Morgunblaðið - 04.12.1980, Síða 32

Morgunblaðið - 04.12.1980, Síða 32
Síminn á afgreióslunni er 83033 JtUrgunblnbit) Demantur m æðstur eðalsteina ~ (Pttll & á'tlfttr Laugavegi 35 FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1980 Kristján Ragnarsson um smíði 6 togara hér á landi: „Væri bezt komið fyr- ir hér inni á Sundum“ Fjölgar skrapdögum um 16 hjá þeim togurum sem fyrir eru KRISTJÁN Ragnarsson sagói í ra“ðu á aðalfundi LÍÚ. að það væri okki í þágu sjávarútvegs. að nú er ákveðin smíði á sex Skuldir út- gerðar við sveitarfélög nú 5-6 milljarðar FRAM kom hjá SteinKrími Iler- mannssyni sjávarútvegsráð- herra á aðalfundi LÍÚ í kut. að stjórnvold telja vanskilaskuldir útgerðarinnar nú nema um 28 milljórðum króna. Mestar eru þessar skuldir við olíuféloKÍn. Byggðasjóð. Fiskveiðasjoð, aðra sjéiði ok bankastofnanir. Steingrimur sagði skuldir út- gerðarfyrirtækja við sveitarfé- lög nú trúlega vera á bilinu 5—6 milljarða króna. Þá kom fram í máli ráðherrans, að fyrir nokkru voru vanskilaskuldir útgerðar við Útvegsbankann í Vest- mannaeyjum 2,1 milljarður króna. Steingrímur sagði, að hann fengi endanlegar tillögur Seðlabankans um mánaðamótin um það hvernig staðið verður að breytingum skulda útgerðarfyr- irtækja, en ákveðið er að veru- legur hluti fyrrnefndra skulda verði breytt í 5 ára föst lán. skuttogurum hér á landi. Sagði hann. að fyrir útgerðina á landinu væri „þessum skip- um bezt komið fvrir hér inni á Sundum eða annars staðar í góðu vari“. Sagði hann, að þegar þeir væru komnir í rekstur fjölgaði veiðibanndögum um 16 hjá skipum, sem fyrir eru. Sagði hann að gera mætti ráð fyrir, að kaupverð hvers þessara skipa verði um 4 milljarðar króna. Miðað við núverandi lánakjör Fiskveiða- og Byggða- sjóðs myndu afborganir og vextir af andvirði hvers skips nema um 580 milljónum króna á ári. Það eru 53% af meðal- aflatekjum togara á ári, en þær eru um 1100 milljónir króna. Sagði hann að rekstur þessara skipa myndi ekki standa undir greiðsluskuldbindingum og verði að ætla að gert sé ráð fyrir fjármagni annars staðar frá. Sagði Kristján, að með smíði þessara skipa væri fyrst og fremst verið að hugsa um hag íslenzkra skipasmíðastöðva, sem ekki standast samanburð við verð á innfluttum skipum. í framtíðinni sagði Kristján, að þyrfti að huga að endurnýjun á bátaflotanum, sem nú væri orðinn gamall. Það yrði ekki gert með því að banna smíði á skipum erlendis, nema ef koma ætti í veg fyrir að einstaklingar ættu og rækju þessi skip. Sjá ræðu Kristjáns Ragnarssonar á blaðsíð- um 16. 17 og 18. Ljósmynd: Kristján E. Stórglæsilegur sigur Víkings Víkingar sigruðu ungverska liðið Tatabanya verðskuldað með 21 marki gegn 20 í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Stórskytta Víkings, Þorbergur Aðalsteinsson, skorar hér eitt af sjö mörkum sínum í leiknum. gjá íþróttir. Áætlun íslenzka járnblendifélagsins fyrir næsta ár: Gert ráð fyrir 4,5 millj- arða króna rekstrarhalla Áætlunin miðuð við verstu hugsanlegar forsendur, segir Jón Sigurðsson JÓN SIGURÐSSON, forstjóri ís- lenzka járnblendifélagsins, stað- festi i samtali við Mhl. í gærdag. að samkvæmt áadlun, sem hefði verið lögð fram á stjórnarfundi fyrirtækisins fyrir skömmu. va>ri gert ráð fyrir 4,5 milljarða króna rekstrarhalla fyrirtækisins á næsta ári, en miðað við sömu forsendur væri hins vegar ekki Dómsmálaráðherra berast stuðningsskeyti víðs vegar að „ÉG IIEF fengið mörg skeyti í dag, þar scm lýst er yfir sam- stöðu með ráðuneytinu í þessu máli.“ sagði Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra í gær. að- spurður um skeytasendingar til hans vegna Gervasoni-málsins. Friðjón sagði að skeytin hefðu borizt víðs vegar að af landinu og í þeim öllum væri lýst yfir stuðn- ingi við ákvörðun hans um að Gervasoni yrði að fara af landinu. Þá gengu fulltrúar nemenda- ráðs Stýrimannaskólans í Reykja- vík á fund ráðherrans L gær og afhentu bréf þess efnis að yfir- gnæfandi meirihluti nemenda í skólanum styddi eindregið ákvörð- un dómsmálaráðherra í máli Ger- vasonis. Nemendurnir óskuðu eft- ir því við fjölmiðla að þeir birtu bréfið. Þeir fengu góðar undirtekt- ir alls staðar nema á