfiða leiki að
undanförnu. Svo sannarlega geta Víkingar og allir íþróttaunnendur
verið stoltir af sigri Víkings í Evrópumeistarakeppninni í handknatt-
leik gegn ungversku meisturunum Tatabanya. Víkingar léku
frábæran handknattleik og sigur þeirra var mjög verðskuldaður. Með
smáheppni hefðu Víkingar átt að sigra i leiknum með 3 til 4 marka
mun. Þessi sigur Víkinga færir okkur enn einu sinni sannin heim um
það hversu megnugir íslenskir handknattleiksmcnn eru i alþjóða-
keppni.
Frábær fyrri
hálfleikur:
Það var mikil stemming í Laug-
ardalshöllinni í gærkvöldi er leik-
ur Víkings og Tatabanya hófst í 2
umferð Evrópumeistarakeppninn-
ar í handknattleik. Og þeir fjöl-
mörgu áhorfendur sem á leikinn
horfðu urðu ekki fyrir vonbrigð-
um. Leikurinn bauð upp á frábær-
an og skemmtilegan handknatt-
leik. Lið Víkings var svo sannar-
lega í essinu sýnu og lék nú sinn
besta leik í vetur. Víkingar komu
Ungverjunum nokkuð á óvart í
byrjun leiksins með sterkum og
hröðum leik. Og eftir fimm mín-
útna leik hafði Víkingur náð
forystunni 3—1. Vörn Víkinga var
mjög sterk leikmenn komu vel út á
móti ungversku leikmönnunum og
pressuðu þá svo stíft út á völlinn
að þeir lentu hvað eftir annað í
erfiðleikum með leikkerfi sín og
sendingar. Mikill hraði var í leik
ungverska liðsins og yfirvegun og
öryggi eins og best gerist. Það
kom ekki fyrir að leikmenn glöt-
uðu bolta eða sendingar færu í
súginn.
Víkingar áttu frumkvæðið í
leiknum og höfðu yfir lengst af.
Ungverjum tókst ekki að komast
yfir fyrr en á 18 mínútu ieiksins
en þá var staðan 7 mörk gegn 6
Tatabanya í vil. Skömmu áður
höfðu Víkingar átt tvö stangar-
skot í sömu sókninni. Ungverjar
bættu marki við 8—6, en Víkingar
brotnuðu síður en svo niður. Þeir
efldust ef eitthvað var og jöfnuðu
metinn. Áttu síðan góðan mögu-
leik á að komast marki yfir er
Steinar komst í hraðaupphlaup en
markmaðurinn varði skot hans.
Jafnræði var með liðunum síðustu
mínútur hálfleiksins og staðan
jöfn í hálfleik 11—11. Þrátt fyrir
að Víkingar höfðu verið nokkuð
óheppnir með sendingar sínar um
tíma og nokkur ótímabær skot.
Gífurleg stemming
og spenna í síðari
hálfleiknum.
Það var hart barist í síðari
hálfleiknum og á stundum fannst
manni nóg um átökin í varnar-
leiknum. Víkingar komu mjög
ákveðnir til leiks og lögðu allt sitt
í leikinn. Þorbergur Aðalsteinsson
sem átti sannkallaðan stórleik
skoraði fyrsta mark hálfleiksins
með þrumuskoti. Þorbergur skor-
aði sjö mörk í leiknum og var
hvert öðru glæsilegra. Skömmu
síðar komst Steinar inn í sendingu
og brunaði upp en lét markvörðinn
verja hjá sér. Ungverjar jöfnuðu,
en næsta mark Víkings skoraði
Steinar með miklum tilþrifum og
átti síðan eftir að bæta þremur
við. Jafnt var á öllum tölum upp
að 18—18. Þá voru liðnar 49.
mínútur af leiknum og spennan í
hámarki. Hinir fjölmörgu áhorf-
endur studdu feykilega vel við
bakið á liði Víkings og Steinar
Birgisson skoraði tvö næstu mörk
og kom Víking yfir 20—18. Með
seiglu tókst Ungverjunum að
minnka muninn aftur niður í eitt
mark. Páll Björgvinsson kom Vík-
ingum aftur í tveggja marka
forystu á 53. mínútu. Ungverjar
sem léku allan leikinn mjög stíft
Víkingur —Tatabanya
21:20
upp á mark í hverri sókn léku
mjög agað síðustu mínúturnar og
gerðu allt hvað þeir gátu til þess
að jafna metinn í leiknum. Þegar
rúm ein mínúta var til leiksloka
skoruðu þeir sitt 20 mark. Vík-
ingar hófu sókn og of fljótt reyndi
hinn ungi og efnilegi hornamaður
Guðmundur Guðmundsson skot úr
horninu sem var varið. Þetta hefði
getað reynst dýrkeypt en Víkingar
vörðust vel síðustu mínútur leiks-
ins og tókst að sigra verðskuldað.
Víkingar sýndu
stórleik.
Lið Víkings sýndi sannkallaðan
stórleik gegn Tatabanya. Aðall
liðsins var gífurlega sterkur varn-
arleikur allan leikinn út í gegn.
Aldrei var slakað á. Með örlítið
meiri heppni í sóknarleiknum
hefði ekki verið ósanngjarnt að
Víkingar hefðu sigrað með fjórum
mörkum. Of oft glötuðu Víkingar
boltanum beint í hendur ung-
verska liðsins og þrjú hraðaupp-
hlaup fóru forgörðuni. Þorbergur
Aðalsteinsson hefur sennilega
aldrei verið í betri æfingu en nú
hann skoraði sjö mörk. Páll, Árni
og Steinar áttu allir stórleik.
Steinar var að vísu óheppinn
framan af en sótti mjög í sig
veðrið er líða tók á síðari hálfleik-
inn. Þá kom Guðmundur Guð-
mundsson mjög vel frá leiknum.
Þeir Kristján og Eggert stóðu sig
ágætlega í markinu. Sérstaklega
Kristján í lok leiksins. Þegar á það
er litið að aðeins sjö leikmenn
leika allan leikinn án hvíldar, og
að sömu leikmenn léku erfiðan
leik gegn Val í íslandsmótinu í
handknattleik á sunnudagskvöld
sést best í hversu góðri likamlegri
þjálfun þeir eru í. Lið Víkings var
íslenskum handknattleik til sóma
með frábærri frammistöðu. Til
hamingju Víkingar.
Lið Tatabanya lék mjög vel og