Þjóðviljan- um, sem neitaði að birta bréfið. Friðjón Þórðarson skýrði Morg- unblaðinu frá því í gær að Ragnar Aðalsteinsson hrl. hefði að nýju tekið að sér forsjá Gervasonis á meðan hann dvelur hérlendis, en hann afsalaði sér forsjá hans á mánudaginn, eins og fram hefur komið í blaðinu. í fyrrinótt dvöldu 34 stuðn- ingsmenn Gervasonis í biðsal dómsmálaráðuneytisins og göng- um Arnarhvols til að leggja áhéWíu á kröfuna um að Gerva- soni verði veitt hér hæli sem pólitískum flóttamanni. Að sögn lögreglunnar dvöldu 10 manns í ráðuneytinu í gær og um kvöld- matarleytið voru þar 17—20 manns, sem bjuggu sig undir nætursetu. Allt hefur farið frið- samlega fram og árekstralaust. I yfirlýsingu frá Gervasoni, sem Mbl. barst í gær, kveðst hann mótfallinn því að fara til Dan- merkur. Verði hann sendur úr landi, óski hann þess að verða sendur beint til Frakklands, þar sem hann mæti dómurum sínum eins og manneskja. Sjá nánar um Gervasoni-málið á bls. 12. gert ráð fyrir 11 — 1200 milljón króna greiðsluhalla, þvi ekki væri um neinar afborganir af lánum að ra“ða hjá fyrirtækinu á næsta ári. Jón tók fram, að áætlunin væri miðuð við verstu forsendur, sem þeir gætu hugsað sér á næsta ári. — „Það sem vegur þyngst þar, er hið slæma ástand sem nú ríkir á markaðnum, þ.e. stálframleiðsla hefur dregizt mjög saman í Evr- ópu og er verðið því lágt. Inn í dæmið kemur ennfremur lokun annars ofns verksmiðjunnar, en gert er ráð fyrir í áætluninni, að hann komizt í gagnið að nýju í maí á næsta ári. Þá er gert ráð fyrir því, að framleidd verði um 44 þúsund tonn af járnblendi hjá verksmiðjunni, en við venjuleg skilyrði gætum við framleitt um 55 þúsund tonn,“ sagði Jón enn- fremur. „Magnið er hins vegar ekki það sem skiptir okkur mestu máli, heldur er það verðið sem skiptir okkur mestu. Tiltölulega lítil breyting á verðinu til batnaðar gerbreytir þessari mynd,“ sagði Jón Sigurðsson, forstjóri Islenzka járnblendifélagsins að síðustu. Skömmtun raforku til stóriðjufyrirtækja: Tekjutapið 3000 miUjónir á mánuði Drög að lánsfjáráætlun: Erlendar lántökur 145 milljarðar ÞAU DRÖG að lánsfjáráætlun, sem nú liggja fyrir. gera ráð fyrir erlendum lántökum að upphæð um 145 milljarðar króna á næsta ári, sem er um 70% hækkun frá lánsfjáráætlun yfirstandandi árs. Þegar ríkisstjórnin lagði fyrir stuðningsmenn sína drög að lánsfjáráætlun í apríl sl. gerðu þau ráð fyrir erlendum lántök- um að upphæð 94,5 milljarðar króna, en þegar lánsfjáráætlun- in var svo formlega lögð fram á Alþingi 3. maí sl. var gert ráð fyrir erlendum lántökum að upphæð 85,5 milljarðar króna og að lántaka innanlands yrði 53 milljarðar á þessu ári. I þeim lánsfjáráætlunardrög- um, sem stuðningsmenn ríkis- stjórnarinnar hafa nú fengið, er sem fyrr segir reiknað með erlendum lántökum upp á 145 milljarða króna og þar af eru um 50 milljarðar til Landsvirkjunar vegna Hrauneyjafossvirkjunar og um 30 milljarðar til hita- veituframkvæmda. EF SKÖMMTUN rafmagns til ÍSAL, Járnblendiverksmiðjunn- ar og Áburðarverksmiðjunnar verður sú sama í vetur og í fyrra. eins og allt stefnir nú í. verður heildartekjutap verksmiðjanna þriggja samtals tæplega 3000 milljónir króna á mánuði. sam- kvæmt upplýsingum Ragnars Ilalldórssonar forstjóra ÍSAL. Orkuþörf ÍSAL í Straumsvík er 160 megawött. Orkusala til fyrir- tækisins hefur verið skert um 31 megawatt og frekari skerðing blasir við, eða allt niður í 116 megawött. Ef svo fer verður 28% rýrnun á framleiðslu, ál verður framleitt í um 220 kerjum af 320 og framleiðslan fer úr 7000 í um 5000 tonn á mánuði. Heildartekju- tap, tap útflutningstekna, verður 1870 milljónir á mánuði, þar af framlegð um 950 milljónir, þ.e. það sem verksmiðjan hefur til þess að greiða annað en hráefni. svo sem laun og annan kostnað. Eins og fram hefur komið í Mbl. hefur orkusala til Járnblendiverk- smiðjunnar á Grundartanga verið skert um 43 megawött og heildar- tekjutap fyrirtækisins er um 1000 milljónir á mánuði, þar af fram- legð 670 milljónir. Orkusala til Aburðarverksmiðjunnar hefur verið skert um 8 megawött og er heildartekjutap fyrirtækisins um 60 milljónir á mánuði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.